Dagblaðið - 10.12.1979, Side 38
38
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
Söngskemmtun GuðrúnarÁ. íléttumdúrogmoll:
Villtarheimildir:
Islenzk partíplata
VILLTAR HEIMILDIR - Ýmslr (tytj.ndur
gsfandt Btolnar M. (0351
Tónlofeto vafefe Þocg*fe Astvaldunn
Á plötuna Villtar heimildir hefur
verið safnað saman tuttugu lögum
sem hljómplötuútgáfumar Steinar og
Ýmir hafa gefið út á árunum 1975—
78. Eitt lag er þó frá þessu ári, Burt
með þér, sungið af Helga Péturssyni.
Upphaflega átti það að vera á
sólóplötu Helga, Þú ert, en komst ekki
fyrir þegar lögunum var raðað á plöt-
Undirtitill Villtra heimilda er 20
stuðlög. Flest hafa þau notið mikilla
vinsælda i óskalagaþáttum útvarpsins,
eins og til dæmis Heim I Búðardal,
Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig
og Fiskisaga.
Um lagaval á Villtum heimildum er
litið að segja annað en að á plötunni er
heilmikið fjör. Hún ætti þvi að vera
tilvalin 1 heimasamkvæmin. Nafnið
Islenzk partiplata hefði hæft henni allt
eins vel og Villtar heimildir.
- ÁT
MIKLATORG!
OPIÐ 9-21 - SÍMI22822
Eðalgreni
*
/eiðiskrossar
„Éger prógrammið”
FJörudu án aðngufmtoi Quðrúnar A. 8fenoru#
ÚtnMtoldE SQ-h|4mpl6tur (80-124)
UpptökumaAur: Slgurður Arrtoaon
Htöðrftun: HMölobló.
Sennilega á enginn tónlistarmaður
hérlendur jafn miklum vinsældum að
fagna og Guðrún Á. Simonar. Er hún
hélt upp á fjörutlu ára söngafmæli sitt
siðastliðið vor var aðsóknin sllk að
skemmtanir hennar urðu fimm talsins.
Háskólabló tekur ekki nema tæplega
eitt þúsund manns I sæti. Það var þvi
vel til fundið að hljóðrita skemmtan-
irnar til að sá hluti þjóðarinnar sem
ekki sá Guðrúnu og heyrði á afmælis-
tónleikum hennar fái smjörþefinn af
þvl sem þar var að gerast.
77/ leigu í
Síöumúla
Höfiim til leigu frá 1. janúar
nœstkomandi 52 ferm húsnœði á
jarðhœð að Síðumúla 32.
Upplýsingar í síma 38004.
ORKAHF
SIÐUMULA 32
Rauðgreni
*
Auk Guðninar koma fram á plöt-
unni Árni Johnsen, blaðamaöurinn
bindindissami, sem syngur þar svæsna
drykkjuvlsu; félagar úr kór Söngskól-
ans I Reykjavlk; Þuriður Pálsdóttir;
Kristin Sædal og Magnús Jónsson.
Undirleik annast Árni Elfar pianó-
leikari. í lögunum tveimur sem
Magnús Jónsson syngur leikur Guð-
rún Kristinsdóttir með.
Á plötu þessari eru mörg gullkorn.
Til dæmis segir Guðrún frá viðureign
sinni við skattayfirvöld er ganga átti
úr skugga um að hún sviki nú ekkert
undan skemmtanaskatti á afmælistón-
leikunum.
„Ég er prógrammið,” segir Guðrún.
Þegar þeir báðu mig að senda sér pró-
grammið hjá menntamálaráðuneytinu
sagöi ég .Sjálfsagt, ég skal koma á
fimmtudaginn, þvi að ég er prógramm-
ið’. Auðvitað er ég að svindla undan
skemmtanaskatti,” bætti söngkonan
síðan við.
Meðal laga á afmælisplötu Guð-
rúnarÁ. er kattadúettinn sem afmælis
barnið syngur með Þurlði Pálsdóttur.
Lag þetta er búið að vera með þeim
vinsælustu I óskalagaþáttum árum
saman og löngu kominn tlmi til að is-
lenzkar söngkonur syngju það inn á
plötu. Á plötunni er einnig að finna
Ljúflingshól bræðranna Jónasar og
Jóns Múla Ámasona. Það er löngu
kominn timi til að hin ágætu lög
bræðranna verði gefin út á einni eða
tveimur hljómplötum.
-ÁT
Brimkló—Sannardægumsur:
Líkleg til vinsælda
Brimkló - 8ANNAR DÆQURVlSUR
Útgafandk H|ómplötuútgáfan hf. (JUD-026)
Stjöm: Björgvfai HaBdóraaon
Amar Slgurbjómsson
Upptökumann: Gunnar Smári Halgaaon
Jönas R. Jónsaon
Hljóóritun: Hljóöriti, Hafnarffaól
Sannar dœgurvlsur er ekki bezta
plata Brimklóar til þessa. Þar gefur þó
að heyra fjölda skemmtilegra hluta
sem skipa henni I betri hóp þeirra
hljómplatna sem komu út á þessu ári.
Fyrst skal telja tvö lög Arnars
Sigurbjörnssonar sem hann hefur
samið við ljóð Vilhjálms frá Skáholti.
Þetta eru lögin Herbergið mitt og Fall-
völt fró. Ég man ekki til þess að aðrir
dægurtónlistarmenn en Arnar og
Hörður Torfason hafi notað ágæt ljóð
Vilhjálms til að semja lög við.
Rúmur helmingur laganna á Sönn-
um dægurvlsum er I bandarískum
dreifbýlisrokkstil. Brimkló varð einna
fyrst islenzkra hljómsveita til að taka
stil þennan upp á arma slna og hefur
gert honum góð skil á plötum sínum.
önnur lög á nýju plötunni eru rokkar-
ar.
Um hljóðfæraleik á Sönnum dægur-
vlsum er ekkert annað en gott eitt að
segja. Brimklóarmenn eru I toppformi
um þessar mundir. Eitt vekur þó at-
hygli. Hlutverk Arnars Sigurbjörns-
sonar sem gítarleikara hefur minnkað
nokkuð siðan á fyrri plötum og lætur
Björgvin Halldórsson æ meira til sin
taka við hljóðfæraleikinn auk söngs-
ins. Björgvin leikur bæði á hljómgítar,
rafmagnsgitar og stálgitar á nýju plöt-
unni, auk þess sem hann gripur I hljóð-
færið syndrums I tveimur lögum.
Sannar dægurvlsur hefur að geyma
nokkur lög sem likleg eru til vinsælda.
Nina og Geiri á áreiðanlega eftir að
heyrast lengi. Sömuleiðis Verðbólgan
og lag Jóhanns G. Jóhannssonar, Ég
veit að ég hef breytzt.
Eigi undirritaður að nefna eitthvert
lag á plötunni sem honum likar betur
en önnur þá fær Herbergið mitt eftir
Arnar hæstu einkunn.
-ÁT