Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981. 17 Gestir á siðasta Utsýnarkvötdi fengu ti/sögn i nýjasta diskódansinum. Hann er i þvi fóiginn að þétttakendur setjast flötum beinum og róa sór fram og aftur og tH hliðanna. DB-myndir: Einar Ólason. Meðai gesta kvöldsins var Helga Möller, sem nýlega var valin söngkona ársins af lesendum Dagblaðsins. Hún gekk um salinn ásamt Þorgeiri Ást- valdssyni og fókk fólk til að syngja. — Þorgeir var jafnframt kynnir kvöldsins. Ingólfur Guðbrandsson um Útsýnarkvöldin: Ferðakynningar sem þróuðust út í skemmtikvöld „Það eru nú liðin átta ár síðan fyrsta Útsýnarkvöldið var haldið. Þau hafa allt frá upphafi notið mik- illa vinsælda og nú á síðari árum sí- vaxandi viðurkenningar sem eitt hið bezta sem boðið er upp á í skemmt- analífi höfuðborgarinnar,” sagði Ingólfur Guðbrandsson forstjóri ferðaskrifstofunnar Útsýnar, er hann var spurður út úr um skemmtikvöld fyrirtækis síns. Blaðamaður DB var einn sárafárra íslendinga sem aldrei hafði stigið fæti á skemmti- eða kynningarkvöld ferðaskrifstofanna. Hann sá að við svo búið mátti ekki lengur standa og leit því inn á Útsýnarkvöld síðastlið- inn sunnudag að Hótel Sögu. Ösku- bylur var á höfuðborgarsvæðinu kvöldið það og ferðaveður hið óákjósanlegasta. Þó létu á sjöunda hundrað manns veðrið ekki aftra sér til að halda upp á hátið heilags Val- entíns með Ingólfi og starfsfólki „Miðjumenn” með þriðja jramboðið til kosninga í Stúdentaráði í marz: Viljum fastari stjóm og jleiri valkosti, segir Kjartan Ottósson formaður ritnefndar „Ástæða þess að við bjóðum j Stúdentaráð er að við teljum að þriðja framboðið við kosningar i vantað hafi valkost fyrir miðjumenn í Kjartan Ottósson: Stúdentar eru aknennt óánægðir með þá tvo valkosti sem i boði hafa verið. DB-mynd Einar Ólason. pólitík. Það hafa verið tveir Iistar í fjölmörg undanfarin ár í stúdenta- ráðskosningum. Stúdentar eru al- mennt óánægðir með það úrval sem verið hefur. Það eru annars vegar vinstri menn þar sem róttæklingar hafa ráðið mestu og hins vegar Vaka þar sem sjálfstæðismenn hafa verið fjölmennastir,” sagði Kjartan Ottós- on formaður ritnefndar. „Við höfum ekki ennþá raðað á listann en þegar er búið að kjósa framkvæmdanefnd, ritnefnd og upp- stiliingarnefnd,” sagði Kjartan. „Það eru mjög margir sem styðja okkur og eru virkir í undirbúnings- starfinu. Hópurinn er afar fjölbreytt- ur, í honum eru kratar, framsóknar- menn, alþýðubandalagsmenn og óháðir. Þessir menn telja að hvorki vinstri menn né Vaka séu raunhæfir valkostir. Við erum að vinna að stefnuskrá. Ég get nefnt sem dæmi að við viljum fastari stjórn á Félagsstofnun stúd- enta og að meiri aðgát verði höfð í fjármálum stofnunarinnar. Þá viljum við breyta Stúdentablaðinu og að það höfði meira til stúdenta en það hefur gert,” sagði Kjartan Ottósson. „Kosning í Stúdentaráð fer fram í marz og þangað til verður unnið að þvi hjá uppstillingarnefnd að raða á listannogsafnafólki.” -ELA. hans. Enda var skemmtidagskráin af lengra taginu. Landsþekkt fólk kom fram, auk þess sem gestir salarins tóku virkan þátt í sprellinu. Ingólfur Guðbrandsson var að því spurður hvort kollegar hans annars staðar á Norðurlöndunum tækju þátt í skemmtanaiðnaðinum á sama hátt og ferðaskrifstofumenn hér. Hann kvað nei við því. „Samt sem áður er algengt að ferðaskrifstofur á Norðurlöndunum gangist fyrir ferðakvöldum,” sagði hann, „en þar er aðeins um beinar kynningar að ræða með myndasýn- ingum og fyrirlestrum. Þannig var það líka í upphafi hjá mér en kynn- ingakvöldin hafa þróazt upp í að verða fyrst og fremst skemmtun þar sem einn liðurinn er kynning. Þetta form hefurgefiðgóðaraun.” Góð auglýsing — Standa þessi skemmtikvöld und irsér? „Nei. Þau skila engum tekjum nema af sölunni á bingóspjöldum. Á sunnudagskvöldið gáfum við þrjá ferðavinninga í verðlaun í bingói og einn í happdrætti. Tekjurnar nægja engan veginn fyrir þeim. Þessar skemmtanir eru liður í að auglýsa starfsemina og falla því undir auglýs- ingakostnað. Þessi auglýsing virðist komast vel til skila,” sagði Ingólfur ennfremur. „Skemmtistaðirnir i Reykjavik eru flestir hverjir hálftómir á sunnudags- kvöldum en á Útsýnarkvöldunum er yfirleitt fullt hús. Til okkar kemur mjög blandaður hópur fólks á ólik- um aldri af ótal vinnustöðum. Sé skemmtunin góð verður hún um- ræðuefni dögum saman og spyrst út til annarra, sem ekki hafa haft tök á að koma. Við reynum að ná til sem flestra með því að breyta um tema frá einu kvöldi til annars. Við höfum haldið þrjú Útsýnarkvöld það sem af er ár- inu, áramótafagnað, þorrablót og Valentínshátið, og á þessar skemmt- anir hafa komið mjög ólíkir hópar. ” Tízkusýningarnar Á þeim tíma sem Ingólfur Guð- brandsson hefur haldið Úlsýnarkvöld hefur hann fitjað upp á ýmsum nýj- ungum í vali á skemmtiatriðum. Til dæmis datt honum í hug fyrir sex til sjö árum síðan að bjóða gestum upp á tízkusýningar. Þá þekktust slíkar sýningar vart nema á vörusýningum og kaupstefnum. „Nú orðið sýnist mér varla vera haldin sú skemmtun að ekki sé boðið upp á tizkusýn- ingu,” sagðihann. -ÁT. Óíbúðarhœft prestssetur? Prestsleysi á landsbyggðinni hefur verið nokkuð í fréttum að undan- förnu. Forráðamenn kirkjunnar telja eina af ástæðunum fyrir því vera mikinn koslnað sem fylgir mörgum prestaköllum úti á landi. Lausu prestakalli er þjónað af nágranna- presti og fær sá greidd hálf prestslaun fyrir þá aukavinnu. Nýlega heyrðum við sögu af ung- um presti sem áhuga hafði á brauði einu í sjávarþorpi úti á landi. Hann sneri sér þvi til nágrannaprestsins sem gegndi störfum í hinu lausa presta- kalli og spurðist fyrir um hvernig háttað væri til þar. Nágrannaprestur- inn var fljótur að drepa niður áhuga unga prestsins með ófögrum lýsing- um um prestssetrið sem hann sagði varla íbúðarhæft. íbúar kauptúnsins urðu ekki beint hrifnir er þeir heyrðu þessa lýsingu, töldu hana út í hött og sögðu prests- setrið fullboðlegt hverjum sem er. Telja þeir ástæðuna fyrir hinni ófögru lýsingu nágrannaprestsins vera ótta hans við að missa aukavinn- una. Allir vilja eiga númsmenn Stjórnmálamenn viðurkenna að námsmenn séu hópur sem skiptir verulegu máli að koma sér vel við fyrir kosningar. Alþýðubandalagið hefur löngum þótt eiga hlutfallslega mestu fylgi að fagna í röðum náms- manna, sem sést bezt á því hve mörg utankjörstaðaatkvæði erlendis frá falla fiokknum í skaut. Fullyrt er að atkvæði námsmanna hafi komið fimmta AB-manninum í borgarstjórn og þar með fellt áratugagamlan meirihluta Sjálfstæðisflokks. Og að Ólafur Ragnar hafi dottið inn fyrir þingþröskuldinn á atkvæðum náms- manna. Þá má enn nefna að at- kvæðahlutfal! Vigdísar Finnboga- dóttur meðal námsmanna var mikl- um mun hærra en annarra forseta- frambjóðenda miðað við heildarat- kvæðahlutfallið. Ein af skýringum á hollustu náms- manna við allaballana er sú stefna flokksins að flytja tillögur um úr- bætur í lánamálum námsfólks og styðja kjarabaráttu þeirra í orði. En minna hefur orðið úr efndum þegar AB loks kemst að kjötkötlunum sjálfum og sezt i ráðherrastóla. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn kominn af stað. Þrír þingmenn hans hafa flutt frumvarp um að verðbætur af náms- lánum verði frádráttarbærar eftir að námi lýkur. Ekki er að efa að náms- menn eru fúsir til að styðja þetta frumvarp, en fróðlegt verður að sjá viðbrögð AB-manna við þvi á þingi, og ekki siður hvort námsmenn eru fúsari en áður til að fylgja íhaldinu þegar til kosninga kemur út á frum- varpið. Axel í drykkjubóli Axel kom heim undir morgun úr afmælispartíinu hjá Páli, valtur á fótum. Eftir tveggja tíma svefn heyrir konan hann stynja upp úr svefninum: „Vaaaatn.” Konan brölti framúr og náði í vatnsglas. Pottþéttur maki það. Flakið af eiginmanni hennar svolgraði í sig vatnið og leit á hana rauðeygt: „Guð hvað þetta er gott vatn. Vektu krakkana í hvelli og gefðu þeim að smakka lika!” Svo valt hann út af — hrjótandi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.