Dagblaðið - 10.12.1979, Side 41
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
41
laneFGiiUa
Jréttir
ravolta
hjálparhönd
— nú á að hífa strákinn upp úr eymdinni
Leikkonan Jane Fonda hefur nú
komið fallandi súperstjörnu, John
Travolta, til bjargar. Hún vill fá hann
til að leika í næstu mynd sinni —
You're the One That 1 Want, er sagt
að Jane hafi sungið til Jóns í símann.
Travolta hefur verið að því kominn
síðustu vikur og mánuði að gefa
kvikmyndaleik upp á bátinn því hann
hefur aðeins þótt góður í dansmynd-
unum tveim sem gerðu hann að
súperstjörnu, Grease og Saturday
Night Fever.
Það er haft til marks um alvöru
þessarar fyrirætlunar af hálfu Jane
sjálfrar að hún hafi gert hlé á fyrir-
Iestraferðalagi sínu gegn kjarnorku-
John Travolta dansar sig aftur upp á
við.
Jane Fonda býður hjálp sína.
notkun til að heimsækja Travolta til
Texas þar sem hann leikur nú í kvik-
mynd.
Fyrirhuguð kvikmynd Jane Fonda
áað fjalla um lífið i fangelsi.
Travolta reynir þessa dagana að
lappa upp á feril sinn með kvikmynd-
inni Urban Cowboy (borgarkúrek-
inn). Hann er sagður vinna fjórtán
tíma á dag og rétt gefa sér tíma frá
dansæfingunum (því auðvitað á að
vera dans i kúrekamyndinni þessari)
til að spjalla við vingjarnlega blaða-
menn.
Framleiðandi myndarinnar — þ.e.
fjármagnsöflunarstjórinn — er
Robert Evans, fyrrum forstjóri Para-
mount og þar áður hr. Ali MacGraw.
„Travolta er engin púðurkerling,
hann er stórkostlegur,” segir hann.
„Dansarnir eru leyndarmál enn-
þá,” bætir hann við, ,,en ég get sagt
þér að það sem John gerði fyrir diskó
i Saturday Night Fever er ekkert
miðað við það sem hann gerir núna! ”
Travolta er óðum að hressast eftir
þunglyndiskast. Amerísk blöð hafa
eftir „vinum” hans að ekki sé langt
síðan hann hafi verið að þvi kominn
að fremja sjálfsmorð. Nú sé hann
hins vegar kominn aftur upp — í bar-
dagaham!
QSKALORIK
djúpsteikingarpottar
Sumir eru rauðir, sumir eru hvítir, sumir eru
krómaðir, en allir hafa þeir 2000 W element og eru
stillanlegir frá 80—200° C.
Það gerir gæfumuninn.
N0KKRIR
ELDRIÁRGANGAR
mjOg hagstætt verð
síma 27022
Ath. Þeirsempantað hafa eldri úrganga
vinsamlega hafl samband semfyrst.
MIKIÐLESEFNI
FYRIR LÍTINIM PENING
vihon
wmSsmffimBSmSm
SÍMI27022