Dagblaðið - 13.02.1981, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1981.
9
Utvarp
35
Sjónvarp
i
Frank Sinatra.
VIDEO
VHS videospólur til leigu í miklu úrvali ásamt mynd-
segulbandstækjum og litasjónvörpum. Ennfremur eru
til leigu 8 mm og 16 mm kvikmyndafilmur í
mjög miklu úrvali í stuttum og löngum útgáfum, bæði
þöglar og með hljóði, auk sýningarvéla (8 mm og 16.
mm) og tökuvéla, m.a. Gög og Gokke, Chaplin, Walt
. Disney, Bleiki Pardusinn, Star Wars o.fl. Fyrir full-
yC orðna m.a. Jaws, Marathon man, Deep, Grease, God-
. father, Chinatown o.fl. Filmur til sölu og skipta.
yC Ókeypis kvikmyndaskrár fyrirliggjandi. Opið alla daga
nema sunnudaga.
Kvikmyndamarkaðurinn Sími 15480
Skólavörðustíg 19 (Klapparstígsmegin)
*
*
*
*
wm nen
Kv
KVIKMYNDIR
19 000
Kvikmyndahátíð 1981
Laugardagur 14. febrúar.
MORÐGÁTAN—sjónvarp kl. 22:
JÁTNING KNÚIN FRAM VEGNA
ÞRÝSTINGS FRÁ FJÖUVHÐLUM
—engar sannanir liggja þó fyvir gegn hinum grunaða
(Næstsíðasti dagur hátíðarinnar)
BUSTER
Pabbadreni
stúlku. Si
Auka
BUSTER KEA
asta mynd
JAM
(Síðasta my
KEATON (6) HNEFALEIKARINN (Battling Butler).
Buster læzt vera hnefaleikari til að ganga í augun á
þannig að hann lendir í hnefaleikahringnum.
[The Boat), ein frægasta stutta mynd Keatons.
idarkl. I.00og3.00.
ERSHÖFÐINGINN (The General). Fræg-
margra dómi sú fullkomnasta. Aukamynd:
VIKA (One Week).
Sýndar kl. 5,7, 9, og 11.
(Jamaiea Inn) eftir Alfred Hitchcock. England 1939.
hann flutti til Bandaríkjanna.) Mjög
athyglisverð kvikmynd eftir hinn tiýlátna meistara. gerð cftir skáldsögu
Daphne du Maurier. Aðalhlutverk: C'harles Laughton, sem hlaut mikið
KROSSFESTIR ELSKENDUR (Chikamahlú"M§nug8tjá Japanskt
meistaraverk eftir snillinginn Mizoguchi Keriji( pcrðI954.
Sýndkl. 1.00,3.00, 5.00 og 7.00.
SlÐASTA SINN.
KONSTÁNTUR. Pólland 1980. Verðlaunamynd eftir Zanussi sem lýsir
ástandinu í Póllandi nú.
Sýndkl. 1.10, 3.10.og5.IO.
SlÐASTA SINN.
VIKUFRt. Ffakkland 1980. Nýjasta mynd B. Tavernier, höfund
DEKURBARNA og ÚRSMIÐSINS I SAINT-PAUL., Fjallar úm
kennslukonu á erfiðum tímamótum.
Sýndkl.9.00og 11.00
FUGLARNIR (The Birds) eftir A. Hitchcock, Bandarikin 1963. Einstakt
tækifæri til að sjá þessa frægu mynd.
Sýnd kl. 9.05 og 11.05.
StÐASTA SINN.
CHA CHA. Hörku rokkmynd með Ninu Hagen og Lene Lovich.
Sýndkl. 7.10, 9.10og lí.10.
FRÉTTASPEGILL - sjónvarp kl. 20,50:
Fjallað um nýju veit-
ingahúsin í Reykjavík
—samtök ríkja utan hemaðarbandalaga, nifteinda-
sprengjunao.fl.
í innlenda hluta Fréttaspegils í
kvöld verða tvö mál tekin fyrir,
annars vegar stjórnarfrumvarp sem
Alþingi hefur verið að ræða um
Ingvi Hrafn Jónsion.
ögmundur Jónasson.
tekju- og eignaskatt og sennilega er
orðið að lögum er þetta birtist. Frum-
varpið fjallar aðallega um breytingar
á vaxtafrádrætti í skattalögunum.
Veitingahúsarekstur í Reykjavík er
hitt innlenda málið en sem kunnugt
er hefur veitingastöðum í höfuðborg-
inni fjölgað mjög að undanförnu.
Af erlendum vettvangi verður
fjallað um ráðstefnu ríkja utan hern-
aðarbandalaga sem nú stendur yfir í
Nýju Delhi á Indlandi. Verður reynt
að ráða í hver verður likleg
framtíðarþróun þessara samtaka.
Loks verður fjallað um hina um-
deildu nifteindasprengju sem nú
Ihefur á ný komizt i sviðsljósið eftir
yfirlýsingu stjórnar Bandaríkjanna
um að það hafi veriö mistök að
hætta við smiði hennar í fyrra,
Umsjónarmenn Fréttaspegils eru
þeir ögmundur Jónasson og Ingvi
Hrafn Jónsson. -KMÚ.
Sagan gerist í New York en kvik-
myndaframleiðendumir nenntu sko
ekki að bregða sér þangað, heldur tóku
myndina upp í Kaliforníu.
Leikstjóri er Gordon Douglas, en
þýðandi Kristmann Eiðsson. CKMU.
Jacqueiine Bisset.
Morðgátan heitir bíómynd
sjónvarpsins í kvöld. Eins og nafnið
bendir til fjallar hún um morð og
rannsókn lögreglunnar á því. Ungur
piltur, sonur þekkts borgara, er myrtur
á hrottalegan hátt. Morðið vekur mikla
athygli fjölmiðla en þeir álasa lög-
reglunni fyrir slæpingshátt gagnvart
glæpamönnum vegna sivaxandi glæpa-
tíðni í borginni.
Allt kapp er því lagt á að finna
morðingja piltsins og Iögreglu-
foringjanum Joe Leland er falin stjórn
rannsóknarinnar. Leland, leikinn af
Frank Sinatra, nýtur vaxandi álits sem
lögregluforingi og því er honum falið
þetta mikilvæga verkefni.
Joe Leland kemst fljótlega að þvi að
hinn myrti var kynvilltur. Vegna á-
bendinga stúlku sem bjó í sama húsi og
pilturinn, fær Iögreglan vitneskju um
að hinn myrti hafi verið í tengslum við
annan pilt og berast böndin því strax að
honum. Fljótlega tekst að hafa uppi á
hinum grunaða pilti og vegna hins
mikla þrýstings fjölmiðla er reynt að
knýja fram játningu án þess aðnokkrar
sannanir liggi í raun fyrir gegn honum.
Pilturinn játar, en þar með er sagan
ekki öll.
Margir þekktir leikarar fara með
hlutverk í þessari mynd. Ber þar fyrst
að nefna Frank Sinatra sem eins og
áður var sagt fer með hlutverk lög-
regluforingjans. Lee Remick fer með
stórt hlutverk og einnig má sjá andliti
hinnar laglegu Jacqueline Bisset bregða
fyrir.
NÝTT UNDIRNÁUNNI—útvarp kl. 20,05:
Næstvinsælasta lag
Bretlandseyja kynnt
—er á nýútkominni sólóplötu Phil Collins
„Ég reyni að hafa þáttinn sem
fjölbreytilegastan,” sagði Gunnar
Salvarsson, umsjónarmaður þátt-
arins Nýtt undir nálinni, sem er á
dagskráútvarps í kvöld.
Gunnar hyggst kynna efni úr ýms-
um áttum. Má nefna nýtt lag eftir
Phil Coliins sem kunnastur er sem
Genesismeðlimur, en lagið er á nýút-
kominni tveggja laga sólóplötu hans.
Lagið heitir In the Air to Night og
hefur nú þegar náð miklum vinsæld-
um. Situr það í öðru sæti brezka
vinsældalistans á eftir lagi Johns
Lennon, Woman.
Brezka hljómsveitin Beat en hún
leikur blöndu af ska, reggea og rokki,
verður kynnt, nýtt lag með hljóm-
sveitinni Ultra Box, sem einnig er
lirezk, verður leikið og loks má nefna
söngkonuna Sheilu Easton en
Gunnar hyggst kynna lög af fyrstu
stóru hljómplötunni með henni sem
nýlega kom á markað. Auk þess
verður ef tími vinnst til þrem nýjum
bandarískum hljómleikaplötum
brugðið undir nálina.
-KMU.
Gunnar Salvarsson.