Dagblaðið - 18.02.1981, Side 1
7. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1981 — 41. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÍJI.A 12. AUGl.VSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022.
Strand Heimaeyjar á Hólseyjarfjöru:
EKKITALIN ASTÆÐA TIL AÐ
ÞIGGJA AÐSTOÐ VARDSKIPS
— ekki skyldi síður leita aðstoðar varðskips en annarra, sagði tryggingarfélagið ivið útgerðina
,,í sambandi við sjóslys þarf ekki að
leita álits tryggingarfélags. Skrifstofa í
landi hefur ekki aðstöðu til að meta
ástandið úti á sjó. Skipstjóri ræður að
sjálfsögðu og tekur ákvörðun,” sagði
Gísli Ólafsson, forstjóri Tryggingamið-
stöðvarinnar hf., sem er vátryggjandi
ms. Heimaeyjar, sem strandaði við
Hólsárósí fárviðrinu í fyrrinótt.
í dagbók varðskipsins Þórs segir
meðal annars að Ölduljónið hafi verið
með Heimaey í togi. Hafi Ölduljónið
haft samband við varðskipið kl. 20.15
og skýrt frá því að taugin úr Heimaev
hefði þá slitnað. Hafi Ölduljónið farið
Heimaey VE-1 á Hólsárfjöru i yær. Skipið virðist óskemmt op enyinrt sjórhefur komizt iþat). DB-mynd Öiafur Stol:en»alJ.
„Sindri reyndi allt sem unnt var"
— sagði útgerðarmaður Heimaeyjar
„Það er venjulegt að hafa samráð
við tryggingarfélag, þegar leitað er
aðstoðar,” sagði Sigurður Einarsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Vestmannaeyja, er fréttmaður bar
undir hann það atvik sem skýrt er frá
í dagbók varðskipsins Þórs, þegar
Suðurey kallaði Heimaey upp.
Var það ábending til Heimaeyjar
að leita ekki aðstoðar varðskips fyrr
en haft hefði verið samband við
tryggingafélag.
„Sindri var þarna nær en varðskip-
ið og vel búinn til að veita þá aðstoð
sem við varð komið. Ég held ekki að
þetta hafi nein áhrif haft á gang mála
í þessu tilviki, þótt erfitt sé, ef ekki
alveg ómögulegt, að meta það svona
eftir á,” ságði Sigurður Einarsson.
Ha'nn kvað veðurhaminn þarna hafa
verið svo óskaplegan, að erfitt hefði
verið um vik.
- BS
fram á aðstoð varðskipsins við Heima-
ey.
Þegar þetta var, voru skipin stödd
um fjórar sjómílur VSV af Þridröng-
um. Er varðskipið hélt í áttina til bát-
anna, þ.e. Heimaeyjar og Ölduljóns,
heyrðist Suðureý VE 500 kalla í Heima-
ey. Virtist Suðurey stödd i Vestmanna-
eyjahöfn. Flutt vorit skilaboð um að
skipið mætti ekki leita aðstoðar varð-
skips nema með leyfi tryggingarfélags
Heimaeyjar. Bauðst sá sem kallaði að
hringja i tryggingarfélag bátsins.
Kl. 20.18 kallaði Heimaey í varðskip-
ið Þór og afþakkaði aðstoð þá sem
Ölduljónið hafði beði^MÍ?. Stöðvaði
þá varðskipið ferð og lét reka.
Um þetta leyti var Sindri VE 60 byrj-
aður tilraunir að koma taug í Heimaey
til þess að draga hana til hafnar, ef þess
væri kostur. Veður var um þetta leyti
orðið afar slæmt og gengu tilraunir
Sindramanna illa.
Kl. 23.45 heyrðist, samkvæmt dag-
bók varðskipsins, að skipin væru
komin 2.7 mílur frá landi en dráttar-
laug ennþá ekki komin á milli skip-
anna. Varðskipið hélt þá, án þess að
það væri sérstaklega til kvatt, i áttina
til Heimaeyjar. Fékk það þá ekki að
gert og Heimaey strandaði sem fyrr
'segir. Eins og fram kom í DB í gær fór-
ust tveir skipverjar Heimaeyjar þar í
fjörunni.
Milli kl. 20 og 21 hringdi Sigurður
Einarsson, framkvæmdastjóri Hrað-
frystihúss Vestmannaeyja og Heima-
eyjar VE-1, til Gunnars Felixsonar,
deildarstjóra Tryggingamiðstöðvarinn-
ar hf.
„Ég sagði í viðtali okkar Sigurðar að
algerlega sjálfsagt væri að leita eftir
allri þeirri aðstoð sem nauðsynleg og
fáanleg væri,” sagði Gunnar Felixson,
í viðtali við DB. Hann bætti við: „Ég
tók alveg sérstaklega fram, að ekki ætti
síður að leita aðstoðar varðskips en
annarra, ef það væri talið koma að
gagni.”
-BS/ASt.
Tveir menn hætt komnir við
björgunaraðgérðimar
— sjá nánarbls. 11
Dýri togarinn norski skal til íslands:
„Kaupin eru knúin
fram með ofbeldi
Framsóknar”
— segir Karl Steinar Guðnason
,,Ég flutti sljórn Framkvæmda-
stofnunar skýrslu um stöðuna í tog-
arakaupamálinu fyrir Þórs- og Rauf-
arhöfn i gærmorgun. Þegar umræður
voru hafnar hringdi sjávarútvegsráö-
herra og tjáði mér að málið hefði
verið rætt á fundi ríkisstjórnarinnar
þá um morguninn. Viðhorf stjórnar-
innar væri að það væri að fara úr
öskunni i eldinn að hætta við kaup
togarans. Áherzlu skyldi leggja á að
lækka endurbótakostnað. Kaupverð
skyldi skoðast 28 milljónir norskra
króna. Hlutur Byggðasjóðs skyldi
vera 10°/o af þvi verði en IO°/o mætti
taka af sérstöku framlagi sem rikis-
sjóður ætlar að tryggja sjóðnum
(svökallað sælgætisgjald) og stæði
ábyrgð rikissjóös þar að baki."
Þannig lýsti Sverrir Hermannsson
gangi mála um endanlega afgreiðslu
þcssa fræga togarakaupamáls í
Framkvæmdastofnun I gær. Þar var
samþykkt með 5 atkvæðum (2 sátu
hjá) framlag Byggðasjóðs tii kaup-
anna með fyrrgreindum hætti.
Sagði Sverrir að á fundi hans, sjáv-
arútvegsráðherra og fjármálaráð-
herra hefði verið ákveðin fyrrgreind
,,lausn” um að taka fé úr „sælgætis-
sjóðnum”, eða „mútusjóðnum" sem
svo er neíndur, til að leysa málið.
Á grundvelli þeirrar hugmyndar
ákváðu fimm stjórnarmenn Fram-
kvæmdastjórnar, þeir Matthías
Bjarnason, Ólafur G. Einarsson,
Stefán Guðmundsson, Þórarinn Sig-
urjónsson og Geir Gunnarsson, að
sættast á úrslit málsins og töldu m.a.
að með þessari afgreiðslu væri
ábyrgð Byggðasjóös minnkuð en
ábyrgð ríkissjóðs á þessum umdeildu
kaupum aukin í 90%.
,,Það var ekki verið að greiða at-
kvæði um kaupin á togaranum í gær
helduj hvernig skyldi fjármagna
þau,” sagði Karl Steinar Guðnason í
samtali við DB. ,,Ég hef alla tíð lagzt
gegn þessari vitleysu og varað við
henni. Þetta er alfarið orðið mál
Steingríms ráðherra og Stefáns Val-
geirssonar og fleiri Framsóknar-
manna. Þeirhafa meðofbeldi og hól-
unum og nú síðast jafnvel lygum um
óformlega samþykkt rikisstjórnar-
innar pínt þetta i gegn öllunt til
óþurftarog vansæmdar,” sagði Karl.
,,Mér finnst nú tai manna um þetta
mál orðið all litilmannlegt,” sagði
Sleingrímur ráðherra í morgun.
„Kaupin eru fyrir löngu ákveðin af
rlkisstjórn og stjórn Framkvæmda-
slofnunar. Kaupin voru e.t.v. mis-
tök, t.d. hcfði átt að setja í heimild-
ina hámark um verð. En úr þvi sem
komið er er verra að hætta við en
halda áfram. Tiu prósenta ábyrgðar-
Irygging fyrir kaupunum rnyndi tap-
azl svo og yrði að greiða skaðabætur
vegna vinnu sem hafin er við um-
bætur togarans. Alls hefðu þvi utn
350—400 milljónir gkr. lent á Fram-
kvæmdastofnun þó hætt hefði verið
mið. Ég fagna þess vegna að búið er
að afgreiða þetta mál,” sagði Stein-
grímur. -A.Sl.