Dagblaðið - 10.12.1979, Qupperneq 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Gott hjá
júdómönnum
Heimsmeistaramótinu í júdó lauk í
París um helgina. Fjórir íslen/.kir
keppendur tóku þátt í mótinu og var
árangur þeirra betri en búast mátti við
fyrirfram. Bjami Friðriksson féll út í 1.
umferð á fimmtudaginn í sinum flokki
og um helgina kepptu hinir íslenzku
keppendurnir.
Halldór Guðbjörnsson sigraði
Indónesann Gunway Hadidjada áður
cn hann féll út fyrir Rússanum
Kharbarelli. Sigurður Hauksson
sigraði Eric Bessi frá Ítalíu áður en
hann var sleginn út af Brasilíu-
manninum Carmona.
Laugdælir
sigruðu
Tveir leikir fóru fram í 1. deildinni í
blaki um helgina. Fyrst áttust við
Laugdælir og Eyfirðingar og unnu
heimamcnn þar öruggan sigur, 3—1.
Fyrsth' hrinuna unnu Eyfirðingar«þó
15—12 en síðan ekki söguna meir.
Laugdælir unnu 15—5,15—5 og 15—8
og tryggðu sér öruggan sigur. Beztur
hjá þeim var Samúel Örn Erlingsson,
sem átti stórleik. Þá var Leifur Harðar-
son sterkur.
í gær léku síðan ÍS og Eyfirðingar.
Þrátt fyrir að norðanmenn tjölduðu
öllu til sem þeir áttu — náðu m.a. í Jón
Steingrímsson norður en hann gat ekki
leikið með gegn Laugdælum daginn
áður — töpuðu þeir stórt, 0—3. ÍS
vann allar hrinurnar nokkuð öruggt,
15—4, 15—4 og 15—12. í síðustu
hrinunni sýndu Eyfirðingarnir loksins
aðeins hvað í þeim bjó og leiddu m.a.
7—1 og 9—5. Allt kom þó fyrir ekki og
þeir sitja nú einir og yfirgefnir á
botninum.
i 1. deild kvenna sigraði ÍMA
UMFL í hörkuleik á Laugarvatni.
Hrinurnar fóru þannig (UMFL á
undan) 17—15, 13 —15, 3—15, 15—9
og 7—15. Þá sigraði ÍS ÍMA 3—1 í I.
deild kvenna í gær. 15—10, 11 —15,
15—1 og 15—9.
Þá hafa okkur borizt úrslit úr leik
Völsungs og ÍMA í 2. deild karla, sem
fram fór um lyrri helgi. ÍMA vann 3 —
1 og fóru hrinurnar þannig: 16—14,
15—4, 12—15 og 15 — 12.
Staðan í deildunum er nú þannig
cftir helgina 1. deild karla
Laugdælir 7 6 1 20—7 12
Þróttur 5 4 1 12-L-7 8
Víkingur 5 2 3 9—11 4
is 6 2 4 10—13 4
UMSE 7 1 6 7—20 2
'VÖlsufigúr, 2. deild karla
.5 4. 1 13—8 8
ÍMA *V*J. 1 •*)—4 6
Fram 5 3 2 12—8 6
Þróttur, Nk 3 1 2 4—7 2
Breiðablik 202 2—6 0
KA 3 0 3 2—9 0
1. deild kvenna
Vikingur 3 3 0 9—4 6
ÍMA 3 2 1 7—5 4
ÍS 3 2 1 8—6 4
Breiðablik 3 1 2 7—6 2
UMFL 3 0 3 2—9 0
Þróttur 1 0 1 0—3 0
Tvöfalthjá
Rússum
Sovétmenn unnu bæði karla og
kvennaflokkinn á heimsmeistaramót-
inu í fimleikum, sem fram fór í Fort
Worth í Texas í Bandarikjunum um
helgina. Alexcnder Ditiatin vann
Bandaríkjamanninn Curt Thomas
mjög naumlega I baráttunní um efsta
sætið Ditiatin hlaut 118,250 stig en
Thomas 117,875. Þriðji varð Sovét-
maðurinn Tkachtev með 117,475 stig.
Á síðasta heimsmeistaramóti i fim-
leikum varð Thomas sjötti i röðinni og
árangur hans undirstrikar hina öru
þróun fimleikanna i Bandaríkjunum.
Sovézka stúlkan Nelli Kim sigraði
cinnig mjög naumlega i kvennaflokki
en Nadia Comaneci gat ekki keppt þar
nema i einni grein áður en hún varð að
leggjast á sjúkrahús vegna ígcrðar í
hendi. Hún mun vera á batavegi en
ígerðin kostaði hana titilinn. Kim hlaut
78,650 stig fyrir greinarnar 8 en Maxi
Gnauck frá A-Þýzkalandi hlaut 78,375
stig. Þriðja varð Melita Ruhn frá
Rúmeniu með 78,325 stig.
Janus gerír það gott
hjá Fortuna Köln
— Liðið er í þriðja sæti í 2. deildinni
„Þetta hefur gengið prýðilega hjá
mér að undanförnu. Ég hef leikið sjö
siðustu leikina með Fortuna Köln eftir
að hafa misst úr nokkra leiki vegna
meiðsla. Fortuna vann góðan sigur á
heimavelli á laugardag og liðið er nú í
3ja sæti í 2. deildinni,” sagði lands-
liðsmaðurinn kunni í knattspyrnunni,
Janus Guðlaugsson, þegar DB ræddi við
hann í gær. Janus gerðist atvinnuknatt-
spyrnumaður í Vestur-Þýzkalandi í
sumar og hefur fengið gott orð fyrir
frammistöðu sína þar. Einn albezti
knattspyrnumaður okkar íslendinga.
„Ég er aftasti maður varnar
Fortuna Köln — stopper — sem þýðir
að maður fær að keppa við góða
leikmenn. Miðherja mótherjanna, sem
eru sterkir leikmenn. Hér þekkist yfir-
leitt ekki annað en stíf dekking —
maður á mann. Harka nokkur. Ég fer
af og til i sóknina og sáralitlu munaði
að ég skoraði á laugardag. Átti skalla á
mark Lyuttentheid en markvörðurinn
varði hreint á frábæran hátt. Fortuna
sigraði í leiknum, 3—1. Leikið var í
Köln. Um fyrri helgi lékum við á úti-
velli við Hannover 96 og þar voru 38
þúsund áhorfendur. Mikilvægur leikur
ogjafntefli, 1 — 1.
Bielefeld er í efsta sæti i 2. deildinni,
Janus Guðlaugsson gerir það gott hjá
Fortuna Köln.
Spánverjar
til Rómar
Spánverjar tryggðu sér farseðilinn til
Rómar um helgina er þeir sigruðu
Kýpur, 3—1, í síðasta leiknum í 3. riðii
Evrópukeppni landsliða. Mörk Spán-
verja skoruðu þeir Villar, Santillana og
Saura.
Lokastaðan í riðlinum varð þessi:
Spánn 6 4 11 13—5 9
Júgóslavía 6 4 0 2 14—6 8
Rúmenía 6 2 2 2 9—8 6
Kýpur 6 0 1 5 2—19 1
Grískir í
verkfall
Grískir knattspyrnumenn fóru í
verkfall um helgina til að leggja aukna
áherzlu á kaupkröfur sínar. Vegna
þessa féllu allir knattspyrnuleikir niður
á Grikklandi um helgina. Sýnu verst
kemur verkfallið niður á Aris Saloniki
sem á að leika gegn St. Etienne í
UEFA-bikamum á miðvikudag. St.
Etienne vann fyrri leikinn 4—1 og
Saloniki ætlaði að ieika æfingaleik um
helgina. Ekkert varð úr og vilja for-
ráðamenn félagsins halda því fram að
verkfallið hafi svipt liðið endanlegum
möguleikum í keppninni.
þeirri deildinni, sem Fortuna Köln
leikur í.2. deildinni er tvískipt. Efstu
liðin í hvorri deild komast beint í
Bundeslíguna, 1. deild, en liðin, sem
verða i öðru sæti, keppa innbyrðis og
það sem sigrar kemst í Bundeslíguna.
Bielefeld er með 29 stig. Hannover 96
er í öðru sæti með 26 stig og Fortuna
Köln í þriðja sæti með 25 stig. Næsta
laugardag verður 19. umferðin og
keppnin þá hálfnuð. 20 lið í deildinni.
Það er því mikið eftir. Fortuna Köln
hefur náð góðum árangri á heimavelli
— aðeins tapað þremur stigum í 10
leikjum. Eitt tap og eitt jafntefli en
Þróttar-Skot-
inn kominn
Skozki knattspyrnumaðurinn Harry
Hill, sem mun leika með 1. deildarliði
Þróttar næsta sumar, kom í síðustu
viku hingað til lands. Hill mun einnig
þjálfa einn til tvo af yngri flokkunum í
Þrótti.
Hill, sem er 23ja ára, lék áður með
Hereford, sem er í 4. deildinni ensku.
Lék þar 3—4 leiki með aðalliðinu.
Hann hafði áhuga á að koma til islands
— hefur lengi þekkt Helga Þorvalds-
son, stjórnarmann í Þrótti. Hill er
tæknimaður og hefur fengið atvinnu i
Stálsmiðjunni. Ekki þarf að efa að
hann mun styrkja Þróttar-liðið næsta
sumar.
sigrar í átta leikjum. Stærsti sigur
okkar er þó á útivelli. Fortuna Köln
sigraði Osnabrúck með 7—0.
Mér likar prýðilega hér í Köln en
meiðslin settu þó strik í reikninginn um
tíma. Ég hef þó leikið 14 leiki með
Fortuna og það var mikið um að vera
fyrir nokkru. Þá lék ég fjóra leiki á átta
dögum,” sagði Janus ennfremur. Þess
má geta að Janus er lærður íþrótta-
kennari.Hann er innritaðuri iþróttahá-
skólann í Köln, sem nokkrir Islending-
ar hafa stundað nám í. Janus mun þó
ekki hefja þar nám strax en sem
stendur er hann á námskeiði hjá þýzka
knattspyrnusambandinu.
,,Ég held að síðari hluti keppnis-
tímabilsins verði mjög spennandi i 2.
deildinni. Við eigum eftir að leika við
öll éfstu liðin í deildinni á heimavelli og
það verður áreiðanlega mikil keppni að
komast í Bundeslíguna.”
Hefurðu séð Tony Woodcock leika
með FC Köln?
„Já, ég sá hann á laugardag, þegar
Köln sigraði Werder Bremen, liðið sem
Teitur Þórðarson var hjá á dögunum,
4—1. Woodcock skoraði ekki í
leiknum en þar fór greinilega snjall
leikmaður. Það er skrifað um það í
blöðin hér að hann þurfi nokkurntíma
til að aðlagast aðstæðum hér — það
þurfi að gefa honum tækifæri en ekki
reikna með alltof miklu strax. Ég hef
trú á þvi að Woodcock eigi eftir að gera
góða hluti hér í Köln,” sagði Janus að
lokum.
-hsím.
Ótrúlegir yfir-
burðir Víkings
—er Grindavík var tekin í karphúsiö
Vikingur og Grindavík léku í íslands-
mótinu í 1. deild kvenna í handknatt-
leik i Laugardalshöll i gærkvöldi.
Vikingur sigraði með yfirburðum, 28
Staðan í
1. deild kvenna
Staðan í 1. deild kvenna er þannig
eftir leiki helgarinnar:
Fram — KR 16—9
Valur—Haukar 16—15
Þór— FH 19—20
Víkingur — Grindavík 28—5
Fram
KR
Haukar
Valur
Víkingur
í»ór
FH
Grindavik
0 0
0 0 97—55
0 1 85—55
0 2 79—74
0 2 82—79
0 3 88—73
0 3 84—85
0 4 72—102
46—110
Markhæstareru:
Margrét Theódórsd, Haukum
Guðríður Guðjónsdóttir, Fram
Kristjana Aradóttir, FH
Hansína Melsteð, KR
Ingunn Bernódusdóttir, Vik.
Sjöfn Ágústsdóttir, Grindav.
Harpa Guðmundsdóttir, Val
Eiríka Ásgriipsdóttir, Víkingi
Magnea Friðriksdóttir, Þór
Dýrfinna Torfadóttir, Þór
mörk á móti 5 þeirra grindvísku. Þetta
er ótrúlegt — en satt. 1 'vað er svona lið
að gera í 1. deild. — Ég spyr?
Leikurinn var mjög lélegur á að
horfa. Staðan í hálfleik var 15—3 fyrir
Víking. Grindavíkurliðið skoraði ekki
fyrr en tólf mínútur voru liðnar af hálf-
leiknum. Þá var Sjöfn Ágústsdóttir á
ferðinni og skoraði. En þá hafði
Víkingur skorað 8 mörk. Síðan skoraði
hún næstu tvö mörk fyrir lið sitt,
Grindavík, 8—2 og 9—3, Víkingi í vil.
Víkingsstelpurnar skoruðu hvorki
meira né minna en fimmtán mörk í
þeim seinni., — en Grindavík aðeins
tvö. Þó svo að Grindavíkurliðið hafi
tapað svona stórt, má ekki kenna
markmanni liðsins hvernig fór. Hún er
mjög góð í markinu og er greinilega i
röngu liði. Ef stöllur hennar í liðinu
væri eins og hún væri staðan hjá þeim
kannski ekki svona hroðaleg.
Víkingur er nú að þokast frá
botninum og er kominn með 4 stig eftir
fimm leiki. Lið Grindavíkur hefur
einnig leikið fimm leiki og enn hefur
þaðekkert stig fengið.
Mörk Víkings skoruðu Iris Þráins-
dóttir 11/2, Eiríka Ásgrimsdóttir 7,
Sigrún Olgeirsdóttir 2, Anna Björns-
dóttir, Ingunn Bernódusdóttir og’
Guðrún Sigurðardóttir 2 mörk hver og
Vilborg Baldursdóttir 1.
Mörk Grindavíkur: Sjöfn Ágústs-
dóttir 3, Svanhildur Káradóttir og
Ágústa Gísladóttir I hver.
-HJ.
Víkingur-Grindavík 28-5 (15-3)
íslandsmótið 1. daild kvenna i handknattleik. Víkingur-Grindavík 28—5 (15—3) í Laugardals-
höll, sunnudaginn 9. desember.
Bextu leikmenn (hœsta einkunn 10) Iris Þráinsdóttir Vikingi 8, Eirika Ásgrimsdóttir Vikingi 7,
Jóhanna Guðjónsdóttir Vikingi, 6, Hlín Baldursdóttir Vikingi 6, Rut Óskarsdóttir Grindavík 5.
Víkingur Jóhanna Guðjónsdóttir, Hlin Baldursdóttir, Sigurrós Bjömsdóttir, Anna Bjöms-
dóttir, Ingunn Bemódusdóttir, iris Þráinsdóttír, Eiríka Ásgrímsdóttír, Sigrún Olgeirsdóttir,
Vilborg Baldursdóttír, Guðrún Sigurðardóttír, Svoinbjörg Halldórsdóttír og Hildur Amardóttir.
Gríndavík. Rut Óskarsdóttír, Svanhildur Káradóttír, Ágústa Gisladóttír, Sjöfn Ágústsdóttír,
Ingunn Jónsdóttír, Ásrún Karísdóttír, KrístóHna Ólafsdóttír, Runný Danielsdóttir, Berglind
Demundsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og María Jóhannessdóttir. Dómarar Pétur Guðmundsson
og Brynjar Kvarán.
Ársæll Sveinsson svifur hér á eftir knettin
ölium likindum leikið sinn siðasta leik með
Lokstai
—fyrstatapiö
Loks kom að þvi að Pétur Pétursson
og félagar hans hjá Feyenoord töpuðu
leik i hollenzku 1. deildarkeppninni.
Um helgina lék Feyenoord gegn Roda
JC Kerkrade á útivelli og mátti þola
0—1 tap. Var þetta fyrsta tap
Feyenoord i um 40 deildaleikjum í röð
og jafnframt fyrsti tapleikur liðsins í 1.
deildarkeppninni allt frá þvi Pétur
Pétursson gekk til liðs við félagið í
fyrrahaust.
Úrslitin í Hollandi urðu sem hér
segir.
Tvö stig t
Það var greinilegt að Þróttarar
ætluðu sér ekki að tapa báðum leikjun-
um á Akureyri um helgina, þeir sigruðu
Þór 24—22 eftir að hafa leitt 13—10 í
hálfleik. Þróttur komst í 7—1 í byrjun
leiksins og eftir það var aldrei um neina
verulega keppni að ræða. Þór tókst þó
að jafna metin i siðarí hálfleiknum og
meira að segja að komast yfir, 15—14,
en síðan datt botninn úr öllu.
Þróttur seig fram úr og sigraði 24—
22. Ólafur H. Jónsson, Sigurður
Sveinsson og Sigurður Ragnarsson i
markinu áttu allir góðan leik svo og
Magnús Margeirsson á línunni. Harð-
skeyttur línumaður þar. Þórsliðið var
mjög jafnt í leiknum en hefur nú tapað
öllum 4 leikjum sínum í 2. deildinni og
útlitið allt annað en bjart.
Mörk Þórs: Sigurður 6, Árni 3,