Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 26

Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 26
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBHR 1979. 26 Agnar-STÓR-ögn Agnarögn. Höfundur: Páll H. Jónsson. Myndskreytíng: Þorbjörg Höskuldsdóttir. Iflunn 1979. Það var einu sinni í Paradís að Skaparinn var að búa til tré. Fyrst svolitla anganóru sem náði honum ekki í hné. En það spratt allt svo hratt i Paradís að strax næsta morgun var það orðið mannhæðarhátt og eftir nokkra daga stærðar tré sem gnæfði upp í loftið. Stofninn var svo sver að enginn maður hefði náð utan um hann. Einu sinni var Skaparinn að virða það fyrir sér og athuga hvort hann fyndi nokkur missmíði, sem hann fann auðvitað ekki. Þá kom Eva til hans. — Hvernig líst þér á, Eva litla? sagði Skaparinn. — Finnst þér þetta ekki státið tré? — Ju-ú. En það skyggir á, sagði Eva. —- Skyggir á! Á hvað? — Fallega runnann með öllum stóru rósunum. Hann sést ekki. Skaparinn horfði á tréð og síðan alll í kringum sig og svo á Evu. — Farðu hinumegin við tréð og scgðu mér svo hvað þú sérð, sagði Skaparinn og benti með fallega vísi- fingrinum sínum. Eva gerði eins og henni var sagt. Svo kom hún til Skaparans. ValdísOskarsdóttir — Jæja? Hvaðsástu? — Égsá rósarunnann, sagði Eva. — Ájá! Sástu hann? Þú verður að læra að líta I kring um þig, vina mín, sagði Skaparinn. Þetta er ein af sögum Afa sem hann segir Agnarögn en það er ekki bara Agnarögn sem fær að heyra sögur Afa, heldur njóta krakkarnir í Hverfinu góðs af þeim líka. Bókmenntir Ekki eru allir jafn hrifnir af sögum Afa. Siðapostuli af eigin náð kemur í heimsókn í þorpið til að kynna sér sunnudagaskólann. Hann verður áhyggjufullur vegna allannarlegra hugmynda barnanna um það sem stendur í hinni heilögu bók og heim- sækir Afa. Allt sem stríðir gegn kenningum hins heilaga, innblásna orðs er villutrú, segir siðapostulinn en Afi er ekki sammála. Þetta eru sögur gamals manns, sagðar jafn- ingjum hans, börnunum. Ef til vill er ástæðan fyrir því, hversu listilega góðar bamabækur Páll H. skrifar sú, að hann telur börn jafningja sina. í Agnarögn gerir Páll meira en að skrifa barnabók, hann skrifar bókmenntir fyrir börn og það er harla sjaldséð fyrirbæri í íslenskum barnabókum. Næmt auga Páll hefur ótrúlega næmt auga fyrir börnum, orðbragði þeirra, við- brögðum og tilfinningalífi og samspil Afa og Agnaragnar er aldeilis frá- bært. Afi er hjartahlýr og kíminn heimspekingur sem lætur sér annt um allt í tilverunni. Hann er græðari og fræðari og þeir sem til hans leita Úr Agnarögn, Þorbjörg Höskuldsdótlir teiknaöi. koma aldrei að kofanum tómum. Afi er alltaf aflögufær, hvort sem um er að ræða börn, fullorðna eða trjá- plöntur. Tilfinningar Bókin er mestmegnis í samtals- formi en þrátt fyrir það er sögu- þráðurinn á sínum stað og höfundi tekst betur að koma til skila persónu- leika hvers og eins en með uppskrúf- uðum lýsingum á útliti og innræti. Krakkarnir í HverFmu, gestir sem koma í heimsókn, Agnarögn og síðast en ekki síst Afi, verða bráðlif- andi manneskur með tilfinningar. Ég reiddist og ég gladdist, mér sárnaði og ég varð öskuill. Ég velti vöngum og skemmti mér konunglega yfir sögum Afa og ævintýrum. Það verður ekki ofsögum sagt, að Páll H. Jónsson fer á kostum frá upphafi til enda og feikigóðar teikn- ingar Þorbjargar Höskuldsdóttur auka enn á gæði bókarinnar, því henni tekst svo dæmalaust vel að ná fram andrúmslofti sögunnar. ■■■« | Renoulf 4 van HÆKKANDI BENSÍNVERÐ GERIR RENAULT SÍFELLT HAGSTÆÐARI RÚMGÓÐUR- IVtGILEGUR AÐ VINNA VIÐ - MJÖG SIVLRNEYTINN VIÐGERÐAR OG VARAHLUTAWÓNUSTA RENAULT KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.