Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 29.12.1980, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980 5 Oveður um Suður- og Vesturland: 11 vindstig í Reykjavík —truf lanir á síma, raf magni og útvarpi „Þetta byrjaði allt að kvöldi 26. með suðaustanátt og hláku,” sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur er hann var spurður um veður það sem gekk yfir landið núna um jólin. Olli veðrið víða nokkrum skemmdum, einkum á Suður- og Vesturlandi, þak- plötur fuku af húsum og miklar skemmdir urðu á hafnargarðinum á Akranesi. Fór úr honum stórt stykki og gekk sjór þar látlaust inn í gærdag. ,,Á laugardaginn fór svo allt af stað,” sagði Páll. ,,Þá snérist áttin í suðvestan og vestan og hvessti mjög. Það gekk á með skúrum og hagléljum og var veðrið verst á laugardags- kvöldið. Þá var svona 8—10 stiga vindur nærri því beint af vestri sunnan- og vestanlands. E1 voru mest við sjóinn, það er að segja vestanlands, en þau náðu töluvert langt austur úr. í gær var veðrið eitthvað skárra þó það væri ennþáslæmt. Hvassast var í Reykjavík um 11 vindstig en úti á sjó var enn hvassara, milli 10 og 12 stig að jafnaði. Þrumur og eldingar komu með þessu veðri og voru þær aðallega á laugardagskvöldið og sunnudagsnóttina. Það er ekki svo sjaldgæft að hér séu þrumur að vetrar- lagi en oft heyrast þær ekki vegna hvassviðris,” sagði Páll um veðrið. Vegna veðurs varð að aflýsa mörgum jólaskemmtunum og Akra- borgin felldi niður ferðir. Innanlands- flug lá niðri og millilandaflug gekk mjög illa. Litlu munaði að slys yrði á Hvolsvelli. Þar laust eldingu niður í skiptiborð símans með þeim af- leiðingum að úr því gneistaði. Er það í megnasta ólagi siðan og taldist mildi að stúlkan sem við það sat slapp ómeidd. Símasambandslaust var í gær allt frá Hvolsvelli austur og norður um alla leið í Mývatnssveit. Rafmagnstruflanir voru einnig miklar á Suðurlandi á laug- ardaginn og loftnetsstengur slitnuðu niður á útvarpssendinum á Vatnsenda þannig að ekki var hægt að útvarpa á langbylgju á laugardag og sunnudag. -DS. Slæm færð á láði og lofti Þar sem frétzt hefur af færð á landinu er hún víðast slæm. En vegna símasambandsleysis og truflana var örðugt að fá fréttir. í nágrenni Reykjavíkur er mikil hálka á vegum og þegar mikið rok bætist ofan á er umferð mjög hættuleg. Hellisheiði er ófær á köflum og eins leiðin til Keflavíkur. Fært var fyrir Hvalfjörð í gærdag, en illfært jóla- dagana. Ekki gengu samgöngur betur i lofti. Ekkert var flogið innanlands á laugar- dag og á sunnudag og féllu niður yfir 20 áætlunarferðir. Biðu margir á hin- um ýmsu stöðum landsins eftir flugi til þess að komast heim úr jólaleyfi. -DS. Flugvél fauk á Reykjavíkurflugvelli: Haf naði á skúr Iscargo Flugvél fauk á Reykjavíkurflugvelli á laugardaginn. Var þetta vél af gerðinni DC-3 á bandarískum skráningarnúmerum. Flugvélin hefur staðið á vellinum frá þvi I fyrrahaust, er hún varð innlyksa hér. Siðan hefur verið heldur lítið um hana sinnt. Vélin stóð vestan við byggingu flug- skóla Helga Jónssonar og fauk hún afturábak eina 10—20 metra og hafnaði á litlum skúr í eigu Iscargo. Skemmdist vélin þó nokkuð á stýris- búnaði en skúrinn nær ekkert. Vélin var fest niður með bungum steypu- klumpum, sem hún di ó með sér. -DS. «c Flugvéiin fauk 20—30 metra, eins og glöggt má sjá af förunum eftir h.jólin. DB-mynd: Sig. Þorri. Jarðskjálftar á Öxarfirði:. Grímsey- ingar hrist- ust í rúm- um sínum Grimseyingar vöknuðu flestir um áttaleytið á jóladagsmorgun við jarðskjálfta sem upptök átti á Öxarfirði. Hélt áfram að skjálfa fram eftir degi og varð mesti skjálftinn um hálftólfleytið, 4,9—5 stig á Richters- kvarða. Aðfaranótt annars jóladags fundust einnig nokkrir skjálftar, 4,6- 4,7 stig. Annan dag jóla hafði jörðin hins vegar róast og varð ekki vart skjálfta. Stærstu skjálftarnir fundust uppi á landi, víða á Tjörnesi og á Húsavík. Á Ólafsfirði varð fólk vart skjálfta aðfaranótt annars jóladags. -DS. Mikil umferð var um Fossvogskirkjugarð á aðfangadag eins og undanfarin ár. Urðu margir til að koma og hlúa að leiðum horfinna ástvina sinna — þótt erfitt væri um vik vegna snjóa. DB-mynd: Sig. Þorri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.