Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981. Gert er ráð fyrir suðvestan kelde viöast hvar um landið, þykknar upp með kvöldinu og gengur á með éljum nema á Austurlandi, þar verður bjart. Á Suður- og Austurlandi verður hiti fyrir ofan frostmark en frost á Norð- ur- og Vesturiandi. Klukkan 6 var suðvestan 5, úrkoma og 0 stig í ReykjavBc, suðvestan 8, al- skýjað og -1 stig á Gufuskálum, suð- vestan 8, ól og -3 stig á Galtarvita, sunnan 5, skýjað og 2 stig á Akureyri, suðsuðaustan 4, heiðrikt og -1 stig á Raufarhöfn, suðsuðvestan 4, hálf- skýjað og 4 stig á Dalatanga, suð-; vostan 6, rigning og 4 stig á Höfn og suðvostan 5, úrkoma og 2 stig á Stór- höfða. í Þórshöfn var rigning og 8 stig, lóttskýjað og -2 stig í Kaupmanna- höfn, heiðrikt og -12 stig i Osló, al- skýjað og -2 stig (Stokkhólmi, skýjað og 2 stig ( London, skýjað og -2 stíg ( París, heiðrikt og -3 stig ( Madrid, skýjað og 8 stig í Lissabon og heið- rfkt og 8 stig (New York. Veðrið mundur Kristmundsson og Guðfinna Guðnadóttir. Guðni vann í um 10 ár hjá Sanitas hf., síðan vann hann hjá Toyota-umboðinu og síðustu árin vann hann sem sölumaður hjá Daihatsu-um- boðinu. Árið 1974 kvæntist Guðni Þóru Pétursdóttur og áttu þau 2 börn. Guðni verður jarðsunginn í dag, 18. febrúar, kl. 15, frá Fossvogskirkju. Guðbjörg Jónasdóttir Skiðabakka, sem lézt 28. desember 1980, fæddist 8. apríl 1907 i Hólmahjáleigu i Austur- Landeyjum. Foreldrar hennar voru Ragnheiður Halldórsdóttir og Jónas Jónasson. Guðbjörg ólst upp í Hólma- hjáleigu. Árið 1934 giftist hún Erlendi Árnasyni og fluttist þá að Skíðabakka þar sem hún bjó síðan. Þau áttu 3 börn. Brynhildur Sigurðardóttir, sem lézt 8. febrúar, fæddist 7. marz 1913 á Fá- skrúðsfirði. Foreldrar hennar voru Sig- urður Björgúlfsson og Svava Björgólfs. Árið 1920 flutti Brynhildur með for- eldrum sínum til Siglufjarðar en þaðan fluttist hún 1940 til Reykjavíkur. Hóf hún störf á Hótel Borg. Brynhildur var gift Jóhannesi Jósefssyni. Varð þeim ekki barna auðið en Brynhildur hafði eignazt eina dóttur áður en hún kynnt- ist Jóhannesi. Vigdís Kristjánsdóttir, sem lézt 11. febrúar sl. fæddist 11. september 1904 að Korpúlfsstöðum. Foreldrar hennar voru Rannveig Þórðardóttir og Kristján Magnússon. Vigdís missti for- eldra sína þegar hún var ung að aldri| en hún ólst upp hjá móðursystur sinni, Sigríði Þórðardóttur. Vigdís stundaði myndlistarnám, m.a. hjá Ríkharði Jónssyni, Guðmundi Thorsteinssyni og Stefáni Eiríkssyni. Siðar stundaði hún nám við Handíða- og myndlistar- skólann og lauk þaðan prófi sem teiknikennari. Hún stundaði einnig tónlistarnám bæði hér heima og í Þýzkalandi. Um fimm ára skeiðj stundaði Vigdís nám í listvefnaði við Listaskólann í Kaupmannahöfn, einnig nam hún listvefnað við Statens Kvindlige Industriskole í Osló um tveggja ára skeið. Árið 1937 giftist Vig- dis Árna Einarssyni og voru þau barnlaus. Guðni Grétar Guðmundsson, sem lézi 7. febrúar, fæddist 22. september 1946 i Reykjavik. Foreldrar hans voru Guð- Guðmundur Kristmundsson, framkvæmdastjóri sem lézt 8. febrúar sl. fæddist 8. marz 1914 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Ingibjörg Gamalíelsdóttir og Kristmundur Guð- mundsson. Á unglingsárum sínum stundaði Guðmundur algenga verka- mannavinnu og allt að stríðsbyrjun á síldveiðum að sumri til. Árið 1948 var hann ráðinn framkvæmdastjóri Þrótt- ar og gcpndi hann því starfi til 1967. Guðmundur átti sæti í stjórn Lands- sambands vörubifreiðastjóra og sem Alúðarþakkir sendi ég öllum þeim mörgu er glöddu mig á áttrœðisafmœli mínu 12. febrúar sl. með heimsóknum, gjöfum, skeytumo g hlý- hug. GUNNAR BJARNASON, FYRRVERANDI SKÓLASTJÓRI VÉLSKÓLANS, MERKJATEIGI 2, MOSFELLSSVEIT. BJ0RN A LEIRUM 0G PERSÓNUNJÓSNIR Sjónvarpið í gærkvöld var með skásta móti ef marka má að ég sát við það frá byrjun til enda. Það er svo langt síðan slíkt hefur gerzt að ég man ekki einu sinni hvenær það hefur verið. Athyglisverðast var að sjálfsögðu að sjá hvernig fárviðrið lék bifreiðaeigendur og fleiri í frétta- tímanum. Það var varla að maður tryði sínum eigin augum. Ég sem læt alla handbolta- og fót- boltaleiki fram hjá mér fara sat eins og spenntur aðdáandi við sjónvarpið í gær er sýndur var leikur íslendinga og Austur-Þjóðverja. Líklega var það vegna þess að ég vissi hvernig leikurinn fór. Mér til mikillar undr- unar þótti mér ekkert svo leiðinlegt að horfa á handboltann og hver veit nema ég verði fyrsta manneskja á völlinn er næsti leikur verður. Það tekur því varla að minnast á Óvænt endalok. Þó horfa megi á þann þátt, þá er hann orðinn svo slappur að engu tali tekur. Sjónvarpið ætti að íhuga skipti fljótlega eða áður en lesendasíður blaðanna fyllast af kvörtunum. Þá langar mig líka til að minnast á syrpu Jónasar Jónassonar í útvarpinu í gær. Einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að Jónas sé orðinn leiður á þættinum og með þessu áframhaldi verða áheyrendur jafn leiðir á honum. Af hverju getur þriðjudagssyrpa ekki verið jafn hress og hinar syrpurnar? Þáttur Magnúsar Bjarnfreðssonar um persónunjósnir var alveg ágætur. Það kom mér verulega á óvart að fólkið á götunni gat með engu móti stunið upp úr sér hvað persónu- njósnir eru. Vonandi er þetta ekki sama fólkið og lét sem hæst i sér heyra þegar manntalið fór fram. Þessir ábúðarmiklu herramenn sem mættu í sjónvarpssal voru líka alveg ágætir þó þeir rifust ekkert. En eins og fleirum þykir mér alltaf skemmti- legast þegar rifizt er í umræðuþátt- um. Þá var líka alveg sérstaklega skemmtilegt að sjá „Björn á Leirum” mættan á staðinn og hafði ég lúmskt gaman af þegar Magnús kallaði hann Björn. varaformaður síðastliðin 6 ár. Siðasta kjörtímabil átti hann sæti í sambands- stjórn ASÍ. Árið 1940 kvæntist Guðmundur Guðrúnu Sigurðardóttur ogáttu þau4börn. Ásmundur Jónsson trésmíðameistari sem lézt 29. janúar sl. fæddist 12. júlí 1893 á Kalastöðum í Hvalfirði. For- eldrar hans voru Jón Þorsteinsson og Sesselja Jónsdóttir. Árið 1919 hóf Ásmundur trésmíðanám hjá Guð- mundi Eiríkssyni og hlaut hann réttindi í húsasmíði árið 1923. Árið 1929 fékk hann einnig trésmíðameistararéttindi. Eftir það vann hann í áratugi sjálfstætt í Reykjavík við húsasmíði. Marin Elisabet Jónsdóttir, sem lézt 7.! febrúar sl. fæddist 17. febrúar 1897 að' Njálsstöðum í A-Húnavatnssýslu. For- eldrar hennar voru Guðný Pálsdóttir og Jón Sigurðsson. Ung fór María að vinna fyrir sér, fyrst sem húshjálp, en( siðar vann hún um 40 ára skeið hjái Garðari Gíslasyni við ullarþvott. Marín! var gift Bjarna G. Guðmundssyni ogi áttu þau 2 börn. Kristín Jóhannesdóttir frá Syðra- Hvarfi, sem lézt 8. febrúar sl. fæddist 26. apríl 1907 að Jarðbrúargerði í Svarfaðardal. Foreldrar hennar voru Oddný Þorkelsdóttir og Jóhannes Jónsson. Árið 1938 giftist Kristín Böðvari Tómassyni og áttu þau einn son. Þau bjuggu lengst af á Akureyri. Skúli Þorkelsson frá Smáradölum i Flóa, Framnesvegi 17 Reykjavík, Iézt að Hrafnistu 16. febrúar. Halldóra Einarsdóttir, Meðalholti 10, lézt að heimili sínu 16. febrúar. Reynir Snjólfsson lézt 17. febrúar í Borgarspítalanum. Guðlaug Brynjólfsdóttir, Granaskjóli 7, lézt á öldrunardeild Landspítalans 16 febrúar. Halldór Davíðsson fyrrum bóndi á Syðri-Steinsmýri, Meðallandi, lézt í Landspítalanum 12. febrúar. Hulda Egilsdóttir, Hverfisgötu 32B, sem lézt 12. febrúar á Landspítalanum verður jarðsett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. febrúar'kl. 10.30. Soffía Lára Thors verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 19. febrúar kl. 15. Sigurbjörn Elíasson, Reykjavíkurvegi 50 Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 19. febrúar kl. 14. Guðjón Helgason, sem lézt 11. febrúar, verður jarðsettur föstudaginn 20. febrúar kl. 15 frá Fossvogskirkju. Sveinn Kjarval, innanhússarkitekt verður jarðsettur frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 19. febrúarkl. 13.30. Margrét R. Halldórsdóttir, Þórsgötu 5, verður jarðsett í dag frá kirkju Óháða safnaðarins kl. 15. Kristófer Kristófersson, Leifsgötu 8, lézt í Hafnarbúðum laugardaginn 14. febrúarsl. Margrél Ketilsdóttir, Mávahlið45, lézt í Borgarspítalanum sunnudaginn 15. febrúar sl. Pálina Sigurðardóttir, Garðaflöt 1 Garðabæ, lézt i Borgarspítalanum 16. febrúar sl. Anna Sigríður Einarsdóttir, lézt 14. febrúar sl. að heimili sínu að Klepps- vegi 120. Lovisa Elifasdóttir, lézt á Hrafnistu 14. febrúarsl. Spilakvöld Óháði söfnuðurinn Félagsvist verður spiluð nk. fimmtudag kl. 20.30 i Kirkjubæ. Góð verðlaun. Kaffiveitingar. Takið með ykkurgesti. Funéir Bræðrafélag Laugarneskirkju Fundur verður i kvöld. miðvikudag. kl. 20.30. Ástráður Sigursteindórsson. skólastjóri stjórnar fundinum. Fundarefni: Þorvaldur viðförli og upphaf kristniboðs á Islandi. Kaffiveitingar. Allir karlmenn velkomnir. AA-samtökin í dag. miðvikudag. verða fundir á vcgum AA samtakanna sem hcr segir: Tjarnargata 5b kl. 12 lopinnl. 14. 18 og 21. Grensáskirkja kl. 21. Hallgrims kirkja kl. 21. Akranes. Suðurgata 102 (93-2540) kl. 21. Borgarnes Læknamiðstöðin kl. 21. Kcflavik Klappar stigur 7 (92-1800) kl. 21. Neskaupstaður Kaffistofa Netagerðarinnar kl. 21 og Fáskrúðsfjörður. Félags hcimili kl. 20.30. í hádeginu á morgun. fimmtudag. verða fundir scm hér segir: Tjarnargata 5 b kl. 14. Kvenfélag Kópavogs Fundur verður haldinn fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20.30 i Félagsheimilinu. Spiláð verður bingó. Mætið vel og stundvíslega. Takið með ykkur gcsti. Stiómmáíafundir Sjálfstæðiskvennafélagið Edda, Kópavogi Fundur verður haldinn miðvikudaginn 18. febrúar i Hamraborg 1.3. hæðkl. 20.30. Dagskrá: 1. Kosningá aðalfund K.S.K. 2. Davið Oddsson borgarfulltrúi ræðir stjórnmál. 3. Kaffiveitingar. Sjálfstæðiskvennafélag ísafjarðar heldur fund miðvikudaginn 18. febrúar nk. kl. 20.30 að Uppsölum. (uppi). Fundarefni: Fjölskyldan i frjálsu samfélagi. Almennar umræður. Kaffiveitingar. Allt sjálfstæðisfólk velkomið. Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis. Akureyri verður á starfs stofu Sjálfstæðisflokksins Kaupvangsstræti 4. miðvikudaginn 18. febr. kl. 20.30. Fundarefni: 1. Venjulegaðalfundarstörf. 2. Stjórnmálaviðhorfið. Halldór Blöndal. alþingis maður. GENGIÐ GENGISSKRÁNING NR. 33 - 17. FEBRÚAR 1981 Einingkl. 12.00 1 Bandarikjadollar 1 Sterlingspund 1 Kanadadollar 100 Danskar krónur 100 Norskar krónur 100 Sœnskar krónur 100 Finnsk mörk 100 Franskir frankar 100 Belg. frankar 100 Svissn. frankar 100 Gyllini 100 V-þýzk mörk 100 Lirur 100 Austurr. Sch. 100 Escudos 100 Pesetar 100 Yen 1 Sárstök dráttarráttindi Ferðamanna- gjaldeyrir Kaup Sala Sala 6,568 6,586 7,244 14,900 14,940 16,434 5,450 5,465 6,011 0,9763 0,9790 1,0769 1,2045 1,2078 1,3285 1,4042 1,4080 1,5488 1,5861 1,5904 1,7496 1,2967 1,3003 1,4303 0,1860 0,1865 0,2051 3,3005 3,3095 3,6404 2,7481 2,7556 3,0311 3,0005 3,0087 3,3008 0,00633 0,00634 0,00690 0,4240 0,4252 0,4677 0,1141 0,1144 0,1258 0,0748 0,0750 0,0825 0,03184 0,03193 0,03580 11,105 11,135 12,248 8,0287 8,0505 * Breyting frá siðustu skráningu. Símsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.