Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 10
10 r DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981. Flestir óvátryggðir gegn fárviðri: Tjónið lendir að mestu á fólkinu, tjónþolunum — heimi listrygging bætir þó innbú og húseigendatrygging tjón á húsum vegna óveðursins „Heimilistrygging, sem er almenn á landinu, eða á 40—45 þúsund heimilum, bætir það tjón, sem verður á innbúi af völdum óveðurs,” sagði Héðinn Emilsson, deildarstjóri á- byrgðar- og slysadeildar Samvinnu- trygginga í gær. „Húseigenda- trygging bætir ýmislegt tjón á hús- eignum manna, þ.á m. tjón vegna óveðurs. Þeir sem hafa báðar þessar tryggingar eru því nokkuð vel settir gagnvart bótum á tjóni af völdum óveðursins í fyrrinótt. Það eru hins vegar mun færri með húseigenda- tryggingu. Hjá okkur eru þeir um þrjú þúsund og líklega fimm til sex þúsund í allt á landinu.” „Viðlagatrygging tekur ekki til náttúruhamfara af völdum óveðurs,” sagði Héðinn. „Sam- kvæmt lögum um viðlagatryggingu frá l.september 1975 nær hún til eld- gosa, jarðskjálfta, snjóflóða, aur- skriða og vatnsflóða. Hins vegar virðist fokið hafa gleymzt. Við höfðum einn svona dag til samanburðar, 27. september 1973 þegar fellibylurinn Ellen gekk yfir. Enn sem komið er, er ekki annað að sjá en tjónið nú sé minna en þá, a.m.k. ef marka má tilkynningar um tjón. En það er ekki fullljóst vegna álags á símann. Símakerfið ber þetta ekki.' Tjón vegna svona óveðurs eru ekki svo mjög kostnaðarsöm fyrir tryggingarfélögin miðað við margt annað, t.d. tjónið í umferðinni. En á hitt ber að líta, að gífurlega mikið af því tjóni, sem nú hefur orðið er óvá- tryggt, þannig að tjónið lendir að mestu á fólkinu sjálfu, tjón- þolunum”. -JH. V Þessi litla flugvéL-TF-BAD tók heljarstökk aftur á bak á Reykjavikurflugvelli, þegar verstu hryðjurnar gengu yfir. Ekkert dugði þótt vélin vxri tjóðruð niður. Hún er talsvert skemmd á vængjum, stéli og hjólabúnaði. DB-mynd S. Guðjón Petersen f ramkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins Bílatryggingar eftir óveðrið: ÁBYRGÐARTRYGG- ING BÆTIR EKKERT EN KASKÓ SUNIT — f remur gloppa í ríkiskerfinu en hjá bifreiða- tryggingafélögunum, segir fulltrúi bifreiðadeildar Samvinnutrygginga „Ábyrgðartrygging bifreiða bætir ekki tjón, sem verður á bilum í óveðri,” sagði Guðgeir Ágústsson, fulltrúi í bifreiðadeild Sam- vinnutrygginga. „Hins vegar bætir kaskótrygging bíl sem fer af stað á bílastæði og skemmist, t.d. lendir á öðrum bíl. Kaksótryggingin bætir aftur á móti ekki tjón af völdum hluta, sem fjúka í bíia, t.d. þakplötur.” Er eigandi bíls, sem fýkur á annan bíl bótaskyldur gagnvart tjóni á þeim bíl? „Nei, ég tel tæpast að menn séu bótaskyldir í slikum tilfellum. Menn gætu prðið eignalausir, ef slíkt kæmi til.” Hverjir eru möguleikar bíleigenda gagnvart slfku fárviðri. Er ekki hægt að tryggja sig gagnvart tjóni af völdum fárviðris? „Nei, tryggingafélög veita ekki slíkar tryggingar. Þau gætu staðið uppi gjaldþrota eftir eina óveðurs- nótt. Þarna er frekar gloppa í ríkis- kerfinu en tryggingakerfinu. Slík tjón getur enginn bætt nema sameigin- legur sjóður landsmanna. Eftir óveðrið í september 1973 var settur á laggirnar svonefndur Bjargráða- sjóður. Hann er enn við lýði, þótt hann sé tómur. Það er ekki lengi verið að safna í slíkan sjóð.” -JH. Sambandsleysið enn mesta vandamálið — heilir landshlutar einangraðir—margar almannavama nef ndir ekki nógu klárar á sínu hlutverki —of stuttur tími til aðvörunar „Eflaust má draga mikinn lær- dóm af þessu tilviki eins og öllum þeim tilfellum, þegar almannavarna- kerfið er sett í gang,” sagði Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins í gær. „í fljótu bragði sýnist manni tíminn til aðvörunar hafa verið stuttur. Svo til enginn fyrirvari var þar til veðrið skall yfir. Reyndar var spáð stormi en stormspár hafa verið nær daglega einhvers staðar á landinu frá því fyrir jól. Þarna er kannski um erfitt mál að ræða, upplýsingskort á vissu hafsvæði og mjög hraðfara þróun lægðarinnar. Það hafa þvi verið erfiðleikar fyrir veðurstofuna að sjá slíkt fárviðrf fyrir. Þá eru viðbrögð almannavarna - nefndanna í einstökum dæmum mis- munandi. Ég er ekki ánægður með vissa staði. Rétt er að taka það fram að almannavarnanefndirnar í Reykjavik, á Suðurnesjum og á Akranesi brugðust rétt við, en ekki var sama festa í öðrum umdæmum í kringum okkur. Nefndirnar eru ekki nógu vel klárar á sinu hlutverki. Sambandsleysi er alltaf stórt vandamál í þessum aðgerðum og raunar mesta vandamálið. Heilir landshlutar einangrast er rafmagns- laust verður og erfitt verður að ná símasambandi. Jafnvel loftskeyta- samband bregst. Útvarpið hverfur út a.m.k. að nokkru leyti, en útvarpið er mikið öryggisatriði almannavarna. Að vísu er komið nokkuð mikið öryggi á langbylgju útvarpsins. Það kemur hins vegar í ljós að fjöldi nanna missa út útvarpið þegar raf- magnið fer vegna þess að viðtækin :ru tengd rafmagni. Það er til mikið af ferðaviðtækjum á heimilum og raunar ætti hvert heimili að eiga slíkt viðtæki sem gengur fyrir raf- hlöðum.” Nú hefur það verið gagnrýnt, að hætt hafi verið að útvarpa of snemma, þ.e. á stöðum norðanlands, þar sem veðrið var ekki gengið yfir. Hverju svara Almannavarnir þessari gagnrýni? „Það hefur aðeins borizt ein kvörtun til okkar vegna þessa, þ.e. frá Hvammstanga. Það hefði verið fyllsta ástæða til þess að útvarpa lengur, en þegar hætt var að útvarpa kl. 2 um nóttina var veðrið að mestu gengið yfir Skagaströnd og Blönduós. Það réttlætir það hins veg- ar ekki að.hætt var að útvarpa. Það hefðiátt aðgeraáfram.” Hvað tekur nú við hjá Almanna- vörnum í framhaldi af þessari törn? ' „Það verður mikið fundað. í dag er fundað hjá almannavarna- nefndum Reykjavíkur og Akraness, en á Suðurnesjum á morgun. Allir yfirfara sína hluti og meta tjónið. Á þessu stigi er ekki nokkur leið að meta heildartjóniö vegna fár- viðrisins, en ljóst er að þetta er mun meira en tjónið sem varð er felli- bylurinn Ellen gekk yfir í september 1973.” -JH. ifi - - - '-ába, ' Margir komu að bilum sinum svona 1 gærmorgun eftir að fárviðrið hafði feykt þeim um koll. Þessi Opel Rekord valt við Engihjallann i Kópavogi, en þar virðist veðurhæðin hafa orðið einna mest. DB-mynd Sigurður Þorri. Unnið var við að reisa stórt hænsnahús á Vatnsleysuströnd, en 1 óveðrinu hrundi allur uppslátturinn. DB-mynd Sigurður Þorri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.