Dagblaðið - 14.04.1980, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 14.04.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1980. 7 „ÚRSUTIN KOMU MIÖG Á ÓVART’ —sögðu Ungfrú Akranes og Ungfrú Suðurnes sem valdar voru um helgina Margrét Snorradóttir, 18 ára banka- mær í Landsbankanum á Akranesi, hlaut titilinn Ungfrú Akranes 1980. Keppnin fór fram á Hótel Akraness á föstudagskvöldið og kepptu sex stúlkur um titilinn. Margrét er með verzlunar- próf úrfjölbrautaskólanumá Akranesi og eru aðaláhugamál hennar íþróttir og gæludýr. Sjálf á Margrét hund. Margrét var beðin um að taka þátt í keppninni og sagði hún að úrslitin hefðu komið sér mjög á óvart. Margrét Snorradóttir, Ungfrú Akranes, á heimili sinu að Vesturgötu 141. Margrét er 18 ára og vinnur 1 Lands- bankanum á Akranesi. DB-mynd Guðni Halldórsson. ,,Ég er svo hissa, að ég get eiginlega ekkert sagt,” sagði Kristín Davíðs- dóttir, 17 ára, sem hlaut titilinn Ungfrú Suðurnes í Stapa i Njarðvík á laugar- dagskvöld. Kristin er við nám i fjölbrautaskólanum í Keflavík. Hún kom á dansleikinn í Stapa og var beðin um að taka þátt i keppninni, ásamt fjórum öðrum stúlkum. Kristín sagðist eiga mörg áhugamál, en ekkert eitt sérstakt. Báðar þessar stúlkur fá utánlands- ferð í verðlaun auk þess sem þær munu keppa um titilinn Ungfrú ísland 1980 sem fer fram á Hótel Sögu 23. maí nk. Alls munu 10—12 stúlkur hvaðanæva af landinu tak þátt i þeirri keppni. Um næstu helgi verða valdar stúlkur á Nes- kaupstað, á Egilsstöðum og i Sindrabæ Höfn. A öllum þessum stöðum verður ferðakynning og bingó hjá ferðaskrif- stofunni Úrval og þeir félagar Halli, Laddi og Jörundur skemmta með sínum frábæra kabaretti. Auk þess leikur hljómsveit Stefáns P. fyrir dansi. Það má taka það fram að á þeim stöðum, þar sem fegurðarsamkeppnin fer fram væru vel þegnar uppástungur frá lesendum blaðsins um stúlkur í keppnina. Þeir sem vilja benda á stúlkur geta haft samband við Dag- blaðið, Harald Sigurðsson hjá Hljóm- plötuútgáfunni eða Stein Lárusson hjá ferðaskrifstofunni Urval. Stúlkurnar verða að vera orðnar sautján ára, vera ógiftar og barnlausar, skv. alþjóðlegum reglum. -F.LA. Stúlkurnar fimm sem kepptu um titilinn Ungfrú Suðurnes ásamt Steini l.árus- syni. Talið frá vinstri Agnes Ármanns- dóttir, Vigdis Vilhjálmsdóttir, Helga K. Guðmundsdóttir, Kristin Daviðsdóttir og Marta Teitsdóttir. Ungfrú tsland, Kristín Bernharðsdóttir, stendur fvrir aftan stúlkurnar, sem bera númerin 8 og 6. DB.-mynd Ragnar Th. Ungfrú Island 1979, Kristln Bernharðsdóttir, afhendir Kristinu Davíðsdótlur, 17 ára, Ungfrú Suðurnes, blóm, er úrslitin voru kunngjörð. DB-mynd Ragnar I h. Verðið er ótrúlega hagstætt þrátt fyrir söluskattshækkanir og gengisfellingar eða 3.985.000.- með ryðvörn og útvarpi Frá Daihatsu-umboðinu á íslandi: Getum enn útvegað nokkra DAIHATSU CHARMANT 1979 Vinsældir DAIHATSU CHARMANT árgerð 1979 virðast jafnmiklar nú og þegar við fyrst tilkynntum þessi beztu bílakaup ársins í ágúst sl. 1. apríl höfðum við afhent rúmlega 700 kaupendum þessa glæsulegu bíla og vegna stöð- ugrar og mikillar eftirspurnar hefur okkur tekizt að tryggja frá DAIHATSU UMBOÐINU í HOLLANDI 70 bila til viðbótar, en þar með er þeirra lager uppurinn. Bilarnir verða til afgreiðslu 7-10 dögum eftir að pöntun er staðfest. Hér er sem fyrr um að ræða einhver glæsilegustu bílakaup, sem kostur er á, enda ekki að ósekju að DAIHATSU CHARMANT var mest seldi billinn hér á landi í fyrra skv. innflutningsskýrslum. DAIHATSU CHARMANT er meðalstór japanskur gæðabíll, fallegur, hagnýtur og sparneytinn eins og aðrir DAIHATSUBÍLAR. DAIHATSU UMBODID Ármúla 23 Sími 39179 og 85870

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.