Dagblaðið - 10.12.1979, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
EVRÓPUDRAUMUR VÍK-
INGA VARD AÐ MARTRÖD
— Sænska liðið Heim sigraði Víking aftur í Laugardalshöll í gærkvöld, 22-19
Vikin|>ar fóru illa art ráói sínu í gær-
kvöldi í Evrópulciknum gegn Heim í
Laugardalshöll. Léku einn sinn alslak-
asta leik á keppnistimabilinu — héldu
ekki höfði og hátt á þriðja þúsund
áhorfendur urðu fyrir miklum von-
brigðum með úrslit lciksins. Heim
sigraði örugglega, 22—19, og sigraði
Viking því í báðum leikjunum i
Evrópukeppni bikarhafa. Samtals 45—
38. Yfirburðasigur og það fór aldrei
milli mála i gær hvort liðið var sterkara
i leiknum. Allur leikur sænska liðsins
var miklu yfirvegaðri og í markinu stóð
snillingurinn Claes Hellgren. Varði
hreint frábærlega. Víkingar byrjuðu
svo sem nógu vel — náðu fljótl þriggja
marka forskoti og voru reyndar
óheppnir að komast ekki meir yfir. Tvö
slangarskot. En síðan seig á ógæfuhlið.
Villurnar hrönnuðust upp — dauða-
færi misnotuð, enda varla við mann að
eiga þar sem Heilgren var. í heild einn
alslakasti leikur, sem Vikingsliðið
hcfur sýnt hér heima lengi. Sí/t skárri
en lcikurinn í Gautaborg 2. desember,
þcgar Heim sigraði með fjögurra
marka mun, 23—19.
Það var eiginlega l'urðulegl hvað
allur leikur Víkingsliðsins hrundi eflir
hina góðu byrjun. Leikmenn Heim
voru lengi að ná sér á skrið en þegar að
þvi kom hafði maður alllaf á tilfinning-
unni að liðið mundi sigra í leiknum.
L.iðið hefur mjög leikreyndum leik-
mönnum á að skipa. Fjórir leikmenn
liðsins yfir þrilugt og nokkrir aðeins
yngri. Þeir nýtlu vel leikreynslu sína —
léku mjög yfirvegað með óvæntum
fléttum. Mörg skot leikmanna mjög
óvænt. Hraði mikill og sóknarleikurinn
beittur. Markvarzlan í algjörum sér-
flokki — sjaldan eða aldrei hefur
snjallari markvörður leikið hér í
Laugardalshöllinni. Mjög verðskuld-
aður sigur sænska liðsins — en að sama
skapi vonbrigði með hinn slaka lcik
Vikings. Liðið getur miklu meira en
það sýndi i gær. Varnarleikurinn i
molum mest allan leikinn. Markvarzlan
allgóð — cn sóknarnýting slæm. Fjöl-
mörg dauðafæri misnotuð.
Góð byrjun
Þó byrjaði Víkingur svo skinandi vel
í leiknum. Sigurður Gunnarsson og
Páll Björgvinsson skoruðu tvö fyrstu
mörkin. Hans Andreasson minnkaði
ntuninn i 2—1 og Árni Indriðason
svaraði fyrir Víking. Erlendur
Dæmigert atvik frá Evrópuleiknum I gærkvöld. Páll Björgvinsson einn i hraðaupp hlaupi — aðeins Claes Hellgren eftir en
fyrir Heim og rétt áður hafði Hellgren variö vitakast Sigurðar Gunnarssonar og svo af linu frá Steinari Birgissyni.
snillingurinn sænski varði. Staðan 16—15
DB-mynd Bjarnleifur.
Hermannsson var tvivegis óheppinn.
Átti stangarskot. Kristján Sigmunds-
son varði vítakast og Sigurður
Gunnarsson skoraði hinu megin. 4—I
eftir átta mínútur. Sannkölluð óska-
byrjun og áhorfendur voru heldur
betur með á nótunum. Það var ekki
fyrr en tæpar 10 minútur voru af leikn-
um að Heim skoraði sitt annað mark.
Ólafur Jónsson náði aftur þriggja
marka forustu fyrir Víking, 5—2.
Heim skoraði og Páll svaraði. 6—3
eftir aðeins 12 piín. Mikill hraði og
Víkingsliðið lék vel.
En síðan fór ýmislegt að ske —
barnalegar villur. Heim jafnaði i 6—6
og þó varði Kristján aftur víti. Siðan
komu aftur smáviðbrögð hjá Víking —
raunverulega þeirra síðustu í leiknum.
Staðan 8—6 fyrir Víking eftir 18 min.
Sagt eftir Evrópuleik Heim og Víkings:
BETRA LIÐID SIGRAÐI -
ÞAÐ FÓR EKKIMILU MÁLA
—sagði Bogdan Kowalczyk Víkingsþjálf ari
„Betra liðið sigraði — það fer ekki
á milli mála. Claes Hellgren varði
mjög vel. Hann er hálft liðið — en
skyttur Víkings gerðu honum lika
léttara fyrir. Þeir horfðu ekki á hann
og urðu á sömu villur og í Gauta-
borg. Þegar Víkingsliðið var komið i
6—3 var eins og lcikmenn liðsins
ætluðu að vinna strax upp forskotið,
sem Svíar höfðu frá fyrri leiknum.
Vikingsliðið er ágætt en það getur
leikið miklu betur. Það er eins og
leikmenn liðsins viti ekki hvað þeir
eiga að gera, þegar mótstaðan verður
meiri. Það eru mér mikil vonbrigði
að Vikings-liðið skyldi ekki ná sínum
bezta leik, þegar svona mikið var i
húfi — að þeir skyldu ekki sýna
hinum mikla fjölda áhorfenda sínar
beztu hliðar,” sagði Bogdan Kowal-
czyk, þjálfari Vikings, eftir Evrópu-
leik Heim og Vikings í I.augardals-
höll í gærkvöld.
,,Ég er ánægður með úrslitin og
mína menn. Þeir voru betri i leiknum
og unnu verðskuldað. Það var mikill
hraði í leiknum og oft góður hand-
knattleikur. Ég vona að Heim lendi á
móti spánska liðinu Alicante í þriðju
umferð. Nú ef við fáum það ekki þá
er vist hollenzkt lið eftir og einnig
gæti verið ágætt að lenda á móti
vestur-þýzku liðunum Gummersbach
eða Dankersen.
Það eru góðir leikmenn í Vikings-
liðinu — nr. 10 og 4 voru beztir, Þor-
bergur Aðalsteinsson og Ólafur Jóns-
son. Nr. 6, Sigurður Gunnarsson, er
einnig góður leikmaður,” sagði
þjálfari Heim, Stig Johansson, eftir
leikinn.
„Þetta var katastrofa hreint út sagt.
Versti lcikur Vikings í haust — leik-
menn hættu að hugsa i siðari hálf-
leiknum. Þá fórum við illa að ráði
okkar í fyrri hálfleiknum. Áttum hik-
laust að vera þremur fjórum mörkum
yfir,” sagði Árni Indriðason, varnar-
maðurinn sterki i Vikingsliðinu.
„Það er lítið hægt að segja eftir
þennan leik og ég hef enga eina
skýringu á því hvað fór úrskeiðis.
Þetta er með lélegustu leikjum, sem
við höfum leikið. Vörnin vann ekki
saman — allir að puða i sitt hvoru
lagi. Úrslitin eru geysileg vonbrigði
eftir alla þá vinnu, sem liggur að
baki,” sagði Páll Björgvinsson, fyrir-
liði Víkings, eftir Evrópuleikinn.
„Þetta var síður en svo betra en í
Gautaborg fyrra sunnudag og það er
ósköp lítið hægt að segja um þetta.
Það var þó ánægjulegt að sjá þann
mikla fjölda áhorfenda, sem var í
Laugardalshöllinni,” sagði Eysteinn
Helgason, formaður handknattleiks-
deildar Víkings, eftir leikinn.
En leikmenn liðsins héldu ekki haus —
taugaspennan setti þá út af laginu.
Heim jafnaði i 8—8 og Hellgren varði
víti frá Páli. Þá jafnt 9—9 og 10—10 en
á 26. min. komust Sviarnir i fyrsta
skipti yfir í leikpum. Sigurður jafnaði í
II —11 — en þrjú dauðafæri voru
misnotuð. Fyrst Þorbergur, síðan
Magnús Guðmundsson og loks Ólafur.
Alltaf varði Hellgren. Staðan í hálfleik
11—11.
Slakur síðari
hálfleikur
í lok fyrri hálfieiksins var Thomas
Augustsson vísað af leikvelli í tvær
mínútur — reyndar þrisvar i leiknum.
En þó Víkingar væru einum fleiri til að
byrja með fylgdi versti leikkafli þeirra.
Svíar skoruðu fjögur fyrstu mörkin i
hálfleiknum — en Jens Einarssyni,
markverði, var vikið af velli fyrir að
stöðva sóknarmann Svia. Nokkuð
furðulegur dómur. Jens stóð alveg kyrr
og lét Sviann hlaupa beint á sig — en
yfirleitt höfðu þýzku dómararnir
Reichel og Tetens góð tök á leiknum.
Ekki þó alltaf að skapi áhorfenda.
Heim komst í 15—11 og þá var
greinilegt að Evrópudraumi Vikinga
var lokið. Að vísu tókst þeim að
minnka muninn i eitt mark, 16—15
fyrir Heim eftir 42 min. Þrisvar fengu
Víkingar tækifæri til að jafna. Fyrst
varði Hellgren víti frá Sigurði —
Steinar náði knettinum og aftur varði
Hellgren skot Steinars frá línu. Þá
komst Páll einn upp i hraðaupphlaupi.
Átti aðeins við Hellgren en sænski
undramaðurinn varði. Hann hefur
verið Víkingum erfiður — sýnt stórleiki
i báðum Evrópuleikjunum.
Fleiri tækifæri fengu Víkingar ekki
til að jafna. Heim skoraði næstu fjögur
mörk. Komst i 20—15 á 49.mín. Úrslit
ráðin — öruggur sigur Heim. Vikingar
HALLUR
SIMONARSON.
minnkuðu muninn í tvö mörk 21 —19,
en Rolf Brunström skoraði síðasta
mark leiksins fyrir Heim.
Mikil vonbrigði — leikur mikilla
mistaka hjá Víkingi. Flestir leikmenn
liðsins léku langt undir getu. Helzt að
Þorbergur og Sigurður sýndu eitthvað.
Þó meiddist Sigurður á fæti snemma í
leiknum og háði það honum. Þá var
Jens þokkalegur í markinu — Kristján
gerði sér lítið fyrir og varði tvívegis
víti. Áhorfendur, 2427 greiddu inn-
gangseyri svo þeir hafa verið um 2700,
létu vel i sér heyra til að byrja með. En
síðan deyfði slakur leikur Vikings þá.
Á það bættist líka nær algjört lánleysi.
Mörk Víkings skoruðu: Sigurður
5/1, Páll, 4, Þorbergur 4, Steinar 3,
Ólafur 2 og Árni 1. Mörk Heim: Roger
Helgesen, 5, Hans Andreasson 4/3,
Thomas Augustsson 3, Roman
Marciniak 2, lngemar Andersson 2,
Rolf Brunström 2, Gunnar Söderberg
2, Curt Magnusson I og Jan Frankfelt
1.
Víkingar fengu þrjú vítaköst.
Aðeins eitt nýtt. Hellgren varði frá Páli
og Sigurði. Heim fékk 5 vítaköst —
Kristján varði tvívegis. Tveimur
Víkingum var vikið af velli, Jens og
Steinari tvívegis. Eins og áður segir var
Augustsson þrívegis vikið af velli eða í
sex mínútur. Brunström í 2 mínútur.
-hsím.