Dagblaðið - 18.02.1981, Síða 4
Verð á varahlutum í bíla virðist
vera vægast sagt misjafnt, fyrir nú
utan það að i suma bíla er nær alltaf j
allt til á meðan lengi þarf að bíða
eftir varahlutum í aðra. Þetta kom
fram í könnun sem Verðlagsstofnun
gerði hjá 19 bifreiðaumboðum
seinnihluta desembermánaðar. Kann-
að var hvað til var af varahlutum í 19
bíla af 48 hlutum og hvað þeir kost-
uðu. Könnunin er liður í stefnu ríkis-
stjórnarinnar að kanna verðlag og
kynningu á því oftar en var fyrir ára-
mótin.
Þegar skoðaðar eru niðurstöður
könnunar Verðlagsstofnunar kemur í
ljós að í Lada og Skoda bifreiðar
hafa allir hinir 48 hlutir verið til þeg-
ar könnunin fór fram að undanskild-
um hlífðarpönnum. Hið sama
BLÓMAHORNIÐ
Cápsicum
ánnum
Spánskur pipar
Plöntur af ættinni Cápsicum hafa
verið ræktaðar sem pottaplöntur allt
frá dögum inkanna í Suður-Amerí-
ku. Plöntur af ættinni hafa þekkzt í
Evrópu allt frá því á 18. öld og þekkt-
astur er spánskur pipar. Á þessari öld
hefur verið ræktað fram afbrigði semi
við þekkjum vel sem piparávöxt sem
er í hávegum hafður við matargerð.
Spánskur pipar er einær. Til eru
mörg afbrigði af honum með gulum,
rauðum löngum aldinum og sumar
plöntur eru með kúlulaga aldin. Það
svarar ekki kostnaði aö rækta upp
spánskan pipar sjálfur heldur kaupa
hann hjá blómasala og njóta lita-
skrúðsins meðan það endist.
Nauðsynlegt er að hafa spánskan
pipar á björtum stað til þess að
blöðin falli ekki af. Vökva verður
plöntuna reglulega og gæta þess að
moldin þorni aldrei. Vanalega
stendur spánskur pipar í tvo til þrjá
mánuði.
Hægt er að klippa greinarnar af og
1.
Þarf að standa
á björtum stað.
Vökva reglulega,
moldin má ekki
þorna.
Næringarupplausn
gefin regluiega.
Má ekki standa
á of heitum stað.
fjarlægja blöðin af stönglinum og
nota fræpokana til skrauts þurrkaða.
JSB/VG.
verður ekki sagt um aðra bila. Þar
vantar allt upp í 23 hluti (Trabant og
Ford Fiesta). Reyndar hafa fyrir-
svarsmenn Trabant-umboðsins bent
á að margt af þessum hlutum sé alls
ekki í Trabant. Einnig hefur verið
bent á að þó umboðin eigi ekki til
hlutina séu þeir oft til í ýmsum sér-
verzlunum og því auðvelt að fá þá.
Aftur kemur ekki inn í þennan sam-
anburð hvernig er að fá varahlutina
úti á landi sem oft á tiðum er vist ein-
staklega erfitt.
Það kemur á óvart að virðuleg
bílaumboð, eins og Toyota, eiga
ekki til 18 hluti í bilinn. Aftur eiga
umboð sem flytja inn miklu færri
bíla á ári mun meira í þá. Aðeins var
skoðuð ein tegund bíla frá hverju
umboði og ekki komið í öll umboðin
og getur það hugsanlega haft áhrif á
niðurstöðurnar. Annað sem kann að
hafa áhrif er tíminn sem könnunin er
gerð á. Um miðjan desember eru
samgöngur við landið auðvitað í lág-
marki og kann það að ráða nokkru.
Annað mál er síðan verðmunurinn
á því sem til er. Auðvitað er ekki um
jafnvandaða hluti að ræða en það
kann að skipta máli þegar keyptur er
bíll hvað varahlutirnir í hann kosta.
Sem dæmi má nefna að þegar stokk-
lok með hlíf (head) í Galant kostar
4200 krónur kostar sams konar lok i
Trabant 91 krónu. Því er hægt að fá
rúmlega 46 lok í Trabantinn fyrir það
sem eitt kostar i Galant. Annað
dæmi er að strokkloksþéttir (head-
pakkning) sem kostar 4 krónur í Tra-
bant kostar 196,10 í Saab 99. Því er
hægt að fá hvorki meira né minna en
49 þétta í Trabantinn fyrir einn í
Saabinn.
Þegar skoðuð er tafla um dýrustu
og ódýrustu hlutina kemur í ljós að
sömu nöfnin koma oft fyrir í sömu
dálkunum. Þannig virðist í fljótu
bragði dýrt að skipta um varahluti í
Malibu þar sem það er hagstætt í
Trabant. Hinu er ekki að leyna að ef
til vill þarf oftar að skipta um vara-
hlutina í Trabantinum en Malibu-
inum. Ég held líka að fæstir efist um
það að Malibuinn endist lengur enda
mun dýrari í innkaupi. Hvað menn
vilja eyða fé sínu í hlýtur þannig allt-
af að vera matsatriði. Á að kaupa
dýran bíl sem endist lengi og þarf
sjaldan að skipta um hluti í eða á að
kaupa ódýran bíl sem alltaf er að bila
en er reyndar ódýrt að kaupa vara-
hluti í? Þegar munurinn á verði vara-
hlutanna er eins geigvænlegur og hér
eru nefnd dæmi um er spurningin
ennþá flóknari.
Bækling með öllum niðurstöðum
rannsóknarinnar má fá hjá Verðlags-
stofnun.
-DS.
keyptur, hvafl varahlutir i hann
kosta. Séu þeir dýrir geta útgjöldinj
riðið fjárhag eigandans að fullu.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981.
Fyllt hjörtu
Lambahjörtu eru ódýr og góð og
víðast hvar ennþá til eftir haustslátr-
un. Uppskrift dagsins er fyllt ofnbök-
uð hjörtu.
4 lambahjörtu
3 tsk. matarolía
2 tsk. hveiti
600 rnl kjölsoö
2 saxaðir laukar
4 gulrætur i sneiðum
kryddvöndur
FYLLING:
1 fínsaxaður laukur
1 fínsöxuð seljurót
rifinn börkur af 1/2 appelsínu
2 saxaðir valhnetukjarnar
40 g rasp
1 tsk. bráðið smjör
1/2 þeytt egg
salt og pipar.
Þvoið hjörtun og þerrið. Blandið
öllu sem fara á í fyllinguna saman og
r " ~ ~
fyllið hjörtun með henni. Saumið
hjörtun saman með bómullargarni
eða lokið þeim með tannstönglum.
Hitið olíuna á pönnu og brúnið
hjörtun. Setjið þau síðan í eldfast
mót. Stráið hveitinu i feitina á pönn-
unni og sjóðið. Hrærið vel i á meðan.
Kryddið og hellið yfir hjörtun. Bætið
í gulrótunum, lauknum og krydd-
vendinum. Kryddvöndurinn getur
t.d. verið úr steinselju, lárviðarlaufi
og fleira heilu kryddi, eftir því hvað
þið eigið og teljið að fari vel með
hjörtum. Kryddvöndurinn er síðan
tekinn upp þegar hjörtun eru soðin.
Lok er sett yfir mótið og bakað í
meðalheitum ofni (180 gráður eða
svo) í klukkutíma. Skreytið ef þið
viljið með grænum kvisti.
Hjörtu kosta núna um 20 krónur
kílóið. Rétturinn kostar því allt að 35
krónum. Hann dugar vel handa fjór-
um og kostar þá innan við 9 krónur á
mann.
-DS.
UpplýsingaseðiU
til samanbuiiðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
Heimili
l
I
l
I
i
I
i Sími
i----------------------
I
I Fjöldi heimilisfólks.
| Kostnaður í janúarmánuði 1981.
i__________________________
i Matur og hreinlætisvörur kr._
i Annaó
m i iií i v
49 þéttar í Trabant
fyrir einn f Saab
DB á ne ytendamarkaði
Dóra
Stefansdóttir
Verð varahluta geysilega misjaf nt: