Dagblaðið - 13.02.1981, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
I
25
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Eþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
D
Leikmenn botnliða
íleikbann
Fyrirliði Crystal Palacp, Jim Cannon, var í gær
settur i fjögurra leikja bann af aganefnd enska
knattspyrnusambandsins. Hann missir því fjóra
deildaleiki Palace. Tveir leikmenn féiagsins, Billy
Gilbert og Tony Seally, voru dæmdir í tveggja
leikja bann.
Þá var fyrirliöi Brighton, Brian Horton, settur í
þriggja leikja bann og meflal leikja, sém hann missir
er leikurinn þýðingarmikli i Norwich 28. febrúar.
Bikarhetjan seld
fyrirsmáaura
— Roger Osbome til Colchester
Roger Osborne, sem var hetja Ipswich Town,
þegar liflið sigraði Arsenal í úrslitum ensku bikar-
keppninnar 1978, var í gær seldur til Colchester Uni-
ted i 3. deild fyrir 25 þúsund sterlingspund — smá-
aura. Osborne skoraði eina markið i úrslitaleiknum
en lið hans hafði mikla yfirburði gegn Arsenal.
Osborne var eini leikmaflur sigurliðsins, sem fæddur
og uppalinn er í Ipswich. Hann meiddist skömmu
siðar og hefur ekki leikið i aðallifli Ipswich siðan,
eða á þriðja ár. Hann mun búa áfram í Ipswich enda
örsutt til Colchester, elztu borgar Englands.frá Ips-
wich.
18BretaráEM
innanhúss
— en hafa enga möguleika
áverðlaunum
Brezka frjálsiþróttasambandið valdi í gær 18
íþróttamenn til að taka þátt i Evrópumeistaramótinu
innanhúss, sem háfl verflur i Greonoble i Frakklandi
21. og 22. þessa mánaðar — „íþróttafólk, sem
sennilega mun ekki vinna til neinna verðlauna á mót-
inu”, að því er David Shaw, ritari brezka samhands-
ins sagði í gær. Sebastian Coe, sem í fyrrakvöld setti
nýtt heimsmet i 800 m hlaupi innanhúss, er ekki í
brezka liðinu.
Öruggt er að tveir íslendingar, Hreinn Halldórsson
og Óskar Jakobsson, taka þátt í mótinu i Grenoble,
kannski fleiri.
Bikarmót á ísaf irði
— og svigmót í Sleggjubeinsskarði
Bikarmót Skiðasambands íslands verður haldið á
ísafirði og meöal keppenda verða nær allir beztu
skíðamenn íandsins. Kl. 11 á laugardag hefst keppni
í stórsvigi karla og kvenna. Eftir hádegi verður
ganga. Á sunnudag kl. 11 verður keppt í svigi karla
og kvenna.
Þá verður svigmót Víkings við skála félagsins í
Sleggjubeinsskarði. Keppt í unglingaflokki 13—16
ára og barnaflokki, 12 ára og yngri. Keppnin hefst á
laugardag og verður fram haldið á sunnudag.
Meistaramótið
ífrjálsum
Dagana 14. og 15. febrúar nk. fer fram i I.augar-
dalshöll 'og Baldurshaga meistaramót íslands,
innanhúss. Keppnisgreinar verða þessar: Fyrri
dagur, Laugardalshöll kl. 11.00:
800 m karla og kvenna. ■ .
Kúluvarp karla og kvenna
Hástökk karla.
Baldurshagi kl. 14.30.
50 m karla og kvenna
Langstökk karla.
Seinni dagur
Laugardalshöll kl. 8.30:
1500 m karla
Hástökk kvenna.
4x3 hríngir boðhlaup karla og kvem >
Baldurshagi kl. 13.30.
50 m grindahlaup karla og kvenna
Þristökk kvenna
Langstökk kvenna
Nýi hollenzki landsliðseinvaldurinn i
knattspyrnunni, Rob Bann, valdi í gær
22ja manna landsliðshóp fyrir HM-
leikinn við Kýpur. Sá leikur verð-
ur í Groningen 22. febrúar. Sjö
leikmenn eru frá AZ ’67, Alkmaar,
efsta liflinu í hollenzku úrvalsdeildinni.
Þá er þar Franz Thjissen, sem lýst
hefur þvi yfir, afl hann muni ekki
endurnýja samning við Ipswich Town,
þegar samningur hans við félagið renn-
ur út í sumar. Mest kom á óvart, að
ÞAU FENGU EINNIG VIÐURKENNINGAR
Eins og við greindum frá í blaðinu
í gær verðlaunaði íþróttaráð Reykja-
víkurborgar marga einstaklinga og
hópa á miðvikudag. Hér að ofan má
sjá nokkra þeirra er viðurkenningar
hlutu. Myndin er tekin er Anton
Bjarnason og fjölskylda veitti mót-
töku viðurkenningu fyrir dygga á-
stundun hjólreiðaíþróttarinnar, en
fjölskyldan hjólar öli reglulega. Það
er eiginkona Antons, sem tekur við
viðurkenningunni fyrir hönd fjöl-
skyldunnar, úr hendi Eiríks Tómas-
sonar, formanns.íþróttaráðs.
Fyrir framan þau á myndinni má
sjá lengst til vinstri Jóhannes
Jóhannesson, sem fékk verðlaun
fyrir frábær störf að félagsmálum, þá
kemur Óskar Pétursson, sem einnig
fékk slíka viðurkenningu og lengst til
hægri er Sigríður Ólafsdóttir, sem
fékk viðurkenningu fyrir áratuga
trimm.
-DB-mynd Sig. Þorri.
leik gegn Austur-Þjóðverjum
- Hef ur þá leikið sautján landsleikjum meir en Geir Hallsteinsson sem er í öðru sæti með landsleikjafjölda
4L
Valsmenn
„grilluðu”
Ármann
Það var ekki að sjá að í gær mættust
tvö úrvalsdeildarfélög er Valur sigraði
Ármann með 95 stigum gegn aðeins 50 i
Hagáskólanum. Valsmenn höfðu slíka
yfirburði að annað eins hefur vart sézt í
langan tíma. Staðan í hálfleik var43—
17 þeim í vil en í síðari hálfleiknum
slökuðu þeir vérulega á án þess þó að
Ármann ógnaði i. sigrinum nokkurn
tíma.
BRYNHILDUR VANN
í ÖLLUM GREINUM
Unglingameistaramót í fimleikum
var háð um síðustu helgi. Á laugardag
var keppt í fjórum aldursflokkum
stúlkna og pilta en á sunnudag var
einstaklingskeppni. Úrslit urðu þá
þessi.
Stökk — Stúlkur
1. Brynh. Skarphéðinsd.^Björk 15.50;
2’. ;SVáva Mathiesen, Björk f 14.50
2. Jóhanna Rúnarsd., Björk 14.20
Tvíslá — Stúlkur
1. Brynh. Skarphéðinsd., Björk 15.15
2. Kristín Gísiad., Gerplu, 14.20
3. Katrín Guðmundsd., Gerplu 11.40
Jafnvægisslá — Stúlkur
1. Brynh. Skarphéðinsd., Bj örk 15.15
2. Kristín Gíslad., Gerplu 13.00
3. Svava Mathiesen, Björk 12.65
Gólfæfingar — Stúlkur
1. Brynh. Skarphéðinsd., Björk 16.00
2. KristínGíslad., Gerplu 13.60
3. Svava Mathiesen, Björk 11.70
Gólfæfingar — Piltar
1. Atli Thorarensen, Árm. 14.20
2. Kristján Ársælsson, Árm. 14.10
3. Þór Thorarensen, Árm. 13.90
Bogahestur — Piltar
1. Þór Thorarensen, Á 11.70
2. Guðjón Gíslason, Á, 11.60
3. -4. Atli Thorarensen, Á 11.40
3,-4. KristjánÁrsælsson, Á 11.40
Hringir — Piltar
1. Atli Thorarensen, Á. 12.80
2. -3. Guðjón Gíslason 12.30
2.-3. Þór Thorarensen 12.30
Stökk — Piltar
1. Atli Thorarensen, Á, 14.80
2. ÞórThorarensen, Á, 14.00
3. Arnór Diegó, Á, 13.50
Tvíslá — Piltar
1. Guðjón Gíslason, Árm., 12.20
2. Atli Thorarensen, Árm. 12.10
3. Þór Thorarensen, Árm. 11.80
Svifrá — Piltar
1. Guðjón Gíslason, Árm. 11.60
2. Atli Thorarensen, Árm. 10.70
3. Þór Thorarensen, Árm. 10.20
Heitt í kolunum í gærkvöld er
Stúdentar unnu ÍR-inga
—öruggur sigur ÍS á ÍR-ingum í bikarnum og sæti í undanúrslitunum tryggt
Nokkurt jafnræði var með liðunum
rétt til að byrja með og munurinn var
t.d. ekki nema 8 stig, 14—6 eftir 7
mínútna leik. Þá tóku Hlíðarendapilt-
arnir loks við sér og bókstaflega
„grilluðu” hina ungu Ármenninga.
14 kylfingar valdir fyr-
ir EM unglinga í sumar
æf ingar hefjast f I jótlega. Hópurinn einnig valinn í karlaliðinu
Stjórn Golfsambands íslands hefur
skipafl Kjartan L. Pálsson „einvald"
mefl karlalandslið íslands í golfi í
sumar. Þá hefur stjórnin einnig skipað
Stefán H. Stefánsson „einvald” fyrir
unglingalandsliðið i golfi (21 árs og
yngri) en það mun taka þátt í
Evrópumóti unglinga, sem haldið
verður hér á landi dagana 20. til 26. júlí
i sumar.
Stefán hefur valið 14 pilta til æftnga
fyrir það mót og eru það allt piltar sem
eru með viðurkennda landsforgjöf (6
eða lægra) frá Golfsambandi íslands.
Piltarnir eru frá:
Golfklúbbi Reykjavíkur
Sigurður Pétursson
Stefán Unnarsson
Golfklúbbi Akureyrar
Jón Þór Gunnarsson
Golfklúbbnum Keili
Sveinn Sigurbergsson
Héðinn Sigurðsson
Golfklúbbi Suflurnesja
Hilmar Björgvinsson
Gylfi Kristinsson
Sigurður Sigurðsson
Páll Ketilsson
Magnús Jónsson
Golfklúbbi Vestmannaeyja
Sigbjörn Óskarsson
Golfklúbbi Ness
Gunnlaugur Jóhannsson
Magnús Ingi Stefánsson
Ásgeir Þórðarson
Þá héfur Kjartan valið hóp til
æfinga með karlalandsliðinu, og er þar
stuðzt við árangur í Stigamótum GSl’ á
síðasta ári. Unglingalandsliðspiltarnir
koma að sjálfsögðu til greina í lands-
liðið þegar Kjartan velur hópinn sem
keppir fyrir ísland áEvrópumóti karla,
en það verður haldið að St. Andrews
golfvellinum í Skotlandi dagana 22.
til 27. júní nk. Hópurinn sem Kjartan
valdi er þannig skipaður:
Golfklúbbur Reykjavíkur;
Hannes Eyvindsson
Óskar Sæmundsson
Ragnar Ólafsson
Eirikur Þ. Jónsson
Geir Svansson
Sigurður Helgi Hafsteinsson
Golfklúbburinn Keilir
Sigurjón R. Gíslason
Júlíus R. Júlíusson
Golfklúbbur Ness
Jón Haukur Guðlaugsson
Golfklúbbur Suöurnesja
ÞorbjörnKjærbo
Golfklúbbur Akureyrar
Björgvin Þorsteinsson
Arnórfékk
afreksbikar
Á lyftingamóti fatlaðra, sem fram
fór í sjónvarssal um sl. helgi náflist
mjög góður árangur, sem allir þeir sáu
vel er á annafl borfl horfflu á iþrótta-
þáttinn. Bezta afrek mótsins vann
Arnór Pétursson er hann gerði sér lítiö
fyrir og lyfti 125 kilógrömmum f 56 kg
flokki. Eldra metið var 80,5 kg og átti
hann það sjálfur. Hreint ótrúlegar
framfarir.
nokkuð undarleg deila. Lenti þeim þá
illilega saman Bjarna Gunnari og
Guðna Kolbeinssyni annars vegar og
Erlendi Eysteinssyni hins vegar. Sakaði
Bjarni Erlend um að hafa virt að
vettugi ósk sína um að fá að ræða við
dómarann (Erlend) varðandi atriði
leiksins. Stóð í stappi um stund og
hótuðu aðilar á víxl að kæra hvor
annan en að lokum féll allt í ljúfa löð.
Stúdentar eru því komnir í undanúr-
slit bikarsins í ár ásamt ÍBK, Val og
annaðhvort KR eða Njarðvík, sem
leika á sunnudag. Stigahæstir í gær. ÍS:
Coleman 32, Bjarni Gunnar Sveinsson
19, Gísli Gislason 18. ÍR: Andy
Fleming 25, Jón Jörundsson 22.
íslenzku landsliðsmennirnir, sem
leika landsleikina tvo i handknattleikn-
um við ólympíumeistara Austur-
Þýzkalands i kvöld og á sunnudags-
kvöld í Laugardalshöll, hafa flcstir
mikla leikreynslu i landsleikjum afl
baki. Fyrirliði íslenzka landsliðsins,
Ólafur H. Jónsson, Þrótti, hefur leikið
133 landsleiki ogkemst því í 135 lands-
leiki á sunnudagskvöld. Geir Hall-
steinsson, FH/Göppingen, sem hættur
er að gefa kost á sér i landsleiki, hefur
leikið 118 landsleiki. Þrír aðrir leik-
menn, Björgvin Björgvinsson,
Fram/Víkingur, Viðar Simonarson,
Haukar/FH, og Ólafur Benediktsson,
Val/Olympía, hafa leikið yfir 100
landsleiki fyrir ísland.
Óli H. er aldursforseti íslenzka
landsliðsins, 32ja ára og hefur leikið
landsleiki sem leikmaður Vals, Danker-
sen og Þróttar. Yngsti leikmaður
íslenzka liðsins er hins vegar Guð-
mundur Guðmundsson, Víking —
aðeins 19 ára, og hefur leikið fjóra
landsleiki. Páll Ólafsson, sem er næst-
yngstur leikmanna, tvítugur, er með
átta landsleiki.
Það er athyglisvert, að Bjarni
Guðmundsson, Val, sem er aðeins 24ra
ára, hefur leikið næstflesta landsleiki
ísl. leikmannanna eða 86. Ef að líkum
lætur á hann eftir að bæta öðrum eins
landsleikjafjölda við. Jafnvel gera enn-
þá betur. Axel Axelsson,
Fram/Dankersen, hefur leikið 83
Ólafur H. Jónsson , Þrótti, fyrírliði,
leikur sinn 135, landsleik gegn Austur-
Þjóðverjum.
Pétur Guðmundsson skoraði 25 af
stigum Valsmanna og fékk að valsa um
óáréttur í teig Ármenninga. Miley var
með 21 stig. Hjá Ármanni var
Valdimar Guðlaugsson stigahæstur
með 13 stig, en Guðmundur Sigurðsson
var með 12.
Pétur Guðmundsson (snýr baki 1 lesendur) varð stigahæstur Vaismanna gegn
Ármanni f gær.
Stúdetar afsönnuðu allar kenningar
í þá áttina að leikmenn liðsins séu of
gamlir er þeir fóru létt með að sigra
IR-inga í 8-liða úrslitum bikarkeppni
KKÍ í gærkvöld. Lokatölur urðu 87-71
ÍS í vil, eftir afl þeir höfðu leitt 45—33
í hálfleik.
Ef sigur ÍR á KR fyrir skemmstu og
gott gengi liðsins að undanförnu
bjuggust margir við að róðurinn yrði
Stúdentum erfiður í gær. Þeir hafa átt
nokkuð erfitt uppdráttar í vetur en
sýnt það inn á milli að liðið getur staðið
uppi í hárinu á beztu úrvalsdeildarlið-
unum þegar svo ber undir og svo var í
gær.
Bæði lið virkuðu nokkuð taugaó-
styrk er leikurinn hófst en það voru
Stúdentar sem náðu fyrr valdi á eigin
taugum og það skipti sköpum. Þeir
einbeittu sér meira að körfuknattleikn-
um en ÍR-ingar, sem voru anzi iðnir við
að röfla í dómurum leiksins, eins og oft
áður í vetur. ÍS hafði yfir allan tímann í
gær og sigur liðsins komst aldrei í
nokkra hættu. Tólf stiga munur i hálf-
leik þykir ekki mikið í körfuknattleik
og menn áttu því von á því að ÍR-ingar
myndu e.t.v. rifa sig upp úr fýlunni og
reyna að spila eins og menn. Jón
Jörundsson gerði það a.m.k. og fór á
kostum í síðari hálfleiknum. Skoraði 20
stig gegn aðeins 2 í þeim fyrri.
Stúdentar með Mark Coleman, sem
lék mjög vel, í broddi fylkingar létu
hins vegar engan bilbug á sér finna og
héldu haus. Gísli Gíslason stjórnaði
spilinu af krafti og hefur að undanfömu
leikið eins og hann bezt getur. Bjarni
Gunnar var einnig drjúgur eins og hans
er von og vísa, en eftir leikinn kom upp
landsleiki og Páll Björgvinsson, Vík-
ing, hefur leikið 53 landsleiki. Þeir eru
jafnaldrar og voru nýliðar í sama
íslenzka landsliðinu fyrir einum tíu
árum. Báðir hafa misst úr marga lands-
leiki á þeim árum, sem siðan eru liðin.
Axel vegna langdvalar í Vestur-Þýzka-
landi, þar sem hann lék með Grlin
Weiss Dankersen, en Páll vegna
meiðsla. Brotnaði illa á fæti t.d. i
ólympíuleik 1976 við Júgóslava i Novo
Nesto í Júgóslavíu. Það er sennilega
bezti landsleikur, sem ísland hefur
leikið á útivelli. Eins marks tap 23-22
gegn þáverandi ólympíumeisturum.
Leikurinn var síðari leikur landanna
vegna ólympíuleikanna í Montreal
I 1976.
I Gátum verið stoltir
ísland hafði haft forustu nær allan
leikinn við Júgóslava en tapaði svo með
eins marks mun. Svo naumt tap er-
lendrar þjóðar í riki sjálfra ólympíu-
meistaranna hafði verið óþekkt um
árabil.
„Við getum verið stoltir af strákun-
um,” sagði Bergur Guðnason, farar-
stjóri islenzka liðsins ,,og þó varð
íslenzka liðið fyrir miklu áfalli. Það
var sorglegt. Páll Björgvinsson hafði
leikið frábærlega vel. Beinlínis óstöðv-
andi lokakafla fyrri hálfleiksins. Ég hef
ekki séð Pál betri. Hann hafði skorað
flest mörk íslands, þegar óhappið átti
sér stað í byrjun siðari hálfleiks, Páll
fótbrotnaði á vinstra fæti. Ég skal ekki
segja hvað skeð hefði ef Páll heíði
leikið allan leikinn í því formi, sem
hann var en ég get ekki séð að íslenzka
liðið hefði tapað leiknum,” sagði Berg-
ur ennfremur.
Fyrst við fórum að minnast á þennan
leik má geta þess, að Júgóslavia komst í
fyrsta skipti yfir í leiknum, þegar 10
mín. voru til leiksloka, 19-18, Jafnt var
síðan 19-19, 20-20, 21-21 en Island mis-
notaði vítakast og ólympíumeistararnir
unnu með minnsta mun. Mörk íslands í
leiknum skoruðu Ólafur H. Jónsson 6,
Gunnar Einarsson 5/2, Páll 4, öll í
fyrri hálfleik, Jón Hjaltalín Magnús-
son, 3, Jón Karlsson, Bjarni Jónsson,
Árni Indriðason og Ólafur Einarsson
eitt hver. Um tíma í leiknum var staðan
7-3 fyrir ísland — leikur, sem lengi
verður í minnum hafður.
Unglingamótið ífimleikum:
Með 708 landsleiki
íslenzki landsliðshópurinn, sem
leikur gegn Austur-Þjóðverjum, er
skipaður 16 leikmönnum — þeim 16
leikmönnum, sem leika munu fyrir
ísland í B-keppninni í Frakklandi frá
21. febrúar til 1. marz. Alls hafa þessir
leikmenn leikið 708 landsleiki fyrir
fsland, þegar landsleikjafjöldi þeirra er
lagður saman.
Við skulum nú líta á aldur piltanna
og landsleikjafjölda. Fyrst aldurinn —
þá leikjafjöldinn hjá hverjum einstök-
um. Aldur- -Leikir
Kristján Sigmundsson, Vík 24 47
Jens Einarsson, Tý, 25 31
Einar Þorvarðarson, HK, 23 6
ÓlafurH. Jónsson, Þrótti, 32 133
Páll Björgvinsson, Víking, 29 53
Bjarni Guðmundsson, Val, 24 86
Þorbj. Guðmundsson, Val, 26 64
Atli Hilmarsson, Fram, 21 18
Steindór Gunnarsson, Val, 24 61
Axel Axelsson, Fram, 29 83
Stefán Halldórsson, Val, 22 22
Þorbj. Aðalsteinsson, Vík. ,24 52
Sigurður Sveinsson, Þrótti, 22 30
Guðm. Guðmson, Vík. 19 4
Hollenzki landsliðshópurínn valinn:
—Willy van der Kerkhof. Tveir valdir f rá liðum utan Hollands
Steinar Birgisson, Víking, 25 10
Páll Ólafsson, Þrótti, 20 8
Fyrri landsleikurinn við A-Þjóðverja
verður i kvöld og hefst kl. 20.00. -hsím.
Aðeins einn eftir af
gömlu snillingunum
miðvörðurinn Johnny Dusbaba, sem
leikur með belgiska félaginu Ander-
lecht, var valinn i hópinn. Hann hefur
ekki leikið i hollenzka landsliðinu frá
þvi 1 október 1978. Þá lék Holland við
Sviss.
í hollenzka landsliðshópnum eru
þessir leikmenn. Peter Arntz, Hugo
Hovenkamp, Ronald Spelbos, John
Metgod, Jan Peters, Pier Tol og Jos
Jonker, allir AZ ’67, Pim Doesburg,
Michel Valke, Willy van der Kerkhof
og Ernie Brandts, allir PSV Eindhoven,
Joop Vander Hiele, Pierre Vermeulen
og Ben Wijnsterkers, allir Feyenoord,
Dick Nanninga, Roda, Cees Schapen-
donk, Maastricht, Tscheu La Ling,
Ajax, Hans van Breukelen, Utrecht,
Toine van Mierlo, Tilburg, Romeo
Zondervan, Twente, Frans Thijssen,
Ipswich og Johnny Dusbaba, Ander-
lecht.
Það er því aðeins einn eftir af hinum
frægu leikmönnum Hollands, sem
gerðu garðinn frægan síðasta áratug-
inn, Willy van der Kérkhof. Varnar-
maðurinn Ernie Brandts kom mun
siðar í landsliðið.
-hsím.
Páll Björgvinsson, Viking, fótbrotnaði
í ólympiuleik við Júgóslava.
„Vildi að ég
vissi hvað
eraðhjá
Liverpool”
„Ég get svarifl það að ég
vildi gefa mikið fyrir afl geta
skýrt hvafl er að hjá Liverpool
þessa dagana,” sagði Terry
McDermott i viðtali við BBC í
gærkvöld.” Leikmenn virðast
allir hafa misst sjálfstraustið af
einni eða annarri ástæflu og
gengi liðsins hefur að vonum
hrakað við þafl. Þetta ástand
getur þó aldrei varað lengi.
Liverpool er með allt of góðan
■nannskap til að drabbast
niður,” sagði McDermott enn-
fremur.
Leikmenn íslands með 708 landsleiki að baki:
Oli H. leikur sinn 135. lands-