Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1981.
1111 .....
Sýningarskrá kvikmyndahátíðar:
Kvikmyndahátíð til sóma
„Smáauglýsingaþjónusta"
heitir ein þjónustudeildin okkar.
Setjir þú smáauglýsingu í
Dagblaðið getur þú beðið um
eftirtalda þjónustu hjá smá-
auglýsingaþjónustu blaðsins
þér að kostnaðarlausu:
Tilboðamóttöku i síma. Við
svörum þá í síma fyrir þig og
tökum við þeim tilboðum
sem berast.
Upplýsingar í síma. Við
veitum fyrirspyrjendum upp-
lýsingar um það sem þú aug
lýsir, þegar þeir hringja til
okkar.
Að sjálfsögðu aðstoðum við
þig, ef þú óskar þess, við að
orða auglýsingu þina sem
best.
i Njóttu góðrar þjónustu
ókeypis.
i
iBIAÐIÐ
er smáauglýsingablaðið
Þverholti 11 — Sími 27022
Ooið til kl. 10 í kvöld
GÍSLI SVAN
EINARSSON
Hringiö í síma
iiiikl. l3og_lS
milli W
eðas
—göð tilraun til að brúa bilið milli talmáls og ritmáls
Alfreð S. Böðvarsson skrifar:
Mig langaði aðeins áð gera smáat-
hugasemd við kvörtun Atla Rúnars
yfir sýningarskrá kvikmyndahátíðar
þann 12. feb. Þar fárast hann út í ís-
lenskunotkun skrárinnar og tínir til
dæmi sem sanna eiga „sullutexta” og
lélega íslenskukunnáttu. Fyrst skal
það sagt að í téðum bæklingi eru
hreint engar málvillur, málfræði,
greinarmerkjasetning og annað slíkt
alls staðar tipp topp og til fyrirmynd-
ar. En það sem bréfritara finnst svo
forkastanlegt er málfarið, sem er svo
sannarlega engin steindauð stirðbusa-
rulla, sem einkennir svo oft slíkt les-
efni, heldur einfalt og auðskilið tal-
mál sem aliir nota og skilja. Og þar
fyrir utan er textinn einkar skemmti-
legur aflestrar, með eðlilegum og lif-
andi stíl. Að vera að amast við orðum
eins og gomma og glás er ferlega
púritanskt því við verðum bara að
sætta okkur við að málið þróast og
breytist og verður sífellt fjölbreyttara
og nákvæmara. Og orðatiltækið að
vera klár er nú ekki minni íslenska en
það að mætur maður notar það um
guðssoninn áseytjándu öld.
Þær fáu slettur sem notaðar eru í
ritinu eru auðskiljanlegar hverju
barni og órjúfanlegur hluti af stíln-
um, barasta bráðnauðsynlegar. Því
verð ég að segja að rit þetta er ákaf-
lega vel heppnað og stýranda þess og
Listahátíð til mikils sóma. Er það
prýðisgóð til7aun til þess að brúa
bilið milli talmáls og ritmáls og væri
óskandi að fleiri fylgdu fordæminu.
Svo ég slái nú tvær flugur í einu
bréfi vil ég líka aðeins minnast á
Skonrokk Þorgeirs Ástvaldssonar.
Sú var tíðin að sá þáttur var bara hel-
víti góður en nú er svo komið að
hann er ekkert nema diskópopprugl
og þungarokk frá Bretlandi, að
ógleymdri nýbylgju í lægsta klassa,
sem er ekkert annað en ófrumlegt
einkaflipp. Þar má m.a. telja Goom-
bay Dance Band, sem er ömurlegra
en orð fá lýst, Nolan Sisters (þær
kunna nú ekki einu sinni að greiða
sér, hvað þá syngja), þungarokks-
þumbarana Iron Maiden, sem yrði
hlegin í hel alls staðar annars staðar
en i Bretlandi, og svona mætti enda-
laust telja.
Sem sagt, þátturinn er orðinn alveg
ferlega lélegur. Og ástæðan hlýtur að
vera peningaleysi (-svelti-) því ég veit
að Þorgeir Ástvaldsson hefur ekki
svona tónlistarsmekk. Fjársveltið er
vafalaust líka ábyrgt fyrir hinum tíðu
endursýningum. Því vil ég biðja um
meiri pening þættinum til handa (og
þarmeð betra efni) ellegar hætta þess-
um sýndarleik. Við vitum að ráða-
mönnum sjónvarps er meinilla við
popptónlist en þetta er einum of
ósvífið. Fyrir utan hneykslið að hafa
ekki spes þriggja tíma þátt um John
Lennon á nú lika að eyðileggja eina
poppþátt sjónvarpsins. Ef þetta er
ekki miskunnarleysi þá . . .
Að lokum lem ég þriðju fluguna og
mótmæli því hástöfum að Fræbbbl-
arnir séu alminnileg hljómsveit. Þeir
eru einfaldlega svo undirfurðulega
ömurlegir að þeir ættu ekki eiriusinni
að fá lánaðan bílskúr undir þessar
eyrnaskemmdir.
/
esenda
Spurning
dagsins
Fauk eitthvað
hjá þér í nótt?
(Spurt í gærmorgun).
Guflmundur Fr. Guðmundsson lífeyris-
þegi: Nei, það fauk ekkert hjá mér. En
ég varð var við mikið fok í kringum
mig.
Hermann SigurAsson hílstjóri: Nei, ég
varð ekki fyrir óþægindum af óveðr-
inu.
Sigurlaug Jósepsdótlir húsmóAlr: Nei,
en ég sá ýmislegt lauslegt fjúka i kring-
Gisli FriAjónsson læknifræAingur: Nei,
ég svaf svefni hinna réttlátu þegar ég
loksinssofnaði.
Svava GuAjónsdóttir húsmóAir: Nei, ég
fór að sofa þegar rafmagnið fór og
vaknaði ekki við óveðrið.
ívar Ragnarsson, vinnur hjá Samband-
inu: Nei, en gluggarnir hjá mér svign-
uðudálitið. Þetta var ofsarok.