Dagblaðið - 29.12.1980, Side 1

Dagblaðið - 29.12.1980, Side 1
I I I I I I I I I I I I I I I ( I I I I I í I I 6. ÁRG. — MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980. — 291. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI1 l.-ADALSÍMI 27022. f Maður ársins 1980, Vigdls Finnbogadóttir forseti Islands, tekur við titiinum og hamingjuóskum frá fyrri handhafa titilsins, Friðrik Óiafssyni forseta Alþjóða skák- sambandsins FIDE, i bókhlöðunni á Bessastöðum slðdegis I gœr. ./)g.m vnj: Gunnar Örn. Vigdís Maður ársins ’80 —íkjöri meðal blaðamanna DB völdu blaðamenn DB engan Mann ársins 1979. Vigdís forseti sagðist þakklát og heiðruö af valinu á þessu ári, sem hefði verið sér ákaflega viðburða- og bless- unarríkt. „Það var síður en svo um síðustu áramót, að það hvarflaði að mér að um þessi áramót byggi ég hér að Bessastöðum og hefði verið til þess kjörinn af þjóð minni að vera forseti lýðveldisins,” sagði Vigdís. Forseti sagðist hafa átt mjög ánægjuleg jól að Bessastöðum, þar sem sér hefði liðið vel allt frá því hún flutti inn ásamt Ástríði dóttur sinni, og væri hún fúllviss þess að sér ætti eftir að líða þar enn betur i framtíðinni. í ýmsu hefur verið að snúast á forsetasetrinu um jólin — og í gær var t.d. jóla- skemmtun á Álftanesi, og þar var að sjálfsögðu Ástríður dóttir Vigdisar. Þegar Dagblaösmenn og Friðrik Ólafs- son bar að garði var forseti að undir- búa sitt fyrsta áramótaávarp til þjóðarinnar til flutnings í sjónvarpi á nýársdag. „Ég held að val mitt hafi á margan hátt verið gott fyrir ísland,” sagði Vigdís Finnbogadóttir. „Það hefur vakið athygli á landi og þjóð og ég er þess fullviss, að það verður auðveldara fyrir konur í framtíðinni að takast á við ábyrgðarstöður. En það sem mér þykir kannski merkilegast við þetta ár sem nú er að líða, er að það skuli hafa verið komið árið 1980 þegar kona var fyrst kjörin þjóðhöfðingi í heiminum — það hefði átt að gerast miklu fyrr.” Dagblaðið óskar Vigdísi Finnboga- dóttur forseta íslands innilega til hamingju með kjörið og óskar henni og fjölskyldu hennar allra heilla í fram- tíðinni. Friðrik Ólafssyni þökkum við samveruna og óskum honum og fjöl- skyldu hans alls hins bezta. -ÓV. Jólagjafir ríkisstjómarínnar: Margarhækkanir áaöfangadag — sjábls.4 Undurveraldar undirhlídum — ÓlafurJónsson skrífar um Para- dísarheimtábls.4 Flugeldarogblys fyriráramótín — sjá DBáneytenda- markadi bls. 10 „Sameiningartákn —ætiiþaðsérétta orðiðyfirmig” —viðtal við Gumar Thoroddsen sjötuganábls.16 Réttarhöldin íBeijing: Saksóknarim krefstdauðadéms yfírekkjuMaós formams „Þar sem fyrri handhafi þessa heiðurstitils er forsti FIDE og mér hefur alltaf þótt „fide” afar fallegt orð, þá leyfi ég mér að vona að næsta ár auðnist okkur öllum að lifa með ,,bona fide” — i góðri trú,” sagði Vig- dís Finnbogadóttir, forseti íslands á Bessastöðum síðdegis í gær. Blaða- menn Dagblaðsins hafa valið Vigdísi forseta „Mann ársins 1980” og var henni í gær kunngert valið um leið og Friðrik Ólafsson, Maður ársins 1978, nfhenti henni fagran blómvönd og af- salaði sér titlinum. Friðrik hefur raunar haldið titlinum í tvö ár, því í fyrra TVEIR UNGIR SKATAR FÓRUST í ÓVEÐRINU —áleið tilbyggða úrútilegu eftirað tjaldþeirra fauk ofan afþeim Tveir unglingar urðu úti í Eyjafirði í gærmorgun. Voru þeir úr 5 manna skátaleiðangri sem lagt hafði upp i Finnastaðadal á annan í jólum. Á sunnudagsnóttina skall á mikið óveður og fauk þá ofan af piltunum annað af tveim tjöldum þeirra. Lögðu þeir þvi af stað til byggða. Um klukkan sjö í gærmorgun komst einn þeirra að bænum Holtsseli sem er næsti bær við Grund. Lét hann vita af félögum sínum og var þegar kall- aður út mannskapur til leitar. Um 50 manns úr Hjálparsveit skáta, Flug- björgunarsveitinni og frá lögreglunni leituðu piltanna. Einn þeirra fannst látinn, kominn niður af fjallinu. Hinir þrir fundust upp undir fjalls- brún, grafnir í fönn. Tveir þeirra voru lífs en einn látinn. Þeir sem lífs voru voru fluttir á sjúkrahús og voru í gærdag taldir úr lifshættu. Sá er komst að Holtsseli var hins vegar, að því er virtist, al- heill. Piltarnir sem létust voru Ferdinand Guðmundsson og Þorgeir Rúnar Finnsson, 15 og 16 ára. Elzti maður- inn í leiðangrinum var tvítugur. Þetta 'var hópur sem alvanur var fjallaferð- um og vel út búinn en veðrið sem yfir skall var meira en nokkur átti von á. Tafði veðrið mjög alla leit. -DS.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.