Dagblaðið - 19.05.1980, Side 32

Dagblaðið - 19.05.1980, Side 32
Morgenbladet íNoregi í morgun: Samstaða innan NATO að losa ísland undan sovézkum olíuáhrif um — Norðmenn hafa sýnt furðulítinn áhuga á olíuviðskiptum við íslendinga Frá Sigurjóni Jóhannssyni, frétla- manni DB i Osló: „Eru íslendingar að hefja „taktísk- an” leik gegn Noregi? Eftir miklar tilraunir til að tryggja sér olíuvið- skipti við Norðmenn, hafa þeir nú gert samning við Breta um olíu- kaup.” Þannig hefst sérkennileg grein um olíuviðskipti íslendinga i Morgenbladet í morgun. Blaðið rekur þau vandræði sem íslendingar eiga við að striða eftir að olíuverð rauk upp og hvernig landið er næstum eingöngu háð Rússum um olíuviðskipti. Blaðið segir í þessu sambandi: Samningar milli íslands og Noregs varðandi olíuviðskipti eru alveg í lausu lofti. Noregur hefur hingað til sýnt furðulítinn áhuga á að ganga til slíkra samninga. Ef íslendingum tekst ekki að ná oliusamningum við Norðmenn, munu þeir snúa sér til Breta með sín aðalolíuviðskipti. Þetta getur reynzt óheppilegt frá diplómatísku sjónar- miði. Blaðið segir að olíusamningur- inn við Breta nægi til að fullnægja sjötta hluta olíuþarfa fslendinga. Siðan er rakinn olíusamningurinn við Sovétríkin sem hafi gengið tiltölu- lega vel fyrir sig, þar til Rotterdam- verðið steig upp úr öllu valdi. Olíuaf- urðir voru 12% af innflutningi íslendinga árið 1978, en árið 1979 um 30%. Blaðið bendir á, að þetta ástand sé afar óheppilegt frá Nató- sjónarmiði og segir orðrétt: „Það er breið samstaða innan Nató um þörfina á því að losa fslend- inga undan sovézkum olíuáhrifum.” Blaðið hefur haft samband við Jóhannes Norðdal sem segir að olíu- viðskiptin við Breta séu á hreinum viðskiptagrundvelli og það hafi ekki komið til tals að veita Englendingum sérstök fiskveiðiréttindi við island sem mótgreiða. - JH / SJ, Osló. Rúmlega sextugur maður, Guð- mundur Helgason að nafni, fórst er eldur kom upp á heimili hans að Framnesvegi 25 i Reykjavík á laugar- dag. Húsið er mjög skemmt, ef ekki ónýtt, eftir brunann. Talið er að kvikn- að hafi í út frá eldavél. Slökkviliðinu barst tilkynning um að eldur væri laus í húsinu laust fyrir klukkan fjögur á laugardag. Mikill eldur var i því er komið var á staðinn. Slökkvistarf gekk þó fljótt fyrir sig, tæpan klukkutíma. Guðmundur heit- inn fannst á rishæð hússins. Hann var Að sögn rannsóknarlögreglunnar er talið að kviknaði hafi i húsinu út frá eldavél. DB-myndir: Ragnar Th. Maðurinn borinn út úr húsinu. Hann var látinn er komið var á sjúkrahús. þegar í stað fluttur á sjúkrahús, en ekki dóttur sinni. Hún var að heiman er tókst að bjarga lífi hans. eldurinn kom upp. Guðmundur bjó einn í húsinu ásamt - ÁT „Forseti Islands er ekki valdsins maður” — sagði Guðlaugur Þorvaldsson á fundi stuðningsmanna í Súlnasalnum „Forseti íslands er i mínum huga ekki valdsins maður. Ég fylli ekki þann hóp sem vill flytja völd frá Alþingi til forsetaembættisins. Forsetinn er fyrst og fremst maður sátta, hann ber klæði á vopnin,” sagði Guðlaugur Þorvalds- son í ávarpi á fundi stuðningsmanna hans á Hótel Sögu í gær. Jón Sigurbjörnsson leikari stjórnaði samkomunni, en ávörp fluttu auk Guð- laugs þær Kristbjörg Kjeld leikkona og Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður. Þá þakkaði kona Guðlaugs, Kristín Hólmfríður Kristinsdóttir, gestum fyrir komuna í fundarlok. Hjónin Sieglinde Kahmann og Sigurður Björnsson komu tvívegis fram og gerðu stormandi lukku með frábærum söng sínum. Þau voru kölluð fram á sviðið aftur og aftur af áheyrendum. Súlnasalurinn var troð- fullur og komust færri að en vildu. „Forsetinn skal þekkja sitt fólk, hafa tilfinningu fyrir þvi sem gerist, vera virðulegur en taka hlutunum ekki of alvarlega. Mér þykir það alldægileg tilhugsun að fela Guðlaugi Þorvalds- syni og ágætri konu hans að vera í fyrirsvari i þjóðlífi okkar um næstu framtíð,” sagði Jóhanna Kristjóns- dóttir efnislega m.a. í ávarpi sínu. - ARH Guólaugur Þorvaldsson og kona hans Kristfn H. Kristinsdóttir á fundinum i gær. Fundarstjóri var Jón Sigurbjörns- son leikari. DB-mynd: ARH frfálst, nháð dagblað MÁNUDAGUR 19. MAÍ1980. Philidor-skákmótid: Jón enn- þá efstur í 7. umferð Philidor-skákmótsins í New York sigraði Jón L. Árnason rúss- . neska skákmanninn Zlotnikov, sem nú er búsettur i Bandaríkjunum. Hefur Jón því hlotið 6 vinninga. Hins vegar hefur einn þeirra er Jón hafði sigraði nú hætt þátttöku Tc'.st Jón því enn vera með 5 vinninga. Engu að síður er hann í efsta sæti. Að öðru leyti er staðan í mótinu mjög óljós þar sem keppendur hafa teflt mjög mis- munandi margar skákir. Jón sagði í samtali við Dagblaðið í gærkvöldi að hér væri ekki um sterkt mót að ræða. Það væri í 4. styrkleika- flokki og meðalstig keppenda 2340. Keppendur á mótinu eru 14. Um næstu helgi tekur Jón þátt í opnu skákmóti í New York þar sem bú- izt er við að margir mjög sterkir skák- menn verði meðal keppenda. - GAJ Þrennt illa slasað eftir áreksturáÞingeyri: Hentist 20 metra aftur fyrir hjólið „Við fengum tvær flugvélar frá Isa- firði til þess að fara með fólkið suður á spítala á laugardagsnótt. Það var mis- jafnlega illa slasað,” sagði Gunnar Jóhannesson hreppstjóri á Þingeyri. Slysið varð á þrem manneskjum. Vildi það þannig til að bíll var að taka , fram úr kyrrstæðum bil. Stúlka á reið- hjóli var að tala við bílstjórann á kyrr- stæða bilnum. Þegar bíllinn sem • framúr ók var kominn eina 40 m, kom • mótorhjól á fleygiferð á móti. Stoppaði þá ökumaður bilinn. Karimaður sem stýrði hjólinu missti stjórn á því. Hentist það á stuðara bils- ins og yfir að hinum bílnum og á stúlk- una á reiðhjólinu. Hún hentist eina 10 m aftur fyrir bílinn. Stúlka sem sat - fyrir aftan ökumann mótorhjólsins hentist 20 m í burtu en ökumaður mótorhjólsins fór á höfuðið í götuna. Hann var með hjálm. Öll eru þau á Borgarspítalanum en ekkert þeirra talið í lifshættu. -f:vi LUKKUDAGAR: 18. MAÍ: 17136 Braun LS 35 krullujárn 19. MAÍ: 8083 Braun LS 35 krullujárn Vinningshafar hringi i sima 33622. TÖGGUR

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.