Dagblaðið - 29.12.1980, Page 17

Dagblaðið - 29.12.1980, Page 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. DESEMBER 1980 17 N -LIFK) ER BUNDISLEIKUR” Stund milli stríða með ballettmeistaranum Jochen Ullrich v sýningum hennar ef þess gerist þörf, en að öðru leyti er hann sjálfstæð eining.” Hvernig er háttað tengslum Ullrich og Sveinbjargar Alexanders? „Sveinbjörg hefur starfað með mér frá upphafi og ég met hana mikils. Hún er sífellt að þroskast og hefur óvenju breitt tjáningarsvið í dansinum, getur túlkað allt frá gamni og upp í harmsögur. í gegnum Sveinbjörgu kynntist ég íslenska dansflokknum, sem ég sá fyrst á ferð hans um Finnland. Þegar mér bauðst að setja upp þennan ballett, tók ég þvi fegins hendi þótt það kostaði ýmiss konar tilfærslu í Köln, — m.a. þurfti ég að kippa Sveinbjörgu út úr ballett við Mandarínan eftir Bartók, sem ég var að semja. Til íslands hefur mig lengi langað, ekki síst vegna landslagsins.” Hvaða skoðanir hefur hann á Smurbrauðstofan BJORNINN Njólsgötu 49 - Sími 15105 Á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu stendur yfir æfing á ballettnum Blindisleikur við tónlist Jóns Ásgeirs- sonar. Nanna Ólafsdóttir dansari stjórnar segulbandsupptöku og fyrir miðju stendur Jochen Ullrich baliett- meistari og horfir hugsi á þau Svein- björgu Alexanders og Michael Molnar dansa tvídans. Það er auðsætt að Ullrich hefur unnið með þeim áður, þekkir styrkleika þeirra til hlítar og getur leiðbeint þeim með einföldustu handa- og höfuð- hreyfingum. Fyrir framan svið stikar tónskáldið eins og ljón í búri, vindur sér allt í einu að blaðamanni DB og hvíslar: „Hann er klár, djöfull klár þessi Ullrich.” Fleiri urðu til að bera lof á hinn þýska ballettmeistara og fýsti okkur því að taka hann tali. Við hittumst eina stund milli stríða í kaffistofu Þjóðleikhússins. Ullrich er 36 ára gamall, hóf upphaflega nám í stærðfræði og efnafræði við háskólann í Köln, en uppgötvaði þá að hann hafði miklar taugar til dansins og gerðist brátt dansari við Kölnaróperuna. Árið 1971 stofnaði hann og fjórir kollegar hans danshópinn Tanzforum, sem slarfað hefur síðan í Köln, í nánum tengslum við óperuna þar. Til skamms tima var Tanzforum eini hópurinn sem sérhæfði sig í flutningi nýrra dansverka í Þýskalandi, en nú eru komnir fram aðrir dansfiokkar, sem hafa þetta að markmiði. Ullrich er stjórnandi flokks sins og oft dans- höfundur, en auk þess fær hann til liðs við sig og flokkinn ýmis tónskáld og dansahöfunda. Tanzforum hefur ferðast viða um heim og dansar flokksins hafa verið fluttir víða, m.a. hér á landi. Við byrjuðum á því að spyrja Ullrich um skólagöngu hans, hvort bakgrunnur hans í stærð- og efna- fræði kæmi fram í dönsum hans. Hann brosti brcitt og hrísti höfuðið. „Ég held ekki. Ég held ég hafi einmitt snúið mér að dansi vegna þess að hann bauð upp á annað hug- arfar, tilfinningar fremur en lógík. Þó er þetta tvennt ekki eins andstætt og margir halda. Listdans er m.a. byggður á eigin lógík, útreikningum, vinnu. með gefnar stærðir eða jafnvel óþekktar.” Hvcrs konar dansflokkur er Tanzforum? „Við helgum okkur nútímadansi fyrst og fremst, fáum tónskáld til að semja fyrir okkur tónlist og dans- höfunda til að semja fyrir okkur dansa. Ég held að við vinnum þarna þarft verk, því dansinn þarf að vera hluti af samtíð okkar. Við megum ekki endalaust að tyggja upp gamla hefð. Flokkurinn er annars hluti af Kölnaróperunni og tekur þátt í (DB-mynd Þorri). . OKKAR. IREYKJAVIK Skátabúðin, Snorrabraut Volvo salurinn, Suðurlandsbraut Alaska, Breiðholti Fordhúsið, Skeifunni Seglagerðin Ægir Bankastræti 9 f A Lækjartorgi Styðjið okkur-stuðlið að eigin öryggi Hjálparsveit skáta Reykjavík + Jochen Ullrích ballettmeistari. islenskum listdansi? ,,Ég er mjög hrifinn af listrænum metnaði dansaranna. Þeir eru Ullrich (lengst t.v.) við æfingar á Blindisleík. (DB-mynd — Bj. Bj.) AÐALSTEINIM INGÓLFSSON ákveðnir í að skapa sér og list- dansinum starfsgrundvöll á íslandi, hvað sem tautar og raular og ég virði þann áhuga og vildi gjarnan geta lagt þeim lið. Samstarf okkar hefur svo verið með hinum mestu ágætum. Dansararnir eru fjölhæfir og sviðs- vanir, hafa góða leikræna hæfileika og eru frábærlega músíkalskir. Þeir hafa sterka persónuleika og tjá hann í dansi sínum og eru alveg óhræddir við að spyrjast fyrir um það sem við erum að gera hverju sinni, krefjast skýringa. „Nú, ég hef séð unga dansara úr ballettskólanum hér og þeir virðast í mjög góðri tæknilegri þjálfun þannig að ég mundi ekki hafa áhyggjur af þeirri hlið. Hins vegar þarf flokkurinn á þjálfuðum karldöns- urum að halda sem mótvægi við stúlkurnar og hann þarf styrka, varanlega listræna stjórn til að halda uppi háum „standard”. Hvert cr inntak balletts þeirra Jóns Ásgeirssonar, Blindisleikur? „Ég held að það sé sígilt og varði veruleikann og tálmyndir lífsins. Við göngum utn blindandi, án þess að vera meðvitaðir um blindu okkar, uns einhver aðvifandi sviptir hulunni frá. Jón hafði ýmis þjóðsöguleg minni í huga er hann samdi tónlistina og þótt mín túlkun sé á ýmsan hátt frábrugðin hugmyndum hans, þá held ég að við séum á sömu linu. Ég á t.d. mjög auðvelt með að setja mig inn í þann þjóðsagnaheim, sem Jón vísar til, þvi sjálfur er ég alinn upp í héraði, sem á sér ríka þjóðsagnahefð. Þjóðsagnaminnin gera mér svo kleift að leggja út af þjóðdönsum á minn há , umbreyta þeim, byggja upp ai.ustæður þeirra, o.s.frv. í leiðinni vil ég sérstaklega geta um framlag Sigurjóns Jóhannssonar, sem gert hefur leikmynd að ballettnum. Ég er sérstaklega hrifinn af hugmyndum hans og vildi feginn geta unnið með honum öðru sinni.” Þá kom kallið. Ullrich þurfti að athuga hvernig förðun yrði háttað, svo og hvernig búningum miðaði. Og árangurinn sáum við annan I jólum. -Al. iAnú/l Xminnum/ w Tilboðs- i/erð á kinda- bjúgum BLOSSOM Frábært shampoo BLOSSOM shampoo Ireyöir vel, og er faanlegt i 4 geröum. Hver og einn getur fengiö shampoo viö sitt hæfi. Reyndu BLOSSOM shampoo, og þér mun vel lika KJÖTBÚÐ SUÐURVERS STIGAHLÍÐ - SlMI 35645 HaildtölubirgAir. KRISTJÁNSSON HF. Ingóllattraeti 12. timar: 12800 - 14878

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.