Dagblaðið - 18.02.1981, Síða 2

Dagblaðið - 18.02.1981, Síða 2
2 Steinull- arverk- smiðja — reynslan erfyrir hendi í Hafnarfirði Marteinn Friðjónsson skrifar: Nú get ég ekki stillt mig lengur: Það er eins og blöðin hafi ekki skrif- að nóg um steinullarverksmiðju á síð- asta ári, ekki aldeiiis. Mbl. og Tíminn skrifuðu um fund Árnesinga 11. febrúar 1981; þar sem þeir vildu láta reisa slíka verksmiðju á Þorlákshöfn. Ja, ja, ja, ekki má minna vera, reynslulausir með enga þekkingu á framleiðslu steinullar. Þá vakna þess- ar spurningar hjá mér: DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981. Flugskýli á Keflavikurflugvelli. a) Hvar og hvernig ætla Árnesingar að fá til þess raforku og hve mikla? b) Er loforð fyrir raforku fyrir hendi, frá hverjum er það og hve miklu er lofað? c) Hvað er mikill kostnaðarmunur á steinullinni erlendis og hérlendis? í Hafnarfirði var starfandi steinull- arverksmiðja frá 1947—1972: Þá varð að leggja hana niður sem slíka en i staðinn var flutt inn í landið ein- angrunarplast i plötum. Ástæðan fyrir lokun steinullarverksmiðjunnar Steilullarverksmiðjan i Hafnarflrði. sem slikrar ku hafa verið rafmagns- skömmtun og hátt raforkuverð auk alls konar tafa af hendi stjórnvalda (verksmiðjan gekk í 3—4 mánuði á ári vegna raforkuskömmtunar). Heyrt hef ég því fleygt að útflutning- ur á steinul! kostaði helming af verði hér heima þannig að steinullin yrði dýrari úli vegna hás útflutningsverðs. Ef ætlun stjórnvalda er að styðja steinullarverksmiöju og útvega næga raforku til framleiðslunnar allt árið Matsala maddömu Framsóknar Siggi flugskrifar: Nú er Ól. Jóh. orðinn nokkurs konar matselja fyrir framsóknar- menn og er svo að sjá að í mötuneyt- inu séu alþýðubandalagsmenn, sér- stakiega ORG, sem er stytting á Ólafur Ragnar Grímsson. Ég hef allt- af vitað að Framsókn væri mikil bú- Ljósmynd Marteinn Friðjónsson. um kring ár eftir ár ættu þau að huga að Steinull h/f i Hafnarflrði en ekki úthluta leyfi til einhverra úti á lands- byggðinni sem enga reynslu né þekk- ingu hafa á þessu sviði. Ef stjórnvöld telja sig ekki geta aðstoðað Steinull h/f er eins gott að hafa enga steinull- arverksmiðju. Suður í Firði er reynsl- an og þekkingin fyrir hendi. Áfram með Steinull h/f. Mér datt það si svona í hug, ekki satt, lesandi? sældarkona en að hún færi í að stofna mötuneyti, það vissi ég ekki. Ól.Jóh. (matseljan) hefur eitthvað göróti á matseðli sínum i mötuneyt- inu, sem a.m.k. alþýðubandalags- mönnum flökrar eitthvað við þegar á borðið var komið. Matseljan er ákveðin og lætur ekki bilbug á sér finna og segir: „Þið (kommar) étið þetta allt eins og allt- annað” (leturbr. mín). Einhver sterkasti maður í íslenzkri pólitík er vafalaust Ól. Jóh. (sbr. skoðanakönnun). Það er hins vegar Ijóður á að hann er framsóknar- maður. Það sagði um daginn góður sjálf- stæðismaður á Akureyri, ,,að hann hefði fæðzt inn í Framsóknarflokk- inn og það gerði honum kleift að segja sig úr honum”. Þetta afsannar „teoriuna” einu sinni framsóknar- maður, alltaf framsóknarmaður. Hinir eiginlegu framsóknarmenn eru þeir menn sem fæddir eru inn I þann flokk og geta ekki með nokkru móti losað sig undan oki kenningar hans, ef um „kenningu” er að ræða. Það er ekki nokkur vafi á því, að forfeður mínir voru sumir hverjir sauðaþjófar, enda að norðan, úr Húnavatnssýslum. En ég þarf ekki nauðsynlega að vera sauðaþjófur. Hér bregður hins vegar svo við að þetta spakmæli stenzt ekki hvað viðvikur framsóknarmönnum. Einu sinni framsóknarmaður, allt- af framsóknarmaður. Ól. Jóh. er áreiðanlega einhver sá mesti stjórnmálamaður, sem við eigum, en það er, eins og áður segir, galli á gjöf njarðar, hann er framsóknarmaður, og sem slikur „passar” hann ekki í kramið. Það er hægt að segja sig úrFram- sóknarflokknum, eins og áður segir, og ég held að Ól. Jóh. eigi að gera það, hann á hvort eð er ekki þar heima. Þetta ráð vil ég og gefa verkfræðingnum, sem allt of fljótt komst i „pólitikina”, og nota gáfur sínar í þágu fólksins en ekki í þágu flokksins. Mérdatt þetta (svona)íhug. — .......................... < Sjónvarpsflokkurinn Landnemarnir þótti fara anzi vel af staó. En undir lokin var oröið nokkuð mikið um endurtekningar. Frábærir þættir um landnemana —áf ram á sömu braut Sigurbjörg Guðmundsdóttir skrifar: Hinum frábæru þáttum um land- nemana lauk á sunnudag. Rétt er að þakka sjónvarpinu fyrir þessa þætti og vonandi fylgja aðrir slíkir í kjölfarið. Þó var það nokkur ljóður á þáttunum, hve endurtekningar voru orðnar tíðar undir lokin. En hvað um það, áfram á þessari braut. Styðjum hand- boltalandsliðið —á skilið að stutt sé við bakið á því Guðmundur hringdi: Ég vil beina þeirri áskorun til opinberra aðila að þeir styðji við bakið á handboltalandsliði okkar íslenzka landsllðið hefur átt mjög góða leiki að undanförnu. Hér hefur Páll BJörgvlnsson snúið á austur- þýzku lelkmennina i landsleiknum sl. sunnudag. sem er að fara í erfiða og fjárfreka keppnisferð til Frakklands. Það má segja að handbolti sé þjóðaríþrótt okkar og eftir frábæra frammistöðu landsliðsins, nú siðast þegar það vinnur sterkasta landslið heims, Austur-Þjóðverja, 18—15, þá finnst mér það eiga skilið að vel sé stutt við bakið á þvi. Þessir strákar hafa lagt á sig ómælt erfiði og það eru líka gerðar miklar kröfur til þeirra, jaeir eru fulltrúar íslands á alþjóðlegu ntóti þar sem þeir eiga vissulega mögulelka á að verða þjóðinni til sóma. Sýnið strákunum að tekið sé eftir þvi sem þeir eru að gera, þá er ég viss um að þeir gera sitt bezta.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.