Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1981. Erlent Erlent Erlent Erlent J 'rnvk Stjáni blái kvik- myndaður Teiknimyndapersónan Stjáni blái fær ekki að vera í friði fyrir kvik- myndaframleiðendum frekar en Súperman, Batman, Köngullóarmað- urinn og hvað þeir heita nú allir sem drifnir hafa verið úr teiknimyndun- um yfir í kvikmyndirnar. Kostnaður við gerð kvikmyndar- innar um Stjána bláa, eða Popeye eins og hann heitir á enskunni, var um 20 milljónir dollara og fyrir þá upphæð má fá mikið spínat. En þeir fjármunir virðast ekki ætla að skila sér inn aftur því myndin þykir mis- heppnuð. Sjóarinn, sem varð allra manna sterkastur af að borða spínat, virðist ekki koma vel út í raunveru- legri kvikmynd. Sá sem leikur Stjána, Robin Williams, þurfti að taia með pípuna í munninum í myndinni, vöðvakúlan á framhandleggjunum var gerð úr sérstakri gervikvoðu. Stjáni blái mun, að sögn heimildar okkar, skaða mjög frama Robin Williams í kvikmyndum. Hann hefur áður leikið i vinsælum sjónvarps- myndaflokki, hlotið Grammy-verð- launin og átt metsöluplötu. Framleið- andanum, Robert Evans og leikstjór- anum, Robert Altman, er eindregið ráðið frá því að leggja aftur út í slik ævintýri sem kvikmyndin um Stjána bláa er. K Robin Williams i hlutverki Stjána bláa í hinni misheppnuðu kvikmynd. Er hún að stelast á fund elskhugans? Er urtga fólkið enn og aftur byrj- að á þessu, lœðast út um glugga til elskhugans og niður lakið? Nei, reyndar ekki. Og þú hefur örugglega látið blekkjast. Þetta er aðeins málverk á veggn- um og eins og sjá má, mjög raunverulegt. Það er á byggingu í Melbourne í Ástralíu. Nina Hagen komin 5 mánuði á leið Ætlarað fœðaí eyðimörk Pönkdrottningin Nina Hagen fer yfirleitt ekki í felur með neitt. í þætti i austurríska sjónvarpinu nýlega sýndi hún sjónvarpsáhorf- endum hvernig bezt sé fyrir konur að fullnægja sjálfum sér. Nina Hagen dvelst nú í Los Angeles þar sem hún tekur það rólega. Nina er kona ekki einsöm- ul, hún er komin fimm mánuði á leið. Pönkdrottningin er hug- myndarik í meira lagi og það nýj- asta er yfirlýsing hennar um að hún ætli að fæða barnið í eyði- mörkinni austan við Kaliforníu. Þegar fæðingin er yfirslaðin hyggst hún snúa sér að kvik- myndaframleiðslu af krafti. En hver er faðirinn? Ekkert svar. List íþágu jriðar Ekki vitum við hvaó sá heitirsem nerðiþetta listaverk en viðfengum það sentfrá al- þjóðlegum samtökum sem beita sér fyrir friði og afvopnun. Ætlazt er ti! þess að áhorfandinn noti ímyndunaraflið um leið og hann skoðar þessa myndaröð. En við látumfljóta með nokkur orð sem Stefan Zweig sagði: „Engir tala hœrra um friðinn en harðstjórar sem eru að undirhúa stríð en eru enn ekki reiðuhúnir til atlögu."

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.