Dagblaðið - 13.02.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
3
EITTHVAÐ JÁKVÆTT
— hlýturadgerast
JÁ skrifar:
Það hefur stundum verið sagt um
fslendinga að þeir væru mesta bók-
menntaþjóð heims, það getur verið
satt. En einhvern veginn nær þessi
bókmenntaáhugi ekki til þeirra, sem
finna hjá sér þörf til að skrifa les-
endabréf í dagblöðin. Það virðist
vera sameiginlegt flestum þessum
bréfum að bréfritari skrifar eða
hringir í þeim tilgangi að ná sér niðri
á einhverjum, einstaklingum eða
samtökum. Nú er það margt sem
miður fer i dagsins önn og margir eru
órétti beittir á degi hverjum, er sjálf-
sagt að vekja athygli á því 1 þeirri von
að það verði til að rétta hlut
viðkomandi. En eitthvað jákvætt og
skemmtilegt hlýtur líka að gerast og
þyrfti að vera meira skrifað um það,
þó ekki væri nema þeim til
uppörvunar, sem í ströngu standa.
Stjórnmálamenn okkar verða oft
fyrir óvægilegri gagnrýni og má það
vera að þeir hafi til hennar unnið. En
eitthvað gott hljóta þeir líka að gera
og þar sem stjórnmálamenn eru
mannlegir eins og við hin, mætti vel
láta þá vita af því að tekið sé eftir þvi
sem vel er gert.
KÍMA,
fflSTtia’
Við bjóðum uppá kínverskan mat með
mörgum ólíkum gómsœtum réttum.
Kínverskur matreiðslumaður framreiðir
matinn jafnóðum eftir pöntunum. Reynið hinn
rómaða mat kínverja:
Fimmtud.lFöstud.: 7-10 e. h.
LaugardJSunnud: 4—10e. h.
Virka daga bjóðum við smárétti
í hádeginu á vœgu verði
|>rö K/lT VEITINGAHUS
jU-Lry| lA LAUGAVEGI22
Ur uppfærslu danska sjónvarpsins á Leðurblökunni 1968. Prinsinn Orlofsky
ræðir við veizlugesti.
tutt ogskýr bréf
Enn cinu sinni minna lcscndaiiálkar DB alla þá. cr
hyggjast scnda þœttinum linu. a<) láta fylyja fullt nafn. ,
heimilisfang. símanúmcr lef um þaó cr ad ræda) <>y <
nafnnúmer. Þetta cr litil fyrirhöfn fyrir brcfritara okkar 1
<>K til mikilla þæyinda fyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir á a<) hrófciga a<)
vcra stutt <>y skýr. Áskilinn cr fuUur réttur til a<)
stytta hréfo/i umorða til að spara rúm og koma
efni hctur til skila. Bréf œttu helzt ekki að vcra
lengri cn 200—300 orð.
Simatimi lcscndadálka DB cr milli kl.
13 <>k 15 frá mánudögum tiljostudaga.
—A -
Hverfékk
lánaðan
penna
— í biðrödinni fyrir
utan
Regnbogann?
Agnes Bragadóttir, dagblaðinu
Tímanum, hríngdi:
Ég fór í kvikmyndahúsið
Regnbogann sl. mánudagskvöld. Þar
í biðröðinni rétt fyrir kl. 9 sýningu
lánaði ég stúlku fyrir framan mig.
Lamy-pennann minn. í öllum hama-
ganginum gleymdi hún að skila
pennanum aftur (eða það vona ég).
Þar sem hún þekkir mig ekki neitt,
frekar en ég hana, vil ég með þessu
bréfi vekja athygli hennar á þvi að
hún getur skilað pennanum til mín
uppá ritstjórn Tímans (sími 86300)
við Síðumúla. Eins og þeir skilja, sem
eru búnir að lesa bréfið alveg hingað,
Sjónvarp:
þá væri ég ekki að skrifa þetta bréf
nema vegna þess að þessi penni hefur
alveg sérstaka þýðingu fyrir mig,
fyrir utan að vera alveg öndvegis
penni. Með von um að sjá gamla
góða pennann minn fljótlega aftur,
takk fyrir.
Ein sextug að norðan skrifar:
Mig langar að þakka sjónvarpinu
kærlega fyrir flutninginn á Leður-
blökunni. Satt að segja hef ég ekki
oft um mína löngu ævi skemmt mér
betur en fyrir framan sjónvarpið á
meðan hún var flutt. Bæði er tónlist-.
in hress og skemmtileg og flytjendur
allir mikið fyrirmyndarfólk á sínu
sviði. Ég gat ekki að því gert að mig
dauðlangaði að hafa verið uppi í Vín
á þessu dýrlega valsatímabili. Það
hefði nú verið fjör, maður minn, eins
og unga fólkiðsegir.
Að vísu fannst mér það nokkur
galli að óperettan var flutt í tvennu
lagi. Hefði verið skemmtilegra að fá
að heyra hana alla í einu. En það eru
þvílíkir smámunir að yfir þvi ferst
ekki að kvarta. Hitt er miklu meira
að þakka beri fyrir slíka ánægju. Og
svona í mestu hógværð langar mig í
lokin að nefna að það yrði að
minnsta kosti ein kona ánægð ef hún
fengi meira að heyra í þessum stll.
----- V
Spurning
Rœktarflu blóm?
Jóhanna ivarsdóttir, húsmóðir: Jú, ég
gerði það, mér finnst það mjög gaman,
blóm eru mikil prýði á heimUum.
Ásta Álbertsdóttir, vinnur hjá út-
varplnu: Nei, ég hef enga aðstöðu. Ég
bý 1 blokk.
Þorstelnn Danielsson, húsasmiður:
Nei, ég rækta ekíci blóm, en ég hef
áhuga á blómum. Það lifa engin blóm
hjá mér nema kaktusar.
Þórunn Rafnar, nemi: Já, ég rækta
aðallega kaktus. Ég hef mjög gaman af
því.
Hermann Sigurðsson bilstjórí: Já, ég
hef mjög gaman af blómum og rækta
garðblóm á sumrin, aðallega túlipana.
Ólína Fríðriksdóttir, némi: Já, ég á
nokkur blóm, en ég hef lítið gaman af
þeim.