Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 4
4 /* DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980 r v Hækkanirá bensíni, leigubflum og unnum kjötvörum: / RÍKISSTJÓRNIN „HRQNSAR ÚT’ Ríkisstjórnin mun líklega á næstu dögum „hreinsa út” ýmsar verðhækkunarbeiðnir, sem liggja fyrir henni, og leyfa talsverðar hækkanir. Ríkisstjórnin hefur nú heimilað ýmsar hækkanir, á bensíni og olíu, leigubilatöxtum og unnum kjötvörum. Bensínlitrinn hefur hækkað úr 515 krónum í 595 krónur, eða um 15,5% og kom hækkunin í gildi á aðfanga- dag. Þeir, sem í gær mynduðu biðraðir til að fylla tankana fyrir verkfall bensínafgreiðslumanna, fengu að kenna á hækkuninni. Gasolíulítrinn hefur hækkað úr 210 krónum í 234 krónur, eða um 1 l,4prósent. Svartolíutonnið hefur hækkað úr 167,400 krónum í 171.000 krónur, eða um 2,2 prósent. Taxtar leigubíla hækka um 14 prósent. Unnar kjötvörur hafa hækkað um 15 til 18,5%. -HH. V Gullrúsínan fór á 250 þúsund kr. Gullrúsían fræga. sem til stóð að selja í pylsu úr pylsuvagninum í Austurstræti í Reykjavík, var slegin hæstbjóðanda á opinberu uppboði þar í götunni á Þorláksmessu. Var rúsínan á endanum slegin á 250 þúsund krónur — manni, sem ekki vildi láta nafns síns getið, en kvaðst ætla að eiga hana sjálfur. Á stærri myndinni má sjá uppboðshaldarann, Sigmar B. Hauks- son, hvetja viðstadda til að bjóða hraustlega en á þeirri innfelldu telur kaupandinn (sköllóttur með trefil til hægri) seðlana fyrir Ásgeir Hannes pylsusala. I)B-myndir: Sig. Þorri. Síðasta jazzkvöld ársins Síðasta jazzkvöld Jazzvakningar á þessu ári verður á Hótel Borg i kvöld og hefst klukkan21. Þar koma fram Kvartett Guðmund- ar Ingólfssonar og Nýja Kompaniið. Sérstakir gestir verða Rúnar Georgsson og Viðar Alfreðsson. Kvartett Guðmundar skipa auk hans Björn Thoroddsen á gítar, Gunnar Hrafnsson á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommur. í Nýja kompaníinu eru Jóhann G. Jóhannsson á píanó, Jóhanna Þór- hallsdóttir, söngur, Sigurbjörn Einars- son tenórsax, Sigurður Flosason altsax, Sigurður Valgeirsson á trommur, Sveinbjörn Baldvinsson á gítar og Tómas Einarsson á kontrabassa. -ÓV. Undur veraldar undir Hlíðum Sjónvarp: PARADfSARHEIMT Kvikmynd eftir Rotf Hadrfch gerð eftir sögu Halldórs Laxness Fyrsti og annar hklti Paradísarheimt, sagan sjálf, er kannski dálitið I ætt við kistil, þar sem hvert leynihólf opnast innar af öðru, en enginn veit í rauninni hvað það innsta geymir. Nema kistillinn er að sínu leyti í líkingu við það musteri þar sem heilagur andi mælir i organ- hljómi. Enginn þarf víst að vænta þess að sú gáta verði ráðin í bíómynd hvað það að endingu er sem knýr Steinar bónda í Hlíðum að heiman frá búi og börnum, lætur hann selja af hendi sálarhest sinn og sálarkistil fyrir bílæti af útlendu kóngafólki, kaupa sér um síðir við gæfu sinni fyrirheitna landið fyrir vestan haf til að gefa það börnum sínum. Þar verða engin svör uppi nenia þau sem sagan geymir sjálf: að hann dreymdi til að kaupa dóttur sinpi kóngsríki fyrir hest. Að hann geti ekki hugsað sér það fríðleiksyndi líða hjá sem bernska hennar geymdi. Það er að vísu löng leið í tímanum austan undan Steinahlíðum og vestur þangað sem sannleikurinn býr. Og ekki vert að gleyma vísdómsorðum Runólfs prests í Saltsnjódal að viska manna hafi ekki náð að leiða þá langt á við hitt — ,,hve langt fáviska þeirra og jafnvel sérdeilis heimska þeirra, að ég nú segi ekki' fullkomin blinda þeirra hefur náð að lyfta þeim.” Skáldlegu launungarmálin í Para- dísarheimt verða víst seint ráðin við sjónvarpið. Það verður ekki sagt í mynd, sem ekki er unnt að koma orðum að á bók. Sá andi og sú raust, sem í bókinni býr, það er samt sem áður raust og andi epískrar frá- sagnar. Að reyna að koma orðum að einhverju sem kannski er að endingu ósegjanlegt. Eins og þeirri áráttu Steinars bónda að vilja fyrir hvern mun fá já út úr tilverunni þótt hann viti manna best, að það orð merki um síðir hið sama sem nei. Það er ekki í lítið ráðist að reyna að segja frá öllu þessu í kvikmynd. Sama þótt miðillinn sé sjónvarp og vettvangur frásagnar þar með heima í stofu þar sem á að vera nógur tími að gefa sig að sögum. En það virðist samt sem áður vera metnaður Rolf Hándrichs leikstjóra, að koma frá- sagnarefni Paradisarheimtar helst öllu og óskertu fram í mynd, og til þess tekur hann sér það ráðrúm sem þarf og verður að vera. Ætli hafi ekki samt ýmsum þótt sagan nokkuð hæg af stað og sein i svifum í fyrsta hluta kvikmyndarinnar, á jóladags- kvöld. En þar kom í gærkvöldi, í öðrum þriðjungi sögunnar, að frá- varpinu með ráðnar hugmyndir um fólkið og atburðina og efni frásagn- arinnar, og fer ekki hjá því að þær ráði því að marki hvernig maður nemur hana. Ekki auðráðið í það við svo búið hvernig mynd eins og þessi gagnast erlendum áhorfendum, sem ekki hafa nema í mesta lagi lítilshátt- ar nasasjón af bókinni og höfundinum og flestir áreiðanlega alls enga. Nema auðvitað má ætla að sjálft hið framandlega frásagnarefni, umhverfi og landshættir, fólk og at- burðir, sem frá er sagt, öðlist sitt sér- sögnin reis til fulls upp til lífsins á skjánum, orðin þá um leið eitthvað annað en eintóm endursögn eða endurgerð skáldsögunnar. Þá var augað sem sér í mynd um siöir komið I staðinn fyrir þá raust, sem talar i sögu. Fyrir íslenskan áhorfanda verður að vísu alltaf fjarska náið með mynd- inni og sögunni: mann ber að sjón- staka aðdráttarafi fyrir þá áhorf- endur, sem á annað borð ætla myndinni það tóm, sem hún gerir tilkall til. Þá fær hún væntanlega líka allt annarskonar gildi fyrir þá en okkur sem þekkjum allt þetta meira eða minna fyrir. Hvað sem þessu líður: vænghaf frásögunnar fannst mér fyrst birtast til hlítar I öðrum hluta myndarinnar. Víst voru margir einstakir frásagnar- þættir aðdáanlega af hendi leystir I fyrsta hlutanum, ég nefni bara til að láta það eitthvað heita hina kostulegu konungsveislu á Þingvöllum, hrossa- Ijóslifandi einstaklingar, og í senn gæddir einhverjum hinum „yfir- skilvitlegu” eðlisþáttum fólksins í sögunni. Þetta hygg ég að meiru varði um Leiklist kaupmannaþátt heima í Hlíðum, för á lambafjall. Sjálfsagt er hinn hægri aðdragandi frásagnar með ýtarlegri uppmálun á fríðleik landsins í fyrsta hlutanum nauðsynlegur vegna fram- vindu efnisins og atburðanna, sem fara í hönd. Umfram allt gefst þar ráðrúm til að leiða fólkið í sögunni hægt og hægt fram fyrir sjónir áhorf- enda, láta okkur kynnast því í þess eigin umhverfi: Steinu og Steinari, Birni á Leirum og því fólki öllu. Og sjálfsagt er efniviður miðhlutans með sínu þriskipta sjónarsviði, heima á íslandi, í Kaupmannahöfn og Júta- byggð fyrir vestan þakklátari til frá- sagnar í mynd en upphafsþætti sögunnar. Best að geyma sér skoðanir á niðurstöðum myndarinnar, atburða- rásar og persónulýsingu uns hún er öll fram komin og þriðji hluti hefur verið sýndur á nýársdag. En það sem hugann hreif og hélt athygli manns fastri við skjáinn í gærkvöldi, það var fólkið í sögunni, séð svo næpru og vökulu auga, hið sama fólk í sðgu og mynd en allt séð upp á nýtt. Engin ástæða til að bera saman eða gera upp á milli einstakra mannlýsinga, stærri og minni hlutverkanna, mestu skipti hin myndvísa skynjun og skipan frásagnarefnis. Sjóntaugin sjáli í myndinni skipar öllu i heild, andlitum, atvikum, landsháttum, öldungis óreyndum leikendum, fólki af götunni eins og sagt er, og alkunn- um listamönnum úr leikhúsi. Hvar- vetna hefur komið raunverulegt fólk, myndina en ótöluleg smekksatriði um einstök frásagnarefni og úrlausn þeirra, sem alltof langt mál yrði að nefna. Auðvelt að geta um það sem mesta athygli og aðdáun vekur: fornmannlegt atgervi Þórðar Sigurðssonar í gervi Björns áLeir um, andlitið á Arnhildi Jónsdótiur, barnslegu fegurð Fríðu Gylfadóttur. Undur að sjá hvað myndavélin gat lesið í andlit stúlkunnar, og þó var hún sama gátan sem áður, í mynd- inni eins og sögunni. Eitthvað svipað má segja um föður hennar, Steinar kútinn undan Hliðum, og að vísu fannst mér mannlýsing Jóns Laxdals eitthvert mesta og minnisverðasta af- rek islensks leikara, sem ég hef lengi séð. Hin borginmannlegi hagleiks- maður úr sveitinni til forna kom sifellt nær manni sem leið á myndina, gestur á salargólfi konungs, safnaðarstólpi í Jútaríki um síðir, það lýsir af honum manngæska og einfeldni hans með öllum drýgindunum. En innst inni er hann gáta, þversögn, undur veraldar sjálfur. Að lokum bara tvö andlit úr hópnum: Gylfi Gunnarsson í hlut- verki konungsritara, Helgi Skúlason, sem séra Jón undir Steinahlíðum, hvortveggja finnst mér dæmi um það hvernig myndin eykur við og umskapar frásagnarefni úr sögunni, en af fyllstu hollustu við efnið og andann í henni. Og allra síðast tónlist Jóns Þórarinssonar. Makalaust fer hún myndinni vel.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.