Dagblaðið - 10.12.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
23
3ttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
um með miklum tilþrifum. Hann hefur að
Eyjamönnum — i bili a.m.k.
Bræðurnir Ársæll og
KaH til Jönköping
—Eyjamenn missa enn einn máttarstólpann úr liði sínu
„Jú, ég fer út á þriðjudag og mun
þá kíkja á aðstæður hjá Jönköping,”
sagði markvörður þeirra Eyjamanna,
Ársæll Sveinsson, er DB hafði
samband við hann seint í gærkvöld og
spurðist fyrir um hvort það væri rétt
að hann væri að yfirgefa Eyjamenn.
„Mér var boðið út til félagsins og ég
mun dvelja þar í tæpa viku. Karli
bróður mínum, sem lék með 3. deildar-
félagi i Svíþjóð i sumar hefur einnig
verið boðið til félagsins. Það er ekkert
ákeðið í þessu ennþá, en vissulega er á-
hugi fyrir hendi af minni hálfu.”
Ekki þarf að efa að Jönköping geri
þeim bræðrum tilboð því um góða
knattspyrnumenn er að ræða. Ársæll
sýndi stórkostlega leiki á milli stang-
anna hjá Eyjamönnum í 1. deildar-
keppninni og þáttur hans í óvæntum
sigri ÍBV í 1. deildinni var ekki svo
lítill. Aðeins óheppni kom í veg fyrir að
Ársæll fengi að spreyta sig með ísl.
landsliðinu í sumar, en hann var valinn
í landsliðshópinn í haust. Karl, bróðir
Ársæls, hélt til Svíþjóðar sl. vor og
hefur líkað vistin þar vel. Hins vegar
hefur liðið sem hann leikur með ekki
náð neitt sérstökum árangri og Karl
hefur áhuga á að reyna fyrir sér hjá
stærra félagi. Karl var einn af lykil-
mönnum Eyjaliðsins sumarið 1978.
íslendingar eru ekki með öllu
ókunnir hjá Jönköping. Þeir Árni
Stefánsson og Jón Pétursson léku báðir
með liðinu um nokkurt skeið en hafa
nú báðir yfirgefið félagið. Árni mun
leika með 1. deildarfélaginu Lands-
krona en Jón mun leika með Fram hér
heima næsta sumar. Þá hóf Teitur
Þórðarson feril sinn i Svíþjóð hjá Jön-
köping'en þaðan lá leið hans til Öster.
Greinilegt er á öllu að forráðamenn
Jönköping hafa góða reynslu af
íslenzkum knattspyrnumönnum og
leita því hingað þegar félagið þarf á
góðum knattspyrnumönnum að halda.
Vissulega góð auglýsing en það eru að
sjálfsögðu tvær hliðar á öllum málum.
Fari svo að Ársæll semji við
Jönköping, sem verður að teljast ákaf-
lega líklegt hafa Eyjamenn þar með
misst þriðja máttarstólpann úr sigur-
liðinu frá í sumar.
Örn Óskarsson, hinn baráttuglaði
3 hjá Feyenoord!
ídeildinni frá þvíPétur kom til liðsins
Maastricht-Deventer 3—3
PEC ZwoIle-AZ ’67 1 — 1
PSV Eindh.-V. Arnhem 1 — 1
Roda-Feyenoord 1—0
Twente-Utrecht 0—1
NEC Nijmegen-Haarlem 0—0
Den Haag-NAC Breda 3—0
Sparta-Ajax 3—4
Willem Tilburg-Excelsior 3—I
Staðan í Hollandi eftir leikina er nú
þessi:
Ajax 16 12 2 2 37—18 26
Sigurður
Sverrisson
:il Þróttar
2,
Oddur 3, Sigtryggur 3, Valur
Gunnar2og Hrafnkell 1.
Mörk Þróttar: Sigurður 9/4, Ólafur
5, Magnús 4, Lárus 3, Páll 2 og Einar
1.
Staðan i 2. deildinni eftir leiki
helgarinnar er þessi:
KA — Þróttur 19—18
Þór—Þróttur 22—24
Ármann — Fylkir 24—18
Fylkir 4 3 0 1 83—74 6
Þróttur 5 3 0 2 104—102 6
Ármann 4 2 11 97—78 5
KA 2 2 0 0 42—38 4
Afturelding 3 111 56—61 3
Týr, Ve. 2 10 1 45—38 2
Þór, Ak. 4 0 0 4 72—84 0
Þór, Ve. 2 0 0 2 31—55 0
-GS.
AZ’67 16 10 3 3 31 — 15 23
Feyenoord 15 8 6 1 31 — 11 22
PSV 16 7 5 4 30—20 19
Ðevnetre 16 7 4 5 28—20 18
Utrecht 16 6 6 4 22—18 18
Roda 16 8 2 6 23—23 18
Excelsior 16 6 5 5 27—26 17
Twente 16 7 3 6 21—24 17
Den Haag 16 5 6 5 19—22 16
PEC Zwolle 16 5 5 6 18—18 15
Tilburg 16 3 7 6 18—29 13
Maastricht 16 2 8 6 18—23 12
Haarlem 16 3 6 7 18—28 12
Sparta 15 4 3 8 20—24 11
Arnhem 16 NEC Nijmegen 3 5 8 19—31 11
15 3 2 10- 13—25 8
NAC Breda 15 2 4 9 8—25 8
Við tapið féll Feyenoord niður í 3.
sæti deildarinnar en á enn einn leik til
góða. Þann fræga leik gegn NAC
Breda, sem frestað var á sínum tíma,
þegar staðan var 2—2. Eftir er að leika
síðustu 27 mín leiksins og er ætlunin að
þær verði leiknar í janúar eða febrúar.
leikmaður þeirra Eyjamanna, hefur
gert samning við 2. deildarliðið Örgryte
og Tómas Pálsson hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna. Nú er Ársæll að
líkindum á förum og auk þessa hefur
Viktor Helgason ákveðið að þjálfa
liðið ekki áfram. Að öðrum leik-
mönnum ólöstuðum voru þeir Örn,
Tómas og Ársæll burðarásar Eyja-
liðsins og því er hér um gífurlega blóð-
töku fyrir liðið að ræða.
„Það kemur alltaf maður í manns
stað,” sagði Ársæll við DB í gærkvöld
og vissulega er nokkuð til i því. Hins
vegar er ólíklegt að Eyjamenn geti fyllt
skörð þessara þriggja leikmanna til
fulls.
-SSv.
Fyrsti sigur
FH-inga í vetur
— FH lagði Þór að velli í 1. deild kvenna
Þórsstúlkurnar höfðu í hyggju að
halda sigurgöngu sinni áfram er þær
mættu dömunum úr FH I 1. deild
kvenna á Akureyri um helgina.
Oheppnin elti þær hins vegar á loka-
mínútunum og þær máttu þoia tap,
19—20. Var þetta jafnframt fyrsti sigur
FH i 1. deild kvenna á þessum vetri. I
hálfleik leiddi Þór, 13—10.
Þór leiddi allan fyrri hálfleikinn með
2—3 mörkum og sýndi og sannaði að
liðið er í mikilli framför þrátt fyrir
Dochertyvarð
fyrirárás
Tommy Docherty, framkvæmda-
stjóri QPR, varð fyrir þeirri óvenjulegu
reynslu í fyrradag að hópur unglinga
réðst að honum er hann var að ferðast
með járnbrautarlest. Docherty hlaut
nokkur höfuðmeiðsl en var leyft að
fara heim að lokinni rannsókn. Einn
unglinganna náðist en var ekki
ákærður að ósk Dochertys.
mikið mannfall frá í fyrra. Þegar líða
tók á síðari hálfleikinn tók FH það til
bragðs að taka Dýrfinnu Torfadóttur
hjá Þór úr umferð og gaf það góða
raun. Allt spil Þórs varð vandræða-
legra og FH minnkaði muninn jafnt og
þétt. Þær Kristjana og Katrín drifu
FH-liðið áfram með stórgóðum leik og
virtist ekki mikið ganga upp hjá öðrum
leikmönnum Iiðsins. T.d. var Svanhvit
afar róleg i leiknum en var þó mjög
virk í spilinu.
FH jafnaði metin, 13—13, á 4. rnín.
síðari hálfleiks en Þór hafði alltaf
frumkvæðið. FH komst siðan tveimur
mörkum yfir, 18—16 og þaðvarof
mikið til þess að Þór gæti jafnað metin
á þeim tima sem eftir var. Þegar 5 sek.
voru eftir fékk Þór aukakast en tókst
ekki að nýta sér það. Undir lokin lék
FH-liðið mjög gróft og fengu tvær úr
liðinu kælingu fyrir gróf brot.
Mörk Þórs: Harpa 5/4, Magnea 4.
Anna Gréta 3, Valdis 3, Dýrfinna 3 og
Þórunn 1.
Mörk FH: Kristjana 9/4, Katrín 6,
Ellý 3 Björg I ogSvanhvít 1.
-GS.
Þór-FH 19-20 (13-10)
FH 19-20 (13-10). Akureyri 9.
íslandsmótið í handknattleik, 1. doild kvenna. Þór
desember.
Beztu leikmenn: Kristjana Aradóttir FH, 7, Katrin Danivalsdóttir FH, 7, Harpa Sigurðardóttir
Þór, 6, Guðný Bergvinsdóttir Þór, 6, Magnea Friðriksdóttir Þór, 6.
Þór Kristin Ólafsdóttir, Edda öríygsdóttir, Guðný Bergvinsdóttir, Magnea Friðriksdóttir,
Þórunn Siguröardóttir, Dýrfinna Torfadóttir, Sigriður Sigurðardóttir, Harpa Siguröardóttir,
Valdis Hallgrímsdóttir, Anna Gróta Halldórsdóttir, Freydls Halldórsdóttir, Borghildur
Freysdóttir.
FH: Hildur Einarsdóttir, Katrin Donivalsdóttir, Kristjana Aradóttir, Ellý Erlingsdóttir, Sólveig
Birgisdóttir, Kristín Pótursdóttir, Svanhvít Magnúsdóttir, Anna Ólafsdóttir, Hafdís Sveins-
dóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Björg Gilsdóttir, Sigurborg EyjóHsdóttir.
Dómarar Ólafur Haraldsson og Jón Hensley. Áhorfendur um 100.
KA lagði Þrótt
í 2. deildinni
KA kom talsvertt á óvart með því að
sigra Þróttarana, með þá Sigurð
Sveinsson og Ólaf H. Jónsson í farar-
broddi, er liðin mættust í Skemmunni á
Akureyri á föstudagskvöld. Lokatölur
urðu 19—18 KA í vil eftir að Þróttur
hafði leitt 11—7 i hálfleik.
Þróttarar hófu leikinn vel og
komust í 3—1. Jafnt varð síðan, 4—4,
og svo 5—5 en þá sigu Þróttarar
farmúr á nýjan leik og komust í 11—6
um tíma. KA skoraði síðasta mark
hálfleiksins og lagaði stöðuna aðeins.
Sóknarleikur KA var allt of einhæfur í
fyrri hálfleiknum og átti Alfreð Gísla-
son að enda allar sóknir. Þróttarar
voru snöggir að loka fyrir slíkt.
Þróttarar héldu forskoti sínu fram í
síðari hálfleikinn og leiddu t.d. 15—12.
Síðan 16—13 en þá komu 65 mörk í röð
frá KA og þeim tókst að snúa stöðunni
í 18—16 sér í vil. Af þessum 5 mörkum
skoraði Þorleifur Ananíasson 3 en
hann átti stórleik í síðari hálfleiknum.
Þrótti tókst ekki að jafna metin þrátt
fyrir örvæntingarfullar tilraunir og KA
hefur því enn fullt hús stiga.
Jafntefli hefðu verið sanngjörnustu
úrslit þessa leiks, en e.t.v. átti KA
sigurinn skilinn þó ekki væri nema
vegna markvörzlu Gauta. Hann varði
um 20 skot — þar af 3 vítaköst. Þá var
Þorleifur góður í s.h. og skoraði þá 7
mörk og Alfreð átti góðan leik.
Þróttarar hefðu unnið leikinn hefðu
þeir bara haldið haus lokakaflann.
Mikið var um ótímabær skot frá þeim
Sigurði, Ólafi og Páli og það varð þeim
að falli. Sigurður Ragnarsson varði vel
í leiknum en allt kom fyrir ekki.
Þróttur nýtti ekki 4 viti og það er of
mikið þegar úrslitin standa svo tæpt.
Mörk KA: Þorleifur 8/4, Alfreð 6,
Guðbjörn 2, Jóhann 2, Gunnar 1.
Mörk Þróttar: Sigurður 9/4, Einar
4/1, Magnús 2, Gísli 2, Ólafur Jónsson
og Páll 1.
Þeir Rögnvaldur Erlingsson og
Guðmundur Kolbeinsson dæmdu leik-
inn ágætlega.
-St.A.
Stenmark
sigraði
Ingemar Stenmark sigraði glæsiiega
i fyrstu svigkeppni vetrarins sem fram
fór í Val de’Isere í Frakklandi. Eftir
fyrri umferöina var Stenmark í 3. sæti
en keyröi vel í síðari ferðinni og Iryggði
sér sigurinn á 2:36,61 sek. samanlagl.
Annar varð Bojan Krizaj frá
Júgóslaviu á 2:38,12 og þriðji varð
Hans Enn frá Austurríki á 2:38,24 mín.
„Sigurinn í dag kom mér ekki á
óvart,” sagði Stenmark eftir keppnina.
„Eg einsetti mér bara að Ijúka fyrri
ferðinni, en þegar ég sá hversu nálægt
timi minn var hinna beztu ákvað ég að
keyra til sigurs í siðari ferðinni — það
tókst”.
í Limone Piamonte á Ítalíu fór fram
stórsvigskeppni í kvennaflokknum. Þar
sigraði Hanni Wcnzel frá
Linchtenstein, önnur varð F.rike Hcss
frá Sviss og þriðja varð Fabienne
Serrat frá Frakklandi.
Staðan í stigakeppninni er þannig
eftir hclgina:
Karlar stig
Phil Mahre, USA 27
IngmarStenmark, Sviþjóð 25
Peter Wirnsberger, Austurr. 25
Hcrbert Plank, Ítalíu 20
Bojan Krizaj, Júgóslaviu 20
Steve Mahre, USA 20
Konur slig
Marie Therese Nadig, Sviss 75
Hanni Wenzel, Lichtenstein 66
Perriene Eelen, Frakklandi 42
Anne Marie Moser, Austurriki 41
Erike Hess, Sviss 35
Fibienne Serrat, Frakklandi 34
íþróttir
Lokeren
langefst
Lokeren, lið Arnórs Guðjohnscn.
gerir það heldur betur gott í belgískn
1. deildarkeppninni og hefur nú náð
fjögurra stiga forskoti á næsla lið. Tm
helgina vann Lokeren nauman sigur á
Berchem — einu botnliðanna. cn á
sama tíma töpuðu öll næstu liöin fyrir
neðan Lokeren — þ.á.m. Standard
Lie§e.
Urslitin í Belgíu urðu þessi:
CS Brugge-Standard 3 . ■>
Berchem-Lokeren 2 3
Waregem-Molenbeek 2 - 0
Beveren-Charleroi 1 — 1
FC Liege-FCBrugge 3 —0
Antwcrpen-Beringen 4 —0
Hasselt-Lierse 0 -3
Anderlecht-Beerschol 3 -1
Waterschei-Winterslag 2- -0
Staöan í I. deildinni i Belgíti er nú
þessi: Lokeren 17 13 2 2 44- -13 28
FC Brugge 17 11 2 4 33- 13 24
Molenbeek 17 8 6 3 22- -16 22
Standard 17 8 5 4 41- -22 21
Anderlecht 17 9 2 6 35- -20 20
CS Brugge 17 8 4 5 32- 26 20
Lierse 17 9 1 7 31- 24 19
Beerschot 17 6 7 4 20- 19 19
Beveren 17 5 9 3 19- 18 19
Antwerpen 17 6 6 5 23- 15 18
Waregem 17 5 8 4 19- 15 18
FC I.iege 17 5 4 8 22- 27 14
Waterschei 17 4 6 7 18- 26 14
Berchem 17 2 9 6 22- 19 13
Winterslag 17 3 5 9 13- 42 II
Beringen 17 3 4 10 16— 27 10
Charleroi 17 3 3 II 9— 32 9
Hasselt 17 2 3 12 11- 45 7
KA burstaði FH
Hraðmót i handknattleik fór fram á
Akureyri í gær. Þátttakendur voru lið
KA, Þórs og svo 1. deildarliö FH. í
fyrsta leiknum kom Þór á óvart og
vann KA, 13—12. í næsta leik bætti
KA tapið heldur betur upp og sigraði
FH, 18—11. FH vann síðan Þór, 14—
12, í síðasta leiknum. FH var með alla
sina beztu leikmenn en leiktimi var
2x 15 mín. í leikjunum. Voru Norðan-
menn að vonum ánægðir með að KA
skyldi takast að leggja FH að velli —
meira en nokkurt 1. deildarliðanna
hefur afrekað í haust.