Dagblaðið - 14.11.1980, Síða 1

Dagblaðið - 14.11.1980, Síða 1
I I I I I I I I I I I I f f f f f f f f f f 6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1980 - 259. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-AÐALSÍMI 27022. Móóir villgefa bamgegn vilja annarra adstandenda —ný lög sem eru ímeðferð Alþingis gætu breytt rétti hennar tíl þess „Sennilega er skortur á jafnrétti hvergi eins grimmilegur og gagnvart feðrum sem eignast barn í óvígðri sambúð,” sagði Karl Steinar Guðna- son (A) er hann kvaddi sér hljóðs utan dagskrár á fundi sarrieinaðs þings í gær til að vekja athygli á „skelfilegu dæmi þar um sem er í gangi þessa dagana.” Skoraði Karl Steinar á allsherjar- nefnd sameinaðs þings að funda þeg- ar í stað um frumvarp til barnalaga, sem legið hefur hjá nefndinni í 18 daga án þess að hún hafi tekið málið fyrir. Mæltist hann og til þess við forseta Sameinaðs þings að hann hraðaði afgreiðslu frumvarpsins, því það eitt gæti komið í veg fyrir mikið ranglæti sem væri að gerast þessa dagana. í nýju lögunum væru á- kvæði um aukinn rétt feðra yfir börnum sínum sem fædd væru i óvígðri sambúð. Karl Steinar rakti síðan málið sem nú er um fjallað. Barnsfaðir hafði búið með barnsmóður sinni í þrjú ár. Barn þeirra var næstum ársgamalt er þau slitu samvistum. Barnsmóðirin skildi barnið eftir í höndum tengda- móður sinnar er hún hvarf á braut. Hálfum mánuði síðar sótti hún barnið og kom þvi í fóstur annars staðar. Barnsfaðirinn vildi umgangast barn sitt, en komst þá að því að honum var það fyrirmunað og móðirin hyggst gefa barnið vanda- lausum. Piltinum brá þó fyrst er hann var upplýstur um að samkvæmt gildandi lögum komi honum slik meðferð á barni hans ekki við — réttur hans er enginn. Mótmæli duga ekki, lögin kveða áum að móðirin ein ráði fram- tíð barnsins. Karl Steinar bætti því við að í þessu dæmi, sem væri eitt af mörgum líkum sem gerzt hefðu, nyti barnsfaðirinn loforða foreldra sinna um aðstoð við uppeldi barnsins svo og aðstoðar foreldra barns- móðurinnar. En allt kemur fyrir ekki. 1 nýju frumvarpi um barnalög er gert ráð fyrir breytingu á þessum alhliða rétti móður óskilgetins barns og að samþykki föðurs þurfi til að barnið sé gefið. Þvi skoraði Karl Steinar á nefnd og þingforseta að hraða nú málum. Þrjá mánuði tæki að fullgilda vilja móðurinnar til að gefa barnið gegn vilja allra annarra aðstandenda þess. Og nýju lögin gætu breytt því mikla ranglæti sem fælist í eldri lögunum og þeim semnúgiltu. Salórne Þorkelsdóttir tók undir á- skorun Karls Steinars um að meðferð nýju barnalaganna yrði hraðað. -A.St. Lýsiogmjöl: Heilbrigöisr nefndingetur stöövaöverk- smiöjunasévilji fyrirhendi -sjábls.5 Stóra helgardagbókin fylgir bladinu í dag: Hvaðerá seyðium helgina? Útvarps- og sjónvarps- dagskrá næstu viku -sjábls. 13-20 • Einfruma veifaröngum — Ólafur Jónsson skrifarum Dags hrídarsporábls. 7 • Samband Saudiaraba ogEgypta endumýjað? — sjáerlenda yfirsýn ábis. 10-11 Heimsmeistararnir slappa af fyrir leikinn á hóteli sinu i gærkvöld — þjálfarinn, Vlado Stenzel, reiknar með frekar jöfnum leikjum við islenzka landsliðið i kvöld og á sunnudagskvöld. -DB-mynd: S. Heimsmeistarar í Laugardalshöil: „íslenzkiránorf endur eru peir mögnuðus|tu” — segir þjálfari Þjóðverjanna, VladoStenzel „íslendingar eru erfiðir heim að sækja i handknattleiknum og kemur þar margt til. Áhorfendur hér eru þeir mögnuðustu sem ég hef kynnzt. íslenzku leikmennirnir þekkja í- þróttahöllina og allar aðstæður, sem er nokkurra marka virði. Ég reikna þvi með frekar jöfnum leikjum viö ísland í kvöld — og á sunnudags- kvöld,” sagði hinn frægi landsliðs- einvaldur Vestur-Þýzkalands, Vlado Stenzel, Júgóslavinn, sem gerði Vestur-Þjóðverja að heimsmeistur- um, þegar DB hitti hann að máli í morgun. Fyrri leikur íslands og Vestur- Þýzkalands hefst í Laugardalshöll kl. 20.00 í kvöld. Þar má búast við hörkuleik. Síðast þegar þessar þjóðir léku þar — 6. febrúar 1977 — sigraði ísland 10—8. — sjá íþróttir á bls. 12 og 21

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.