Dagblaðið - 23.01.1981, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1981.
[C íþrótfir íþrótfir íþróttir íþrótfir íþróttir íþróttir íþrótfir íþróttir íþróttir ]]
KEFLVIKINGAR
MÖLUÐUFRAM
—standabeztað vígiíl.deild eftir 78-53 sigur
á aðalkeppinautunum
Keflvíkingar stigu skrefi nær
úrvaisdeildinni í gærkvöld með
því að gersigra höfuðand-
stæðinginn, Fram, 78—53 í all-
skemmtilegum leik þar syðra.
Reyndar byrjuðu heimamenn
heldur illa, Framarar náðu sex
stiga forskoti, 8—2, og siðan
12—6, en þá hætti
hamingjuhjólið að snúast hjá
þeim, a.m.k. i rétta átt, þrátt
fyrir stór nöfn og sterkt lið á
pappírnum eins og Val Bracey
og Símon Ólafsson, sem voru ó-
venjuslappir i leiknum. í lið
ÍBK vantaði hins vegar fjóra af
aðalmönnum liðsins, sem voru
veikir.
Á þriðja hundrað manns
horfðu á leikinn og hvöttu
heimamenn hressilega. Einn
unglingur blés í túbu ÍBK til
örvunar en ekki fengu gestirnir
sama tón úr nefndu hljóðfæri.
ÍBK og Fram eru núna jöfn að
stigum, en Framarar hafa tapað
tveimur leikjum — báðum fyrir
ÍBK — en eru með einum leik
fleira. Eina tap ÍBK er hins veg-
ar fyrir Fram. Baráttan stendur
því á milli þessara liða um hið
eftirsótta sæti úrvalsdeild-
arinnar. Þau eiga eftir að reyna
með sér einu sinni í Reykjavík.
Eftir mjög góða byrjun
fataðist Frömurum spilið og
hittnin en Keflvíkingar náðu sér
að sama skapi vel á strik þótt
hittnin hafi ekki verið upp á
marga fiska í fyrri hálfleik.
Björn Víkingur Skúlason
stjórnaði aðallega spilinu og
þegar Axel Nikulásson var
kominn á skriðið ásamt Jóni
Kr. Gíslasyni, en þeir áttu báðir
stórleik, náðu heimamenn yfir-
höndinni og unnu stórsigur,.
78—53. Terry Read og Viðar
Vignisson komu einnig mjög'
við sögu með góðum leik.
Framarar reyndu að klóra í
bakkann eftir að þeir misstu
forystuna og tókst að jafna,
23—23, en eftir það voru þeir
heillum horfnir. Svæðisvörnini
í byrjun s.h. mistókst herfilega
og allar gáttir opnuðust fyrir
ÍBK. Einna helzt var það Þor-
valdur Geirsson sem veitti ein-
hverja mótspyrnu, en mátti,
yfirgefa völlinn með 5 villur
skömmu fyrir leikslok. Dóm-
arar voru Kristbjörn Albertsson
og Björn Ólafsson og dæmdu
mjög vel.
Stigin. ÍBK: Axel Nikulás-
son 23, Jón Kr. Gíslason 20,
Terry Read 14, Viðar Vignisson
12. Fram: Þorvaldur Geirsson
14, Val Bracey 12, SímonÓlafs-
son 8, Ómar Þráinsson 5.
-emm.
GUÐJON FER TIL
KA FÁIHANN FRÍ
—annars liggur leiðin til Kalif orníu
Nú mun það vera frágengið
að bákvöfðurinn knái, Guðjón
Guðjónsson, gangi til liðs við 1.
deildarlið KA á Akureyri fyrir
næsta keppnistímabil. Guðjón
á aðeins eftir að fá leyfi hjá
Enn skellir hjá
borðtennislandsliðinu
Borðtennislandsliðið steinlá í
gær fyrir A-liði Englendinga og
B-liði Japana á opna welska
meistaramótinu í borðtennis,
sem fram fer þessa dagana i
Cardiff. í báðum tilvikum var
um 0-3 tap að ræða hjá íslenzka
liðinu. Karlalandsliðið lék við
Englendingana og stúlkurnar
við Japani. Þar með voru bæði
liðin úr leik, en einstaklings-
keppnin er enn eftir.
vinnuveitanda sínum í Keflavík,
en þar er fyrir Garðar Oddgeirs-
son, formaður ÍBK. Telja
verður allar líkur á að Guðjón
fái tímabundið leyfi úr vinnu,
en takist það ekki mun hann
halda til Kaliforníu í apríl —
ætlaði upphaflega þangað sl.
haust. Það er þvi sama hvernig
allt fer, Guðjón leikur ekki með
ÍBK i sumar. Er þar vissulega
skarð fyrir skildi en að sama
skapi mikill styrkur fyrir KA
fari hann til þess, eins og allt
bendir til.
- SSv.
Hrun Stúdentanna
ÍR-ingar voru ekki i neinum
vandræðum með að leggja
Stúdenta, sem léku eins og
höfuðlaus her, að velli i úrvals-
Þeir bræöur Hjörtur (t.v.) og Kristján Oddssynir hafa tekiö stórstíg-
um framförum hjá ÍR aö undanförnu og eru hér viö öllu búnir er Árni
Guömundsson sækir aö þeim í gær. DB-ntynd S.
deildinni i gærkvöld. Lokatölur
urðu 83—63 ÍR í vil eftir að
staðan hafði verið 34—28 þeim
í vil í hálfleik. Það var fyrst og
fremst sterkur varnarleikur ÍR-
inga, sem færði þeim sigurinn
og gaman var að sjá að hinir
nýju menn liðsins eru að koma
mjög til — einkum þeir bræður
Hjörtur og Kristján Oddssynir.
Hjá ÍS er erfitt að skýra
frammistöðuna. Leikur liðsins
var stórköflóttur í meira lagi og
síðari hálfleikurinn hreint af-
leitur og var sá fyrri þó ekki
nein snilld.
Eftir rétt tæpar sex mínútur
af leiknum var staðan orðin 8—
0 ÍR i vil. Um miðjan hálf-
leikinn var hún orðin 16—4!
Varnarleikurinn góður en
sóknirnar gengu alls ekki upp.
IS tókst að minnka muninn
aðeins fyrir hlé og bezti og
reyndar eini kafli liðsins þar
sem tilþrif yfir meðallagi sáust
kom í byrjun síðari hálfleiks. Á
þremur mínútum breyttu þeir
stöðunni úr 28—34 í 37—36 sér
í vil..En þar með var sagan líka
öll. ÍR-ingar lokuðu
rennilásnum á vörninni og
Stúdentar komust hvergi. Urðu
að reyna skot utan af velli hvað
eftir annað og ekkert þeirra
rataði ofan í. Áður en varði var
ÍR komið í 52—39 og
grunnurinn að sigrinum lagður.
Munurinn jókst síðan jafnt og
þétt út leiktímann. -SSv.'
ÍSLENDINGAR VORU HN-
ff
FALDLEGA MIKLU BETR1”
—sagði Vlado Stenzel, þjálfari V -Þjóðverja, eftir óvæntan sigur íslands yfir heimsmeisturunum í Liibecke.
Núvarði ÐnarÞorvarðarsoneinsoghetjaoglslandsigraði 13-11 ígærkvöld
Axel Axelssyni og Ólafi H.
launaöi þeim hugulsemina og
Jónssyni var ákaft fagnað í Lubecke i gærkvöld. Axel
sýndi þeim sinar beztu hliðar — skoraöi 4 mörk.
„ísland átti skilið að sigra i þessum
leik. Liðið lék góðan og sterkan hand-
knattleik og var einfaldlega betra en
þýzka liðið,” sagði landsliðseinvaldur
Vestur-Þýzkalands, Vlado Stenzel,
eftir að Island hafði sigrað Vestur-
Þýzkaland 13-11 i landsleik í hand-
knattleik i Lúbecke — útborg Minden
— i gærkvöld. Fyrsti sigur íslands í
Vestur-Þýzkalandi i landsleik og
undraverður árangur, þegar til þess er
tekið að Þjóðverjar eru núverandi
heimsmeistarar i handknattleik.
Stenzel var hins vegar mjög óhress með
landslið sitt. Leikmenn hans fengu
heldur betur orð í eyra frá Júgóslavan-
um fræga. Stenzel náði í þrjá nýja leik-
menn frá jafnteflisleiknum í Hamborg
á þriðjudag. Náði i þá Volker, Nettel-
stedt, Hartling og Walker en setti út ný-
liðana, sem hann var með á þriðjudag.
En allt kom fyrir ekki. ísland sigraði
Þjóðverjana á þeirra heimavelli, 13-11,
eftir að hafa haft örugga forustu nær
allan tímann. ísland hafði fjögur mörk
yfir i hálfleik, 9-5. ísland misnotaði tvö
vítaköst í leiknum — Siggi Sveins og
Axel Axelsson.
„Spilið var alveg stórkostlegt hjá
strákunum. Þetta er einn albezti lands-
leikur, sem ég hef séð íslenzkt landslið
leika. Vörnin og markvarzlan alveg frá-
bær. Einar Þorvarðarson, Handknatt-
leiksfélagi Kópavogs, stóð i marki allan
tímann. Varði mjög glæsilega — ein
17—18 skot eftir mínum útreikningi.
íslenzka liðið fékk þó ekki alltaf knött-
inn eftir þá markvörzlu hans. Þetta var
sízt lakari leikur í heild en á þriðjudag
— þáttur íslenzka liðsins betri nú og
sigur vannst,” sagði Þórður Sigurðs-
son, annar fararstjóri íslenzka liðsins,
þegar DB ræddi við hann eftir leikinn í
gærkvöld.
Gangur leiksins
ísland byrjaði mjög vel í leiknum og
skoraði tvö fyrstu mörkin. Sigurður
Sveinsson úr vítakasti og Stefán Hall-
dórsson. Vlado Stenzel lét taka Sigga
Sveins úr umferð allan leikinn og það
opnaði leiðina fyrir aðrar stórskyttur
íslenzka liðsins.
ísland lék að mestu með sömu leik-
mönnunum allan leikinn. Einar í
marki, Siggi Sveins, Ólafur H. Jóns-
son, Steindór Gunnarsson, Stefán,
Bjarni Guðmundsson og þeir Axel og
Þorbjörn Guðmundsson skiptust á í
sókn og vörn. Brynjar Harðarson var
nokkuð með í siðari hálfleiknum og
fiskaði þá tvö víti. Páll Ólafsson og
Atli Hilmarsson léku lítið. Gunnar
Einarsson markvörður og Jóhannes
Stefánsson hvíldu báðir enda hálf-
laspir. Jens Einarsson var á vara-
mannabekkjunum. Kom ekki í markið
en hann varði glæsilega í fyrri leiknum.
Nú, fsland skoraði tvö fyrstu mörk-
in. Þjóðverjar skoruðu sitt fyrsta mark
á 8. mín. 2-1. Steindór svaraði, 3-1. Þá
3-2 og Axel skoraði þrjú mörk i röð
fyrir ísland , 6-3 (5-3 um tíma). Þjóð-
verjar minnkuðu muninn svo í 6-4 en
Bjarni skoraði sjöunda mark íslands og
Ólafur H. það áttunda, 8-4. Þá var
greinilega farið að fara um þýzku
áhorfendurna og leikmenn og stjórn-
enda þýzka liðsins. Þjóðverjar skoruðu
en Stefán skoraði síðasta markið í hálf-
leiknum, 9-5 fyrir ísland í hálfleik.
Slœm byrjun
Fyrstu mínúturnar í síðari hálfleikn-
um voru mjög slæmar hjá íslenzka lið-
inu. Þjóðverjar skoruðu strax á fyrstu
mínútunni — og minnkuðu síðan mun-
inn niður í eitt mark, 9-8, eftir átta
mínútur. Þá skoraði Ólafur H. tíunda
mark íslands, 10-8, en um miðjan hálf-
leikinn höfðu Þjóðverjar jafnað í 10-
10.
Siggi Sveins náði forustu fyrir
ísland, 11-10 en Þjóðverjar jöfnuðu í
11-11. En þá höfðu þeir eytt öllu sínu
púðri. Island skoraði tvö síðustu mörk-
in í leiknum — Stefán Halldórsson og
Axel úr vítakasti. Þeir Siggi Sveins og
Axel skoruðu úr sitt hvoru vítakastinu í
leiknum. Misnotuðu hins vegar eitt
vítakast hvor.
Mörk íslands i leiknum skoruðu
Axel 4/1, Stefán 3, Ólafur 2, Siggi
Sveins 2/1, Bjarni 1 og Steindór 1.
Þýzka liðið í leiknum var þannig
skipað: Niemaier, Timm, Volker,
Fitke, Damm, Kubitcki, Groessl.,
Hartling, Wunderlich, Voik, Walker
og Klein.
íslenzka landsliðið hélt seint í gær-
kvöld til Kiel — um fjögurra klukku-
stunda ferð. Ætlaði að hvíla þar í nótt
en um hádegi í dag var haldið akandi til
Ribe í Danmörku. Þar verður lands-
leikur við Dani i kvöld og hefst hann
kl. 19.00 aðíslenzkumtima.
Þeir Axel Axelsson og Ólafur H.
Jónsson léku um árabil með Danker-
sen, útborg Minden eins og LUbecke,
og þeim var fagnað gífurlega af áhorf-
endum, þegar þeir birtust á leikvellin-
um og leikmenn voru kynntir. Nettel-
stedt leikur heimaleiki sina í Lilbecke.
- hsím.
■" 'f'ty i
Dýri Guömundsson.
Dýriáfram
meðVal
„Jú, það er öruggt að ég leik með
Val í knattspyrnunni í sumar. Við erum
að byrja að æfa og áhugi er mikill,”
sagði Dýri Guðmundsson, landsliðs-
kappinn kunni, þegar DB ræddi við
hann í gær. Talsverðar umræður hafa
verið um það í blöðum og manna á
milli að Dýri mundi leika með FH í
sumar. Ekkert er til í því. Dýri, sem
verið hefur einn bezti leikmaður Vals
mörg undanfarin ár, verður áfram með
Val.
Þá mun Ólafur Danivalsson einnig
leika með Val í sumar en sami
söguburður var í sambandi við hann og
Dýra. Ólafur hefur gert góða hluti á
æfingum hjá Val að undanförnu.
-hsím.
Fundað um
kvennabolta
Á morgun, laugardaginn 24. janúar,
boðar Knattspyrnusamband íslands til
umræðufundar um kvennaknattspyrnu
og framtíð hennar á íslandi.
Fundurinn hefst kl. 15 að Hótel
Loftleiðum og er opinn öllum þeim,
sem áhuga hafa á framgangi kvenna-
knattspyrnunnar.
Þessir knattspyrnumenn eru á meðal þeirra Qölmörgu er yfirgefið hafa landið á sl. 2—3 árum. Lengst til vinstri er Pétur
Pétursson, þá Arnór Guðjohnsen og loks Albert Guðmutidsson.
AHUGAMANNAREGLUR KSIERU
ÞVERBROTNAR í BAK 0G FYRIR
Leikmeim þiggja bílastyrki, greiðslur fyrir vinnutap, íbúðir án endurgjalds, dagpeninga vegna ferðalaga erlendis ogjafnvel reiðufé ef svo ber undir.
„Öll 1. deildarliðin í knatt-
spyrnunni kaupa eða lokka til sín leik-
menn með einum eða öðrum ráðum.
Þau fara aðeins misjafnlega áberandi
að því.” Þetta eru ummæli þekkts 1.
deildarleikmanns í spjalli við DB
fyrir stuttu. Þau koma í kjölfar
umræðna um „kaup” og „sölur” á
leikmönnum hér innanlands og sem
m.a. hefur verið minnzt á hér í
DB nýveriö. Á sama tíma og forráða-
menn félaganna sverja af sér slik
hrossakaup skipta leikmenn um félög í
kippum.
Skipta jaf nvel tvisvar
sama keppnistímabiiið
Undirbúningur knattspyrnuliðanna
fyrir keppnistímabilið fer að hefjast
af fullum krafti þótt enn séu, 8—10
vikur þar til fyrstu æfingaleikir fara
fram. Sum félaganna hafa þegar hafið
undirbúning sinn og eru komin á fulla
ferð. Fjöldi leikmanna er ívikuhverri
orðaður við hin og þessi félög og fjörið
í félagaskiptunum hefur sjaldan verið
meira en í ár. Það er af sem áður var að
menn léku með sama félaginu alla sína
hunds- og kattartíð og skiptu ekki
nema þeir flyttust búferlum á milli
héraða. Hugsunarhátturinn „hvar hef
ég það bezt” er e.t.v. ekkert athuga-
verður en" er engu að síður orðinn
rikjandi hjá stórum hluta leikmanna.
Hugarfarsbreytingin á undanförnum
4—5 árum er gífurleg. Nú skipta menn
jafnvel tvisvar um félag á sama leik-
tímabilinu og þykir ekkert tiltökumál. .
Margs konar f ríðindi
í boði
Samfara þessum auknu félaga-
skiptum færist þar mjög í vöxt að
félögin bjóði leikmönnum fríðindi af
ýmsu tagi. Þar er um að ræða greiðslu
húsaleigu, góða atvinnu þar sem menn
geta verið lausir til æfinga hvenær sem
henta þykir, og jafnvel reiðufé. Séu
leikmenn í fasteignahygleiðingum
hefur það einnig þekkzt að félögin hafi
útvegað þeim mun hærri lán en þeir
hefðu annars staðar fengið undir eðli-
legum kringumstæðum. Bílastyrkir,
greiðslur fyrir vinnutap, dagpeningar
vegna ferðalaga erlendis, allt þekkist
þetta í 1. deildinni.
Erfiður rekstur
Rekstur knattspyrnudeildanna
gengur erfiðlega hjá meira en helmingi
1. deildarfélaganna. Það tekur forráða-
menn þeirra allt árið að nurla saman
fjármunum til að halda þeim gangandi
yfir keppnistímabilið. Aðeins hluti
félaganna fær svo marga áhorfendur á
leiki sína að um verulegan hagnað sé að
ræða. Því sem uppá vantar verður að
safna með öllumtiltækum ráðum ogoft
duga þau ekki til. Kostnaður við þjálf-
ara er orðinn geysilega mikill —
einkum þó hjá þeim félögum, sem hafa
á snærum sínum erlenda menn. Þeir
hafa í mörgum tilfellum 70—130%
hærri laun en íslenzkir kollegar þeirra,
sem þó hafa i 90% tilvika reynzt betur.
Þegar svo við þennan kostnað bætast
útgjöld vegna aðkeyptra leikmanna
riður það oft baggamuninn.
Tvíeggjaður gróði
Kostur þess að fá utanaðkomandi
leikmenn til liðs við sig er tvieggjaður.
Nýir menn hleypa iðulega auknum
krafti í viðkomandi lið en sá krafturer
iðulega skammvinnur. Á sama tíma
hindra þeir framgang þeirra yngri sem
eru að vinna sig upp og standa á
þröskuldi 1. deildarinnar. Þá hlýtur að
vera erfitt að verja það gagnvart leik-
mönnum liðsins að utanaðkomandi
menn njóti margfaldra fríðinda á við
þá, sem e.t.v. hafa alltaf leikið með
félaginu. Þeir hafa oft leikið í öllum
ÁHUGAMANNAREGLUR K.S.Í.
1. gr.
Ahugamaður má ekki veita viðtöku peningum eða jafngildi peninga
og heldur ekki verða sér úti um fjárhagslegan ábata með þátttöku
sinni í íþróttum. Verðlaunagripir eru þó undanskildir þessu atriði.
yngri flokkunum og aldrei notið neinna
fríðinda á borð við þau sem
aðkomuleikmönnum bjóðast.
Samningsbinding
Á undanfömum ámm hafa íslenzk
knattspyrnufélög mátt sjá á bak sínum
beztu mönnum til erlendra liða. 5
flestum tilvikum hafa félögin setið eftir
með sárt ennið án þess að fá nokkra
greiðslu fyrir leikmennina enda er
réttur þeirra ákaflega takmarkaður á
meðan leikmenn eru ekki samnings-
bundnir. Með þessum auknu fríðindum
í knattspyrnunni fer senn að líða að því
að félögin geti farið að samningsbinda
leikmenn sína yfír keppnistimabilið. Þá
fyrst geta þau farið að krefjast fjár-
muna fyrir þá.
Hvaðeríboði?
DB hefur að undanförnu grennslazt
fyrir um það hvað stendur til boða leik-
mönnu sem skipta vilja um félög og
leika, að ekki sé talað um að þjálfa
þau. I mörgum tilvikum er ekki um svo
lítið að ræða.. Hér á eftir koma þrjú
dæmi!
1) Félag í 1. deild utan höfuðborg-
arsvæðisins falaðist eftir leikmanni liðs
af Reykjavíkursvæðinu. í boði var
endurgjaldslaus íbúð, góð vinna,
greiðslur fyrir vinnutap, bílastyrkur, og
ef með þyrfti, reiðufé. Félag leik-
mannsins komst á snoðir um þetta
tilboð og gerði honum gagntilboð sem
hann tók þegar í stað. Þar var um
ræða greiðslu upp á 4—6000 nýkrónur.
2) Félag utan af landi bauð 1.
deildarleikmanni að koma til sín og
leika með liðinu og þjálfa fyrir 10.000
nýkrónur á mánuði. Að auki átti leik-
maðurinn að fá íbúð endurgjaldslaust.
Honum var séð fyrir vinnu i hans iðn
og þar gat hann farið hvenær sem á
þurfti að halda.
3) Leikmaður utan af landi hafði
samband við 1. deildarfélag á
höfuðborgarsvæðinu og bauð fram
þjónustu sína gegn því að viðkomandi
félag útvegaði honum íbúð og greiddi
húsaleiguna. Félagið gekkst ekki að
þessu tilboði leikmannsins og mátti sjá
á bak honum til annars félags á Reykja-
víkursvæðinu.
Hálf-atvinnumennska
í sjónmáli
Þetta eru aðeins þrjú dæmi um
hvað er að gerast í knattspyrnunni og
hvað er í boði. Það þekkist varla
nú orðið að leikmaður er náð hefur að
skapa sér nafn gangi til liðs við annað
félag án þess að þar komi til greiðslur
af einu eða öðru tagi og önnur fríðindi
að auki. Það er í raun e.t.v. ekkert
athugavert að leikmönnum sé
umbunað fyrir þær gífurlegu fórnir,
sem þeir leggja á sig fyrir áhugamál
sitt. Kröfur almennings orðnar gífur-
legar og til að mæta þeim þarf sífellt
strangari æflngar.
Knattspyrnan hérlendis, a.m.k. í 1.
deild, er ekki lengur áhugamennskan
uppmáluð eins og haldið hefur verið
fram. Við erum smám saman að færast
í áttina að hálf-atvinnumennsku hvort
sem okkur líkar það betur eða ver.
Ljóst er að handknattleikurinn og
e.t.v. aðrar íþróttagreinar fara að
fylgja í kjölfarið og þá er aðeins
spurningin hvort og hvernig 220.000
manna þjóðfélag stendur undir slíku.
-SSv.
MCKENZIE
HLTULSA
— og mun þar leika með
Jóhannesi Eðvaldssyni
Duncan McKenzie, einn kunnasti og
leiknasti leikmaður i ensku
knattspyrnunni, mun leika með
Jóhannesi Eðvaldssyni hjá Tulsa
Roughnecks næsta keppnístímabil i
Bandarikjunum. Hann er nú hjá Black-
burn Rovers í 2. deild og í gær var
stjóri Blackburn, Howard Kendall, að
semja við Tulsamenn. Sagði í BBC í
gær að McKenzie væri á förum og
hann mundi áreiðanlega gera það gott i
Bandarikjunum.
McKenzie hefur mjög farið milli
félaga. Hann byrjaði feril sinn hjá
Nottingham Forest. Lék siðan með
Mansfield sem lánsmaður áður en
leiðin lá til Leeds. Ekki var hann lengi
þar. Belgiska félagið þekkta, Ander-
lecht, keypti hann fyrir mikla peninga.
Ekki var hann lengi þar frekar en
annars staðar. Leið hans lá aftur til
Englands — til Everton, síðan Chelsea
og siðustu 2—3 árin hefur hann leikið
með Blackburn við góðan orðstir.
McKenzie er afar leikinn með knöttinn
og það fellur f kram Bandarikjamanna.