Dagblaðið - 13.02.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
Auður Haralds, rithöfundur:
Hver var skurðlæknirinn?
Auður Haralds.
„Hér er ekkert jafnrétti, fremur
en annars staðar. Auðvitað viljum
við trúa að svo sé og ég trúi því svona
5 mín. á dag, lengur lifir blekkingin
ekki.
Um daginn var lögð fyrir mig
gáta. Hún var svona: Faðir og sonur
fara í ökuferð. Þeir lenda í slysi þar
sem faðirinn deyr en sonurinn er
fluttur á slysadeild og þar þarf að
gera aðgerð til að bjarga lífi hans.
Skurðlæknirinn lítur á sjúklinginn og
segir: ,,Ég get ekki skorið drenginn
upp. Þetta er sonur minn. Hver var
skurðlæknirinn?
Ég gat ekki svarað henni rétt en
síðan hef ég notað þessa gátu marg-
sinnis. Hingað til hefur enginn,
hvorki kona né karlmaður, getað
svarað henni. En svarið er einfalt:
skurðlæknirinn var móðir drengsins.
Þetta sýnir hvernig við hugsum.
Ósjálfrátt dettur engum i hug að
,,hann” skurðlæknirinn geti verið
kona. Þó svo við breytum hugarfari
okkar og ákveðum að hér sé jafnrétti
þá höldum við gömlu viðbrögðunum,
eins konar vantrausti á konur og því
. að búast ekki við neinu af þeim. Samt
þarf kona sem fer í hefðbundið
karlmannsstarf að sanna ágæti sitt
tvöfalt á við það sem karlmaður
hefði þurft.”
•IHH.
Svala Thorlacius, formaður jaf nréttisnefndar
Reykjavíkurborgar:
EG ER SAMMALA
MQRIHLUTANUM
— ogtel að enn skorti talsvert á jafnrétti
,,Ég er sammála meirihlutanum,
ég tel að enn skorti talsvert mikið á
að það sé jafnrétti, þó að mikið hafi
áunnizt á síðustu árum.
Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborg-
ar er nú að byrja að vinna úr svörum
tvö þúsund Reykvikinga, karla og
kvenna, sem valdir voru samkvæmt
tölvuúrtaki og spurðir um afstöðu
sína til þessara mála.
Ákveðnar niðurstöður úr könnun
þessari munu ekki fást fyrr en í vor.
En svo virðist sem mjög margir
þeirra, sem spurðir voru telji skorta á
jafnrétti. Sérstaklega virðist fólki
svíða misrétti í launamálum,” sagði
Svala Thorlacius, formaður jafn-
réttisnefndar Reykjavíkurborgar.
Ríkir jaf nrétti
kynja á íslandi?
Niðurstöður skoðanakönrxunar Dagblaðsins um jafnrétti, sem birtust í gœr, sýndu að afþeim sem
afstöðu tóku, töldu 28.4% að seo vœri en 61.7% að svo væri ekki. Við höfðum samband við tvo
karla og tvœr konur til að heyra álit þeirra.
Bjöm Amórsson, BSRB:
Oft er erf itt að fá kauphækkanir
fyrir hefðbundin kvennastörf
—en breytingin er þó í rétta átt
,,Ef við tölum um launamálin
innan okkar vébanda,” sagði Björn
Arnórsson hjá BSRB,” þá er almenn
regla sömu laun fyrir sömu störf.
Annað mál er að konur eru í miklum
meiri hluta í lægra launuðum
störfum. Oft er erfitt að fá
kauphækkanir fyrir störf sem að
hefð eru kvennastörf — og kannski
lágt launuð þess vegna. Glöggt dæmi
um það eru fóstrur, sem nú eru í
uppsögnum til að fá kröfum sínum
framgengt.
Það má einnig benda á að hluta-
störf eru miklu algengari meðal
kvenna.
Hins vegar er ekki rétt að líta á
þetta mál eins og oft er gert, að það
séu karlmenn sem vilji halda konum
niðri. Sá hugsunarháttur er alltof
algengur meðal kvenna að líta á störf
sín sem aukagetu og taka þess vegna
ekki þátt i baráttu fyrir hækkun
launa. Sem dæmi er oft talað um
hvað fáar konur séu í forystustöðum
launþegasamtaka og sú skýringgefin
að karlar ýti þeim í burtu. En ég veit
að það hefur oft verið reynt að fá
konur til að stilla upp í kosningum í
félögunum en þær ekki fengizt til að
gefa kost á sér.
Ástæðurnar eru semsagt
þjóðfélagslegar í miklu víðari
merkingu en að hér sé um misrétti
innan launþegasamtakanna að ræða.
Breytingin er þó í rétta átt.
Samkvæmt BSRB-samningunum 1977
og ’80 var lögð áherzla á að hækka
mest fólkið í lægstu launa-
flokkunum,” sagði Björn Arnórsson
aðlokum.
-IHH.
Björn Arnórsson.
Jóhannes Siggeirsson, Alþýðusambandi íslands:
markaði er jaf nrétti á heimilunum
störfumogaðjafnaðiá fólksemer í
hlutastörfum, hvort sem það eru
karlar eða konur, minni möguleika á
ábyrgðarstöðum.
Einnig verða heildartekjur (dag-
vinna plús yfirvinna) karla oft hærri
vegna þess að þeir vinna meiri yfir-
vinnu og þar kemur sama skýringin;
konurnar sinna í langflestum
tilfellum heimilisstörfunum samhliða
atvinnu utan heimilis.
Konur eru heldur ekki komnar inn
á mörg svið sem karlar gegna í dag,
t.d. sjómennsku á togurum, en nú
hafa þær í auknum mæli lagt í lang-
skólanám og það á eftir að skila sér í
auknum möguleikum til betur
launaðra starfa.
Að lokum er rétt að benda á að
ekki er nóg að hugarfarsbreyting
verði hjá konum, heldur þarf hún
lika að verða hjá eiginmönnum og
sambýlismönnum, svo þeir sinni
heimilisstörfum í auknum mæli og
taki tillit til vinnu kvenna sinna utan
heimilis,” sagði Jóhannes að lokum.
-IHH.
,,Þó enn sé langt frá jafnrétti
hefur okkur miðað mjög i rétta átt,”
sagði Jóhannes Siggeirsson hjá
Alþýðusambandi íslands. ,,Ég get
nefnt sem dæmi að kringum 1966 var
25% munur á dagvinnukaupi
ófaglærðra verkamanna og verka-
kvenna. í dag munu samsvarandi
tölur vera kringum 10%.
Hins vegar er ljóst að það verður
ekki fullkomið launajafnrétti milli
kynjanna á vinnumarkaði meðan
jafnrétti er ekki til staðar á
heimilunum. Konur eru meira í hluta-
Svala ThoHacius.
Forsenda launajafnréttis á vinnu-
1891-1981
Þau eru í hópi 10 þúsund félaga
í stærsta launþegafélagi landsins, Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur
VR
VINNUR
FYRIR ÞIG
Kristín Magnúsdóttir,
afgreiðslumatnor
í bl&mabúð.
Hrafnkell Stefánsson,
_ laQermaður.
Margrét Sigurjónsdóttir,
afgreiðslumaður
í kverfataverzlun.
Friðrik Eyfjörð,
afgreiðslumaöur
í leðurvöruverzlun.
VR er leiðandi afl í launþegamálum og innan þess er fólk úr meira en 70 starfsgreinum
afgreiðslumaður
hjá dagblaði
viðskipti
&verzlunf