Dagblaðið - 01.09.1980, Síða 8
8
/
V
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1980.
Sigur verkfallsmanna —
vinna hófst í morgun
Pólskir verkfallsmenn í Gdansk og
fleiri borgum við Eystrasaltsströndina
mættu aftur til vinnu í morgun og þar
með virðist lengstu og afdrifaríkustu
deilu verkamanna og stjórnvalda sem
orðið hefur í kommúnistariki vera
lokið með verulegum sigri hinna fyrr-
nefndu. Vinnudeilurnar og verkföllin
hafa þá staðið I átján daga.
Margt hefur gerzt á þeim tima. For-
sætisráðherra Póllands, sem aðeins
hafði setið í sex mánuði, varð að segja
af sér. Atvinnulíf landsins lamaðist af
verkföllunum án þess gripið væri til
neinna róttækra aðgerða gegn verka-
mönnum, sem ávallt virtust nota mjög
vel skipulagðar aðgerðir.
Ekki er talinn neinn vafi á að loforð
þau sem verkfallsmönnum tókst að
knýja fram með aðgerðum sínum
valda tímamótum i sögu kommúnista-
ríkjanna i Austur Evrópu.
I.eeh Walesa, 37 ára gamall reis upp
til forustu meðal verkfallsmanna í
Póllandi. Að lokinni undirskrift hylltu
vcrkamenn hann innilega.
Kröfur verkamanna voru I tuttugu
og einum lið og skiptust I meginat-
riðum I kröfur um kjarabætur og ýmis
mapnréttindi.
Stjórnvöld féllust á að greidd yrðu
hærri laun og bætt yrði úr skorti á
kjöti og öðrum matvælum. Þau voru
aftur tregari til að fallast á kröfur
verkfallsmanna um frjáls og óháð
verkalýðsfélög, verkfallsrétt og að rit-
skoðun yrði aflétt. Að lokum var þó
gengið að þessum kröfum og hafa þær
þegar verið samþykktar formlega í
kommúnistaflokki og rikisstjórn Pól-
lands.
1 verkfallinu voru þegar komnir
brestir, bæði í bannið við verkföllum
og stofnun verkalýðsfélaga, auk þess
sem fréttaflutningur af atburðum varð
sífellt frjálslegri og fyllri á báða bóga.
Þegar samkomulagið milli aðalsamn-
ingamanns pólsku stjórnarinnar og
verkfallsmanna var uridirritað í
Gdansk var því sjónvarpað um allt
Pólland. Það voru þeir Lech Walesa,
helzti foringi verkfallsmanna, og
Mieczyslaw Jagielski, aðstoðarfor-
sætisráðherra, sem undirrituðu sam-
komulagið fyrir hönd aðila. Walesa
var áður óþekktur að mestu. Hann er
37 ára að aldri. Hann er elztur þriggja
sona verkamanns sem fluttist til
Bandarikjanna fyrir sjö árum og
vinnur þar í timburverksmiðju í New
Jersey. Allir synir hans búa í Póllandi.
Að lokinni undirskriftinni fögnuðu
«C
Mieczyslaw Jagielski aðstoðarfor-
sætisráðherra, aðalsamningamaður
pólsku stjórnarinnar, undirritaði sam-
komulagið sem batt enda á verkfallið.
viðstaddir verkamenn Walesa innilega
og hann lýsti því yfir að þeir hefðu nú
náð þeim árangri að vera meðstjórn-
endur við stjórnvölinn I Póllandi.
Fyrir aðeins fáum dögum lýstu
ýmsir félagar I pólska kommúnista-
flokknum Lech Walesa og félögum
hans sem andsósialískum öfgamönn-
um. Virðist svo sem slíkir „harð-
linumenn" hafi borið lægri hlut innan
flokksins á síðustu dögum. Verkfalls-
menn hafa hins vegar ávallt lagt
áherzlu á að þeir væru mannréttinda-
hreyfing sem berðist innan sósíalsks
skipulags og styddi það I grundvallar-
atriðum. Á grundvelli þess sáu pólsk
stjórnvöld sér ekki annað fært en að
setjast að samningaborðinu og ganga
að ýmsum kröfum verkfallsmanna
áður. Má þarf nefna að símasambandi
við Gdansk yrði komið á aftur,
ýmsum andófsmönnum yrði sleppt úr
haldi bæði fyrir og eftir að samkomu-
lag var gert.
Allt var með kyrrum kjörum I
Gdansk I morgun. Verkfallsmenn
farnir frá skipasmiðastöðvunum og
lífið að færast í eðlilegt horf.
Fyrsta glasa-
górillubamið
Verkfallsmenn i Gdansk og öðrum Eystrasaltsborgum Póllands tóku þann kostinn að yfirgefa ekki vinnustaði sina eftir að
þeir höfðu lagt niður vinnu. Nokkrar tilraunir munu hafa verið gerðar til að koma I veg fyrir flutninga til þeirra á matvælum
og öðrum nauðsynjum. Fljótlega var þó látið af þvi. Á myndinni sjást nokkrir verkamenn i Lenin skipasmíðastöðinni Gdansk
á palli vöruflutningabifreiðar með vistir tii félaga sinna i stöðinni.
Eitt af loforðum pólsku stjórnarinnar i samkomulaginu við verkfallsmenn var að
dregið yrði ór ritskoðun. Fregnir pólskra fjölmiðla af verkfallsaðgerðum urðu
sífellt gleggri og komu sjónarmið beggja deiluaðila allvel fram sérstaklega þegar
leið á verkfallið. Myndin sýnir pólska borgara lesa um nýjustu atburði á dögum
verkfallsins. Litið hefur hins vegar verið skýrt frá atburðum í Póllandi i sovézkum
fjölmiðlum. Íbúar i Austur-Þýzkalandi, Tékkóslóvakiu og öðrum Austur-Evrópu-
rikjum gcta hins vegar fylgzt vel með fregnum I vestrænum sjónvarps- og útvarps-
stöðvum. Útvarpssendingar til Sovétrikjanna frá Vcstur-Evrópu hafa verið
truflaðar að undanförnu.
Forstjóri dýragarðsins, George
Rabb, skýrði frá því að fæðing^ þessa
unga væri sérlega mikilvæg að því leyt-
inu að ófrjósemi virtist mjög algeng
meðal þeirra um það bil fimm hundruð
górilla sem væru á æxlunarskeiði í
heiminum. Gæti árangurinn með gervi-
frjóvguninni því hjálpað mjög við að
halda górilluöpum við í framtíðinni.
Móðirin er sögð vera rétt um átján
ára gömul. Ekki hafði enn verið gengið
úr skugga um kynferði afkvæmis henn-
ar í morgun.
Móðirin er upprunnin í dýragarði i
Chicago en þaðan var hún send til
Memphis fyrir tveim árum til að gang-
ast undir gervifrjóvgun.
Samkomulagið í Póllandi:
Júgósiavar fagna -
kuidalegar mót-
tökur í Moskvu og
A-Þýzkalandi
Fjölmiðlar í Júgóslavíu fögnuðu í
morgun samkomulaginu milli pólsku
verkfallsmannanna og ríkisstjórnar
landsins. Var samkomulagið talinn
mikill sigur fyrir verkfallsmenn sem
komizt hefðu hjá þeim vandræðum
sém svipaðar aðgerðir hefðu valdið
annars staðar. f fréttum hinnar opin-
beru júgóslavnesku fréttastofu var
sagt að verkamennirnir í Póllandi
hefðu unnið sigur fyrir sósíaliskt
lýðræði sem koma mundi allri pólsku
þjóðinni aðgagni.
í Politika, helzta blaðinu í Belgrad,
var þó tekið fram að alþjóðlegar
skyldur Póllands yllu því að vanda
mál landsins hefðu ekki leystst við
þessar aðgerðir. Frjálslyndum
mönnum innan kaþólsku kirkjunnar
í Póllandi var þakkaður að miklu
leyti sá friðsamlegi árangur sem náðst
hefði í deilunni milli verkfallsmanna
og stjórnvalda. Tekið var fram að
mörgum spurningum sem vaknað
hefðu í verkfallinu væri enn ósvarað.
Er þar talið að meðal annars sé átt
við aðild Póllands að Varsjárbanda-
laginu.
Moskvublaðið Pravda, málgagn
sovézka kommúnistaflokksins, hefur
fordæmt leiðtoga verkfallsmanna i
Póllandi. Hefur þess verið gætt að
flytja sem minnstar fregnir af
atburðunum í Póllandi í fréttum
sovézkra fjölmiðla að undanförnu.
Ekki var neitt sagt i Prövdu um það
samkomulag sem náðist milli verk-
fallsmanna og pólsku stjórnarinnar.
Leiðtogar verkfallsmanna voru hins
vegar sagðir hafa tengst við undir-
róðursmiðstöðvar á Vesturlöndum.
Þegar hefur komið fram að austur-
þýzk stjórnvöld eru lítt hrifin af at-
burðum í Póllandi. önnur austan-
tjaldsríki hafa lítt látið heyra frá sér
hingað til.
Fyrsti górilluunginn sem getinn er
með aðstoð tækninnar fæddisl í dýra-
garðinum í Memphis í Tennessee í
Bandaríkjunum i gær. Verður unginn
því að teljast fyrsti glasagórilluunginn
hingað til.
íran:
Lausn á ríkis-
stjórnar-
vanda ekki
í sjónmáli
Ekki virðist nein lausn í sjón
máli vegna stjórnunarvanda í Iran.
Mohamntad Ali Rajaj, forsætis-
ráðherra, hefur loks tckizt að berja
saman táðherralista sinn eftir
langt þóf. Mun hann nú leggja
hann fyrir þing landsins til stað
festingar. Bani Sadr, forseti írans,
hefur tekið fram að ráðherralistinn
hafi ekki verið samþykktur af sér
og aðstoðarntaður forsetans sagði
hann ekki vera bjartsýnan á lang
lifi stjórnarinnar.
Bandaríkin:
Formleg
kosninga-
barátta
hafin
Kosningabaráttan fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum
hinn 4. nóvember nk.‘ hefst form-
lega I dag. Munu frambjóðendur
stóru flokkanna tveggja. Ronald
Reagan, repúblikani og Jimmy
Carter, demókrati, flytja opinberar
ræður og falast eftir atkvæðum
landsmanna. John Anderson full-
trúadeildarþingmaður. sem býður
sig fram utan flokka, cr lalinn hafa
verulept fylgi. F.r hann að hcfja
kosningaferð um iðnrikin i ntið-
\cslurhluta Bandaríkjnnna llann
verður i lllinois i dag.