Dagblaðið - 14.11.1980, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Hörkukeppni
Í3. deildinni
Eins og við greindum frá i siðustu viku er það ætl-
unin að reyna að fylgjast með keppninni i 2. og 3.
deild karla eins og þess er kostur og fyrir skömmu
birtum við úrslit allra leikja, sem þá höfðu farið
fram i 3. deildlnni. Síðan hafa farið fram tveir leikir.
Akranes vann Reyni 30-15 eins og við greindum frá i
gær og um sl. helgi vann Grótta Óðin 20-19. Tveir
leikir fara fram i 3. deildinni um helglna. Þá mætast
Reynir og Grótta og einnig Keflavlk og Stjarnan.
Staðan i 3. delldlnni er nú þessi: 1
Akranes 3 2 1 0 66 47 5
Grótta 3 2 1 0 61-58 5
Stjarnan 3 2 0 0 61 37 4
Þór.Vm. 3 2 0 1 86-70 4,
Keflavik 1 0 0 1 21—23 0
Óðinn 3 0 0 3 49-58 0
3 0 0 3 51—102 0|
Reynir
Liðin í 3. deildinni eru aðeins 7 í ár. Tvö, sem vorUj
með í fyrra, Selfoss og Dalvík, drógu sig til baka og;
aðeins eitt lið, Reynir frá Sandgerði, kom í þeirra|
stað.
-SSv.
Hollendingar
— gegn Belgíii á miðvikudag.
Níu leikmenn frá AZ’67
ílandsliðshöpnum
Hollenzki landsliðseinvaldurinn Jan Zwartkruis
valdi i gær landsliðshóp Hollands fyrir leikinn þýð-
ingarmikla I 2. riðli HM gegn Belglu næstkomandi
miðvikudag. Nlu leikmenn eru frá efsta llðinu I úr-
valsdeildinni hollenzku AZ-’67 Alkmaar. Landsliðs-
hópurinn er þannig skipaður.
Markverðir. Pim Doesburg, PSV, Eddy Treytel,
AZ-’67, og Hans van Breukelen, Utrecht. Varnar-
menn. Piet Wildschut og Ernie Brandts, báðir PSV,
Johnny Metgod, Hugo Hovenkamp, Ron Spelbos,|
allir AZ-’67, Ben Wljnstekers, Feyenoord, Martin
Zol, Twente, Ruud Krol, Napoli, og Michel van der
Korput, Torino. Framverðir. Willy van der Kerk-|
hof, PSV, Jan Peters, Jos Jokner, Peter, Arntz, allirj
AZ-’67. Framherjar. Rene van der Kerkhof, PSV,
Kees Kist og Pier Tol, AZ-’67, Pierre Vermeulen,
Feyenoord, Roine van Mierlo, Tilburg og Simon
Tahamata, Standard Liege.
Ruud Krol, sem lék með Vancouver Whitecaps í
Bandarikjunum I sumar en gerðist leikmaður hjá
Napoli á ttaliu I september, er á ný með I holienzkal
landsliðshópnum. Hann hefur leikið 71 landsleik —
met fyrir hollenzkan leikmann. Leikur Belgiu og
Hollands á miðvikudag verður i Brussel.
írar harðir
írska knattspyrnusambandið hefur kært Glasgow!
Celtic til Evrópusambandsins, UEFA, I knatt-|
spyrnu vegna ákvörðunar félagsins að gefa mark-
vörðinn Paddy Bonnar ekki eftir I HM-leikinn við
Kýpur næstkomandi miðvikudag. Þegar írar léku
við Frakka á dögunum kom eins mál upp. Totten-
ham og Arsenal ætluðu þá ekld að.gefaeftir leik-
menn, sem valdir voru i irska liðið vegna leiks lið-
anna i enska deildabikarnum. trar kærðu og.
Lundúnaliðin urðu að fresta leik sinum i deilda-.
bikarnum. t lögum UEFA eru skýr ákvæði um, að ,
félög verði að gefa eftir leikmenn I þýðingarmikla
knattspyrnuleiki. Hvernig væri að islenzka knatt-
spymusambandið tæki upp sömu stefnu og írar?
Leikur íslands og Kýpur verður i Dyflini .
Eysteinn Guðmundsson dæmir — Óli Olsen og Þor-
varður Björnsson linuverðir.
Wales leikur við Tékka i HM-keppninni i næstu
viku og likur eru á að liðið verði án tveggja sinna
beztu leikmanna. Leighton James, sem reyndist
tslendingum svo erfiður i vor, á við meiðsii að stríða!
og litlar likur á að hann geti leikið. Þá á Joey Jones,
Wrexham, áður Liverpool, leikbann yfir höfði sér.
Var rekinn af velli i leik Wrexham, sl. iaugardag.
Hins vegar getur Terry Yorath, Tottenham, fyrirliði
Wales í HM-leiknum í Reykjavík, leikið. Hann
hefur leikið nokkra leiki með varaliði Tottenham að
undanförnu og er að komast á skrið eftir meiðsli.
Leiörétting
Sá leiði missldlningur slæddist inn i grein hér á
iþróttasiðunni um deilumál Ármenninga og Njarð-
vikinga varðandi Danny Shouse að Ármenningar
hefðu verið óánægðir með samskipti sin við „út-
lendinganefnd” KKÍ. Hið rétta er að samsklpti
Ármenninga við hana hafa verið með miklum!
ágætum og það var að undirlagi „útlendinganefnd-j
arinnar” að gengið var frá þessu máli. Reyndar átti,
þvi að vera lokið áður en keppnlstlmabilið hófst en
KKÍ gerði enga athugasemd við þótt skuld Shouse
væriófrágengin.
-emm/-SSv.
Hart barizt undir körfunni í leik ÍS og UMFN i gærkvöld.
DB-mynd S.
Stúdentar ekki
hindrun UMFN
— Njarövíkingarsigruöu 108-86 ígærkvöld
Njarðvikingar halda áfram sigur-
göngu sinni i úrvalsdeildinni i körfu-
knattleiknum. Stúdentar voru engin
hindrun fyrir þá i gærkvöld i iþrótta-
húsi Kennaraháskólans. Njarðvikingar
höfðu yfirburði. Sigruðu með 22 stiga
mun, 108-86, og sá sigur hefði eflaust
getað orðið stærri, þvi Danny Shouse
var hvíldur um tima. Samt skoraði
Úrslit ífyrri
landsleikjum
Landsleikir íslands og lands hafa farið þannig: Vestur-Þýzka-
ár. ísl. V-Þýzkal.
1966 Reykjavlk 20 23
1966 Reykjavik 19 26
1968 Augsburg 16 23
1968 Bremen 16 22
1968 Reykjavik 21 22
1968 Reykjavik 19 24
1970 Tiblishi 13 20
1972 Schondhoten 10 20
1972 Augsburg 16 18
1974 Ehrfurt 16 22
1974 Zúrich 18 15
1977 Reykjavik 18 14
1977 Reykjavík 10 8
1977 Ludwigshafen 16 18
1977 Elsenfeld 12 17
1979 Viborg 14 17
ÞjáHarinn útilokaður og
víti forgörðum ílokin
— Heitt í kolunum er ÍA og Víkingur skildu jöfn, 10-10, í 1. deild
Það var heldur heitt i kolunum i nýja
íþróttahúsinu á Akranesi i gærkvöld er
ÍA og Víkingur skildu þar jöfn, 10-10, i
1. deild kvenna i æsispennandi leik. Á
lokasekúndum leiksins fékk ÍA viti og
einni Vikingsdömunni var vikið af leik-
velli um leið. Bogdan Kowalczyk,
þjálfari Vlkingsstúlknanna var ekki
sáttur við þetta og gekk inn á völlinn og
tók að ræða við dómarana. Kom til
einhverra orðaskipta og þeim lauk með
þvi að Bogdan hrækti á gólfið. Fékk
hann útiiokun frá leiknum fyrir vikið.
Áhorfendur á Akranesi hafa ekki
kynnzt þvi áður að menn gangi um
hrækjandi en þetta er þekkt fyrirbrigði
hjá Bogdan i Laugardalshöllinni. Hvað
um það, markvörður Vikings gerði sér
litið fyrir og varði skot Skagadöm-
unnar og þar með sluppu þær heim
með annað stigið.
Leikurinn í gær var ákaflega jafn all-
an tímann. í hálfleik leiddi ÍA 4-2 og
hafði yfirhöndina allan fyrri hálfleik-
inn. í þeim síðari gekk á ýmsu og skipt-
ust liðin á um forystuna. Spennan náði
þó hámarki i lokin er vítakastið fór for-
görðum.
Skagastúlkurnar hafa heldur betur
komið á óvart í 1. deildinni því þær
tóku þátt i 2. deildinni í fyrra eftir
margra ára hlé i kvennahandknattleik á
Akranesi. Önnur deildin vannst án þess
að tapa leik og árangurinn í þeirri
fyrstu er betri en nokkur þorði að
vona.
Mörkin í gær skiptust þannig. ÍA:
Laufey Sigurðardóttir 4, Ragnheiður
Jónasdóttir 2, Kristín Reynisdóttir 2,
Hallbera Jóhannesdóttir og Kristín
Aðalsteinsdóttir 1 hvor. Víkingur: Ing-
unn Bernódusdóttir 6, Eirika Ásgríms-
dóttir 2, Sigurrós Björnsdóttir og
Hildur 1 hvor.
Staðan í 1. deildinni er nú þannig.
Fram 4 3 0 1 65—52 6
FH 3 2 1 0 53—39 5
Vikingur 4 2 1 1 56—51 5
Valur 4 2 1 1 57—53 5
KR 4 2 0 2 54—59 4
Akranes 3 1 1 1 37—38 3
Þór 5 1 0 4 71—89 2
Haukar 3 0 0 3 34—46 0 -SS.
hann 45 stig i leiknum og þessi litli
svertingi er hiklaust langbeztur þeirra
útlendinga, sem leika nú i úrvalsdeild-
inni. Hittni hans frábær.
Njarðvíkingar eru eina liðið, sem
ekki hefur tapað leik í úrvalsdeildinni í
haust og það var greinilegt, að þeir ætl-
uðu sér ekki að gefa neitt eftir í viður-
eigninni við Stúdenta í gærkvöld. Þeir
tóku strax frumkvæðið í sínar hendur
og innan skamms mátti sjá 24-4 á ljós-
töflunni. Tuttugu stiga forusta aðeins á
fyrstu átta mínútum leiksins. Þar fór
saman sterk vörn og góð hittni Njarð-
víkinga en leikur Stúdenta var fálm-
kenndur. Þessi munur hélzt að mestu
til loka með frekar litlum sveiflum. Það
mátti sjá 43-24 á ljósatöflunni og stað-
an í hálfleik var 58-41 fyrir Njarðvík-
inga. Sama sagan í síðari hálfleiknum.
Njarðvíkingar alltaf betri og yfirburða-
sigur þeirra verðskuldaður. Sem fyrr
var Danny Shouse potturinn og pannan
í öllum leik Njarðvíkurliðsins — hrein
gullnáma fyrir UMFN.
Stig UMFN í leiknum skoruðu.
Shouse 45, Gunnar Þorvarðarson 14,
Valur Ingimundarson 12, Jón Viðar
Matthíasson 11, Þorsteinn Bjarnason
8, Jónas Jóhannesson 8, Júlíus
Valgeirsson 4, Árni Lárusson 4, Guð-
steinn Ingimarsson 2.
Stig ÍS skoruðu. Mark Coleman 39,
Bjarni Gunnar Sveinsson 15, Gisli
Gíslason, 12, Pétur Hansson 6, Jón
Óskarsson 4, Ingi Stefánsson 4 og Árni
Guðmundsson2.
HALLLJR
SÍMONARSON,
Forsætisráð-
herra heiðurs-
gesturHSÍ
Dr. Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráöherra, verður heiðursgestur Hand-
knattleikssambands íslands á lands-
leiknum i Laugardalshöll i kvöld. Dr.
Gunnar var meðal áhorfenda, þegar Ís-
land vann Vestur-Þýzkaland 1977. For-
sætisráðherra mun ganga fram á leik-
völlinn fyrir leikinn i kvöld — heilsa
leikmönnum liðanna, stjórnendum og
sænsku dómurunum Carl Olov Nilsson
og Lars Eric Jersmyr.
Forsala á aðgöngumiðum hefst i dag
kl. 17.00 i Laugardaishöll.
HAUSTHAPPDRÆTTI SJALFSTÆÐISFLOKKSINS
DREGIÐ Á M0RGUN
Sjálfstæðismenn.
Vinsamiega gerið skil í happdrættinu okkar sem allra fyrst.
VINNINGAR:
TOYOTA CORONA FÓLKSBIFREIÐ, KR. 7.750.000,00
SONY MYNDSEGULBANDSTÆKI, KR. 1.600.000,00
Skrifstofa happdrættisins í Reykjavík er í Valhöll, Háaleitisbraut 1,sími 82900.
Opið frá kl. 9-22.
S»kjum - Sendum
Eflum flokkinn
Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1980.
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Laugardalshöllin var þéttskipuð áhorfendum 6. febrúar 1977, þegar ísland sigraði V-Þýzkaland í landsleik í I Jónsson, þáverandi formann HSl og Birgi Lúðviksson gjaldkera ásamt eiginkonum sinum. Þorbergur
handknattleiknum. Þar var meir en helmingur ráðherra íslands eins og sést á myndinni að ofan. Nr. 1. Aðalsteinsson, sem verður l eldlinunni i kvöld, er þarna með konu sinni og Pétur Bjarnarson, þjálfarinn góð-
Gunnar Thoroddsen, Einar Ágústsson nr. 2, Magnús Torfl nr.3, Matthías Mathieien nr. 4 og Geir Hall- kunni.
grfmsson nr. 5. Og fleiri andlit þekkjum við á myndinni — Kristján Benediktsson, borgarráðsmann, Sigurð | DB-mynd: Bjarnieifur.
BENC0
BOLHOLTI 4
SÍMI 21945
Verð kr. 495 þús
„Þá var kátt f Höllinni”
— Fyrri landsleikur íslands og heimsmeistara Vestur-Þýzkalands í Laugardalshöll í kvöld
Það er mikill viðburður, þegar tæki-
færi gefst til að sjá heimsmeistara i leik
— ekki sizt, þegar um jafnvinsæla
iþróttagrein er að ræða og handknatt-
leik. Það verður spenna i Laugar-
dalshöllinni, þegar ísland og heims-
meistarar Vestur-Þýzkalands leika þar
landsleik i kvöld, sem hefst kl. 20.00.
17 landsleikur þjóðanna og það er
mikil viðurkenning, sem i þvi felst fyrir
islenzka handknattleiksmenn að heims-
meistararnir skuli leika hér. Leikir ís-
lands og Vestur-Þýzkalands hafa oft
verið jafnir — ísland sigrað þvivegis.
Tvívegis hér i Laugardalshöilinni. Einu
sinni erlendis — f Ziirich i Sviss 1944.
Siðast, þegar Þjóðverjarnir léku hér,
sjötta febrúar 1977, — sigraði Ísland
10-8 — og hafði einnig sigrað f fyrri
landsleik landanna i þessari heimsókn
18-14.
Minnisstæðir leikir og við skulum
aðeins renna yfir eitt og annað, sem
undirritaður skrifaði í DB 7. febrúar
1977 um sigurleikinn 10-8.
„Þýzki landsliðsmarkvörðurinn
Rudolf Rauer hjá Wellinghofen sýndi í
gærkvöld einhverja stórkostlegustu —
ef ekki þá beztu — markvörzlu, sem
sézt hefur á fjölum Laugardalshallar-
innar í síðari landsleik íslands og Vest-
ur-Þýzkalands. Honum — já, honum
einum — geta Þjóðverjar þakkað, að
þeir biðu ekki algjört skipbrot í leikn-
um. Island sigraði með tveggja marka
mun — og markvarzla Rauer bjargaði
liðinu frá stórtapi. Hann varði 19skot í
leiknum — mörg þeirra á svo snilldar-
legan hátt, að undrun sætti, en einnig
kom fram nokkur klaufaskapur
íslenzku landsliðsmannanna í mark-
skotum. Lokatölur 10-8.
Laugardalshöllin var þéttskipuð
áhorfendum og meira en það, þegar
leikurinn hófst. Þrettándi landsleikur
þjóðanna i handknattleik og áhorfend-
ur voru með á nótunum frá byrjun. I
lokin, þegar ísland hafði sigraði örugg-
lega, en þó í minnsta lagi, var fögnuður
meiri en ég minnist áður í Laugardals-
höll. Áhorfendur sameinuðust í köllum
lengi eftir leikinn, ísland, Island, ís-
land.
Þetta var leikur mikilla mistaka —
snilldartakta á milli — þrúgandi spennu,
og gífurlegra átaka svo jaðraði við
slagsmál á stundum. Greinilegt að
Þjóðverjar ætluðu að selja sig dýrt.
Sóknarlotur þeirra langar — og oft
ákaflega lítil ógnun. Það var líka erfitt
að komast í gegn. Varnarleikurinn, að-
all íslenzka liðsins — oft stórkostlegur
— og markvarzla þeirra Gunnars
Einarssonar í fyrri hálfleik og Ólafs
Benediktssonar í þeim síðari, góð. Þó
féllu þeir í skuggann af Rauer og það
hefðu víst allir markverðir heims gert,
eins og Þjóðverjinn stóri lék í markinu.
Mistökin voru mikil á báða bóga, en
það fór ekki milli mála að islenzka liðið
var sterkari aðilinn. Janusz Czerwinski
notaði alla leikmenn íslands í leiknum
— og stórstjörnumaf voru hvíldar ekki
síður en aðrir. Það hlýtur að vera rétt
stefna. Allir leikmenn Islands verða að
öðlast reynslu í hörðum landsleikjum
— og til þess voru landsleikirnir við
Þjóðverja. Æfing fyrir B-keppnina.
Með keyrslu á beztu mönnum Islands
allan leikinn hefði kannski unnizt
stærri sigur, sem þó var aukaatriði.
Sigur — öruggur sigur var nóg.
Það liðu heilar átta mín., þar til
fyrsta markið var skorað. Meffk, en
sami maður hafði áður misnotað víta-
kast. Þorbjörn og Geir áttu slök skot á
þýzka markið — Axel hörkuskot
neðst í markstöngina, svo markið nötr-
aði lengi. Axel skoraði fyrsta mark ís-
lands á 9. mín. Freisler náði forustu
fyrir V-Þýzkaland á 11. mín., en Jón
Karlsson jafnði fljótt, snilldarlega úr
horninu. Skoraði með vinstri — þó
rétthentur sé. Hraðaupphlaup íslands
mistókst — tveir fríir — og Þorbjörn
átti enn slök skot m.a. í opnum færum.
Víti dæmt á Þjóðverja eftir snilldar-
Iínusendingu Geirs á Björgvin. Jón
Karlsson skoraði. Sterkur kafli tsiands
og eftir 22 mín. stóð 5-2. Þorbjörn og
Ágúst skoruðu — Ágúst komst inn í
sendingu og brunaði upp. Skoraði af
öryggi. Ekki gat í varnarleik íslands á
þessum tima — en síðan kom versti
kaflinn. Þjóðverjar jöfnuðu á næstu
fimm mínútum, 5-5. Þorbjörn slasaðist
Þjálfari heimsmeistaranna, Vlado
Stenzel, broshýr á Hótel Esju i gær-
kvöld. Sagðist búast við jöfnum leikjum
við lslendinga i iandsleikjunum i kvöld
og á sunnudag. Menn minnast þess
kannski, að eftir tapleikina gegn tslandi
1977 vildi Stenzel kenna tapið meðal
annars, að leikmenn hans hefðu ekki
fengið nóg að borða á Hðtel Esjui!
og var fluttur á slysavarðstofuna. Tiu
sek. fyrir hlé skoraði Geir sjötta mark
íslands. Hörkuskot hans lenti undir
þverslá og inn fyrir línu. Dæmt mark,
en til öryggis sendi Björgvin knöttinn
aftur í markið. 6-5 í hálfleik.
Þjóðverjar jöfnuðu eftir 4 mín. í
s.h., en Björgvin náði strax aftur for-
ustu eftir stórgóða linusendingu Axels
— en tíu mín. liðu í næsta mark.
Mikið flautað. Slagsmál, tafir. Þá jöfn-
uðu Þjóðverjar í 7-7 — en síðan físk-
uðu Björgvin og Geir viti. Jóni Karls-
syni mistókst — Viðar skoraði, 8-7. Þá
kom Þorbjörn inn aftur — mikið fagn-
að — og á20. mín. jöfnuðu Þjóðverjar
8-8. Það var síðasta mark þeirra í leikn-
um. Geir fiskaði enn víti eftir góða
sendingu Þorbjörns, en Viðari brást
skotfimin. Fimm mín. fyrir leikslok
skoraði Ólafur Einarsson stórgott
mark, 9-8, og min. síðar kom Geir Is-
landi í 10-8 en Þjóðverjar voru þá ein-
um færri og Geir naut frjálsræðisins.
Það var í eina skiptið, sem manni var
vísað af leikvelli af hinum snjöilu,
dönsku dómurum. Lokakaflann voru
Þjóðverjar að mestu með knöttinn án
þess að finna glufu á islenzku vörninni.
Sigur íslands byggðist mest á frábær-
um varnarleik. Þetta veikasta atriði i
íslenzkum handknattleik áður en
Janusz kom til íslands er nú orðið það
sterkasta. Þar. áttu allir leikmenn ís-
lands hlut að máli: Liðið er orðið ákaf-
lega sterk heild með nokkrum afburða-
leikmönnum. Astæðulaust að gera þar
upp á milli. Mörk íslands skoruðu Geir
2, Jón Karlsson 2, eitt víti, Axel, Þor-
björn, Björgvin, Ólafur og Viðar (viti)
eitt hver.
-hsím.
Geir Hallsteinsson skorar f landsleiknum gegn Þjóðverjum 1977.
pace LANDMASTER II
Ný tölvustýró VHF.
nc nd rjiut