Dagblaðið - 01.09.1980, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1980.
16
gþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
leildur brottrekstur dró
inurnar úr Skagamönnum
iær tryggt sér íslandsmeistaratitilinn eftir 2-1 sigur á Skipaskaga f sögulegum leik.
leikakast yfir sig í upphituninni — blóð-
þrýstingurinn snarlækkaði — og var
ekki sjálfum sér líkur til að byrja með.
|Það er skoðun undirritaðs að í eðlilegu
,ástandi hefði hann náð að góma knött-
'inn á leið sinni í gagnstætt horn.
1 Mikið fjör hljóp I leikinn eftir þetta og
jvoru heimamenn öllu ágengari en lítið
jvar um færi fyrr en á 16. minútu að
Sigþór Ómarsson jafnaði metin. Sigurði
jHaraldssyni, sem einnig var fjarri sinu
bezta í leiknum, mistókst þá að hand-
sama knöttinn og Sigþór var mættur á
réttan stað að baki honum og skoraði
með skoti i stöng oig inn, 1 — 1.
Það næsta sem gerðist var brott-
reksturinn og má þá eiginlega segja að
úrslitin hafi ráðizt þvi nokkuð Ijóst var
'að 10 Skagamenn gætu varla haft roð
við Valsmönnum í rúmar 60 minútur.
Engan bilbug var þó á heimamönnum
að sjá og ef nokkuð var sóttu þeir i sig
veðrið. Á 32. mínútu varði Sigurður
Haraldsson mjög laglega skalla frá Sig-
urði Lárussyni eftir langt innkast Árna
Sveinssonar og á lokaminútu fyrri hálf-
leiksins munaði hársbreidd að Skaga-
menn næðu forystu. Árni gaf þá góða
stungusendingu inn á Guðbjörn
Tryggvason. Hann komst í gott færi en
hikaði sekúndubroti of lengi. Dýri náði
að komast fyrir skotið og bjarga í horn.
í síðari hálfleiknum var strax Ijóst
hvert stefndi. Valsmenn, manni fleiri,
tóku smám saman völdin þó svo að
'heimamenn neituðu að leggja árar í bát.
Sigurmark Valsmanna kom á 57.
mínútu og var gullfallegt. Knötturinn
jbarst til Magnúsar Bergs rétt utan vita-
teigs og hann sendi hann til baka með
sannkölluðu þrumuskoti, sem Bjarni átti
enga möguleika á að verja. Magnús
kvæntist á laugardag þannig að segja má
að hann hafi fært liði sínu brúðargjöf af
jbezta tagi. Reyndar þarf ekki að efa að
Valsmenn hafa fært honum veglega gjöf
í tilefni dagsins.
. Eftir markið var lítið um hættuleg
færi. Magni Pétursson átti fast skot að
jmarki á 63. minútu og tveimur minútum
fyrir leikslok bjargaði Jón Áskelsson á
jlínu Akranessmarksins. Skagamenn
'náðu aldrei að skapa sér nein færi að
heitið gat enda erfitt um vik. Þó munaði
ekki miklu seint í hálfleiknum er Guð-
björn Tryggvason komst á auðan sjó
,eftir góðan stungubolta. Hann átti
greiða leið að markinu er honum var
klossbrugðið aftan frá af Sævari. Þar
jtaldi undirritaður 100% að um gult
spjald væri að ræða til handa Sævari en
Kjartan Ólafsson, annars ágætur
dómari, sá ekki ástæðu til að flagga þvi.
i Hægt er að segja með nokkrum sanni
að Valsmenn hafi sloppið nokkuð vel frá
Akranesi að þessu sinni. Líklegast hefðu
Skagamenn unnið leikinn með fullskip-
uðu liði allan tímann. A.m.k. gaf fyrri
hálfleikurinn það til kynna. En
knattspyrnan er óútreiknanleg, svo
sannarlega. Beztu menn Valsliðsins
voru Dýri Guðmundsson, sem lék mjög
vel I hjarta varnarinnar, Magnús Bergs
og Hermann Gunnarsson, sem áttu
báðir mjög góðan leik svo og Albert, sem
þó gerði allt of mikið af að leika með
knöttinn að óþörfu. Matthías var litt
áberandi og hefur vafalítið verið undir
mikilli pressu. Hjá Akurnesingum voru
þeir Árni Sveinsson, Kristján Olgeirsson
og Jón Gunnlaugsson beztir. Sigþór var
frískur á meðan hans naut viðen í heild-
ina má segja að liðsmunurinn hafi ráðið
úrslitum þegar upp var staðið.
DB ætlaði að ná tali af Volker Hoffer-
bert, þjálfara Valsmanna, eftir leikinn
en fann hann hvergi í nágrenni við
búningsherbergið. Er út var komið mátti
hins vegar sjá hann og konu hans ganga
arm í arm út eftir áhorfendastæðunum i
átt að hnígandi sól. Hamingjusamur
maður Hofferbert. -SSv.
La Louviere stejn-
lá fyrir smáliði!
— slegið út úr bikarnum afar óvænt.
Naumur sigur hjá Standard og Lokeren
gegnsmáliðum
„Nei, ég lék ekki með enda enn
meiddur en þetta var Ijótt tap hjá La
Louviere og óvænt þar að auki,” sagði
Þessi mynd er af markahæsta leikmanni íslandsmótsins I ár, Sigurgeir Guðjónssyni úr Grindavik. Hún sýnir hann skora
mark gegn sænska liðinu Piteaa i hittifyrra. Sigurgeir og félagar eiga góða möguleika á að komast i 2. deildina.
Spenna í 3. deildinni
- allt í hnút í öðrum riðlinum en Reynismenn sterkastir íhinum
I Mikii spenna er nú í úrslitum 3.
deildarinnar i knattspyrnu og um helg-
ina fóru tveir leikir fram. Er þar með
fyrri hluta úrslitakeppninnar lokið. í
Grindavík gerðu heimamenn jafntefli
Við Tindastól i allfjörugum leik, 1-1.
|Það voru úrslit sem Grindvikingar geta
jvart verið ánægðir með þvi báðum
peim leikjum er áður var lokið f riðlin-
um lauk með jafntefli. Fyrst gerðu
nkallagrímur og Grindavík jafntefli, 0-
ö, og siðan Tindastóll og Skallagrímur,
3-3.
Það er því hart barizt en liðin eiga öll
eftir að mætast innbyrðis á nýjan leik.
Staðan i þessum riðli er því þessi:
fTindastóll 2 0 2 0 4-4 2
Skallagrímur 2 0 2 0 3-3 2
Grindavík 2 0 2 0 1-1 2
I í hinum riðlinum virðist svo sem
ÍReynismenn hafi sterkasta liðinu á að
skipa. Þeir hafa unnið báða sína leikí
j— Einherja 1-0 og HSÞ-b á útivelli 2-0.
HSÞ-b og Einherji mættust á laugar-
dag og lauk leiknum með jafntefli^ 1-1.
Ólafur Ármannsson náði forystunni
fyrir Einherja á 10. mínútu en heima-
'mönnunk tókst að jafna með marki
Jónasar Þórs áður en yfir lauk. Staðan
í þeim riðli er nú þannig:
Reynir 2 2 0 0 3-0 4
Einherji 2 0 1 1 1-2 1
HSÞ-b 2 0 111-31
Karl Þórðarson er við slógum á þráð-
inn til hans i Belgiu i morgun. La
Louviere var slegið út úr bikarkeppn-
ipni af 3. deildarliðinu Hannup 1-0 á
útivelli og voru það öllum sár von-
brigði því liöinu hafði gengið vel í
æfingaleikjum gegn sterkum liðum.
Bikarkeppnin var á dagskrá i Belgíu
um helgina. Reuter-fréttastofan var að
sjálfsögðu ekkert að hafa fyrir því að
senda úrslit úr henni en Karl gat sagt
okkur helztu úrslitin.
Fyrst má nefna 1-0 sigur Standard á
útivelli yfir Tilleur, sem er smálið.
Darden skoraði eina markið. Lokeren
vann einnig 1-0 — Herental á heima-
velli. Waterschei — bikarmeistarar síð-
asta árs — unnu Pilsen 10-1 og FC
Liege átti i basli með Seraing, liðið sem
Ólafur Sigurvinsson lék með við frá-
bæran orðstir. Seraing lék á heimavelli
en mátti þola 3-4 tap að lokum.
Antwerpen sigraði Westerlo 2-0,
Anderlecht sigraði Turnhout 5-0,
Lierse sigraði Mons 4-2 á útivelli og þar
skoraði Van der Bergh tvö markanna
en hann var markakóngur Evrópu sl.
keppnistímabil. Beveren sigraði sigraði
Izegem 3-2 á útivelli. FC Brugge og
Molenbeek komust einnig áfram
þannig að ekki var mikið um óvænt
úrslit.
-SSv.
SVEINN
AGNARSSON.
Góður árangur á Andrésar-
Andar leikjunum f Noregi
— Bjöm Sveinbjörnsson nældi f gullið Í800 m hlaupi
Björn Sveinbjörnsson, Brciðabliki,
vann gullverðlaunin í 800 metra hlaupi í
flokki 11 ára drengja á Andrésar Andar
leikjunum, sem haldnir voru I Kóngsberg
I Noregi um helgina. Hlaut Björn timann
2.36,4 og varð langfyrstur af 32 kepp-
endum, um tiu metrum á undan næsta
kcppanda. Björn keppti einnig í 60
metra hlaupi og varð þar 18. af 54 kepp-
endum. Hljóp hann 60 metrana á niu^
sekúndum sléttum.
í flokki 12 ára kepptu þrir íslendingar.
og náði Sigrún Markúsdóttir, Aftureld
ingu. þeirra beztum árangri. Sigrún
stökk 1,43 metra í hástökki og varð
sjötta af 23 keppendum, og í langstökki
stökk hún 4,74 og varð 6. af 62 keppend:
um. Tvær stúlkur voru í sérflokki i há-
stökkinu, og setti önnur þeirra norskt
met, er hún stökk 1,64 mctra. Heims
metið, 1,69 metra, á finnsk stúlka, og
varð hún önnur i hástökkinu á leikun-
um. Linda Loftsdóttir. FH, tók einnig
þátt i langstökki og stökk hún 4,61
metra og varð 13. Þá keppti Linda
í 60 metra hlaupi og varð 5. af 18
stúlkum, hljóp á 8,8 sekúndum. Sig-
urður Einarsson, OlA, keppti i kúlu-
varpi og varð í 16. sæti af 31 keppanda.
Kastaði Sigurður kúlunni 9.28 metra. í
hástökki stökk Sigurður 1,45 metra og
hafnaði i 4. sæti, en 21 tók þátt i há
stökkinu.
Keppnin hófst klukkan 12 á laugar
dag með skrúðgöngu og fánaburði og
var eldur kveiktur að ólympískum sið.
Stóð keppnin yfir til 16 og um kvöldið j
var haldin skemmtun fyrir krakkana. Á
sunnudag hófst kcppnin kl. 8.30 og stóð j
fram eftir degi. Lcikjunum var siðan
slitið í glampandi sólskini og 18 stiga I
hita, en mjög gott veður var, þegar j
kcppnin fór fram.
Þetta var í 13. sinn, sem Andrésar
Andar leikarnir eru haldnir, og í 11
skipti, sem Islendingar taka þátt i þeim.
Fararstjóri í öll skiptin hefur verið
Sigurður Helgason hjá FRÍ, og var hann
nijög ánægður með árangur krakkanna,
svo og mótsstjórnina og mótshaldið.
- SA / V. Vernharðsson,
Kóngsbergi.
Lasse Viren
um það bil
aðhætta
Lasse Viren, einn mesti hlaupari
siðari tíma, hefur ákveðið að leggja
gaddaskóna endanlega á hilluna í
þessum mánuði. Viren, sem er rúmlega
30 ára að aldri, sigraði í 5000 og 10.000
metra hlaupunum bæði á ólympiuleik-
unum í Montreal og Miinchen en tókst
ekki að sigra I Moskvu og varð reyndar
að hætta i 5000 metrunum.
Magdeburg
er í efsta
sætinu!
Fyrsla deiidin í Austur-Þýzkalandi
fór af stað um fyrri helgi en önnur
umferð var leikin á laugardag. Þau lið
sem við helzt þekkjum hafa sem fyrr
forystuna og Magdeburg leiðir nú
töfluna eftir 4—0 slgur á Karl Marx
Stadt. Hætt er við að sá gamli hafi
snúið sér við i gröfinni við þessi úrslit
hafi hann á annað borð áhuga á fót-
bolta. Dinamo Berlln er einnlg með 4
stig að tveimur leikjum loknum og
sigraði Sachsenring Zwickau 3—1 á úti-
velli. Carl Zeiss Jena er þriðja liðið
með fullt hús að tveimur leikjum
loknum — sigraði Dinamo Dresden 2—
0 á laugardag.
Netið rifnaði
Það óvænta atvik gerðist f leik
Blackburn og Shresbury á laugardag er
Howard Kendal tók vítaspyrnu að
marknetið rifnaði er knötturinn söng i
því. Hafði einhver gárungurinn það á
orði að netiö væri Ifkast til orðið jafn-
gamalt Kendal, en hann slagar nú hátt
í fertugsaldurinn.