Dagblaðið - 14.04.1980, Qupperneq 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1980.
19
'óttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
' .
r um helgina.
metá
iígær
lid ímikilli sókn
varð Þórunn Guðmundsdóttir úr Ægi á
41,7 og þriðja Sigurlaug Guðmunds-
dóttir, í Aá42,6 sek.
Ólafur Einarsson sigraði siðan i 100
m flugsundi drengja á 1:16,2. Helgi
Gissurarson, ÍBK varð annar á. 1:23,3
og Jóhann Björnsson, ÍBK þriðji á
1:23,5 min. Guðrún Ágústsdóttir, Ægi
sigraði í 100 m bringusundi telpna á
1:21,7 en önnur varð Ragnheiður
Runólfsdóttir, ÍA, á 1:24,3. Þriðja
varð svo Sigurlín Þorbergsdóttir, ÍA
á 1:25,3 mín.
Magni Ragnarsson frá Akranesi, sem
er nýliði í landsliðinu, sigraði með yfir-
burðum í 200 m bringusundi pilta.
Synti hann á 2:37,4 sek. Annar varð
Jón Ágústsson, Ægi á 2:55,3 og þriðji
Sigurður Einarsson, UMSB á 2:58,3. í
50 m skriðsundi sveina sigraði Ragnar
Guðmundsson, Ægi á 33,0 sek. Annar
varð Jóhann Davíðsson, IA á 33,2 og
þriðji Þorsteinn Þorsteinsson, ÍBK á
35,1 sek.
Sigurlaug Guðmundsdóttir, ÍA
sigraði í 50 m bringusundi meyja á 41,0
sek. og önnur varð Jóna B. Jónsdóttir
á 41,1 sek. Þriðja varð svo Þórunn
Guðmundsdóttir á 43,9.
Í 4x 100 metra skriðsundinu sigraði
sveit Ægis á 4:28,0 mín. Önnur varð B-
sveit Ægis á 4:51,8 og þriðja sveit
Ármanns á 5:10,9. I 4x100 metra
skriðsundi pilta sigraði sveit ÍA á
4:17,0 og sveit Ægis varð önnur á
4.39,9 mín. Þriðja varð svo sveit
Ármanns á 4:55,8. -SSv.
75. leikur Jóns
Jón Sigurðsson lék sinn 75. lands-
leik gegn Svíum og Kristinn Jörunds-
son sinn 50. Þá lék Kristján Ágústsson
sinn 20. landsleik gegn Dönum og
Pétur náði sínum 20. gegn Finnum.
Sjö met á Islands-
mótinu í lyftingum
Sjö íslandsmet voru sett á íslands-
meistaramótinu í lýftingum, sem háð
var ■ Laugardalshöllinni um helgina.
Árangur á mótinu var mjög svipaður
því sem bezt hefurgerzt áður á íslands-
mótum en keppnin á milli þeirra
Guðmundar Sigurðssonar og Guðgeirs
Jónssonar i 90 kg flokknum var það
sem vakti mesta athygli á mótinu. Vildi
hvorugur láta sinn hlut átakalaust en
Guðmundur endaði sem sigurvegari.
Æðisgengin barátta var á milli þeirra
í snöruninni. íslandsmetið þar var 145
kg fyrir keppnina Þeir hófu báðir að
lyfta á 140 kg og fóru léttilega með það
upp. Guðmundur lét þvi nœst hækka í
145.4 kg , sem var mettilraun. Upp fór
það án teljandi erfiðleika og
Guðmundur hafði bætt eigið met.
Guðgeir lék þá hækka i 146 kg. Upp
fór sú þyngd, og fór þá kl.ður um
salinn. Guðmundur lét hækka i 147,5
kg en náði því ekki upp. Það gerði
Guðgeir hins vegar og bætti þvi metið
aftur. Guðmundur, sem er alræmdur
fyrir sitt niikla keppnisskap, var ekki á
þvi að sleppa metinu og bað um auka-
tilraun. Bað hann um að 148 kg yrðu
sett á lóðin. Með miklum átökum og
látum tókst honum að ná þeirri þyngd
upp og bættí þvf metið i fjórða sinn.
Hins vegar fékk hann ekki nema 145,5
kg gild i sjálfri keppninni þar sem þetta
var aukatilraun.
En víkjum nú aftur aö gangi mála i
léttari flokkunum. Keppni hófst í þeim
á laugardag en skarð var fyrir skildi að
keppendur voru engir í tveimur léttustu
flokkunum, 52 og 56 kg. Þórhallur
Hjartarsón frá Akureyri ætlaði þó að
keppa i 56 kg flokki en reyndist 100
grömmum of þungur og varð að keppa
i 60 kg flokki. Þar náði hann þriðja
sætinu með 67,5 kg í snörun og 75 kg
jafnhöttun. Annar varð Kristján
Hauksson úr KR með 70 kg í snörun og
95 i jafnhöttun. Sigurvegari varð hins
vegar Valdimar Runólfsson úr KR, sem
lyfti 80 kg i snörun og 100 kg i
jafnhöttun.
í 67,5 kg flokki sigraði Viðar
Eðvarðsson frá Akureyri. Lyfti 90 kg í
snörun og 120 i jafnhöttun. í þeim
flokkidatt ÞorvaldurB. Rögnvaldsson
úr keppni. Freyr Aðalsteinsson frá
Akureyri varð íslandsmeistari i 75 kg
flokki. Hann náði mjög góðum árangri
1 snörun og tvíbætti íslandsmetið þar.
Fyrst snaraði hann 125 kg og svo 127,5
kg en gamla metið var 122 kg. Hann
jafnhattaði svo 145 kg og lyfti alls
272.5 kg, sem er nýtt met en gamla
metið var 270 kg. Haraldur Ólafsson
einnig frá Akureyri varð annar er hann
snaraði 112,5 kg og jafnhattaði 152,5
kg. Árangur hans i jafnhöttuninni er
bæði unglinga- og Íslandsmet. Alls
lyfti hann þvi 265 kg. Þriðji varð
Hermann Haraldsson frá Eyjum. Hann
snaraði 102,5 kg og jafnhattaði 127,5,
alls 230 kg.
Þorsteinn Leifsson úr KR náði
sínum bezta árangri til þessa og hann
dugði honum til sigurs í 82,5 kg flokki.
Hann snaraði 125 kg og jafnhattaði
167,5 kg. — alls 292,5 kg. Hann reyndi
þarna við ólympiulágmarkið, sem er
300 kg, en var nokkuð langt frá þvi að
ná því. Kristján Hjaltason frá Akureyri
varð annar með 272,5 kg. Hann
snaraði 122,5 kg og jafnhattaði 150 kg.
Þriðji varð svo Gylfi Gíslason enn einn
Akureyringurinn. Hann lyfti alls 260
kg — 110 kg i snöruninni og 150 kg i
jafnhöttun.
Guðmundur vann svo 90 kg
flokkinn. Hann snaraði 145,5 kg í
keppninni sjálfri og jafnhattaði 182,5
kg og lyfti þvi alls 327,5 kg. Guðgeir
snaraði 147,5 kg og jafnhattaði 172,5
kg — alls 320 kg. Þriðji varð
Guðmundur Helgason úr KR. Hann
snaraði 140 kg, sem er mjög góður
árangur hjá unglingi, en jafnhattaði
ekki nema 160 kg. Hann reyndi við 170
kg, sem hefði orðið Norðurlandamet
og þá hefði hann náð OL-lágmarki um
leið. Hann fór létt með þyngdina upp á
axlir en náði ekki að lyfta Jienni upp
fyrir haus og missti því af lestinni að
sinni.
Birgir Borgþórsson sigraði i 100 kg
flokknum. Hann snaraði 150 kg og
jafnhattaði 187,5 kg. Alls 337,5 kg og
er það hans bezti árangur. Gústaf
Agnarsson sigraði í 110 kg flokki er
hann snaraði 167,5 kg og jafnhattaði
200 kg. Alls lyfti hann þvi 367,5 kg og
var það mesta þyngdin á mótinu. í
110+ flokki sigraði Jón Páll Sigmars-
son úr KR. Hann snaraði 120 kg og
jafnhattaði 150 kg. Alls 270 kg. Ágúst
Kárason hóf keppni i þessum fiokki en
varðaðhætta vegna meiðsla í hné.
Þá var i lokin veittur bikar fyrir
beztan árangur miðað við
líkamsþyngd. Gústaf fékk 1. sætið og
hlaut alls 235,94 stig. Annar varð
Guðmundur Sigurðsson með 225,32
stig og þriðji Birgir Borgþórsson með
223,09.þ KR hlaut flest stig i félaga-
keppninni — 32 talsins og sigraði í
keppninni um félagsskjöldinn þriðja
árið i röð. Akureyringar hlutu 18 stig,
Ármann 5 og ÍBV 1. -SSv.
Naumt tap gegn
Pólverjum í gær
— í Evrópumeistaramótinu íbadminton
Islenzka badmintonlandsliðið lék i
gærkvöld við Pólverja á Evrópu-
meistaramótinu i Groningen í
Hollandi. Þrátt fyrir góð tilþrif á
köflum mátti landinn biða 2—3 tap.
Rétt er að geta þess strax að Jóhann
Kjartansson komst ekki utan með
liðinu vegna veikinda en Sigurður
Kolbeinsson fór i hans stað.
Broddi Kristjánsson vann
einliðaleik sinn gegn Pólverjanum
vegna þess að hann meiddist í annarri
lotunni. í einliðaleik kvenna mátti
Kristin Magnúsdóttir bíða ósigur í
tveimur lotum, 6—11 og 6—11. 1
tvíliöaleik karla léku þeir saman Sigfús
Ægir Ámason og Sigurður. Þeim tókst
að sigra mótherja sína 1
hörkuskemmtilegum leik. Fyrst sigruðu
Pólverjarnir 15—13 og þá þeir félagar
17—16 og síðan örugglega 15—6 í
þriðju lotunni.
I tvíliðaleik kvenna töpuðu þær
nöfnur Kristín Magnúsdóttir og
Kristjánsdóttir fyrir sínum mótherjum.
Fystu lotuna unnu þær þó 15—13 en
töpuðu síðan 10—15 og 11 —15. í
tvenndarleiknum léku þau Broddi
Kristjánsson og Sif Friðleifsdóttir
saman. Þau töpuðu afar naumlega
fyrir Pólverjunum i hörkuleik. Fyrstu
lotuna unnu Pólverjarnir 15—6 en
síöan unnu þau Sif og Broddi 15—12. í
þriðju iotunni voru þau svo kominn i
14—lOen töpuðu 14—17.
í dag leikur landsliðiö tvo leiki.
Fyrst gegn Portúgölum og siðan gegn
ítölum. Takist vel upp ætti sigur að
vinnast á báðum þjóðunum. Á morgun
verðursvoleikiðgegnSviss. -SSv.
Akumesingar með ann-
an fótinn í aðra deildina
—náðu jaf ntef li gegn Þór í f yrri leik liðanna, 27-27
Akurnesingar færðust skrefi nær
sæti I 2. deild næsta vetur er þeir
kræktu sér í dýrmætt jafntefli á Akur-
eyri á föstudagskvöld. Þeir mættu þá
Þór í leik um lausa sætið i 2. deild og
lauk honum með jafntefli 27—27 eftir
að einnig hafði verið jafnt i hálflcik
15—15. Akurnesingar eiga nú heima-
leikinn eftir og óneitanlega eru þeir
sigurstranglegri i þeim leik og voru
reyndar klaufar að vinna ekki Þór fyrir
norðan.
Akurnesingar hófu leikinn af
miklum krafti og komust fljótlega
þremur mörkum yfir, 7—4, og síðan
áfram 8—5 og 9—6. Þá kom aftur á
móti afleitur kafli og Þór komst yfir i
13—11. Með harðfylgi náðu Skaga-
menn að jafna metin 15—15 fyrir hlé.
Svo virtist sem Þórsarar myndu taka
leikinn í sínar hendur í byrjun síðari
hálfleiks er þeir komust í 19—16. En
lánið er fallvalt og það kom oft i ljós i
þessari viðureign. Skagamennirnir
náðu að jafna, 20— 20, og komust
síðan örugglega yfir 25—22 er 10 min.
voru til leiksloka. Þeir virtust vera með
unninn leik og hafa e.t.v. hugsað svo
með sjálfum sér því þeir slökuðu á i
lokin. Þegar 70 sek. voru til leiksloka
var staðan 27—25 Akurnesingum i vil.
Ekki tókst þeim að halda forystunni og
Sigurður Sigurðsson jafnaði metin 5
sek. fyrir leikslok með þrumuskoti.
Leikurinn var nokkuð grófur á
köflum og var ljótt að sjá hvernig
Þórsararnir tóku á móti Jóni Hjalta-
lín. Hann mátti ekki komast í
námunda við vörnina þá voru gler-
augun umsvifalaust slegin af honum.
Þeir Einar Sveinsson og Helgi
Gunnarsson dæmdu leikinn og gerðu
það ágætlega en hefðu mátt taka miklu
fastar á brotunum á línunni því leik-
menn komust upp með allt of mikla
hörku. Varnarleikur liðanna var þó
ekki upp á marga fiska hjá liðunum
þrátt fyrir hörkuna og þá ekki mark-
varzlan fyrr en undir lok leiksins. Þá
varði Ómar Sigurðsson, markvörður
Akurnesinga, m.a. tvö vítaköst laglega
og Tryggvi í marki Þórs tók að verja
nokkuð.
Hjá Þór var Árni Stefánsson beztur
og skoraði mörg falleg mörk af linunni
af miklu harðfylgi. Þeir Sigtryggur og
Sigurður áttu einnig góðan leik. Hjá
Akurnesingum var Kristján Hannibals-
son beztur en Guðjón var aðaldrif-
fjöðrin í spilinu.
Mörk Þórs: Arnar 6, Sigurður 6/1,
Sigtryggur 5/2, Árni 4, Benedikt 2,
Gunnar 2, Valur og Oddur 1 hvor.
Mörk jA: Kristján 9/1, Jón 4, Haukur
3, Óli Páll 3, Guðjón 3, Daði 2, Þórður
Bj. 2 og Gunnlaugur 1. Þór fékk 6 víta-
köst en Akranes aöeins 1.
-SSv.
íþróttir
Búbbiogfélag-
artöpuðuígær
Jóhannes Eðvaldsson og félagar
hans i Tulsa Roughnecks mátti bíða
ósigur í leik sinum gegn California
Surf um helgina. Lokatölur urðu 3—2
Caiiforníu-liðinu í vil. Jóhannes
skoraði gullfallegt mark i leik Tulsa og
Washington Diplomats um sl. helgi og
það tryggði Tulsa sigur. Úrslit annarra
leikja i Bandaríkjunum urðu sem hér
segir:
Atlanta Chiefs—Toronto Blizzard 3—1
Detroit Exp.—New Engl. Tea Menl—0
F(. Lauderdale—Rochester 2—0
San Diego—Memphis Rouges 2—1
Chicago Sting—TampaBay 2—1
Los Angeles Aztecs—Portland I—0
Vancouver—Settle Sounders 2—0
Dallas—Houston 1—0
Cosmos—Minnesote Kicks 2—1
Wash. Diplomats—Philadelphia 3—1
Fort Lauderdale er nú efst i keppn-
inni með 26 stig. Dailas Tomadoer með
23. Þá kemur Tampa Bay Rowdies með
18 stig og siðan Tulsa Roughnecks
ásamt nokkrum öðrum liðum með 17
stig.
Inter með
örugga forystu
Úrslitin i 1. deild á ítaliu urðu sem
hér segir:
Avellino — Ascoli 2—2
Fiorentina — Cagliari 1—1
AC Milan — Bologna 4—0
Perugia — In.er Milanó 0—0
Pescara — Cantanzaro 1—1
Roma — Juventus 1—3
Udinese—I.azio 1—1
Torínó — Napólí 0—0
Inter hefur enn örugga forystu en
Juventus á örlitla möguleika á að ná
þeim. Með þvi að sigra í þremur síðustu
leikjum sinum og að Inter tapi sínum
þremur verða liðin jöfn. Anzi fjar-
lægur möguleiki. Gentile, Scirea og
Bettega skoruðu mörk Juvlentus i gær.
Real Sociedad
enn án taps
Sigurganga Real Sociedad heldur enn
áfram á Spáni og liðið hefur nú leikið
29 leik i röð án taps. Real Madrid er
enn í rassinum á þeim með jafnmörg
stig og verður gaman að fylgjast með
lokasprettinum en nú eru 5 umferðir til
loka keppninnar. Úrslit urðu sem hér
segir í gær:
Espanol — Valencia 'l—1
Las Palmas — Barcelona 0—1
Atl. Bilbao — Vallecano 4—1
Atl. Madrid — Almeria 4—1
Sevilla — Real Zaragoza 2—1
Malaga — Real Betis 1—0
Burgos — Real Madrid 1—2
Sporting — Salamanca 0—0
Hercules — Sociedad 0—0
Efstu liðin eru nú: Real Sociedad 29 15 14 0 41—15 44
Real Madrid 29 18 8 3 58—29 44
Sporting
Valencia
29 14 6 9 41—29 34
29 11 11 7 46—36 33
Atl. Bilbao 29 14 4 II 46—37 32
Las Palmas 29 13 5 11 35—39 31
Víkingssigur
Víkingur sigraði Þór 26—15 í síðasta
leiknum i 1. deild kvenna. Staðan i
hálfleik var 13—6 Víkingi í vil. Þór
verður þvi að leika aukaleiki vð
Ármann um lausa sætið i 1. deildinni.
Þessi leikur var upphaflega settur á í
Laugardalshöll kl. 19 í gær en var svo
skyndilega færður fram til kl. 14 og
leikinn að Varmá. Við því varð ekki séð
hér á DB og því enginn maður okkar á
staðnum.
Á morgun kl. 19 leika Þróttur og ÍR
fyrri leik sinn um luu.su sætið í 1.
deild. Siðari leikurinn verður svo á
fimmtudag á sama tíma. Báðir leikirnir
fara fram i Höllinni. Á miðvikudag
leika KR og KA kl. 19 i Höllinni um
sæti í úrslitum bikarkeppni HSÍ en
Haukar hafa tryggt sér hitt sætið.
Ráðgert er að úrslitin i bikarkeppninni
fáist 23. april og verði þá um kvöldið
einnig leikið til úrslita i bikarkeppni 2.
flokks og meistaraflokks kvenna. Fram
er þar komið i úrslit og mætir Ármanni
eða Þór.