Dagblaðið - 13.02.1981, Blaðsíða 24
Stórþjóf naður hjá verzlun Pouls Bernburg:
Hljóðfærum fyrir tug-
þúsundir kr. stolið
Stórfelldur hljóðfæraþjófnaður
átti sér stað úr verzlun Pauls Bern-'
burg á Rauðarárstig 16 í fyrrinótt.
Var þar stolið hljóðfærum sem eru
að verðmæti 40.960 nýkrónur eða á
fimmtu rriilljón gkr.
Þetta er í annað sinn á skömmum
tíma sem þjófar leggja leið sina þarna
inn. I fyrra skiptið nam verðmæti
þýfis jafnvel öllu meira því þá voru
fleiri segulbönd í spilinu. Sá þjófn-
aður er enn óupplýstur hvað þá
heldur þessi.
Lítil ummerki sáust eftir þjófana.
Er sú helzt tilgáta, að þeir hafi
komizt inn í húsið með því að opna
sjálfvirka bílskúrshurð með einhverj-
um hætti, eða komizt yfir lykil. f
kjallara er geymsla hljóðfæra-
verzlunarinnar og þar spörkuðu þjóf-
arnir hurð upp. Hafa þeir sýnilega
ekki verið að flýta sér, heldur skoðað
og valið það sem þeir vildu hafa á
brott með sér.
Stolið var einu Yamaha segulbandi
af tegundinni TC 100 K 850, Yamaha
- í annað sinn
semþjófarvelja
sértækiaflager
sömuverzlunar
útvarpsmagnara CR—640 og tveimur
öðrum af gerðinni CR—440. Þá
hvarf Yamahamagnari A—450, 2
Gibson ráfmagnsgítarar i kassa, og
einn Yamaha rafmagnsgítar í kassa.
Innbrotsins varð ekki vart fyrr en
undir hádegið, að komið var í
igeymsluna.
-A.St.
HLUTAFELAGINU 0UU-
MÖL F0RMLEGA SLITH)
—skorað á alla sem tel ja til eigna eða skulda hjá félaginu að lýsa kröf um sínum
Hlutafélaginu Olíumöl hefur verið
slitið. Ákvörðun um það var tekin á
hluthafafundi 21. janúar sl. Með
bréfi hlutafélagaskrár dagsettu 29.
janúar sL voru Björn Ólafsson verk-
fræðingur, Halldór Hróarr Sigurðs-
son löggiltur endurskoðandi og
Othar örn Petersen lögfræðingur
löggiltir skilanefndarmenn fyrir
félagið.
Skorað hefur verið á alla þá sem
telja til eigna eða skulda hjá Oliumöl
hf. að lýsa kröfum sínum innan
þriggja mánaða frá innköllun, sem
fram fór 30. janúar.
Svo sem DB hefur greint frá nema
skuldir fyrirtækisins á þriðja milljarð
gamalla króna. Fjármálaráðherra
hefur lýst þvi yfir að stofnað verði
nýtt félag til þess að nýta eigur OIiu-
malar hf., en helztu eigendur þess
félags verða Framkvæmdasjóður og
Útvegsbankinn. Sveitarfélögum þeim
sem áttu hlut í Oliumöl hf. hefur
verið gert að greiða ábyrgðir sem þau
eru i.
„Telja má vist að eftir atvikum
njóti þau skaplegra vaxtakjara i lán-
tökum vegna ábyrgðanna, ef til
kemur,” sagði Björn Ólafsson verk-
fræðingur, fyrrum stjórnarformaður
í Olíumöl hf.
„Þetta er eina’leiðin til þess að fá
hreint borð i málinu, enda þótt við
teljum okkur kunnugt um nærri allt
það sem verulegu máli skiptir,” sagði
Björn.
,,Hætt er við að eignir fyrirtækis-
ins nýtist betur með þessum hætti
heldur en með nauðungarsölu, t.d. á
uppboði. Það hefði út af fyrir sig
sjálfsagt verið löglegt en að margra
mati siðlaust. Fleiri hefðu þá setið
eftir með sárt ennið og sárindi i
brjósti,”, sagði Björn Ólafsson.
-JH/BS.
Jón Baldvinsson:
Lagztur að bryggju
til langdvalar
Þá er togarinn Jón Baldvinsson stopp í bili. Lagztur aö bryttpju op petur verið að
hann þurfi að iiyyja þar lengi. Jón Baldvinsson erfyrsti Reykjavlkurtogarinn sem
stoppast vegna kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna. Að vísu hafði Guðsteinn legið.
nokkra daga við bryggju á undan honum, cn hann hafði hreinlega aldrei farið út eftir
að deilan skaíl á. Einn Akureyrartogari hefur einnig stöðvazt. Jón kom inn með 150
lestir af fiski I morgun. Vinnanfyrir verkafólk I landi helzt þvi góð áfram, þvl von er á
fleiri togurum inn á næstunni. -DS/DB-mynd S.
ístjóm Flugleiða hf.?
í stað aðalfundarins, sem
Flugleiðir hf. áttu að halda, sam-
kvæmt skilyrðum fyrir rikisábyrgð á
lántökum, verður bráðlega boðað til
hluthafafundar. Verður þar borin
upp tiliaga um breytingar á sam-
þykktum félagsins í þá átt að fjölga
um tvo mennístjórn.
Búið er að ganga frá hlutabréfa-
kaupum rikisins í Flugleiðum hf.
Verður að öllum líkindum kynnt fyrir
hluthafafundinum, hverja tvo menn
ríkið setur í stjómina.Er. taliö víst að
fjármálaráðherra tilnefni annan en
samgönguráðherra hinn.
Guðmundur G. Þórarinsson al-
þingismaður verður maður sam-
gönguráðherra samkvæmt
heimildum sem DB telur áreiðanleg-
ar og ekki fæst staðfest að Lúðvík
Jósepsson verði tilnefndur af fjár-
málaráðherra. Vitað er að
forystumenn Flugleiða hf. geta vel
sætt sig við þessa menn i stjórn. -BS.
frjálst, óháðdagblað
FÖSTUDAGUR 13. FEB. 1981.
Hægagangur
ísamningunum:
Sjómenn
f unda áf ram
en vélst jórar
fhvíld
Enn er ósamið við bæði sjómenn og
vélstjóra í ríkisverksmiðjunum.
Samningafundur með sjómönnum
og útgerðarmönnum stóð til miðnættis
í nótt og halda á áfram í dag. Er
formlegur samningafundur klukkan
tvö. Að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara er verið að fara í
kröfurnar eina af annarri en hversu
fljótt verður samið ræðst nokkuð af
fiskverði.
Hægar gengur i viðræðum vélstjóra
í ríkisverksmiðjum og ríkisins að sögn
Guðlaugs. Sáttafundur var í gær en
stuttur. Ákvörðun verður tekin um það
um tvöleytið i dag hvenær næsti fundur
verður boðaður.
-DS.
Hringanóri
með íscargo-
vélfrá
Hollandi
til íslands
— ápantaðfar
áfram
til Akureyrar
Hringanóri verður meðal farþega í
íscargo-flugvél sem kemur hingað til
Reykjavíkur næstkomandi laugardags-
kvöld frá Hollandi. Hefur selurinn hér
stuttan stanz og heldur til Norðurlands
með minni flugvél. Þar verður honum
sleppt i sjóinn kalda, sem er hans
eiginlega heimkynni.
Þessi hringanóri er einn af átta
þeirrar tegundar, sem flækzt hafa á
strönd Hollands síðustu 100 árin eftir
því sem bezt er vitað. Eru hollenzkir
dýravinir og náttúruverndarmenn, sem
leituðu til íscargo með þennan
óvenjulega flutning, að sögn Kristins
Finnbogasonar, framkvæmdastjóra
íscargo, er DB innti hann eftir þessu
máli.
Þess má geta sem vel er gert og þá
í þessu sambandi örlætis íscargo hf. að
leggja þessu óvenjulega framtaki gott
lið án nokkurs endurgjalds.
-BS.
Fiskverð
ákveðið
ídag
Ríkisstjórnin sat enn á fundinum nú
rétt fyrir hádegi sem hófst kl. 8.30 í
morgun, meðal annars vegna fisk-
verðsins sem enn hefur ekki verið á-
kveðið, þrátt fyrir ráðstafanir
stjómarinnar til þess að auðvelda
verðlagsnefndinni að taka ákvörðun.
Þrátt fyrir önnur mál sem til
umræðu koma á fundi þessum, eins og
fram kemur í annarri frétt í blaðinu, er
talið víst að honum ljúki ekki fyrr en
tryggt sé að nýtt fiskverð verði á-
kveðið og tilkynnt í dag.
-BS.