Dagblaðið - 13.02.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Rússarað-
varaJapani
Sovétríkin eru reiðubúin til að beita
hervaldi gegn Japönum ef Japanir ætla
sér að halda til streitu kröfugerð sinni
varðandi fjórar eyjar í Norður-
Kyrrahafi, sem þjóðirnar hafa deilt
um. Ummæli þessa efnis hafði
japanska fréttastofan Kyodo News
eftir sovézka hershöfðingjanum
Michael Kirijan.
Bretland:
Verkfalli
aflýst
Brezkir sjómenn aflýstu í gær
verkföllum gegn erlendum fiskiskipum
og hafa þeir og útgerðarmenn orðið
ásáttir um að skjóta launadeilu þeirra
til kjaradóms. Sjómannasambandið,
sem hefur 26 þúsund sjómenn innan
sinna vébanda, hefur fallizt á að krafa
þeirra um sextán prósent launa-
hækkun fari fyrir hlutlausan kjara-
dóm.
Zimbabwe:
Mugabe hótar
skæruliðum
Talið er, að meira en áttatiu manns
hafi fallið í bardögunum í Zimbabwe
að undanförnu. Mugabe forsætis-
ráðherra hefur hótað að skerast í
leikinn í átökum skæruliða i landinu að
undanförnu. Virðist sem það hafi haft
tiltæluð áhrif og mestu ófriðaröldurnar
hafi lægt í bili.
Stjórnarhersveitir, skipaðar hvítum
mönnum, beittu fallbyssum gegn
skæruliðum Zipra-ættflokksins sem
taldir eru upphafsmenn átakanna. Þeir
eru stuðningsmenn Nkomos.
McNamara tíl
Washington
Post
Robert McNamara forseti Alþjóða-
bankans og fyrrum varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna verður fram-
kvæmdastjóri dagblaðsins Washington
Post er hann lætur af störfum hjá
Alþjóðabankanum 1. júlí næstkom-
andi.
Stefnuræða nýs forsætisráðherra Póllands:
Neyðaraðgerðir boðað-
ar i efnahagsmálum
—Jaruzelski vill nýtt samkomulag við Einingu og biður um vinnuf rið í þrjá mánuði
Wojciech Jaruzelski, hinn nýi for-
sætisráðherra Póllands, hefur óskað
eftir að hin sjálfstæðu verkalýðsfélög
í landinu láti af öllum verkföllum
næstu þrjá mánuði svo að stjórnvöld-
um gefist ráðrúm til að bæta úr því
ófremdarástandi sem ríkir i landinu.
Hefur hann jafnframt lýst yfir vilja
sínum til að setjast að samningaborð-
inu með talsmönnum Einingar í þeim
tilgangi að ná fram nýju samkomu-
lagi.
Eining, samband hinna sjálfstæðu
verkalýðsfélaga i Póllandi, hvatti i
gær til þess að látið yrði af skæru-
verkföllum í ýmsum héruðum lands-
ins, sem hafa leitt til stöðugt versn-
andi efnahagsástands í landinu.
Lech Walesa, leiðtogi Einingar,
tók vel í þau tilmæli forsætisráðherr-
ans að látið yrði af verkföllum. En
hann lagði jafnframt á það áherzlu,
að endanlegt svar Einingar hlyti að
velta á því hvað gerðist i samninga-
viðræðunum við stjórnvöld.
Einn talsmaður Einingar í Varsjá
sagði í samtali við fréttamann
Reuters, að menn væru bjartsýnir á
að stjórn Jaruzelskis mundi reynast
betur en fyrri ríkisstjórn landsins.
Aðspurður hvort verkamenn hygð-
ust fallast á tímabundið verkfalls-
bann, sagði talsmaður Einingar, að
það væri eins og að skrifa undir óút-
fyllta ávísun. ,,Við erum opin fyrir
viðræðum en við verðum fyrst að sjá
hvað nýja stjórnin aðhefst. Ef þeir
byrja að handtaka þá verkamenn sem
mest hafa látið til sín taka þá hljótum
við að grípa til verkfalla á ný.”
Jaruzelski segist munu leggja fram
áætlun í tíu liðum fyrir verkamenn.
Þar er meðal annars gert ráð fyrir
neyðaraðgerðum í fæðu, húsnæðis-
og heilsugæzlumálum.
Gro Harlem Brundtiand, hinn nýi forsætisráðherra Noregs hefur staðið i ströngu
undanfarnat daga og varla getað hreyft sig án þess að vera með Ijósmyndara og frétta-
menn á hælunum. Myndin var tekin er hún fór á hárgreiðslustofu áður en hún hélt á
fund konungsins, sem fól henni myndun nýrrar rikisstjórnar. Verkamannaflokkurinn
bindur miklar vonir við að frú Brundtland takizt að leiða hann upp úr þeim öldudal
sem skoðanakannanir sýna að hann er i.
Hjónaskilnað-
ur hjá Abba
íannaðsinn
Annar hjónaskilnaðurinn innan um þetta I mestu vinsemd og bættu
sænsku hljómsveitarinnar Abba er þvi við, að hljómsveitin mundi halda
nú oröinn að veruleika á skömmum áfram að starfa þrátt fyrir skilnað
tíma. Hjónin Benny Anderson og þeirra. Fyrirtveimurárumskilduþau
Annfrid Lyngstad tilkynntu I gær að Björn Ulveus og Agneta Fáltskog og í
þauhefðuákveðiðaðskilja. siöasta mánuöi gekk Björn siðan i
Hjónin segjast hafa orðið ásátt hjónaband öðru sinni.
Deng Xiaoping:
Hua ekki
rekinn
Deng Xiaoping, varaformaður
kínverska kommúnistafiokksins, sem
talinn er valdamesti maður í Kina,
hefur neitað fréttum þess efnis, að
.Hua Guofeng, formanni kínverska
kommúnistafiokksins, hafi verið vikið
frá völdum. Hua kom í fyrsta skipti
fram opinberlega i síðustu viku eftir að
■hafe-ekki-sézt á opinberum vettvangi
frá því í haust.
Deng sagði hins vegar að breytingar
kynnu að verða gerðar á stjórn landsins
á næstunni.
Amin biður
um aðstoð
Fyrrum einræðisherra Uganda,
Idi Amin, hefur óskað eftir að
múhameðstrúarríki láti honum í té
vopn og að Bandaríkin sjái um og
kosti menntun 22 barna hans.
Idi Amin var hrakinn frá völdum í
Uganda í apríl 1979. Hann hefur
dvalið i Saudi-Arabíu frá því á
síðasta ári og hefur ekki verið í sviðs-
ljósinu á þeim tíma fyrr en í síðustu
viku er hann bað um aðstoð. Hann
sagði þá að hann gæti komizt til
valda á ný í Uganda á einni viku, ef
hann fengi smáaðstoðvina sinna.
„Heirna bíða mín þrettán þúsund
tryggir fylgismenn og þeir eru
reiðubúnir að deyja fyrir mig. En þeir
hafa engin vopn, lítinn mat og engin
lyf. Þjóð mín þjáist,” sagði hann.
fram að stuðningsmenn hans ráði yfir
26 þúsund ferkílómetra landi í
Uganda.