Dagblaðið - 13.02.1981, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
Hafnarfjörður - Norðurbær
Til sölu 65 ferm íbúð á 8. hæð að Miðvangi 41
Hafnarfirði. íbúðin er til sýnis laugardaginn 14.
febrúar frá kl. 13—18. Einnig er hægt að senda
tilboð til auglýsingadeildar Dagblaðsins merkt
„Norðurbær — 789”.
TRÉSM/Ð
EDA MANN VANAN TRÉSMÍÐI
vantar á opinbera stofnun nú þegar. Starfið
felst í því að leiðbeina fólki sem er að búa sig
undir hinn almenna vinnumarkað. Tilboð
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 20. þ.m. merkt
„Endurhæfing”.
r
SÖLUSKÁLINN ARNBERGI
800 SELFOSS — P.O. BOX 60
SlMAR 1685 - 1888
Fyrir hús, aklp, grúðurhús og aNar aðrar plpiáagnlr. auðvaH I ftutn-
ingum, aðakis 16 kg I handtftaku.
ÞJÓNUSTAIÞJÓÐBRAUT
Honda Civic árg. ’79, aðeins ekinn 19 Saab 96 G.L Super árg. ’78, ekinn 34
þús. km., svartur, sumar- og vetrar- þús. km. og sér hvergi á honum, scm
dekk, sem nýr. Verö kr. 70 þús. Einnig nýr. Tveir dekkjagangar á felgum, ný.
Civic '76, sjálfskiptur, gulur. Útvarp og segulband. Þessir fram-
hjóladrifsbilar krafsa sig i gegnum
hvað sem er.
Bill eins og allir eru að biðja um.
Frambyggður Rússi árg. ’77. Land
Rover disil vél, upptekin, lnnréttaður,.
klæddur, sæti fyrir 9 farþega, grænn.
Verð kr. 55 þús.
Volvo 244 DL árg. ’77, einn af þessum
gullfallegu, grænn., traustur, vel með
farinn, tveir dekkjagangar, Nýtt út-
varp. Verð kr. 75 þús.
Mazda 929 station árg. ’79, sjálfskipt-
ur með vökvastýri og vökvabremsum,
fallega blár, vel með farinn einkabill.
Rúmgóður og þægilegur ferðabill.
Datsun Sunny árg. ’80, nýr stationbill,
ekinn aðeins 7 þús. km., útvarp og
vetrardekk. Rauður. Verð kr. 75 þús.
BJLA.KA.MP
| SKE|FAN 5 S(MAR 86010 og 30030
Landvernd sendir frá sér f róðlega kilju um villt íslenzk spendýr:
VILLT DÝR ERU ÝMIST
ELSKUÐ EÐA HÖTUÐ
—eftir því hvort þau eru okkur til gagns eða tjóns
leyfð. Mikilvægt atriði í dýravernd er
að raska ekki jafnvægi náttúrunnar
með þvi að eyðileggja búsvæði dýra þar
sem lífskilyrði þeirra eru góð. Þetta er
oft til umræðu, ekki sizt í sambandi við
varplönd fugla. Hvað spendýrin snertir
kemur sú afstaða fram í þessari bók að
umhverfi okkar yrði fátæklegra ef ein-
hverju þeirra yrði útrýmt með öllu.
Unnið að hvatningu
Evrópuráðsins
Bókin Villt spendýr er ekki mjög
þykk en einkar aðgengileg og smekk-
lega útgefin. í henni eru góðar heim-
ildaskrár fyrir þá sem vilja leita sér
frekari fróðleiks um einstakar dýrateg-
undir. Hún er prýdd nokkrum fögrum
litmyndum. Á einni þeirra er selur sem
horfir hnuggnum mannsaugum upp úr
sjónum. Sú mynd er tekin af Birni
Rúrikssyni, sem nýlega gat sér mjög
gott orð erlendis fyrir ljósmyndasýn-
ingu sína. En aðrar myndir eru líka
mjög góðar. Þar má lita ref, sem méð
sælkerasvip gæðir sér á fugli. Á öðrum
stað er undur skondin hagamús og loks
hreindýr á hlaupum milli blárra fjalla.
Þessar myndir hafa verið gefnar út á
veggspjaldi og verða einnig settar á
markað sem póstkort. Síðan verður
gerð bók með sama sniði og þessi um
íslenzka fugla.
Þess má að lokum geta að þetta
framtak Landverndar er unnið að
hvatningu Evrópuráðsins sem um
tveggja ára skeið hefur efnt til kynn-
ingar á villtum plöntum og dýrum og
heimkynnum þeirra. Landvernd hefur
áður gefið út veggspjald í litum með
plöntum og ein sex rit um efni eins og
fæðubúskap, votlendi og gróðurvernd.
En Landvernd er sem kunnugt er
samtök áhugamanna um umhverfis-
vernd. Eiga 62 félög um land allt aðild
að samtökunum, sem nú hafa starfað í
tiu ár og reka æ umfangsmeiri fræðslu-
starfsemi.
-IHH.
Flokkamir fá ekki
eftirgjöf af fasteigna-
gjöldum húseigna
— lögin veita ekki það svigrúm—allir jaf nir fyrir lögunum
segir borgarlögmaður
nr. 107/1970. í umræddri lagagrein
er eitt af skilgreiningaratriðum
félagsheimilis, að aðild að eign og
rekstri þeirra standi almenningi opin
án tillits til stjórnmálaskoðana. Þá
segir borgarlögmaður í greinargerð
sinni:
,,í sambandi við þetta mál er einn-
ig rétt að rifja upp, að borgarráð
hafnaði á árinu 1973 erindi
Fylkingarinnar-baráttusamtaka
sósíalista- um niðurfellingu fast-
eignaskatts af Laugavegi 53 A. Sú
niðurstaða var staðfest af Yfirfast-
eignamatsnefnd 29. okt. 1973, sem
taldi lagaheimild bresta fyrir undan-
þágunni.”
Flokkunum er bent á rétt til þess að
leita úrskurðar Yfirfasteignamats-
nefndar um gjaldskylduna.
-BS.
Borgarráð synjaði beiðni stjórn-
málaflokkanna um að fella niður
gjöld til borgarinnar af húseignum
þeirra. Þetta erindi flokkanna var
fengið borgarlögmanni, Jóni G.
Tómassyni, til umsagnar.
í greinargerð sinni til borgarráðs
segir borgarlögmaður meðal annars:
„Allt frá ársbyrjun 1973 hafa
borgaryfirvöld lagt þann skilning í
hugtakið félagsheimili í 1. mgr. 5. gr.
laga nr. 8/1972, þ.e. um tekjustofna
sveitarfélaga, að eingöngu þær fast-
eignir, sem falla undir skilgreiningu
1. gr. laga um félagsheimili nr.
107/1970 verði taldar undanþegnar
fasteignasköttum. Þessi túlkun hefur
verið staðfest af Yfirfasteignamats-
nefnd, sbr., úrskurð nefndarinnar frá
29. okt. 1973 um fasteignina Skúla-
götu 53—55.” Þarna er átt við félags-
heimili Frímúrara.
,,í þeim sama úrskurði kemur
einnig fram að samkomuhús í skiln-
ingi 5. gr. laga nr. 8/1972 verði
aðeins talin hús sem standa almenn-
ingi opin til að njóta þar fræðslu,
lista eða skemmtunar með öðrum
hætti.”
i úrskurði fógetaréttar Reykjavík-
ur frá 8. febr. 1974, einnig vegna Frí-
múrarahússins, var orðalag 5. gr.
tekj ustofnalaganna: ,, félagsheimili
og samkomuhús, sem ekki eru rekin í
ágóðaskyni” túlkað á þann veg að
þessi húsakynni verði að standa opin
almenningi til þess að mega njóta
undanþágu frá fasteignaskatti.
Niðurstaða fógetaréttar var stað-
fest í Hæstarétti og sérstaklega tekið
fram að skýra beri undanþágu-
ákvæði tekjustofnalaganna þröngt
og með hugtakinu félagsheimili sé átt
við félagsheimili samkvæmt lögum
úr Háskóla íslands þar sem þeir hafa
numið undir handleiðslu Arnþórs
Garðarssonar prófessors og fugla
fræðings, en einn er þó lærður í Oxford
og annar í Aberdeen.
Mikilvægt er að raska
ekki jafnvægi náttúr-
unnar
í bókinni er allmikið rætt um hvernig
viðhorf okkar til dýranna mótast af því
hvort þau eru okkur til nytja eða keppa
við okkur um bráð. Og stundum er eytt
miklu fé til að útrýma einhverjum
dýrum en þegar þau eru næstum út-
dauð er öðru eins kostað til svo þau
deyi ekki út, samanber t.d. örninn.
Lögð er áherzla á að með nægri þekk-
ingu á dýrastofnum megi vernda þá,
iafnvel bótt einhver veiði á þeim sé
Haukur Hafstað, framkvæmdastjóri Landverndar, með nýtt veggspjald, þar sem
bæði háhyrningur og hagamús skarta í fögrum litum ásamt öðrum islenzkum
spendýrum.
DB-mynd: Bjarnlcifur.
,,Á grundvelli nýrrar þekkingar
getum við lagt til hliðar gamla fordóma
og byrjað að umgangast villtu dýrin
með þeirri virðingu sem þau eiga rétt á,
eins og allt sem lifir,” segir í inngangi
að ritinu Villt spendýr sem Landvernd
hefur sent frá sér í samvinnu við
Náttúruverndarráð.
Það er ekki á hverjum degi sem út
kemur alþýðleg og fróðleg bók um villt
spendýr á íslandi og í haftnu umhverf-
is. Slíkt hefur varla skeð síðan Bjarni
Sæmundsson gaf út bók sína um spen-
dýrin fyrir fimmtiu árum. Þetta nýja rit
er samið af sex líffræðingum og mjög
mikið byggt á þeirra eigin rannsóknum.
Hafa þeir lagt sig fram um að fylgjast
með dýrunum í umhverfi því sem þau
lifa í og jafnvel haft vetursetu með ref-
um og hreindýrum. Liffræðingarnir
pm flestir tiltölulega nýútskrifaðir