Dagblaðið - 10.12.1979, Síða 13

Dagblaðið - 10.12.1979, Síða 13
 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER. ... ■" ■ ^ IUIU .J1L ' Manneskjulegir þættir gjaldþrotamáls Breiðholts hf.: NÚ ER NÓG KOMIÐ Tilefni þessara bréfaskrifa minna eru greinar sem birtust í Dagbiaðinu þann 5. nóvember og í Þjóðviljanum þann 15. nóvembersl. Blöðin eru full af fréttum af mönn- um og málefnum. Engum er hlíft og allt er tínt til sem frétt getur talizt. Ég fæ blöðin mjög seint vegna lé- legra póstsamgangna við Spán. Hvort það er nú spænsku póstþjón- ustunni að kenna eða þeirri íslenzku læt ég liggja milli hluta. öll blöðin fæ ég, þ.á m. Þjóðviljann. Dagblaðið fæ ég alltaf sent frá föður mtnum. Þannig er mál með vexti, að ég er sonur Sigurðar Jónssonar, fyrrver- andi forstjóra Breiðholts hf. sem varð gjaldþrota á sl. ári. AUt í sam- bandi við það mál var svo rækilega útlistáð í dagblaðinu Vísi á sínum tíma að svo virtist sem um hreinar of- sóknir væri að ræða. En hvernig væri nú að skyggnast örlitið á bak við tjöldin og líta á aðrar liðar málsins? Fyrst vil ég láta þig vita, lesandi góður, að aðstandendur Sigurðar Jónssonar kyngja ekki öllu. Það skaltu líka vita, að gjaldþrot þetta voru ekki neinir skemmtidagar fyrir fjölskylduna. Nei, þvert á móti. Þetta var algjör martröð, svo mikil að fjöl- skyldan öll, svo og góðir vinir, kvöld- ust dögum, vikum og mánuðum saman. Ófáa dagana var mætt til vinu án nokkurs svefns. Faðir minn, Sigurður Jónsson, hefur látið mikið á sjá. Hann gat ekki sofið svo nóttum skipti. Stundum var mesti kviðinn sá, að kaupa síðdegisblöðin. Maður fann mest þá hvernig það var að vera á milli tannanna á fólki. Dagblaðið Vísir sá um góða framhaldssögu fyrir alþjóð í nokkrar vikur. Var þetta eðUlegt? Fé kippt út úr rekstri Breiðholt hf. var eign fjögurra manna skömmu áður en það varð gjaldþrota. Þá fer að bera á miklum erfiðleikum í rekstri fyrirtækisins. Óeðlilega miklu fé hafði m.a. verið kippt út úr rekstrinum af eigendum þess, ekki Sigurði Jónssyni. Faðir minn vildi staldra við. Hann gerði hinum eigendunum, sem voru á kafi í miklu Nígeríu-ævintýri, það tilboð að þeir hættu og hann tæki einn við rekstrinum með það í huga að minnka umsvif fyrirtækisins vegna versnandi gengis þess. Það var sorg- leg ákvörðun. Fyrri eigendur löbb- uðu út en eftir stóðu skuldir upp á tugi milljóna. Ég er ekki að kasta spjótum að þessum mönnum heldur Eins og banki Breiðholt hf. var ekki glæpafyrir- tæki sem seldi íbúðir á okurverði. Þvert á móti, íbúðir voru seldar á lægra verði en gengur og gerist. Fyrirtækið byggði fjöldann allan af blokkum fyrir láglaunafólk og þegar skelfingin reið yfir lét hæst í þeim sem minnst höfðu efni á því. Ég var sjálfur aðstoðargjaldkeri hjá fyrirtækinu i nokkur sumur. Ég veit að um tíma, á blómaskeiði fyrir- tækisins, var skrifstofan eins og banki. Fólk sem var að kaupa ibúðir hjá fyrirtækinu og hafði lítil auraráð kom mánuð eftir mánuð og fékk framlengda víxla vegna þess að það átti ekki fé. Slíkt var alltaf borið undir föður minn, — hann neitaði einungis að skýra frá staðreyndum. Rekstrinum varð ekki bjargað. Til þess var saumað of mikið að fyrir- tækinu. Dagblaðið Visir og systir þess, Gróa á Leiti, sáu um að al- menningur gat fylgzt með framvindu mála i formi æsifregna svo vikum skipti. Breiðholt hf. reyndi mjög að selja steypustöð sína á þessum tima en tókst ekki. Það eitt hefði leyst nægjanlegan vanda fyrirtækisins til að hægt hefði verið að klóra í bakk- ann og byrja upp á nýtt. aldrei nokkrum manni, aldrei. Ekk- ert af þessu fólki hefur látið þakklæti sitt í ljós. Enginn man lengur góðan greiða. Sumt fólk er fljótt að gleyma slíku. Maður veit svo að margt af þessu sama fólki var fljótt á stúfana og talaði við Gróu og systur hennar, dagblaðið Vísi. Heldur þú, lesandi góður, að fyrrnefndar vixlaframleng- ingar hafi komið Breiðholti hf. til góða? Breiðholt hf. byggði á sínum tíma hundruð íbúða fyrir Verkamannabú- staði í Reykjavík. Samskipti Breið- holts hf. og formanns, gjaldkera og endurskoðanda Verkamannabú- staða. . ., já, þú lest rétt, það var allt sami maðurinn, formaður, gjaldkeri og endurskoðandi sjálfs sin, Eyjólfs K. Sigurjónssonar, verða ætíð minnisstæð. Það getur vel verið, að ég útlisti það nánar síðar i annarri grein, ef þörf krefur. Kvalræði En nú, lesandi góður, ætla ég að koma að kjarna máls mins. Ástæða skrifanna er ekki afsökunarbeiðni, nei. Það getur verið gott að sparka í liggjandi mann, já, ósköp þægilegt. Faðir minn er í dag liggjandi maður. Kvalinn af því að hafa lagt skuld- bindingar á fólk sem ekki átti það skilið. Kvalinn yfir að hafa misst allt sem hann hafði byggt upp fyrir lífið. Móðir min átti erfiða daga en hún sýndi það að hún er hetja. Þau misstu sitt glæsilega heimili með öllu því sem þau höfðu byggt upp sl. fimmtán ár. Móðir mín fór að vinna úti eftir tuttugu og átta ára húsmóðurstarf. Faðir minn var atvinnulaus í marga mánuði og þau áttu ekki fyrir mat. Þá komu hinir sönnu vinir í Ijós. Það gleymist ekki. Loks fékk faðir minn vinnu, eftir mikla leit. Lausráðinn skrifstofumaður við bókhaldsstörf hjá Tryggingastofnun ríkisins og fær hann kr. 280.000á mánuði. Rangar fréttir Maður hélt að nú væri komið að því að hann færi að sjá dagsins Ijós í sortanum og gæti hafið nýtt og betra líf. Öllum getur orðið á í lífinu og er faðir minn einn af þeim ólánsömu mönnum. En ef fólk er ekki þeim 13 "V Kjallarinn Viggó Sigurðsson mun verr innrætt, þá hlýtur það að gefa slikum mönnum tækifæri til að komast i gegnum erfiðleika sina. Maður vonaði og hélt að nú gæti Sigurður Jónsson notið jólanna ásamt fjölskyldu sinni en það er hlutur sem hann hefur ckki getað sl. tvenn jól. — En, nei, ekki alvcg. Dagblaðið birti grein um það, að Sigurður Jónsson hefði verið ráðinn fjármálastjóri hjá Tryggingastofnun rikisins. Þetta sannar mál mitt með hana Gróu kerlingu, hún er enn á sveimi og hefur hvíslað. En blaða- maður góður: Þú sýndir með þessum skrifum að þú ert ekki hæfur i starf þitt. Góður blaðamaður kynnir sér sanngildi frétta sinna áður en hann birtir þær. Þjóðviljinn fór eins að og birti þessa lygagrein úr Dagblaðinu. — Skrýtið að þetta skyldi ekki korna fyrst i Vísi — sennilega hefur verið á tali þegar Gróa hringdi. Mikið hefur verið vegið að föður minum undanfarin tvö ár, sumt á rétt á sér, annað alls ekki. Sjálfur hefur hann kosið að bera ekki hönd fyrir höfuð sér. Það þýðir samt ekki að hann hafi ekki sínar tilfinningar. Það skaltu hafa í huga. Barcelona 23. uós ',9. Vigtió öigurðsson huudknattleiksmaður Lögfræðingar eru áberandi stétt í þjóðfélaginu og gegna mikilvægu hlutverki i þvi að gæta laga og réttar. Oft eru þessi störf vanþakklát og óvinsæl en þau verður að vinna. Langflestir þeirra, er til þessa starfa veljast, eru vandaðir menn og gæta þess vel að gera aðeins skyldu sína. Þessir menn njóta yfirleitt virð- ingar samborgara sinna og oft eru laun þeirra skorin við nögl. Margir telja að lögfræðimenntun sé haldgóð undirstaða fyrir þátttöku i stjórnmálum og víst er það að margir stjórnmálamenn eru og hafa verið lögfræðingar. Hitt er svo annað mál að farsæld í stjórnmálum er á engan hátt tengd þessari menntun. Dómar núverandi dómsmálaráðherra um lögfræðinga- stéttina eru sleggjudómar og honum ekki til sóma. Hitt er svo annað mál að misjafn sauður er i mörgu fé og verður komið að þvi siðar. Á þjóðveldistimanum voru lög- fróðir menn í miklum metum, og er Njáll á Bergþórshvoli þeirra fræg- astur, en þá, eins og nú, var misjafn sauður í mörgu fé og voru sumir þessara manna illa þokkaðir eins og til dæmis Mörður Valgarðsson. Á síðari tímum voru svo settir lög- fróðir menn, er iært höfðu í dönskum skólum, til að gæta laga og réttar og voru þeir nefndir lögmenn. Að því kom svo að lögfróðir menn urðu að afla sér réttinda til að flytja mál fyrir dómi og voru þeir nefndir málflytjendur eða málflutningsmenn. Fínt skal það vera Hér á landi eru dómstigin tvö, undirréttur, eða héraðsréttur, og Hæstiréttur. Af einhverjum undarlegum ástæðum tóku þeir er öðluðust rétt til málflutnings fyrir undirrétti sér nafnið lögmaður, héraðsdómslög- maður. Hinir voru nefndir mál- flutningsmenn sem er auðvitað alveg rétt. í Danmörku, sem flestar fyrir- myndir í dómkerfinu hér eru sóttar til, eru þessir menn nefndir mál- flutningsmenn, sagförer. Þegar islenzkir lögfræðingar, þ.e. „praktiserandi” lögfræðingar sem flestir hafa að aðalstarfi að rukka inn skuldir, stofnuðu með sér stéttarfélag var úr vöndu að ráða. Þeir sem voru lægra settir höfðu komið sér upp fínna nafni. Lögmenn hétu þeir en hinir aðeins mál- flutningsmenn. Þetta gekk auðvitað ekki og félagið fékk nafnið Lögmannafélag íslands. Og auðvitað urðu hæstaréttarmál- flutningsmennimir að heita hæsta- réttarlögmenn. Og til að undirstrika mikilvægi þessa alls komu „lögmennimir” sér upp sérstökum dómstól innan félagsins. Samkvæmt „lögum” sem þeir hafa sett ber að draga brotlegan félagsmann fyrst fyrir þennan „dóm- stó!” áður en hið almenna réttarkerfi kemur til sögunnar, a.m.k. í vissum tilvikum! Ef þessi „dómstóll” leysir mál viðkomandi manns með einhverjum hætti er ekki ætlazt til að málið gangi lengra. Löglærðir menn í landinu hafa með sér a.m.k. 4 félög: dómarafélag, dómarafulltrúafélag, lögfræðinga- félag, en aðeins í því síðastnefnda, Lögmannafélagi íslands, eru lög- menn! Alfa og omega Fyrir nokkrum árum þótti titillinn Höjesterætsagförer eitt fínasta og virðulegasta starfsheitið í Danmörku. Menn sem báru þennan titil voru virtir í bak og fyrir og orð þeirra þóttu gulls igildi. En skyndilega spakk blaðran. í Ijós kom að meðal þessara manna var stór hópur skúrka, braskara, skattsvikara og fjárplógsmanna. Þessir menn komu óorði á alla stéttina svo að nú þykir þetta starfsheiti heldur lítilla sæva. í tilefni af þessum hneykslismálum í Danmörku ritaði norskur sálfræð- ingur ritgerð þar sem hann reyndi að skilgreina sálarlíf lögfræðinga. Hann komst að þeirri niðurstöðu að lögfræðingastéttin væri í rauninni að upplagi rétt eins og annað fólk. Hins vegar væri menntun hennar á þann veg að hún fjallaði að miklum hluta um fjármuni, lausa og fasta, vörzlu þeirra og viðgang. Þegar þeir svo hæfu störf yrðu peningar alfa og omega í lífi þeirra. Þeita væri skýringin á því hve margir þeirra væru harðdrægir og óhlifnir í fjár- málum. Óáran — meiri peningar Eins og áður segir hafa margir „lögmenn” það að aðalstarfi að annast innheimtur og margir sýsla við fasteignasölu. Aðrir ávaxta fé fyrir sjálfa sig og aðra og svo eru enn aðrir sem hafa málflutning að aðalstarfi. Flestir eiga þessir menn það sam- merkt að aukin óáran í þjóðfélaginu eykur tekjur þeirra: missætti og óhöpp sem valda málaferlum, hjóna- skilnaðir í vaxandi mæli, aukin eftir- spurn eftir peningum og síðast en ekki sízt vaxandi greiðsluerfiðleikar fólks sem m.a. má rekja til óðaverð- bólgu og umsvifa fjáraflamanna. Það er ömurlegt hlutskipti fyrir „Iögmennina” i landinu að vaxandi fjárhagsörðugleikar almennings skuli auka tekjur þeirra í ríkum mæli; að þeir skuli þiggja laun sín úr hendi þeirra er verst eru staddir og verða að sjá á eftir eignum sinum á uppboð eða með öðrum hætti. Það er ömurlegt til þess að hugsa að það skuli vera, að vísu ekki lög- menn heldur lögfræðingar, sem hafa haft mest með efnahagsmál að gera i landinu síðustu áratugi og að þeim skuli hafa mistekizt svo hrapallega, en það eru ekki þeir sem fieyta rjóm- ann ofan af heldur fínu mennirnir i stéttinni, „lögmennirnir”. Kjallarinn Páll Finnbogason Sjálfdæmi Auðvitað er Ijúft og skylt að geta þess að þessir menn eiga auðvitað að fá fyrir vinnu sína ogenginn ætlast til annars. En taxtar þeirra cru þviira eigin mál. Þeir þurfa ekki að scmja við neinn eða bera þá undir neina verðlagsnefnd. Þaðcr lika þcirra ntál hvað þeir telja frant til skatts. „Vinnuveitendur” þeirra eru að verulegum hluta fólk sem ekki telur fram til skatts launin þcirra, enda tilgangslaust þvi að þau eru ekki frá- dráttarbær til skatts. Það óhugnanlegasta við þctta allt saman er það að „lögmenn” verð- leggja ekki vinnu sina með sama hætti og aðrir þegnar þjóðfélagsins, nema áð takmörkuðu leyti. Það er auðvitað nákvæmlega sama vinna að innheimta skuld hvort sem hún cr 50.000 eða ein milljón. En þóknunin er margföld! Jafnvel tannlæknar komast ekki með tærnar þar sem „lögmenn” hafa hælana í timakaupi. Þótt skrifa mætti langt mál um störf ýmissa „lögmanna” er þó rétt að gcta þess að margir þeirra eru mjög sann- gjarnir menn og margir góðir drengir cru í þessum hópi. Sjálfsagt hefðu flestir hinna orðið það lika ef þeir hefðu ekki gleypt af slíkri ákefð þann kínalifselixír sem norski sálfræðingurinn gerði að umtalsefni. Páll Finnbogason £ „Jafnvel tannlæknar komast ekki með tærnar þar sem „lögmenn” hafa hælana i tímakaupi.” J V

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.