Dagblaðið - 19.05.1980, Síða 20

Dagblaðið - 19.05.1980, Síða 20
‘'Bf- DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 19. MAÍ 1980. Línufélagar í Keflavík léttir á sér og léttir í lund: 6,5 óþatfa tonn fokin Suðurnesjamenn léttast dag frá degi — og lundin léttist um leið. Svo er megrunarklúbbnum Línunni fyrir að þakka. Línufólkinu er ósárt um að ’ missa óþarfa kíló sem það hefur gengið með sér til ama og leiðinda. Félagar í Línunni i Keflavík hafa misst 6,5 tonn af líkamsþyngd sinni á þeim 170 vikum sem liðnar eru síðan starfsemi klúbbsins hófst! Bezta ár- angrinum náði fullorðin kona sem léttist um heil 43 kíló! „Það er fullt af fólki sem kemur og nær af sér nokkrum kílóum, þyngist svo aftur og þá þorir það ekki að koma aftur. Það er það sorglegasta,” sagði Guðbjörg Theódórsdóttir frá Reykjavík við Suðurnesjatíðindi. Guðbjörg kemur í hverri viku til Keflavíkur og bregður baðvikt undir Línufélagana þar í bæ. - ARH, Guðbjörg Theódórsdóttir frá Reykjavík bregður sór til Kefia- víkur i hverri viku og bregður vikt undir Linufólaga þar. Guðbjörg var sjáif 86 kíló þegar hún gekk i Lin- una. Nú sýnir viktin 65 kiló. Sigurðardóttir. Mynd: Kópavogstiðindi Margrét María Sigurðardóttir sundkona úr Breiðabliki vár valin íþróttamaður ársins 1979 í Kópavogi. Margrét er aðeins 15 ára að aldri og keppti í landsliði íslands í sundi i fyrra. Hún vann afrek í fjölmörgum keppnum hér á landi og erlendis á síðasta ári, en hún keppti hvorki meira né minna en í 7 öðrum löndum 1979. íþróttamaður ársins i Kópavogi er valinn af Rotaryklúbbi staðarins. Þetta er í 6. sinn sem það er gert. - ARH Þrir ritstjórar. Sóra Bemharður Guðmundsson rhstjóri Kirkjuritsins situr þarna á milli ritstjóranna Árna Berg- manns, Þjóðviljanum og Matthiasar Johannessen, Morgunblaðinu. Við fætur Árna má sjá eitt þokktasta guðfræðirit siðustu ára, On Being a Christian, eftir kaþólska guðfræðing- inn Hans Kung. Eins og komið hefur fram i fréttum hefur Árni Bergmann tekið þátt í þeim umræðum sem átt hafa sér stað milli guðfræðinga ogmarxista hór á landi að undanförnu og af skrifum Matthíasar í Morgunblaðið hefur mátt ráða að þar hafihonum þótt kirkjunnar menn leita langt yfir skammt. DB-mynd Magnús Karel. Ritstjórar Mogg- ans og Þjóðviljans — rœddu um krístni og skáldskap í hópi kirkjunnar manna í Skálholti ,,En hvort einhver sé sigurvegari eða einhver hafi tapað er rangt. Það er fyrst og fremst marxíska-leníníska hreyfingin sem beðið hefur skipbrot í baráttu sinni við kapítalíska þjóð- félagið.” (Gunnar Andrésson for- maður Kommúnistaflokks íslands í viðtali í Verkalýðsblaðinu). Glöggur maður Gunnar. Skipbrot er auðvitað hvorki sigur né tap. Það er auðvitað sannkallað jafntefli! Guö þolir ekki verð- bólguna Fulltrúum ólíkra sjónarmiða var stefnt saman á umræðuþing í Skál- holti fyrir skömmu. Kirkjunnar menn með Sigurbjörn Einarsson biskup í broddi fylkingar ræddu um efnið skáldskap og kristni við hóp skálda. Það var Kirkjuritið sem efndi til umræðnanna. Voru þær skráðar og munu birtast í 2. hefti Kirkjurits- ins sem út kemur i júní. Umræðustjóri var dr. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur á Reyni- völlum. Auk hans tóku eftirtaldir prestar þátt í umræðunum: Sigur- björn Einarsson biskup, sr. Bern- harður Guðmundsson ritstjóri Kirkjuritsins, sr. Bolli Gústavsson, sr. Guðmundur Óskar Ólafsson og sr. Heimir Steinsson. Úr hópi skálda tóku þátt í um- ræðum þessum þau Guðmundur Steinsson, Ingimar Erlendur Sigurðs- son, Hjörtur Pálsson, Jón úr Vör, Kjartan Ragnarsson, Matthías Johannessen, Vilborg Dagbjarts- dóttir og Þóra Jónsdóttir. Einnig tóku þátt í umræðunum ritstjórarnir, og bókmenntafræðingarnir Árni Bergmann og Jón Sigurðsson. Skáldin lásu úr verkum sinum og siðan var rætt um verk þeirra og tengsl þeirra við kristna trú. - GAJ 1» Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, segir sögu kirknanna i Skálholti. Aðrir á myndinni eru frá vinstri dr. Gunnar Kristjánsson, Vilborg Dagbjartsdóttir, Jón úr Vör, Jón Sigurðsson, Matthias Johannessen, Ingimar Eriendur Sigurðsson, sóra Guðmundur Óskar Ólafsson og sóra Bolli Gúst- avsson. DB-mynd Magnús Karel. : Skaftfellingar eiga MR! Eiga Skaftfellingar hús Mennta- skólans í Reykjavík? Útlit er fyrir að svo sé. A fundi Byggðasambands V-Skaftfellinga komu fram upplýs- ingar um að húsið hafi verið byggt fyrir hluta af fé sem safnað var inn- anlands og erlendis til styrktar Skaft- fellingum og öðrum sem harðast urðu úti i Skaftáreldunum 1783. Nú er spurningin þessi: Heimta Skaftfellingar að MR-húsið verði híft af grunni sínum upp á vagn og því ekið austur í sveitir? Pétur J. Thorsteinsson sagði stuðningsmönnum sinum á fundi í Sigtúni eftirfarandi sögu: Brésnef kom til Guðs og spurði hann hve lengi kommúnismi entist í Sovét. ,,10—15 ár í viðbót,” svaraði Guð. Þá fór Brésnef að gráta. Litlu siðar kom Carter til Guðs og spurði hve lengi kapitalismi entist í Banda- rikjunum. „Nokkur ár í viðbót,” svaraði Guð. Carter fór að gráta. Litlu síðar sást til ferða Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra á Guðs fund. Hann spurði Guð hve lengi verðbólga yrði viðloðandi á ís)andi. Þá brast Guð í grát. Hjörtur Pálsson, dr. Gunnar Kristjánsson og sr. Heimir Steinsson, rektor i Skálholti, hlýða á kvæðieftir Jón úr Vör. DB-mynd Magnús Karel. FœrMA fægilög? í tilefni af 100 ára afmæli Mennta- skólans á Akureyri 17. júní næst- komandi kom það til tals meða! gam- alla MA-stúdenta að heiðra gamla skólann með gjöf. Var helzt haft á orði að láta búa til likan af gamla skólahúsinu úr eðalmálminum silfri fyrir nokkrar milljónir króna og gauka að skólanum. Fljótlega kom upp einhver kurr i hópnum. Þótti mörgum gjöfin upp á það „flott- asta”. Nú hafa borizt fréttir af því að samskot standi fyrir dyrum hjá ný- stúdentum úr MA. Ætla þeir að kveðja skólann með gjöf — og gjöfin sú skal vera nytsöm fyrir skólann. Fyrir valinu verður risastór kútur fullur af fægilegi . . . FÓIK Skipbrot Gunnars FÓLK Jón Guðmundsson tv. og Þórður Einars- son frá Keflavík eru lóttir á sór og léttir í lund. Jón hefur náð af sór 17 kilóum og Þórður 23 kilóum — 40 kíió farin þar! Mynd: Suðurnesjatiðindi.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.