Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 20

Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 20
20 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981. G Menning Menning Menning Menning Ævintýrið um prinsessuna Haustvika Áslaugar Ragnars D Áslaug Ragnars: HAUSTVIKA, skáldsaga. Bókaútgáfan öm og úriygur h.f., 1980.177 bls. Skelegg heldur Áslaug Ragnars út á rithöfundabrautina með fyrstu bók sinni Haustviku, hressilegri sögu af miðaldra konu, sem búin er að gegna hlutverki sínu sem móðir, stendur á þessum ægilegu tímamótum um fimmtugt og á að vera — samkvæmt gamalli hefð — passé. Strax í upphafi er lesanda ljóst, að þessi kona, Sif Benediktsdóttir, hefur þó nokkra sérstöðu. Hún veit ekki aura sinna tal. Áslaug þarf þess vegna ekki að kryfja peningamálin til mergjar, enda lætur hún Sif byggja sér hús eins og hendi sé veifað. ,.f g ákvað að byggja mér hús. Hús semmiðaðist algjörlega viðþarfir mínar. ljað átti að vera hentugi, fallegt og vandað. hnginn íburður, ekkert prjál. Hæfilegur rammi utan um myndina af konunni, sem átti að búa þar. Lóðina átti ég, — á sunnanverðu Seltjarnarnesi, við sjóinn. Byggingin sá mér fyrir viðfangsefnum næstu tvö ár. Hver fermetri er þaulhugsaður. Ekkert vantar og engu er ulaukið.” I etta er öll saga húsbyggingarinnar (bls. 24). Eftir skilnað ætlar Sif að fara að vinna fyrir sér, aðallega til að drepast ekki úr leiðindum og fær sér vinnu í fyrirtækinu þar sem hún er „drjúgur hluthafi. Þeir, sem fyrir voru, tóku mér vinsamlega, af hlutlausri kurteisi, en ég fann fljótt að þarna átti ég ekki heima.” (24). Áhyggjulaust Irf Það fer ekki'á milli mála af hvaða stétt Sif er. Svolítið samviskubit er hún látin hafa og spyrja sjálfa sig: ,,. . . hvaða rétt hefur þú til fjár- muna, sem aðrir hafa aflað?” (24). En þessi hjáróma rödd er óðara slökkt með lýsingum af áhyggjulausu yfirstéttarlífi sem ekkert fær grandað nema kannski veikindi og ástleysi og svo náttúrlega morð. Og það er einmitt þetta þrennt, sem truflar annars áhyggjulaust líf Sifjar. Það byrjar með krabba- meininu. Taka verður af henni annað brjóstið. Það geirr læknirinn Bogi, gamall flammi, sem verður viðhald eftir skilnaðinn frá hinum góðlynda einfeldningi og streðara Einari alþingismanni. Bogi læknir læknar hana einnig af minnimáttarkenndinni vegna brjóstmissisins, bæöi með því að gerast ástmaður hennar og senda hana til Ameríku í fokdýra meðferð, þar sem hún fær nýtt silikonbrjóst með vörtu. I þessari ferð er enn áréttað að það sé ekkert athugavert við þann heim sem hinir forríku gista. Vinkonan i Ameríku hafði einnig misst annað brjóstið og fengið nýtt. Nú sprangar hún um á barmi einka- sundlaugarinnar í hvítu bikini, aldrei fegurri. Hún sýnir Sif hverju iækna- kúnstin getur áorkað og hvetur hana til að fara að sínu dæmi: „Hvað er ekta og hvað er óekta? Erum við ekki hluti af náttúrunni? Er silikon ekki hluti af náttúrunni? Ég veit að ég er forréttindamanneskja. Ég vildi að allir nytu sömu réttinda, en nú er ég hætt aö skammast min fyrir þau forréttindi, að vera ein þeirra fáu sem eiga kost á svona þjónustu.” (75). Ótti og einmanaleiki Gott og vel. Nú veit lesandi í hvaða heimi hann er og verður spenntur að fá loksins tækifæri til að vita hvernig ríkir fara að þvi að tala, sitja og ganga. Það er bara verst hvað Rannveig Ágústsdóttir hinir ríku eru leiðinlegir. Sif á t.d. enga vini (Vill enginn leika sér við hana?) Hún á bara ástmenn og af- komendur. Situr löngum ein í nýja, fullkomna húsinu sínu og gruflar út i lífið eins og sagt er, óttast hrörnum, elli, ástleysi og er margt vel um þessa hluti sagt, þvi Sif hugsar svo mikið eins og Bogi læknir sagði. En það er svo með þessa bók að lesandi verður eins og tviátta og spyr:Á saganað vera heiðarleg tilraun til að lýsa lífi yfirstéttarkonu og hugmyndaheimi hennar árið 1980 eða — á hún að vera réttur og sléttur reyfari með mannlegu ivafi a la Margeir Gunnars Gunnarssonar, bara með öfugum formerkjum — allt séð að ofan með augum konu —? Það er eins og höfundur hallist meir og meir að hinu síðara er á liður. Atburðir gerast æ ótrúlegri bæði í hinum ytra og innra heimi Sifjar. Hún breytist sjálf, verður sífellt öruggari með sjálfa sig og réttmæti skoðana sinna. Bókin morar af heil- ræðum hennar. Svo lætur hún líka til skarar skríða, losar sig fyrst við eiginmanninn, svo við viðhaldið, kveður karlæga móður sína með litlum kærleikum og heldur svo út í heim á vit nýrra ásta — því það „er það bezta sem til er. . . Ný ást.” sagði Preben hinn danski (163). Ljómandi ritfær Morðið er hreyfiaflið í sögunni en þó alls ekki aðalatriðið. Það veldur breytingum á lífi Sifjar og gefur á- stæðu til að láta hana rifja upp fyrri ævi svo að við fáum býsna heillega mynd af henni. Morðið leiðir óbeint til þess að augu Sifjar opnast fyrir því að líf hennar er ófullnægjandi og hún hefst handa um breytingar. Best er að lesa söguna sem reyfara, vera ekkert að pæla í próblematíkinni. Þannig getur les- andi haft prýðisgaman af ævintýri prinsessunnar. Því Áslaug er ljómandi ritfær og er fundvís á hin ýmsu einkenni nútímalífs og gerir af því hæfilega blöndu — sitt lítið af hverju: Ást, elli, einmanaleiki, eitt morð og annað í gátum, kynvilla, af- brýði, framhjáhald, skilnaður, kyn- slóðabil, eiturlyfjanotkun, fóstur- eyðing, krabbamein, draumar, yfir- náttúrleg skynjun og kona, sem ekki lætur kveða sig í kútinn, lærist að líta á sjálfa sig sem sjálfstæða manneskju — ekki sem helming af einingu, því „það er enginn betri helmingur” (177) segir Sif í bókar- lok. Áslaug er efnilegur byrjandi hver sem endalok Sifjar verða í Danmörku. Rannveig. V r FIDELIO Tónloikar Sinfónkihljómsveitar (slands í Há- skólabfói 12. febrúar. Stjórnandi: Jean-Pierre JacquillaL Einsöngvarar: Astrid Schirmer, Ludovico Spioss, Bent Norup, Manfred Schenk, Elín Sig- urvinsdóttir, Sigurður Bjömsson, Kristinn Hallsson, Einar Gunnarsson, Hreiðar Pólma son. Söngsveitin Fflharmónla, kórstjóri Debra Gold. Karlakór Reykjavfkur, kórstjóri Páll P. Pálsson. Fyrst þegar ég sá Fidelio á óperu- sviði var efst i huga mínum vorkunn- semi í garð vesalings mannsins sem skrifaður var sem leikstjóri fyrir verkinu. Öllu kauðskara sviðsverk heid ég að ég hafi aldrei séð. Fidelio fer því allra best í konsertuppfærslu og má það furðu sæta að ekki hafi verið slægst eftir henni fyrr hér á landi. Höfðinglegt boð Til tónleikanna var boðið fjórum einsöngvurum úr þýskri óperu sem þakka ber einstökum velviija sendi- herra Vestur-Þýskalands, Raimund Hergt. Astrid Schirmer söng Leonoru. „Abscheulicher!” hið fræga rezitativ og aria var hreint frábær í meðhöndl- un hennar, jafnvel þótt hornin gerðu sitt til að villa um fyrir henni. Mér fannst samt skorta blíðu í söng henn- ar til að hún væri sannfærandi Leo- nora. Hennar söngur hæfir betur kaldlyndari kvenhetjum. Ludovico Spiess söng Florestan. Víst hefur hann fögur hljóð, en eitt sinn var mér sagt að til þess að teljast stórsöngvarar yrðu menn meðal ann- ars að vera tónvissir og þar við situr. Sem þrjóturinn sjálfur Don Pizarro var sunginn af Bent Norup sem var svo sannfærandi i hlutverkinu að ósjálfrátt var maður farinn að halda að Norup hlyti að vera manngerð á borð við þrjótinn Pizarro sem ég vona að sé rangt hjá mér. Það eru jú venjulega hin mestu Ijúfmenni sem tekst best upp í túlkun skálkanna á sviði. Manfred Schenk í hlutverki Roccos var burðarás einsöngvaraliðsins og um leið ópgrunnar allrar. Hann er stórkostlegur söngvari, sem unun er að hlýða á, í hvaða hlutverki sem hann syngur. í fullu tré Elín Sigurvinsdóttir í hlutverki Marzellinu söng hreint og kom text- anum vel til skila. Það var varla að maður tæki eftir því að þar syngi söngkona sem fær einsöngshlutverk endrum og eins við hlið fólks sem telur upptroðslur sínar i hundruðum áári. Sigurður Björnsson naut að sjálf- sögðu sinnar miklu óperureynslu. Hann söng vel að vanda og minnti um leið á að hann á enn fullt erindi uppáóperusvið. Kristinn Hallsson fór vel og mildi- lega með hlutverk Don Fernandos. Það er tæpast réttlátt að gera samanburð á frammistöðu þeirra kórfélaganna, Einars Gunnarssonar Ludwig van Beethoven. og Hreiðars Pálmasonar og hinna einsöngvaranna. Mér finnst nú samt að Karlakór Reykjavíkur hafi fyrr gaukað meiri einsöngvurum að tón- listaraðdáendum. Of spar á vöndinn Kórarnir stóðu sig báðir mjög vel. Að vísu hrjáir karlafæðin Fílhar- móníu og hefði ekki sakað að bæta við nokkrum leiguþýjum úr karla- kórnum, en heildarblærinn er allur frískari en var á tónleikunum á jóla- föstu. Hljómsveitin lék á köflum afar kæruleysislega. Inn á milli komu svo ágætar glefsur, en það vantaði alveg að hún hefði á sér þennan alvöru- óperuhljómsveitarblæ, eins og til dæmis í La Traviata-uppfærslunni í fyrra, sem stafar líklega af því að Monsieur Jacquillat hafi verið of spar á vöndinn. EM. «/ / V

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.