Dagblaðið - 10.12.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
15
Óvenjulegur
heimur
í bókarkynningu frá Iðunni segir,
að Gvendur bóndi sé flokkuð með
barnabókum en i rauninni hafi allir
mikla ánægju af þessari spaugilegu
sögu Tolkiens. Þetta má vissulega til
sanns vegar færa.
Tolkien er þekktastur hér á landi
fyrir þrennuna „Lord of the Rings”,
sem margir — sérstaklega af yngri
kynslóðinni sem læsir eru á enska
tungu — hafa lesið, og bókina
„Hobbit”, sem komið hefur út í is-
lenskri þýðingu.
Ég ætla ekki að rekja söguna en
hvet fólk til að kynnast þeim Gvendi
bónda, Garmi hundinum hans, konu
Gvendar, kónginum og raunar drek-
anum lika. Það er vandi að þýða bók
sem þessa. Höfundurinn notar
„óvenjulega” ensku í öllum bókum
sinum. Ég álit að Ingibjörg hafi kom-
ist mjög vel frá þýðingunni og hcfur
Iðunn mcð útgáfu þessarar bókar
aukið á val ágætis lesefnis. Það er
ánægjulegt að sjá góðar bækur innan
um Strumpasúpur og annað lap.
DB-mynd HörAur.
Hlébarðinn er eftir danskan
höfund, Cecil Bödker, og er hann
frægur á Norðurlöndum fyrir bók
sína um Sílas og svarta hestinn, sem
einnig hefur komið út á íslensku.
Hlébarðinn gerist i Afríku og segir
sagan frá drengnum Tíbeso, sem
ótrauður leggur til atlögu við ógn-
valdinn, sem rænir nautpeningi
þorpsbúa. íslenzkur lesandi kynnist
við lestur bókarinnar umhverfi og
lífsháttum, sem honum eru fram- *
andi. Spurningin er, hvort cfni
bókarinnar er afrikönskum lesendum
ekki lika framandi. En sú spurning
skiptir okkur líklega ekki máli.
Atburðarás sögunnar er hröð og
bókin þannig samansett, að hún er
líkleg til að halda athygli lesandans
fanginni. Letrið er í smærra lagi og
mikið lesmál á hverri siðu.Bókin
gerir þvi nokkrar kröfur til lestrar-
getu. Ráð við „lesþreytu” er að sjálf-
sögðu að lesa kafla bókarinnar fyrir
barnið eða unglinginn sem þreytist
við lesturinn. Kemst þá efnið til skila
án þess að lesanda sé ofboðið.
Þýðandi hefur leyst starf sitt vel af
hendi, málið er gott og tungutakið
liðlegt.
Bryndís Vígiundsddttir
Faðir í Síberíu
Öll er atburðarásin í bókinni I
föðurleit nokkuð með ólikinduin. Er
óhætt að fullyrða, að hún gerir all-
miklar kröfur til trúgirni lesandans.
En þó tel ég það ekki löst á bókinni.
Drengurinn Pétur, 14 ára, er heill
i hugsun. Honum þykir mjög vænt
um föður sinn Sergei Andrejevits og
fylgir eftir áselningi sinum að finna
föður sinn, sem scndur hcfur verið i
refsivist til Siberiu sökum óhappa-
verks.
Drengurinn — og lesandinn —
kynnist fjölda fólks, eftirminnilegu
fólki af margvíslegri gerð. Maður
kynnist í sögunni fólki þeirrar gerðar.
að maður vildi helst kynnast þvi
betur. Þar er lika fólk sem kallar
fram andstæðar hugsanir.
Nokkuð er um klaufalegar setn-
ingar i bókinni, sem auðveldlega
hefði mátt laga með betri aðgát.
Þrátt fyrir þetta mæli ég með þessari
bók. Hugarfar margra sögupersóna
bókarinnar Í föðurleit yfirskyggir
það, sem betur hefði mátt fara varð-
andi málið.
Börn á bókasafni.
DYROG
Hlébarðinn
Höf.: Cecil Bödker
Þýö.: Margrót Jónsdóttir
Útg.: löunn, 1979
í fööurieit
Höf.: Jan Terlouw
Þýö.: Ámi Blandon Einarsson og Guöbjörg
Þórisdóttir
Útg.: löunn, 1979
Gvendur bóndi á Svinafelli
Höf.: J.R.R. Tolkien
Þýö.: Ingibjörg Jónsdóttir
Útg.: löunn, 1979.
Bék
menntsr
Helmingi meira at-
vinnuleysi í nóv-
ember en í október
Siðasta dag nóvembermánaðar voru
549 íslendingar á atvinnuleysisskrá.
407 þeirra búa í kaupstöðum, 8 í kaup-
túnum með yfir 1000 íbúa og 134 í
smærri sveitarfélögum. Ástandið i at-
vinnumálunum var næstum helmingi
betra á sama degi fyrra mánaðar. Þá
voru 295 Islendingar á atvinnuleysis-
skrá.
Atvinnuleysisdagar í nóvembermán-
uði voru samtals á öllu landinu 7516 en
voru 3428 í október.
í Reykjavik var atvinnuleysið mest i
nóvember, alls 2lll atvinnuleysis-
dagar. Næst kom Hafnarfjörður með
905 atvinnuleysisdaga og í þriðja sæti
var Sauðárkrókur með 462 atvinnu-
leysisdaga. Engir atvinnuleysisdagar
voru greiddir til 7 af 22 kaupstöðum á
landinu.
í kauptúnum með yfir I000 íbúa, en
þau teljast átta, voru aðeins skráðir at-
vinnuleysisdagar í tveimur. Sauðár-
krókur var með 42 daga og Þorláks-
höfn með 26 daga.
i öðrum kauptúnum var atvinnu-
leysið mest á Stokkseyri, 363 dagar,
354 dagar á Þórshöfn, Eyrarbakka alls
472 dagar. í öðru sæti var Stokkseyri
með 363 daga, Þórshöfn með 354 daga,
Hofsós með 27I dag, Raufarhöfn með
199 daga og Skagaströnd með 151 dag.
Enginn skráður atvinnuleysisdagur var
i 18 af 35 stöðum sem teljast til þessa
kauptúnaflokks.
- A.St.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 — Simi 15105
NYKOMIÐ
REKKI
1
ALLT A EINU BRETTI
Magnari, útvarp með öllum
bylgjum, segulband, plötuspilarí,
tveir hútalarar og borð undir tœk-
ul Hvað meira?
VERÐ AÐEINS KR. 599.00C
SKIPHOLT119 SÍMI29800.
Koparin
síviisæli
mættur í
glæsilegu úrvali
í gjafavörudeildina