Dagblaðið - 01.09.1980, Page 32
I’cssi litla hnáta var heppin i
Tivoliinu- „vann” þennan hlýlega
leikfélaga.
Loksins eitthvað frítt:
Mikiðísiglátið
Griðarleg aðsókn var að sýning-
unni Heimilið ’80 i Laugardalshöll-
inni um helgina. Í gærkvöldi höfðu
um 47 þús. manns skoðaðsýninguna.
Á tímabili í gærdag var slík þröng á
þingi að vart var hægt að þverfóta. í
anddyri l.augardalshallarinnar, þar
scm sýningardeild Dagblaðsins er er
jafnan mikið fjör. Þar er boðið upp á
alls kyns matva-lasmakk og notfærir
fólk sér það óspart. í gærkvöldi var
búið að gefa aö smakka um 15 þús-
und síldarsalatsbita hjá íslenzkum
matvælum, Bjarni Bærings varbúinn
að gefa 30 þúsund bita af fiskiboll-
um, Goði var búinn að grilla og gefa
um 40 þúsund cocktailpylsur. Þessu'
var skolað niður mcð 5 þúsund lítrum
af Topp svaladrykk frá Sól, 600 litr-
um af Gevajia kaffi og 20 þúsúnd
glösum af Pepsi og 7-Up. Þrátl fyrir
þessi fríu matföng er jafnan þröng á
þingi í veitingasölu Asks á staðnum.
Fjöidi fólks nam staðar í DB básn-
um. Við greinunt jafnan frá heim-
sóknunum að einhverju leyti á ncyt-
endasíðunni bls. 4. Þar er einnig
skyggnzt inn í bása hjá ýmsutn fyrir-
tækjum. -A.Bj.
Dynjandi popptóniist
í miðri útvarpsmessu
— gleymzt hafði aðslökkva á stúdíói 1
Þeim, sem hlustuðu á útvarpsmess-
una í gærmorgun, varð ærið bylt við
þegar dynjandi popptónlist yfir-
gnæfði skyndilega guðsorðið.
Dægurmúsíkin hljómaði i rúmlega
hálfa minútu áður en skrúfað var fyr-
ir dagskrána. Eftir dálitla þögn hélt
síðan útvarp frá messunni áfram.
„Það urðu smá mistök hjá okkur,
því að gleymzt hafði að aftengja
stúdíó 1 við útsendingarborðið,”-
sagði Magnús Hjálmarsson, starf-
andi yftrmaður tæknideildar út-'
varpsins. „Það bar ekki á neinun
truflunum í útsendingunni fyrr en
farið var að vinna í stúdíóinu á tólfta
tímanum i gærmorgun. Þá dofnaði
jafnframt útsendingarstyrkurinn frá
messunni.
Þetta voru aðeins mannleg mis-
tök,” sagði Magnús jafnframt. „Við
getum ekki kennt um lélegum tækja-
útbúnaði. Ekkií þettaskiptið.”
-ÁT-
Sækýrnar úr Vogunum hlutu annað sætið I Hæftleikakeppninni. Þær skemmtu
með gamanvisum og sögðu kunnugir að þeim svipaði til Evelynar og Kolbrúnar
sem skemmtu á Hæfileikakvöldum i fyrra og hafa haft nóg að gera siðan. Á
minni myndinni, eru Nynke Bout frá Hollandi og Ingi Gunnar .lóhannsson,
sigurvegarar kvöldsins. DB-myndir: Ragnar Th. Sig.
Hæfileikakeppnin:
Flautu- og gítar-
tónlistin sigraði
— Sækýrnar úr Vogunum urðu í
öðrusæti
Ingi Gunnar Jóhannsson og Nynke
Bout frá Hollandi urðu i fyrsta sæti
Hæfileikakeppninnar í gærkvöldi. Ingi
lék á gítar og Nynke á þverflautu.
Númer tvö urðu Sækýrnar frá Vogun-
um, bráðhressar konur sem skemmtu
með gamansöng.. í þriðja sæti varð
Ólöf Ágústsdóttir sem söng nokkur Ijúf
lög. Þá var einnig fjórða sætið í gær-
kvöldi, þar sem fram komu tveir skipti-
nemar frá Bandaríkjunum og Ástralíu
og sungu háskólasöngva.
Að sögn Birgis Gunnlaugssonar
munu sigurvegarar úr þremur efstu
sætunum í gærkvöldi keppa aftur á
lokakvöldinu 28. september. Það mun
vera vegna þess að öll atriðin reyndust
mjög góð. Nú eru aðeins tveir riðlar
eftir i Hæfileikakeppninni, eu þegar
eru komin 15 atriði sem keppa munu til
úrslita.
-ELA.
„Samningar við Verkamannasambandið á þessum grundvelti óhugsandi”:
„ Vafalaust klæjar suma
i að frystihúsin loki”
— Pólitískar f ramavonir hætfplegur kvilli, segir Guðmundur i.
„Samningar við Verkamannasam-
bandið á þessum grundvelli eru
óhugsandi,” sagði Guðmundur J.
Gtiðmundsson í viðtali við DB í
morgun. Hann sagði, að tilboð
Vinnuveitenda um hækkun lægstu
launa verkamanna væru lakari en
BSRB. Auk þess byrjuðu þær mun
fyrr að skerðast.
,,Það er vitanlega engin kjarabót
fyrir verkamenn þótt Vinnuveitendur
reikni út að hjá ríkinu sé minna al'
láglaunafólki, og því þýði þetta
minni útgjöld hjá þvi í heildina til
þess en hjá Verkamannasam-
bandinu,” sagði Guðmundur J.
Hann kvað i tilboðinu felast vax-
andi mun á launum BSRB og Verka-
mannasambandsins, og hefði sá
munur þó verið ærinn fyrir. Þetta
væri augljóst og auðvelt að sanna
með dæmum.
Varðandi verkföll samkvæmt verk-
fallsheimildum sagði Guðmundur J.
að þau væru með öllu óráðin. Það
kynni að vera spurning til að virða
fyrir sér, hvort smjörlíkisfabrikkur
og steypustöðvar yrðu ekki fyrri til
að stöðva sjálfar en verkamenn og
iðnaðarfólk. Vafalítið klæjaði vissa
forkólfa vinnuveitenda talsvert mikið
í að frystihús lokuðu svo dæmi væru
nefnd. Heiðarleiki slíkra aðgerða
væri svo annað mál, en pólitískar
framavonir leiddu oft sæmilega
drengi á villigötur. Það sönnuðu
dæmin.
-BS.
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 1. SEPT. 1980.
Skilafrestur runninn út:
Sumarmyndir
bárust f ram
eftir nóttu
Skilafresturinn í Sumarmyndasam-
keppni DB er út runninn. Nær stöðug-
ur straumur fólks var á ritstjórn
blaðsins í gær, sem vildi koma inn
myndum sínum á siðasta degi. Nú, eins
og fyrri sumur, gerðist það að margar
mjög glæsilegar myndir komu síðustu
dagana og vikurnar.
Dómnefnd keppninnar mun nú í vik-
unni velja úr þeim myndum sem bárust
síðasta mánuðinn. Þær birtast að öllu
forfallalausu i blaðinu á næsta laugar-
dag og þann þarnæsta, ef tilefni gefur
til. Úrslit keppninnar verða síðan gerð
heyrinkunn um miðjan þennan mánuð.
-ÁT/ÓV-
Friður og spekt á þingi
ungra framsóknarmanna
um helgina:
Guðni Ágústs-
son kosinn
formaður
Guðni Ágústsson (Þorvaldssonar frá
Brúnastöðum) var kjörinn formaður
Sambands ungra framsóknarmanna á
þingi SUF á Egilsstöðum um helgina. t
síðustu viku leit út fyrir að þingliðar
skiptust í tvær fylkingar í formanns-
kjöri. Hópur ungra framsóknarmanna
í Reykjavík hafði skorað á Jóstein
Kristjánsson að gefa kost á sér i for-
mannsstöðuna á móti Guðna. Jósteinn
dró framboðið til baka fyrir helgina og
formannskjörið fór því fram með
ágætum friði og spekt. Fyrsti varafor-
maður SUF var kjörinn Þóra Hjalta-
dóttir frá Akureyri og annar varafor-
maður Niels Lund kennari á Bifröst.
Með formanni og varaformönnum sitja
5 menn aðrir í stjórn SUF. -ARH.
Kjötiðog
mjólkin hækka
Allar mjólkurvörur hækka í dag.
Lítri af mjólk hækkar úr 332 krónum i
375. Fjórðungslitri af rjóma fer úr 571
krónu 1643. Kílóið af skyri hækkar um
83 krónur — kostaði áður 600 kr.
Kílóið af fyrsta flokks smjöri hækkar
úr 3.266 krónum í 3.766. 45% ostur í
heilum stykkjum hækkar í 3.811
krónur, úr 3.442.
Nýslátrað dilkakjöt, sem kemur í
búðir á morgun, kostar 2.664 hvert
kíló í heilum fyrsta flokks skrokkum.
Kílóverð annars flokks verður 2.509.
Kilóverð læra verður 3.318 krónur (heil
og niðursöguð) Lærissneiðar úr
miðlæri og kótelettur kosta 3.957
krónurhvert kíló.
Tómatar, agúrkur, salat, steinselja
og paprika hæfcka í sama verð og var á
þeim fyrir lækkun á dögunum. Aftur á
móti verður verðlækkun á hvítkáli og
gulrófum. Kílóverð • hvors tveggja
verður300kr. -EVI/DS.
LUKKUDAGAR:
■filiiHli mmmmmmammmrntnTw ..mimm
31. ÁGÚST: 97
Philips vekjaraklukka
með útvarpi.
1. SEPTEMBER: 3277
Decca litsjónvarp
Vinningshafar hringi
í síma 33622.