Dagblaðið - 13.02.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
Leiðinlegar staðreyndir um offitu eiginkvenna
Feitar eiginkonur óhamingju-
samar en feitum körlum sama
Feitar konur virðast lifa 1 fremur
óhamingjusömu hjónabandi á meðan
feitir karlmenn lifa í ámóta
hamingjusömu hjónabandi og grann-
ir.
Staðreynd er að fita kvenna hefur
varanleg áhrif á hjónabandsham-
ingju þeirra. Er það ein af þeim
furðulegu staðreyndum sem fram
kom í rannsókn Richards nokkurs
Stuarts í New York. Stuart er doktor
í sálfræði og yfirmaður sálfræöi-
deildar stofnunar sem nefnd er
, .Alþjóðlega þyngdargæzlufélagið”
(Weight Watchers International).
Hann kannaði hug manna til
líkamsæfinga, heilsu, megrunar og
ekki sízt hamingju þeirra í hjóna-
bandinu. Könnun hans var einstæð
að því leyti að hann spurði bæði
eiginkonur og eiginmenn i sömu fjöl-
skyldunum.
Þegar flokka skyldi svörin kom í
ljós að af þeim 1200 manns sem svör
veittu á 19 stöðum kom margt furðu-
legt í ljós. Svo furðulegt að nú fer
fram önnur könnun sem betur á að
skýra niðurstöður hinnar fyrri.
í ljós kom að þegar eiginmaðurinn
er of feitur er hjónaband hans hvorki
betra né verra en sé hann grannur. Sé
hins vegar eiginkonan of feit er
Kannski er jafnréttið enn minna en við héldum. Það virðist ekki einu sinni ná til
spiksins. Feitar konur skammast sin meira en feitir karlar.
hjónabandið að öllum líkindum
óhamingjusamt fyrir báða aðila.
Veldur þá feit eiginkona manni
sínum stöðugum leiða? Eru feitar
konur leiðinlegar og þunglyndar og
því erfiðar i sambúð? Eða er
óhamingjusamt hjónaband þess vald-
andi að þær borða allt of mikið?
Líklega er eitthvað til í öllum
þessum skýringum. Það vekur þá
undrun að ekki skuli vera samband á
milli fitu eiginmannsins og hamingju
hjónabandsins.
önnur furðuleg niðurstaða er að
holdafar elsta barns hjóna virðist
fara eftir holdafari föður á meðan
holdafar yngsta barnsins er líkt
holdafari móður. Áður hefur oft
verið talið að holdafar barna færi
eftir því af hvoru kyni þau Væru,
synir líktust feðrum sinum og dætur
mæðrum. En það er sem sagt ekki
rétt.
Setjum svo að faðirinn sé of feitur
enmóðiringrönn. Fyrsíabarnið hvort
heldur það er drengur eða stúlka er
þá of feitt á meðan síðasta barnið er
grannt. Stuart heldur að möguleg
skýring á þessu geti verið að feður
hafi meiri samskipti við eldri börnin
og mæður þau yngri.
í könnuninni komu í ljós mismun-
andi viðhorf kynjanna til megrunar.
Þó karlmenn séu í meiri hættu af því
að fitna um of vilja þeir síður megra
sig en konur. Konur skammast sín
fremur en karlmenn fyrir auka-
kilóin.
Karlmenn brjóta helzt megrunar-
kúra til þess að fá sér samlokur eða
kartöfluflögur á meðan konur eru
veikari fyrir sætindum.
Bæði karlar og konur borða of
mikið þegar þau eru þreytt og þeim
leiðist. Fyrir konur er hættutiminn
seinni hluti síðdegis á meðan karl-
menn eru veikastir á svellinu seinni
hluta kvöldsins. Konur narta i allt
-mögulegt á meðan þær elda matinn
en karlarnir fá sér ýmislegt gott yfir
síðasta dagskrárlið sjónvarpsins.
Karlmenn hafa meiri trú á líkams-
æfingum í megrunarskyni en konur.
En munurinn á viðhorfi þeirra er þó
ekki eins mikill og munurinn á við-
horfi annars vegar feitra og hins
vegar grannra. Grannt fólk virðist
hafa meiri trú á líkamsæfingum en
feitt.
DS-þýddi úr New York Post.
Hvf eyðileggja karlar
megnm kvenna sinn2?
Þegar Jón fór í megrun fór konan
hans í hana með honum. En þegar
María fór í megrun færði eiginmaður
hennar henni lystuga pizzu.
Staöreynd er margjr eiginmenn
rev""a stöðugt að spilla me.-’/unarkúr
eiginkvenna sinna. En hví er það að
karlinn býður strax upp á rjómais og
konan er búin að tilkynna að hún sé
komin í megrun?
Svarið getur verið það að átið sé
íslenzkar
kartöflur
verða
franskar
Franskar kartöflur frá Svalbarðs-
eyri eru væntanlegar á markað upp
úr mánaðamótum. Kaupfélag Sval-
barðseyrar hefur fengið hingað
dönsk tæki til þess að búa kartöfl-
urnar til úr norðlenzkum kartöflum..
Upp úr 20. febrúar koma hingað
Danir að kenna mönnum á tækin til
hlítar ogefdrþaðferalltaðrúlla.
Sævar Hallgrímsson, framleiðslu-
stjóri í þessari nýju grein, sagði í sam-
tali við DB að ekki væri ennþá ljóst
hvað hinar nýju kartöflur kæmu til
með að kosta. Þó væri ljóst, að
verðið yrði sambærilegt við það sem
er á erlendum kartöflum sömu
gerðar. Seldar verða tvenns konar
pakkningar með 800 grömmum og 2
kílóum. Kartöflurnar verða hálf-
steiktar og frystar. Síðan þarf ekki
annað en að bregða þeim í heita feiti
stundarkorn og allt er tilbúið.
Kartöflurnar koma til með að fást
um allt land og sagði Sævar að búið
væri að tryggja að nóg fengist af
kartöfium í framleiðsluna. Bændur í
grennd við Svalbarðseyri hafa farið
æ meira yfir í kartöfluframleiðslu en
minnkað í staðinn framleiðslu á
mjólk og kjöti. Áætlað er að fram-
leiða til að byrja með 150 lestir á ári.
En mögulegt er að framleiða allt upp
í 300 lestir án þess að auka við véla-
kostinn.
-DS.
sameiginleg iðja hjónanna 'Karijnn
vilji ekki félagsskap konu
"miar við það. Það getur líka verið
að honum finnist að á meðan hún er
of feit ráði hann meiru á heimilinu.
Sumir karlar kenna einnig fitu kon-
unnar um getuleysi sitt í kynlífinu.
Megrist konan er sú afsökun farin
fyrir lítið.
Enn aðrir sætta sig við feita konu
því þeir óttast ekki að hún haldi fram
hjá þeim. Hver hefur svo sem áhuga
á að halda við akfeita jússu? spyrja
þeir sig.
í sumum hjónaböndum er ofát
konunnar einnig notað sem skipta-
miðill fyrir ofdrykkju karlsins. Ef
hann þegir við sætindunum, þegir
hún við vinglösunum.
Sorglegust þykir þó sú staðreynd
að margir karlar hvetja konur sínar
beint og óbeint til ofáts til þess að
fela hina raunverulegu ástæðu til
ómögulegs hjónabands.
Körlum til afsökunar er þó hægt
að segja að sumir þeirra gera sér ekki
grein fyrir að þeir eru að spilla
megrun kvenna sinna. Þeir halda að
þeir séu að gera konunum greiða með
því að vera sífellt að minna þær á
þegar þær fá sér eitthvað „bannað.”
En sálfræðingar halda því fram að
hrósuðu þeir því heldur þegar vel
gengur hefði það meiri áhrif. Ef
eiginmaðurinn tekur ekkert eftir því
að konan drekkur ósætt kaffi í alla
mata en njósnar hins vegar vandlega
um hana og grípur hana glóðvolga
við kökustampinn veður konan oft á
tíðum vond og borðar meira.
-DS.
DS- þýddi úr New York Post.
Upplýsingaseðííí
til samanbutóar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamjðlun mcðal almennings um hvert sé meðaital hcimiliskostnaðar
fjiilskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks.
Kostnaður í janúarmánuði 1981.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
W l lfíiV
I.