Dagblaðið - 13.02.1981, Page 16
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
Menning
Menning
Menning
Menning
e
Háskólatónleikar
Hóskólatónloikar ( Fólagsstofnun stúdenta 7.
febníar.
Flytjendur: Manuola Wiesler og Julian
Dawson-Lyell.
Efnisskrá: Francis Borno: „Carmen'' Fantasio;
Gabríel. Fauró: Fantasie, op. 79; Jules
Mouquet: La flute de Pan, op. 15; Albert
Roussel, Joueurs de flute; P.A. Genin;Camaval
de Venise.
Að setja saman heila dagskrS með
franskri aldamótatónlist er heldur
fátítt hérlendis að minnsta kosti, þótt
upp skjóti einstökum verkum.
Þannig fóru þau nú samt að Manuela
Wiesler og Julian Dawson-Lyell.
Samleik þeirra þekkja íslenzkir tón-
leikageetir að góðu einu og rétt er að
gleyma ekki frábærum leik þeirra á
Steinhljóðsplötu númer eitt. Venjan
hefur hins vegar verið sú að saman
hafa þau glímt við verkefni sem
þykja öllu alvarlegra eðlis en það sem
upp á var boðið í efnisskrá þeirra nú.
Dagskráin var sem sé af léttara
taginu, en hreinn óþarfi fannst mér
nú samt af Tónleikanefnd Háskólans
að setja eins konar afsökun fyrir
henni inn á skrána. Það fyrirtæki
býður upp á svo góða vetraráætlun.
að óþarfi er fyrir það að afsaka
nokkurn hlut, fyrirfram að minnsta
kosti.
Það var enginn svikinn sem leið
sína lagði vestur i Félagsstofnun á
laugardaginn. Mér finnst það vera að
bera i bakkafullan lækinn að reyna
að koma fram með einhverja sundur-
liðaða lýsingu á leik þeirra Manuelu
og Julians Dawson-Lyell. Hann var
eins og við var að búast, frábær.
Samt er alltaf eitthvað nýtt að heyra í
samleik þeirra. Og alltaf líður manni
svo dæmalaust vel að fá að hlýða á
góða listamenn vinna svo vel saman,
listamenn sem ekki einungis hafa
firna gott vald á hljóðfærum sínum
heldur kunna með slíkt vald að fara
öðrum til ánægju.
-EM.
Dúett á Kjarvalsstöðum
Sveinbjörg Vilhjálmsdóltir, Sigrún Valgeröur Gestsdóttir og John A. Spelght á æflngu.
Tónlist
Gabriel Fauré — „enginn svikinn. . . .”
Engin er
rós
an þyrna
\
Tónleiker afl Kjarvalsstöflum 3. febrúar.
Flytjendur: Sigrún Valgerflur Gestsdóttir,
sópran; John A. Speight, barýtón; Sveinbjörg
Vilhjólmsdóttir, planóleikari.
Efnisskró: Verk eftir Purcell, Finzi, Scarlatti,
Giordoni, Gluck og Mozart
Ekki er það á hverjum degi að tón-
leikagestum sé boðið upp á söngskrá
með verkum Purcells og Finzis, en
fyrri hluti efnisskrár þeirra Sigrúnar
V. Gestsdóttur og Johns Speight
samanstóð af verkum þeirra ágætu
manna. Fyrst þremur dúettum eftir
Purcell, Sound the Trumpet, Lost is
my Quiet og A two Part Song eftir
Purcell og lagaflokknum Let Us Gar-
lands Bring eftir Finzi. Það tók þau
svolítinn tíma að finna sig í byrjun,
sem mér þótti miður, sérstaklega
vegna dálætis míns á þessum dúett-
um Purcells. En þegar þau höfðu
fundið réttan farveg og jafnvægi var
náð, var söngur þeirra hreinn og
glæsilegur á allan máta.
Ekki alfaraleið
Aldrei hef ég heyrt lagaflokkinn
Let Us Garlands Bring sunginn allan
fyrr en nú. Það er aftur á móti vinsæl
iðja margra barýtóna að reyta innan
úr honum þau lög sem þeim líkar
(eða ráða) best við. Þannig heyrast
lögin, Who is Sylvia og O, Mistress
Mino alloft sungin. Meðferð þeirra
Johns og Sveinbjargar á lagaflokkn-
um var skinandi góö og eiga þau sér-
stakar þakkir fyrir að flytja hann
allan i stað þess að fara algengustu
leið og bjóða aðeins upp á þekktustu
brotin.
Eftir hlé tók Sigrún við og söng
þrjár gamlar aríur, Le Violette, Scar-
íattis; Caro mio ben, Giordonis og O
del mio dolce ardor, Glucks. Hún
söng þær af öryggi og glæsibrag með
sinni miklu og fallegu rödd — og
síðan sneri hún sér að Mozart.
Kannski er fað vegna þess að Abend-
empfindung og Trennungslied eru
alls ekki dæmigerðir Mozartsöngvar
að mér fannst vanta Mozart í
flutninginn — Þar til kom að An
Clöhe. Þá var heldur ekki um villst
að báðar kunna þær vel að flytja
Mozart, Sveinbjörg og Sigrún.
Lokaþátturinn var samansettur úr
dúettunum, II core vidono úr Cosi
fan tutti; Bei Mánnern úr Töfraflaut-
unni og La ci darem úr Don
Giovanni. Krefjandi lokakafli sem
þau fluttu ágæta vel.
-EM
Tónieikar Sinfónkjhljómsvoitar ísiands f Hó-
skóiabfói 5. febrúar.
Stjórnandi: Jean-Piorre JacquillaL
Einleikari: Maurice Bourgue, óbóleikari.
Efnisskró: G.F. Höndol: Flugeldasvftan; J.
Haydn:
Óbókonsort; R. Strauss: Óbókonsert og
Rosenkavaliersvfta.
Sjálfspilandi barrokk? Sú hljóm-
sveitargerð Flugeldasvítunnar, sem
á þessu kvöldi var leikin er ein sú
skemmtilegasta sem tíðkast. Þrefald-
ar blásararaddir í trompetum,
hornum, óbóum og fagottum.
Raddir sem ekki eru einungis
skemmtilegar á að hlýða heldur
einnig að leika. Fá verk gefa blás-
urunum jafn gullin tækifæri til að
brillera og einmitt fýrverkeríið hans
Hándels. Það var því átakanlega
leiðinlegt að hlusta á trompetana og
hornin klikka illilega og strengina
vera ósamtaka í forleiknum. Prýði-
lega leiknir síðari kaflar náðu ekki að
Rlchard Strauss — „lítil reynsla
hljómsveitarinnar i að spila verk
hans.”
bæta fyrir klúðrið í upphafi. Það er
illt að þurfa að kyngja því, en það er
engu likara en að hluti hljómsveitar-
lima telji barrokk eitthvert sjálf-
spilandi fyrirbæri.
Galdrapípari
Maurice Bourgue sté síðan á stokk
og lét sig ekki muna um að leika þá
tvo, konserta Haydns og Richards
Strauss. Raunar bætti hann um betur
og lék fyrstu Pan- metamorfosu Brit-
ens aukreitis, en þakka má hádegis-
tónleikum fyrir að þær eru að góðu
kunnar hér. Maurice Bourgue er
sannkallaður meistari óbósins.
Leikur hans býr yfir makalausri
fágun, en þegar betur er á hlýtt liggur
þessi fágun eins og þunn blæja,
breidd yfir hamslausa villimennsku,
sem ólgar undir niðri. Leikur hans
hrífur svo algjörlega að auðvelt væri
að ímynda sér hann í hlutverki
píparans í þjóðsögunni, sem fríaði
Hamelin, fyrst af rottum og síðan
börnum.
Ef
Hljómsveitin stóð sig býsna vel
bæði í Haydn og Strauss konsertin-
um. En svo kom að siðasta verkinu,
Rósariddarasyrpunni. — Um
strengjafjöldann þýðir ekkert að sak-
ast og spilamennskan var hreint ekki
svo afleit EF tillit er tekið til þess að
hljómsveitin hefur fyrir kunnar sakir
sáralitla reynslu af að takast á við
Strauss og hans líka. Þar af leiðir að
kröfur um að hljómsveitarlimir hafi
tilfinningu fyrir atriðum eins og hinu
ýkta vínarvalsamómenti í valsinum
fræga, sem heitir víst ekki neitt,
hljóta að vera hrein bábilja. Um
önnur sérkenni öðlingsins gildir að
sjálfsögðu hið sama. Að leika þessa
Rósariddarasyrpu fannst mér til lítils
annars en að minna óþyrmilega á þá
staðreynd, að engin er rós án þyrna.
EM.
HORNHRINGSTIGI
Til sölu hornhringstigi, full hæð.
Upplýsingar í síma29797.
TILBOÐ ÓSKAST
í bifhjólið Kawaski 650 árg. 1979, skernmt eftir bruna. Hjólið verður til
sýnis dagana I2. og 13. febrúar hjá Bifhjólaþjónustunni, Höfðatúni 2.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora að Síðumúla 39 fyrir kl. 17 mánud.
16. febrúar.
Almennar Tryggingar.
Útboð
Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík óskar cftir tilboðum i
MÁLUN
60 raðhúsaibúða í Hólahvcrfi.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VB frá og með föstudeginum 13.
febrúar gegn 300 króna skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30. mánudaginn 2.
marzkl. 15.
Stjórn Verkamannabústaða í Reykjavík.
______________________________________________I