Dagblaðið - 13.02.1981, Qupperneq 8
8
GOLD STAR
Fáðu þér stereoútvarpstœki svo þú
getir hlustað á útsendingu útvarpsins
í stereo.
Dragðu það ekki, viðfengum
takmarkað magn tœkja á þessu
landfleyga verði, kr. 653.00.-
FM-bylfiia, miðbylfya. 2x8 viitt.
. AFC(automatisk frekvenskontroll)
Tenffja má við tœkið segulband og plötuspilara, 220 volt.
Mjöp skemmtilept tœkifyrir elliheimili, skóla,
sjúkrahús op heimili. Árs ábyrgð.
Sendum gegn póstkröfu
yöur að kostnaðarlausu.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI 16995
Ný byrjendanámskeið hefjast 16. febrúar.
Þjátfari: Viðar Guðjohnsen
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla
virka daga frá kl. 13-22.
JÚDÓDEILD ÁRMANNS
Ármúla 32.
Rupert Murdoch
keypti The Times
Ástralski blaðakóngurinn Rupert Murdoch. „Ég er mjög ánægður með
Murdock hefur náð samkomulagi við þann árangur, sem náðst hefur,”
starfsfólk Times-blaðakeðjunnar og sagðihann.
mun því kaupa blöðin, þar á mcðal
elzta blað Bretlands, The Times, frá Rupert Murdoch mun nú ráða yfir
Thomson fjölskyldunni. um þrjátíu^prósent af brezkum dag-
,,Ég held, að við getum gert þessi blaðamarkaði, ef miðað er við út-
blöð lifandi og sterk,” sagði breiðslu blaðanna.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
Erlent Erlent Erlent
Yorkshire-morðinginii fyrir rétt
Vörubílstjórinn
Sutdiffe ákærö-
ur fyrir 13 morð
Vörubílstjórinn Peter Sutcliffe hef-
ur nú verið áfcærður fyrir þrettán
‘morð og sjö morðtilraunir. Áður
hafði hann verið ákærður fyrir
morðiö á Jacquline Hill, tvítugri há-
skólastúlku i Leeds. Hún var talin
vera þrettánda fórnarlamb Yorks-
hire-morðingjans svonefnda eða The
Yorkshire Ripper eins og hann er
oftast nefndur i Bretlandi. Hann
hefur á siðastliðnum fimm árum
valdið meiri skelfingu á Bretlandseyj-
um en nokkur maður annar. Fórnar-
lömb hans hafa i flestum tilfellum
verið vændiskonur. Óstaðfestar
heimildir greina, að Peter Sutcliffe,
sem er 35 ára gamall og kvæntur,
hafi þegar játað að vera Yorkshire-
moröinginn.
Það var saksóknarinn I málinu,
Maurice Shaffner, sem skýrði réttin-
um í Dewsbury frá ákærunum í gær.
Fyrsta morð Yorkshire-morðingjans
var framið þann 30. október 1975 og
hið síðasta 17. nóvember í fyrra.
Leitin að Yorkshire-morðingj-
anum hefur verið sú utnfangs-
mesta, sem um getur í sögu brezku
lögregiunnar. Engu að siður var það
hrein tðviljun sem leiddi til handtöku
Sutcliffes 2. janúar síðastliðinn.
Lögreglumenn á eftirlitsferð hand-
tóku hann þá vegna þess að skrásetn-
ingarnúmer á bifreið hans voru
stolin. Sutcliffe var með vændiskonu
i bílnum er hann var handtekinn og er
talið hugsanlegt, að hún hefði orðið
fjórtánda fórnarlamb hans ef lögregl-
an hefði ekki stöðvaö leik hennar og
Sutcliffes þá hæst hann stóð.
Vændiskonur þessar eru taldar hafa sloppið naumlega úr klóm Yorkshire-
morðingjans. Önnur þeirra hafnaði Sutcliffe vegna þess að henni fannst hann svo
taugaóstyrkuren hin hafði látið að vilja hans er lögreglan kom á vettvang.
Stórreykingamenn borði gulrætur:
Gulræturgeta konúð
i veg fyrir krabba
Neyti stórreykingarmaður gulróta í
miklu magni daglega, getur hann með
þvi minnkað verulega hættuna á
lungnakrabba, að því er þekktur
brezkur prófessor telur. Prófessor sir
Richard Doll er einn af fremstu
krabbameinslæknum Bretlands. Hann
heldur þvi fram að mikið magn af A-
vítamíni því sem finnst í gulrótum geti
minnkað líkurnar á lungnakrabba um
allt að 40%. Sir Richard Doll sagði að
hópur vísindamanna sem vinnur undir
hans stjórn, hefði eytt stórum peninga-
upphæðum til að rannsaka samhengi
milli lítils A-vítamínsmagns i blóði og
hárrar krabbameinstíðni. „Við þurfum
á mun víðtækari rannsóknum að halda
til þess að sýna fram á réttmæti
kenningar okkar,” sagði sir Richard
Doll.
Flugstjórinn misstí
rænuna við lendingu
—Snarræði aðstoðarflugstjóra bjargaði málunum
Eftir mikla taugaspennu í stjórn-
klefa lenti Metropolitan flugvél með 50
farþega á Fornebuflugvellinum í Osló.
í flugstjórasætinu sat meðvitundarlaus
flugstjóri. Lendingin tókst vel, það
geta farþegarnir þakkað snarræði
aðstoöarflugstjórans.
Flugstjórinn hafði fengið aðsvif rétt
eftir að annar hreyfill bilaði. Aðstoðar-
flugstjórinn tók þegar í stað við stjórn
flugvélarinnar og sendi út neyðarkall,
þannig að allar öryggisráðstafanir
væru viðhafðar. Lendingin tókst eins
og bezt verður á kosið og farþegarnir
höfðu ekki hugmynd um það sem gerzt
hafði. Flugvélin Convair 440 úr gamla
Metropolitanflota SAS var að koma
frá Stavanger þegar óhappið varð.
Flugstjórinn var þegar í stað fluttur á
sjúkrahús, en var ekki talinn alvarlega
veikur.
Metropolitanflugvél eins og sú sem lenti með meðvitundarlausan flugstjóra á Fornebuflugvelli f Osló í sfðustu viku.