Dagblaðið - 18.02.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981.
II
Bátarnir fóru ekki varhluta af veðrinu.
Þessi sportbátur maraði 1 hálfu kafi f
gær við Grandann í vesturhöfninni i
Re.vkjavik.
Margar glerrúður urðu undan að láta
og var unnið við endurbætur i gær.
Þessi mynd var tekin af slíkri viðgerð
við Bústaðaveginn.
DB-mynd S.
Bolungarvík:
Þakið f ór
af f rysti-
húsinu
Þakið á frystihúsi Einars Guð-
finnssonar í Bolungarvik fór af í fár-
viðrinu í fyrrinótt og horfðu menn
upp í heiðan himin þegar að var
komið. Talið er að rúða hafi brotnað
í matstofu á efri hæð hússins og
þrýstingurinn af veðrinu síðan lyft
þakinu af húsinu.
Rafmagnslaust er enn í Bolungar-
vik og nágrenni, því sextán rafmagns-
staurar, sem flytja rafmagn frá
Mjólkárvirkjun, brotnuðu í Arnar-
firði. Þá urðu og talsverðar
skemmdir á Vesturlínu. Búizt er við
að rafmagnsskömmtun verði á veitu-
svæðinu í a.m.k. þrjá sólarhringa. í
Bolungarvik er ekkert varaafl —
dísilstöðin sem til er á staðnum, hefur
verið ógangfær síðan fyrir jól.
Varðskip kom til Bolungarvíkur í
gær til að sækja efni sem á að nota i
bráðabirgðaviðgerð á línunni i
Arnarfirði.
Engin slys urðu á fólki í Bolungar-
vík í óðveðrinu.
-ÓV/KF, Bolungarvík.
Á strandstað á Hólsárf jöru:
Tveir menn hætt komnir
þegar verið var að draga
einn skipsmarina í íand
—vb Heimaey komin upp f fjöru og virðist skipiioskemmt
„Það skall hurð nærri hælum þegar
við vorum að draga fjórða eða fimmta
manninn í land. Þegar skipsmaðurinn
í björgunarstólnum var lagður af stað til
lands hljóp einn okkar á móti honum
niður fjöruna. Skipti þá engum togum
að alda reið undir bátinn svo hann
lagðist á hliðina. Við það slaknaði
línan og fóru mennirnir tveir á bólakaf
i sjóinn, en sem betur fer komu þeir
heilir á húfi upp aftur,” sagði Sig-
hvatur Lárusson félagi í Flug-
björgunarsveitinni á Hellu. Félagar úr
þeirri sveit ásamt félögum úr Dag-
renn'ingu, björgunarsveit Slysavarna-
félagsins á Hvolsvelli fóru til bjargar á
strandstað við Hólsárfjöru í nótt.
Sveitirnar voru kallaðar út í kring
um miðnættið, en þá höfðu sézt
neyðarblys frá bæjunum Disukoti og
Hákoti í Þykkvabæ, og héldu þær þeg-
ar á staðinn undir stjórn þeirra Helga
Ingvarssonar, formanns slysavarna-
sveitarinnar á Hvolsvelli og Friðriks
Magnússonar i Þykkvabæ, sem er
sveitarforingi Flugbjörgunarsveitarinn-
ar á Hellu.
Slysavarnasveitin var með
björgunarútbúnað meðferois. Eflir að
skipverjar á Heimaey höfðu skotið linu
i land var björgunarstól komið út i
skipið og skipverjarnir átta dregnir i
land.
Þegar björgunarsveitirnar komu á
strandstaðinn var hægt að ganga út að
sk ipinu.
Eftir að skipsmenn voru komnir á
land var strax hafizt handa við að
leita að skipsmönnunum tveimur, sem
tekið hafði fyrir borð. Var öllum
tiltækum bílum raðað saman og þeim
síðan ekið samhliða í fjöruborðinu og
lýst út í brimgarðinn með sterkum ljós-
um, en án árangurs.
í dag var síðan leitað á fjörum að
mönnunum tveimur.
Undir kvöld í gærkvöldi var Heima-
ey komin langt upp í fjöru og virtist
rkipið óskemmt. -JR.
Heimaey VE—1 á strandstaó á HólsárQöru I gær cftir að björgunarsveitarmenn höfðu náð skipverjunum átla i land a
björgunarstól. DB-myndir: Ólafur Stulzenwald.