Dagblaðið - 10.12.1979, Síða 40
40
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
Sinfóníuhljómsveitin flytur ífyrsta sinn verk
eftir Kdrótínu Eiríksdóttur:
Ég veit aö
þetta er þymum
stráð braut
„Átta eða níu ára gömul byrjaði ég
að semja lög í Barnamúsíkskólanum
-og hélt því síðan áfram öðru hvoru en
ég var lengi hálfvolg og datt ekki i
hug að leggja þetta fyrir mig,” sagði
Karólína Eiríksdóttir við DB.
Sinfóníuhljómsvcit íslands flutti cftir
hana hljómsveitarverk á fimmtu-
daginn var við góðar undirtektir.
Vcrkið var tíu mínútna langt en
hún var hálft ár að semja það og nú
hefur hún scm sagt bæst i það harð-
snúna lið sem fæst við að skapa æðri
nútíma tónlist á íslandi. Þar var
aðeins ein kona fyrir, Jórunn Viðar.
Það er óhaptt að segja að Karólína
réðst ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur. ,,Ég geri mér fulla grein
fyrir að þetta er þyrnum stráð
braut,” sagði hún, ,,það er hætta á
að maður einangrist, og sé jafnvel
litinn hornauga en nú orðið finn ég,
að það sem veitir mér mesta full-
nægju í sambandi við tónlist er að
skrifa hana sjálf.”
Hún lærði fyrst hjá Þorkatli Sigur-
björnssyni, síðan við háskólann í
Michigan en er nú gift kona með
fimm ára dóttur í Reykjavík, kennir
við tvo tónlistarskóla og er að semja
nýtt verk fyrir Kammersveit Reykja-
víkur, sem flutt verður í janúar.
Nútímatónlist er mjög flókin og
ýmis tónskáld nota nánast stærð-
fræðilegar reglur við að semja hana.
„Reiknarðu verkin út eða heyrirðu
þau óma í höfðinu á þér fyrirfram?”
spurðum við.
,,Ég skrifa ekkert niður á blað
nema það sem ég veit nákvæmlega
fyrirfram hvernig muni hljóma. Auð-
vitað byrja ég á að ákveða heildar-
mynd í stórum dráttum, en síðan
hugsa ég meira um músíkölsku hlið-
ina heldur en troða verkinu inn í
ákveðnar formúlur,” svaraði hún.
-IHH.
Þú og ég troða upp
með fjórum dönsurum
Þú og ég, dúettinn sem syngur öll
lögin á dansplötunni Ljúfa líf, kemur
fram á skemmtistöðum á næstunni
ásamt fjórum dönsurum og kynni.
Æfjngar standa nú yfir af fullum
krafti en rciknað er með að hópurinn
troði upp i fyrsta skipti á morgun eða
fimmtudaginn í diskótekinu Holly-
wood. Við það tækifæri fá Þú og ég
afhenta gullplötu fyrir góða sölu á
plötu sinni.
„Prógrammið sem boðið verður
upp á er um það bil 25 minútur að
lengd,” sagði Gunnar Þórðarson í
viðtali við DB. „Þau Helga Möller og
Jóhann Helgason syngja fimm lög.
Til að lífga upp á atriðið þótti okkur
rétt að hafa nokkra dansara með. Við
fengum fjóra sem dansa undir stjórn
Ólafs Ólafssonar hjá Dansstúdió 16.
Það er Egill Eðvarðsson sem hefur
yfirumsjón með öllu saman. Kynnir
er Þorgeir Ástvaldsson.”
Að sögn Gunnars er ætlunin sú að
hópurinn komi fram sem víðast,
jafnvel á árshátíðum og öðrum
cinkasamkomum.
- ÁT
SJnfónkjhffóms va/tín hafði nóg aó gttra /mvt tfu mínútur saen voHdö honn-
mr KaróKnu stóð yfír en þeö ver hugvftsamfegt og engktn viðvanings-
breguriþví.
-IHfi
Eliana og Paul Sax-
ton kveðja Island
Paul Saxton deildarstjóri í Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna hér á
landi og Eliana kona hans eru nú á
förum frá íslandi eftir tveggja ára dvöl
og störf hér. Eiga þau I vœndum jóla-
hald I hópi vina og ættingja en eftir
áramótin halda þau hjón til Panama
þar sem Paul tekur við störfum yfir-
manns menningarstofnunar Banda-
rlkjanna þar l landi.
Eliana og Paul Saxton hafa eignazt.
fjölmarga vini á íslandi. Kom það
glöggt I (jós I jjölmennu kveðjuhófi
sem Menningarstofnunin hélt þeim
hjónum á fimmtudaginn. / starfi sínu
hér hefur Paul Saxton átt skipti við
fjölmargar menningar- og mennta-
stofnanir og einnig hefur komið I hans
hlut að eiga margvlsleg samskipti við
fjölmiðla.
Það eru þvl margir sem á þessum
tlmamótum senda þeim hjónum hlýjar
kveðjur, góðar framtíðaróskir og
þakkir fyrir ánægjulega viðkynningu
oggóða vináttu.
-A.St.
Danskan þeirra
þýdd á dönsku.
Islenzkir pólitikusar gerðu garðinn
frægan i danska sjónvarpinu á
dögunum. Foringjar stjórnmála-
flokka komu fram fyrir frændur
okkar Dani í haust og greindu frá
hallærisástandinu hérlendis. Það er
svo sem ekki sérstaklega í frásögur
færandi.
Allir töluðu þeir dönsku eins og
vænta mátti af þeirri kynslóð sem
fædd er undir danskri stjórn og lært
hefur dönsku frá blautu barnsbeini.
En böggull fylgdi skammrifi. Þegar
prógrammið var svnt dönskum al-
menningi fylgdi texti á skjánum.
. Danska hinna íslenzku pólitíkusa var
sum sé þýdd á dönsku.
Sighvatur
borgarfýrir
sigsjálfur
Sighvatur Björgvinsson fjármála-
ráðherra var einn úr hópi fyrirmanna
sem aðstandendur Jólakonserts ’79 í
gærkvöld sendu boðsmiða á hljóm-
leikana. Sighvatur hafði samband við.
aðstandendur hljómleikanna, sagðist
þiggja boðið en endursenda jafn-
framt boðsmiðana. Hann gæti
borgað fyrir sig sjálfur — og auk þess
væri varla forsvaranlegt að þiggja
boðsmiða á hljómleikana og fella
jafnframt niður söluskatt af
aðgöngumiðum. Ágóðinn rennur til
Sólheima í Grímsnesi.
Ekkisama
um atkvœðið
Séra Guðmundur Guðmundsson á
Útskálum í Garði og kona hans,
Steinvör, komu á kjörstað eins og
flestir aðrir á kjördag. Kjörsókn var
lífleg svo þau lentu í biðröð. Frú
Steinvör brá sér afsíðis á meðan hún
beið og var ekki komin aftur þegar
röðin var komin að prestshjónunum.
Séra Guðmundur kallar þá á konu
sína inn um dyrnar á kvennasalerninu
að þau ættu að kjósa.
— Ég hélt að öllum stæði á sama
um mig, svaraði frú Steinvör.
— Það getur vel verið, en ekki um
atkvæðið þitt, sagði þá séra
Guðmundur með alkunnri ró sinni.
Erkiklerkur
Flugleiða
Ýmislegt hefur gengið á hjá Flug-
leiðum eins og menn vita og hefur
starfsfólki þar fækkað allhressilega.
Þær fregnir berast nú úr höfuð-
stöðvunum að forstjórinn sé nefndur
eftir einum helzta trúarleiðtoga
írana, Khómeini nokkrum. Þykir
ýmsum forstjórinn minna nokkuð á
klerkinn í uppsagnaraðgerðum
sínum.
FÓLK