Dagblaðið - 14.04.1980, Side 30
30
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1980.
Aridlát
Gert er ráð fyrir suövestanátt ú
Uindinu til að byrja með í dag með
óljum á Suður-, Vestur- og
vestanverðu Norðurlandi en björtu
oustun til. Síðan er gert ráð fyrir
vaxandi sunnan og suöaustanátt
meö rigningu (kvöld og nótt.
Klukkan sex ( morgun var
suðsuðvestan 3, úrkomo f grennd, og
0 stiga hiti ( ReykjavSc,
vestsuðvestan 3, alskýjað og 1 á
Gufuskálum, hsog, breytileg átt, ál og
0 á Gnltorvito, sunnan 3, abkýjað og 3
á Akureyri, norövestan 3, skýjað og 0
á Roufarhöfn og suðvestan 6, létt-
skýjað og tveggja stiga hiti bœöi (
Höfn og í Vestmannaeyjum.
í Þórshöfn vor háHskýjaö og 4 stigo
hiti, þokumóða, láttskýjað og 6 í
Koupomannahöfn, þokumóða,
heiðrikt og 1 stigs frost í Osló,
þokumóða, hoiðrikt og 3 stiga hiti I
Stokkhólmi, léttskýjað og 9 (London,
léttskýjaö og 9 ( Parfs, alskýjað og 10
i Madrid, alskýjað og 14 á Moliorko,
skýjað og 9 í Lissabon og olskýjað og
12 stiga hiti (New York.
Þórarinn Einarsson, Höfða, lézt
mánudaginn 7. april. Hann var fæddur
12. apríl 1884. Foreldrar hans voru
Margrét Hjartardóttir og Einar Einars-
son í Nýjabæ í Krísuvík. í Grindavík
ólst Þórarinn upp og vann hann við
ýmsa vinnu bæði til sjós og lands.
Þórarinn kvæntist Guðrúnu Þorvalds-
dóttur frá Álftártungukoti á Mýrum 7.,
október 1910. Þau eignuðust fimm
börn. Þórarinn var jarðsunginn á laug-
ardaginn.
Halla Jónsdóttir, fyrrum hustreyja á
Kollslæk, í Hálsasveit í Borgarf., lézt
á föstudaginn langa. Halla var fædd
26. september 1890, dóttir hjónanna
Jóns Erlingssonar, bónda á
Norðurreykjum, síðar á Kollslæk og
Þórunnar Hannesdóttur. Halla gekk i
Hvítárbakkaskóla. Halla kynntist þar
manni sínum Andrési Vigfússyni frá
Ásakoti í Biskupstungum. Þau gengu í
hjónaband 4. júlí 1919. Fyrstu tvö
búskaparárin bjuggu þau á Uppsölum
í Hálsasveit, en síðar fiuttu þau að
Kollslæk árið 1921 og fluttu þaðan
1956, er þau fluttu til dóttur sinnar að
Stóra-Ási og áttu heima þar síðan.
Halla og Andrés eignuðust tvær dætur.
Tvö systurbörn Andrésar ólu þau upp
að mestu leyti. Halla var jarðsett í
Stóra-Ási á laugardaginn var.
Elin Lárusdóttir Yzta-Mói er látin.
Hún var fædd að Vatni á Höfðaströnd
27. febrúar 1890. Þaðan flutti hún með
foreldrum sínum, sem voru Lárus
Ólafsson og Margrét Jónsdóttir, ljós-
móðir, árið 1892 að Hofi á Höfða-
Aðalbjörg Ingólfsdóttir Iézt
fimmtudaginn 20. marz á Land-
spítalanum. Hún var fædd 2.
september 1921. Aðalbjörg var gift
eftirlifandi manni sínum, Ragnari
Björnssyni. Þau hjón eignuðust sjö
börn og sex þeirra komust upp.
Steinunn Ása Guðmundsdóttir Zebitz,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
mánudaginn 14. apríl kl. 13.30.
Veðrið
Ófeigur Eiriksson bæjarfógeti og
sýslumaður, lézt fimmtudaginn 27.
marz. Hann var fæddur 14. ágúst 1927
að Breiðagerði i Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði. Foreldrar hans voru hjónin
Eirikur Einarsson og Rut Ófeigsdóttir.
Eiríkur er látinn en Rut móðir Ófeigs
lifir nú í hárri elli. Öfeigur lauk
stúdentsprófi 1948 og kandidatsprófi i
lögum 1953. Hann réðst sem fulltrúi
við bæjarfógetaembættið á Siglufirði
1953. Á Siglufirði var hann til ársins
1960 er hann var settur bæjarfógeti i
Neskaupstað, þar er hann til 1967, er
hann var skipaður bæjarfógeti og
sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og
gegndi hann því embætti til dauðadags.
Ófeigur var kvæntur eftirlifandi konu
sinni Ernu Sigmundsdóttur, Einars-
sonar skipstjóra og Soffiu Guðbjarts-
dóttur. Ófeigur og Erna eignuðust
fjögur börn.
strönd. Árið 1895 fluttu þau á Hofsós.
Elín giftist 31. ágúst 1912 Hermanni
Jónssyni verzlunarmanni, síðar bónda
og hreppstjóra á Yzta-Mói í Fljótum.
Árið 1914 fluttust Elín og Hermann í
Málmey á Skagafirði, er þau keyptu og
fluttust á höfuðbýlið að Yzta-Mói. Elín
og Hermann eignuðust níu börn.
Bjarni M. Gíslason rithöfundur lézt
fimmtudaginn 20. marz. Hann var
fæddur 4. april 1908.
Gisli Sigurðsson frá Dröngum lézt
laugardaginn 5. apríl. Hann var
fæddur 15. október 1892. Foreldrar
hans voru hjónin Anna Illugadóttir frá
Stóra-Hrauni og Sigurður Gíslason frá
Saurum. Gísli kvæntist aldrei og átti
ekki böm. Síðustu árin dvaldi hann á
dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi.
Ökukennsla, æfingartímar.
Get aftur bætt við nemendum. Kenni á
hinn vinsæla Mazda 626 ’80, R-306.
Nemendur greiða aðeins tekna tima.
Greiðslukjör ef óskað er. Kristján
Sigurðsson, simi 24158.
Ökukennsla — æfingatimar.
Kenni á Mazda 626 ’80, ökuskóli og'
prófgögn ef óskað er. Nýir nemendur.
geta byrjað strax. Geir Jón Ásgeirsson.
simi 53783.
ökukennsla, æfingatímar,
bifhjólapróf. Kenni á nýjan A'udi,
nemendur greiða aðeins tekna Jima,
éhgir lágmarkstimar, nemendur geta
byrjað strax. Ökuskóli og öll prófgögn.ef
óskaðer. Magnús Helgason, sími 66660.
Ökukennsla—æfingatimar.
Kenni á Galant ’79. Ökuskóli og öll
prófgögn ef þess er óskað. Nemendur
greiði aðeins tekna tima. Jóhanna
Guðmundsdóttir, ökukennari, simi
77704.
Hreingerníngar
Hreingerningafélagið Hólmbræður.
Unnið á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu
fyrir sama verð. Margra ára örugg
þjónusta. Einnig teppa- og húsgagna
hreinsun með nýjum vélum. Simar
50774 og 51372.
Teppa- og húsgagnahreinsun.
Hreinsum teppi og húsgögn með gufu og
stöðluðu teppahreinsiefni sem losar
óhreinindin úr hverjum þræði, án þess
að skadda þá. Leggjum áherzlu á vand-
aða vinnu. Nánari uppl. í sima 50678.
Teppa- og húsgagnahreinsunin Hafnar-
firði.
Þrif, hreingerningar, teppahreinsun.
Tökum að okkur hreingerningar á íbúð
um, stigagöngum og stofnunum, einnig
teppahreinsun með nýrri djúphreinsivél,
sem hreinsar með mjög góðum árangri.
Vanir menn. Uppl. i síma 33049 og
85086. Haukur og Guðmundur.
Hreingerningastöðin
Hólmbræður. Önnumst hvers konar
hreingerningar, stórar og smáar. i
Reykjavik og nágrenni. Einnig i skipum.
Höfum nýja. frábæra teppahreinsunar
vél. Simar 19017 og 28058. Ólafur
Hólm.
Tökum að okkur
hreingerningar á íbúðum, stiga-
göngum. opinberum skrifstofum. o.fi.
Einnig gluggahreinsun, gólfhreinsun og
gólfbón hreinsun. Tökunt líka
hreingerningar utanbæjar. Þorsteinn,
simar 31597 og 20498.
Gólfteppahreinsun.
Hreinsum teppi og húsgögn meö
háþrýstitækni og sogkrafti. Erum einnig
með þurrhreinsun á ullarteppi ef þarf.
Þaðer fátt, sem stenzt tækin okkar. Nú.
eins og alltaf áður, tryggjum við fljóta
og vandaða vinnu. Ath. 50 kr. afsláttur
á fermetra á tóntu húsnæði. Erna og
Þorsteinn. sími 20888.
ÓFRHHEGT Á
VESTFJÖRÐUM
— vinnustöðvun yf irvofandi frá 20. og 25. apríl
Patreksfirðingar samþykktu ekki
vinnustöðvun, að svo komnu máli,”
sagði Pétur Sigurðsson, forseti
Alþýðusambands Vestfjarða í samtali
við DB i morgun.
Bíldælingar hafa hins vegar boðað
vinnustöðvun frá og með 20. apríl og
Súgfirðingar sömuleiðis frá og með 25.
april, ef hvorki gangi né reki í
samningum.
Flateyringar og Bolvíkingar ætla
sjálfir að reyna að semja við vinnuveit-
endur, Súðvíkingar og Tálknfirðingar
samþykktu að fela stjórn trúnaðar-
mannaráðs að athuga með samninga.
Eins og fyrr hefur komið fram í
fréttum þá eru kröfurnar þær að fá
frítt fæði um borð, fá frivaktir greidd-
ar og litils háttar hækkun á skipta-
prósentu. Pétur sagði að það sem nýtt
væri komið fram væri að skipta-
prósenta á línubátum hækkaði
verulega.
Farið er fram á ýmislegt fleira í
kaupskilmálum eins og ákvæðum um
hafnar- og helgarfrí á skuttogurum og
útilegubátum.
-EVI.
Arbeiderbladet:
„Klofningur í
íslenzku
stjóminni”
Frá Sigurjóni Jóhannssyni frcttamanni
DBÍOsló:
„Rætt er um klofning i íslenzku
ríkisstjórnini í Arbeiderbladet í Noregi
í morgun. Stjórnarfiokkarnir eru ekki
taldir hafa verið nógu sammála um af-
stöðu sína gagnvart viðsemjendunum
frá Noregi.
Sérstaklega eru nefndir
„haukarnir” Ólafur Ragnar Grimsson
og Matthías Bjarnason fv. sjávarút-
vegsráðherra, sem séu á harðri línu
gagnvart Noregi og mun harðari en
bæði Ólafur Jóhannesson utanríkis-
ráðherra og Steingrímur Hermannsson
sjávarútvegsráðherra.
-SJ/JH.
Þorlákshöfn:
Olíubfll ofan
íbát
Litlu munaði að alvarlegt slys yrði
þegar oliuflutningabíll frá Essó fór út
af bryggjunni í Þorlákshöfn laust fyrir
kl. 11 i gærmorgun og hafnaði meira en
hálfur úti í um 150 tonna báti, Sæunni
Sæmundsdóttur, ÁR—60.
Ökumaðurinn, var einn í olíubílnum
og ók vestur Norðurvararbryggju eftir
að hafa losaó oliu í annan bát þar í
höfninni. Bíllinn rann skyndilega til
vinstri og út af bryggjunni og lenti
framhlið hans upp á brúarvæng
bátsins, braut þar rekkverk og olli fleiri
spjöllum, en enginn var um borð.
Bíllinn skemmdist verulega og er illa
farinn, að sögn lögreglunnar á Selfossi.
Það hefur verið lán í óláni fyrir
bilstjóranna að báturinn varð fyrir —
og þá ekki síður að hafa ekki lent alla
leið niður á dekk. Þar hefur munað
mjóu, því aðeins hægra afturhjólið var
eftir uppi á bryggjunni. -OV.
Kvenfélag
Bústaðasóknar
heldur fund mánudagskvöld 14. apríl kl. 20.30 i
safnaðarheimilinu.
Dönskukennarar
Dönskukennarar á framhaldsskólastigi, muniö
fundinn um námsskrána þriðjudaginn 15. april kl.
20.30 í Æfingaskólanum.
Sjóleiðin til Bagdad í Keflavík
Síðastliðið miövikudagskvöld frumsýndi Leikfélag
Keflavikur leikritið Sjóleiðina til BagdaJ eftir Jökul
Jakobsson i Stapanum við mjög góðar undirtektir
áhorfenda. Leikstjóri er Þórir Steingrimsson.
Aðstoðarleikstjóri er Áslaug Bergsteinsdóttir og leik
mynd og lýsing er eftir aðstandendur sýningarinnar.
Með hlutverk fara: Hrefna Traustadóttir, Ingibjörg
Hafliðadóttir, Jóhann Gislason. Magnús Jónsson.
Dagný Haraldsdóttir. Þór Helgason og Árni Ólafsson.
Næstu sýningar verða í Félagsbiói i Keflavik'næst
komandi þriðjudags og miðvikudagskvöld kl. 21.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna- -
NR. 68 - 10. APRÍL 1980 gjaWeyrir
# Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarikjadollar 435,00 438,10* 479,71*
1 Storiingspund 954,70 957,10* 1052,81*
1 Kanadadollar 368,50 369,50* 406,45*
100 Danskar krónur 7467,80 7486,70* 8235,37*
100 Norskar krónur 8574,80 8596,50* 9456,15*
100 Sænskar krónur 10002,30 10027,60* 11030,36*
100 Rnnsk mörk 11411,30 11440,20* 12584,22*
100 Franskir frankar 10063,60 10089,10* 11098,01*
100 Bolg. frankar 1447,10 1450,80* 1595,88*
100 Svissn. frankar 24722,90 24785,40* 27263,94*
100 Gyllini 21240,20 21293,90* 23423,29*
100 V-þýzk mörk 23268,20 23327,10* 25659,81*
100 Lfrur 49,89 50,01* 55,01*
100 Austurr. Sch. 3260,90 3269,10* 3596,01*
100 Escudos 864,80 867,00* 953,70*
100 Pesetar 609,25 610,75* 671,83*
100 Yen 174,31 174,75* 192,23*
1 Sárstök dráttarróttindi 546,59 547,97*
* Breyting frá siðustu skráningu. Símsvari vogna gengisskráningar 22190.