Dagblaðið - 18.02.1981, Síða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981.
I
Iþróttir
Iþróttir
Bþróttir
Bþróttir
Keppandi í ynysla flokki drengja fcr niður brekkuna með tilþrifum. DB-mynd GSv.
Everton sigraði Dýr-
lingana í f ramlengingu
— og leikur við Man. City á heimavelli í 6. umf erð. Ipswich
hefur náð tveggja stiga forystu í 1. deild
Everton er komið I sjöttu umferð
ensku bikarkeppninnar. Lagði enn eitt
stórveldið að velli i gærkvöld, South-
ampton, á Goodison Park, 1—0 eftir
framlengingu. Þar með hefur Liver-
pool-liðið slegið Arsenal, Liverpool og
Southampton út úr bikarkeppninni.
Mætir öðru Lancashire-liði, Man.
City, f sjöttu umferð á heimavelli.
Leikur Everton og Southampton í
gær var slakur. Alltof mikil tauga-
spenna, lítil knattspyrna. Mikið um
brot en Everton var betra liðið lengst-
um og verðskuldaði sigur. Eina mark
leiksins skoraði Eamon O’Keefeí fram-
lengingu — á 103. mín. Hann var
keyptur frá smáliðinu Mossley Park
fyrir smápening, 25 þúsund sterlings-
pund í fyrra.
„Ég hef séð betri leiki en þennan,”
sagði Dennis Law, sem var meðal
frétlamanna BBC er lýstu leiknum. En
spenna var gífurleg meðal 49.192
Febrúarmót á Akureyri:
Þar skein gleðin
úr hverju andliti
Febrúarmót í svigi var háð í Hlíðar-
fjalli sl. laugardag í fegursta veðri.
Keppl í nokkrum aldursflokkum
stúlkna og drengja. Áhuginn skein úr
hverju andliti og það fór ekki milli
mála að þar var margt efnilegl skiða-
fólk á ferð.
Urslit urðu þessi:
Sveitalið
vekurathygli
Blaklið sem að mestu er skipað leik-
mönnum úr Fnjóskadal og Ljósavatns-
hreppi hefur vakið nokkra athygli upp
á siðkastið fyrir góða frammistöðu.
Liðið heitir Bjarmi og tekur í fyrsta
sinn í ár þátt í deildakeppni Blaksam-
bandsins.
Bjarmi gerði sér litið fyrir og vann
UMSE, efsla liðið í Norðausturlands-
riðli 2. deildar, með þremur hrinum
gegn tveim um síðustu helgi. Helgina
áður hafði þetta óþekkta hlaklið slegið
ÍMA út úrbikarkeppninni. -KMU
7 ára fl. stúlkur
1. Harpa Hauksdóttir 86.82
2. Sisý Malmquist 112.86
3. Helga Malmquist 115.75
7 ára fl. drengir:
1. Gunnlaugur Magnússon 82.87
2. Gunnar Ellertsson 90.95
3. Stefán Þ. Jónsson 91.12
8 ára fl. stúlkur:
1. María Magnúsdóttir 84.71
2. Mundina Kristinsd. 100.81
3. HarpaÖrlygsdóttir 101.37
8 ára fl. drengir
1. Sævar Guðmundsson 82.36
2. Magnús Karlsson 89.09
3. Andri M. Þórarinsson 90.62
9 ára stúlkur
1. Ása S. Þrastard. 70.71
2. Sigríður Þ. Harðard. 70.82
3. Rakel Reynisdóttir 73.29
9 ára drengir:
1. Sverrir Ragnarsson 64.12
2. Vilhelm Þorsteinsson 67.66
3. Sigurbjörn Þorgeirsson 68.84
10 ára stúlkur:
1. Sólveig Gísladóttir
2. Þorgerður Magnúsdóttir
3. Jórunn Jóhannsdóttir
10 ára drengir:
1. Jón Ingvi Árnason
2. Kristinn Svanbergs
3. Jón Harðarson
11—12 ára stúlkur:
1. Gréta Björnsdóttir
2. Kristín Hilmarsdóttir
3. Arna ívarsdóttir
11—12áradrengir:
1. Hilmir Valsson
2. Gunnar Reynisson
3. Aðalsteinn Árnason
71.20
72.80
89.45
64.15
67.96
68.17
76.97
80.03
81.41
72.62
76.81
77.98
Næsta laugardag verður fyrsta
göngumótið, sem skíðaráð Akureyrar
gengst fyrir í vetur. Keppt i sex flokk-
um karla og fimm flokkum kvenna. Þá
er rétt að vekja athygli á því, að næstu
Andrésar andar leikár fara fram á
Akureyri í apríl. Þar verður keppt í
gönguogstökki 12áraogyngri.
-GSv.
áhorfenda. Lokamínútur leiksins hætti
Southampton á allt til að reyna að
jafna. Bakvörðurinn júgóslavneski,
Golac, var tekinn út af eftir marka-
skiptin í framlengingunni og sóknar-
maðurinn Trevor Hebbars settur inn á.
Það heppnaðist ekki — Dýrlingunum
tókst ekki að skora í öðrum leiknum í
röð gegn Everton eftir að hafa hlaðið
inn mörkum í leikjunum á undan.
Everton var nær því að bæta við
markatölu sína en Southampton að
jafna.
Stjóri Southampton, Laurie
McMenemy, kom mjög á óvart fyrir
leikinn, þegar hann setti Steve Moran
út úr liði sínu, markahæsta leikmann
liðsins. Sennilega hafa það verið mikil
mistök hjá stjóranum. Liðin voru ann-
ars þannig skipuð. — Everton:
McDonagh, Gidman, Ratcliffe,
Wright, Lyons, McMahon, Hartford,
Ross, O’Keefe, Varadi og Eastoe.
Southampton: Wells, Golac (Hebbart),
Waldron, Nicholl, Watson, Holmes,
Williams, Baker, Keegan, George og
Channon.
Ipswich vann
Middlesbro
Nokkrir leikir voru háðir í deilda-
keppninni í gær. Úrslit:
1. deild
Ipswich — Middlesbro 1—0
C. Palace — Coventry 0—3
Man. Utd. — Tottenham 0—0
2. deild
Oldham — Wrexham 1—3
3. deild
Burnley — Charlton 0— 1
Ipswich hafði mikla yfirburði gegn
Middlesbrough á Portman Road en
gekk illa að nýta yfirburði sína í mörk.
Paul Mariner ekki með vegna meiðsla.
Eina mark leiksins skoraði Alan Brazil
með skalla á 42. mín. Knötturinn fór af
bakverðinum Nattrass í mark Middles-
brough. Jim Platt átti frábæran leik í
marki Boro.
Coventry lék sér að Crystal Palace i
Lundúnum. Strax á (jórðu mín.
skoraði Gary Bannister. Síðan Tommy
English á 30. mín. og aftur í síðari hálf-
leik. Áhorfendur á Selhurst Park píptu
á sina menn. Fallið i 2. deild að vera
öruggt. Liðið var án þriggja sterkra
leikmanna í gær, Cannon, Sealey og
Nichollas, sem eru í leikbanni.
Man. Utd. gerði sitt 16. jafntefli á
leiktímabilinu að viðstöddum rúmlega
39 þúsund áhorfendum á Old Trafford.
Leikurinn við Tottenham heldur
slakur. United án Joe Jordan, Gordon
McQueen og Mike Thomas, sem eru
meiddir, en i þeirra stað léku Sammy
Mcllroy, Jovanovic og Ray Wilkins.
Bob Paisley, stjóri Liverpool, hefur
gefið upp alla von að Iið hans verji
Fimleikameistaramótið um helgina:
Armenningurinn vann
í fjórum greinum af 5
Ármenningurinn Davíð Ingason var
mjög sigursæll á meistaramótinu i fim-
leikum, 17 ára og eldri, sem haldið var i
íþróttahúsi Kennaraháskóla íslands sl.
sunnudag. Sigraði i fjórum greinum af
fimm í karlaflokki. í kvennaflokki
voru þrjár stúlkur mjög jafnar að getu.
Úrslit urðu annars þessi:
KARLAR:
Gólf:
1. Davíð Ingason Á 8.00
2. Kristmundur Sigurðsson Á 7.80
3-4. Ingólfur Stefánsson Á 7.70
3-4. Þór Thorarensen Á 7.70
Bogahestur:
1. Davíð Ingason Á 6.90
2. Atli Thorarensen Á 6.20 Svifrá:
3. Kristmundur Sigurðsson Á 5.40 1. Davíð Ingason Á 7.70
2. IngólfurStefánsson Á 5.80
Hringir: 3. Kristmundur Sigurðsson Á 5.00
1. Davíð lngason Á 8.20
2. Atli Thorarensen Á 6.60 Samtals:
3. Haraldur Pálsson ÍBA 6.50 1. Davið Ingason Á 45.40
2. Kristmundur Sigurðsson Á 38.0
Stökk: 3. IngólfurStefánssonÁ 36.90
1. Kristmundur Sigurðsson Á 7.70
2. Davíð Ingason Á 7.60
3. Atli Thorarensen Á 7.40 KONUR:
Stökk:
1. Vilborg Nielsen Gerplu 6.80
1. Davíð Ingason Á 7.00 2. Rannveig Guðmundsd. Björk 6.60
2. Haraldur Pálsson ÍBA 6.80 3. Móna Steinsdóttir Fylki 5.95
3-4. Ingólfur Stefánsson Á 6.30 Tvíslá:
3-4. Kristmundur Sigurðsson Á 6.30 1. Vilborg Nielsen Gerplu 8.00
2. Björk Ólafsdóttir Gerplu 7.95
3. Rannveig Guðmundsd. Björk 7.10
Jafnvægisslá:
1. Björk Ólafsdóttir Gerplu 6.95
2. Rannveig Guðmundsd. Björk 6.85
3. Vilborg Nielsen Gerpla 6.65
Gólf:
1. Björk Ólafsdóttir Gerplu 8.20
2. Rannveig Guðmundsd. Björk 8.15
3. Vilborg Nielsen Gerplu 7.40
Samtals:
1. Vilborg Nielsen Gerplu 28.85
2. Björk Ólafsdóttir Gerplu 28.75
3. Rannveig Guðmd. Björk , 28.70
meistaratitilinn enska. í gær sagði
hann: „Keppnin um meistaratitilinn
verður einvígi milli Ipswich og Aston
Villa. önnur lið koma ekki til greina,”
og það er ólíkt Paisley að gefast upp
svo fljótt. í 3. deild komst Lundúna-
liðið Charlton aftur i efsta sætið eftir
sigur á Burnley.
- hsím.
Jaf nt hjá
Akureyrar-
félögunum
Akureyrarmót í innanhúss-knatt-
spyrnu var háð um síðustu helgi. Keppt
var í öllum flokkum með A og B liðum
í yngri flokkunum. Mótið var skemmti-
legt og félögin, KA og Þór, skildu jöfn
að stigum. Hlutu 10 stig hvort. Knatt-
spyrnuráð Akureyrar sá um fram-
kvæmd mótsins.
í meistaraflokki sigraði KA Þór með
15—5.1 1. flokki sigraði Þór hins vegar
10—3. í 2. flokki vann KA 5—3. í 3.
flokki A vann Þór 2—0 en í B vann KA
4—3. Lið Þórs sigraði Í4. flokki. A-lið-
ið 4—1 en B-liðið 5—2. í 5. flokki A
vann KA 3—2 en gaf hins vegar leik B-
liðanna. 1 ,,old-boys” flokki vann KA
9—6.
GSv.
Frábærir
mílutímar
— og heimsmetið Í60
jördum jafnað
Bandaríkjamaðurinn Stanley Floyd,
sem er 19 ára og var fremsti sprett-
hlaupari heims i fyrra, jafnaði heims-
met sitt í 60 jarda hlaupi á móti i Ingle-
wood í Kaliforníu um helgina. Hljóp á
6,04 sek. Hann náði þeim tíma bæði í
úrslitum og í riðlakeppni á innanhúss-
móti í Dallas fyrir hálfum mánuði.
Annar á mótinu í Inglewood var
Lamont King á 6,06 sek. Það er þriðji
bezti heimstiminn á vegalengdinni.
Houston McTear, einnig USA, átti
eldra heimsmetið 6,05 sek. Floyd hefði
örugglega getað bætt heimsmetið um
helgina. En þegar hann var öruggur um
sigur lyfti hann fingrum til áhorfcnda
og tapaði dýrmætu sekúndubroti að
minnsta kosti.
Mesta athygli á mótinu vakti mílu-
hlaupið. írinn Ray Flynn sigraði á frá-
bærum tíma, 3:54,9 mín. Allir sjö
hlaupararnir i úrslitahlaupinu hlupu
innan við fjórar mínútur. Johnny
Walker, Nýja-Sjálandi, varð annar á
3:55,2 mín. Tom Byers, USA, þriðji á
3:56,0 min. og Thomas Wessinghage,
V-Þýzkalandi, fjórði á 3:56,3 mín.
Síðan kom nýi vestur-þýzki stórhlaup-
arinn Harald Hudak á 3:57,5 min. og
Wilson Waigwa, Kenýa, hljóp á 3:58,3
mín.
Stefnir
í draumaúr-
slitaleik
í fyrradag var dregið í undanúrslit-
um bikarkeppni KKÍ og risarnir, Valur
og Njarðvík, fengu bæði léttari mót-
herjana sem eftir voru. Valsmenn verða
þó að mæta Keflvíkingum syðra þann
26. þessa mánaðar en Njarðvíkingar fá
Stúdenta í heimsókn þann 1. marz. Ef
að likum lætur verða það Valur og
Njarðvík sem leika til úrslita og fari svo
verður um sannkallaðan draumaúr-
slitaleik að ræða. Hins vegar er ekki
loku fyrir það skotið að Keflavík eða ÍS
nái að vinna leiki sina, en líkurnar eru
þó verulega gegn þeim.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981.
15
iþróttir________________ "íþróttir íþróttir gþróttir íþróttir |
íslandsmeistarar Njarðvikur 1981. Aftari röð frá vinstri: Árni Lárusson, Júlíus Valgeirsson, Jón Viðar Matthiasson, Guðsteinn Ingimarsson, Jónas Jóhannesson, Valur Ingimundarson, Þorsteinn Bjarnason. Fremri röð frá vinstri:
aðstoðarliðsstjóri, þá Brynjar Sigmundsson, Danny Shouse. Gunnar Þorvarðarson, fvrirliði liðsins og þá lngi Gunnarsson, liðsstjóri. DB-mvnd S
, i i jl. 1
Æmt AmTM K' 1
’vV' ’ 4 Jr %'v' ÆL #J1
JMf T á W K H j&í lá vip
í L
A I ■ i W /'
t í i
w „ ... ' > * í • M ’ I í Ú . 'MM JSSB
Njarövíkingar geta brosað breitt
þrátt fyrir stórskell f gærkvöld
— Valur sigraði Njarðvík 92-74en tapið skiptir engu máli — íslandsmeistaratitillinn í öruggri höf n
en lítið í þeim síðari en kom vel út.
Torfi traustur að vanda.
Stigin. Valur: Ríkharður Hrafnkels-
son 24, Pétur Guðmundsson 18, Brad
Miley 16, Kristján Ágústsson 12, Jón
Steingrimsson 10, Jóhannes Magnús-
son 6, Torfi Magnússon 6. Njarðvík:
Gunnar Þorvarðarson 18, Danny
Shouse 18, Árni Lárusson 10, Jónas
Jóhannesson 8, Guðsteinn Ingimarsson
7, Þorsteinn Bjarnason 6, Valur Ingi-
mundarson 4, Július Valgeirsson 3.
Dómarar voru Sigurður Valur Hall-
dórsson og Jón Otti Ólafsson og
komustvel frámjögerfiðum leik.
-SSv.
JAFNTEFU í T0PP-
UPPGJÖRI3. DEILDAR
Fyrir ókunnugan hefði verið erfitt að
segja til um hvort Valur eða Njarðvík
væri nýbakaður meistari í körfuknatt-
leik. Leikur Valsmanna var slíkur í
gærkvöld að ekkert islenzkt lið hefði
megnað að ráða við þá enda fór svo að
Njarðvíkingar fengu skell, 74—92.
Upphafsminútur ielksins voru Suður-
nesjalrðinu dýrkeyptar. Á meðan
UMFN var hreinlega ekki með í leikn-
um sölluðu Valsmenn á þá körfum og
áður en varði var staðan orðin 24—8
Vai í vil og fyrri hálfleikur tæplega
hálfnaður.
Það sem eftir lifði hálfleiksins náðu
Njarðvíkingar að halda í við Valsmenn-
ina en ekki nema rétt svo. Hálfleikstöl-
ur voru 44—30 Val í vil. Strax í upphafi
s.h. virtist svo sem Njarðvík myndi
e.t.v. ná sér á strik. Þeir skoruðu tvær
fyrstu körfurnar og munurinn var
kominn í aðeins 10 stig. En Valsmenn
voru ekki á þeim buxunum að gefa eitt
eða neitt. Þeir tóku heiftarkipp og
komust í 64—46 og síðar i 76—54, sem
var mesti munur í leiknum. Eftirleikur-
inn varð ekki neitt vandamál og þótt
Njarðvíkingar löguðu stöðuna aðeins
var yfirburðasigur Vals aldrei í hættu.
Það sem skipti e.t.v. sköpum fyrir
Njarðvtkinga í þessum leik var að
Danny Shouse hitti afar illa framan af.
Hvert skotið frá honum á fætur öðru
geigaði — oft svo illa að knötturinn
hitti ekki einu sinni körfuhringinn.
Vægast sagt einstæð sjón. Á meðan
léku Valsmenn við hvern sinn fingur.
Pétur, Brad, Torfi, Kristján og Rík-
harður byrjuðu inná og Njarðvíkingar'
réðu bókstaflega ekkert við þá. Rík-
harður og Kristján eldsnöggir i hraða-
upphlaupunum og hinir þrír eins og
klettar í vörninni. Og Valsmenn eru
ekki á fiæðiskeri staddir. Jón Stein-
grímsson og Jóhannes Magnússon léku
báðir talsvert með og hittu vel. Jón
geysilega sterkur leikmaður, sem lítið
ber þó alla jafna á. Jóhannes að vanda
hittinn af kantinum.
Staðan í úr-
valsdeild
Staðan í úrvalsdeildinni eftir hinn
óvænta stórsigur Vals á Njarðvík í gær-
kvöld er nú þessi:
Valur — Njarðvík 92—74
19 16 3 1863-1509 32
19 14 5 1682-1484 28
19 10 9 1519-1526 20
18 9 9 1489-1428 18
18 6 12 1441-1581 12
19 1 18 1314-1770 2
Síðasti leikur 19. umferðarínnar verður á
fimmtudag og þá mætast ÍS og KR í Kenn-
araháskólanum kl. 20. (Stundvíslega eins
og þeir Stúdentar segja).
Aðeins Gunnar Þorvarðarson virtist
með sjálfum sér allan leiktímann, af
leikmönnum Njarðvíkinga. Það er víst
ekki ofsagt að hann hafi sjaldan ef
nokkru sinni leikið betur en einmitt í
vetur. Þá átti Árni Lárusson stórgóðan
leik en Guðsteinn vaknaði t.d. ekki til
lífsins fyrr en rétt í lokin. Undarlegt
hversu hann hefur nýtzt illa í vetur jafn
stórkostlegur leikmaður og hann er.
Tvímælalaust einn þriggja beztu körfu-
knattleiksmanna landsins.
Þó svo Njarðvíkingar hafi fengið
þennan skell í gær geta þeir brosað út í
bæði munnvikin og það breitt meira að
segja. Lið þeirra hefur sýnt bezta
körfuknattleikinn í allan vetur og ekk-
ert annað lið á islandsmeistaratitilinn
skilið að ekki sé nú tekið tillit til harm-
sögu liðsins undanfarin keppnistíma-
bil. Liðið tryggði sér íslandsmeistara-
titilinn með rótbursti gegn ÍS á föstu-
dag og síðan var KR-ingum rutt úr vegi
í 8-liða úrslitum bikarsins. Undirrit-
aður hefur enn ekki haft tækifæri til að
óska Njarðvikingum til hamingju með
titilinn en gerir það hér með. Þeir beztu
skulu vinna.
Ef við víkjum aftur að leiknum í gær
voru þeir Ríkharður, Miley og Pétur
óstöðvandi allan leikinn og framfarir
Ríkharðs i vetur eru með ólíkindum.
Pétur var geysilega sterkur og Miley
sömuleiðis, þótt ekki berist hann á.
Kristján lék mikið með í fyrri hálfleik
Tvcir leikir voru háðir i 3. deildinni i
handknattleikumhelginaogurðu úrslit þau
að Þór, Vestmannaeyjum, og Stjarnan
skildu jöfn, 20—20, og Keflavík vann
Reyni, Sandgerði, 22—12.
Þór og Stjarnan gerðu jafntefli í köflótt-
um leik. Þórarar komust strax í 4—0 og
leiddu 9—7 í hálfleik, en fljótlega í síðari
hálfleiknum náði Stjarnan að jafna og
síðar að komast yfir. Mestur varð
munurinn 3 mörk, 19—16, og þegar innan
við mínúta var til leiksloka leiddi Stjarnan,
20—18. Þórarar neituðu að gefast upp og
Ásmundur Friðriksson skoraði 19—20
þegar 40 sek. voru til leiksloka. Þegar
aðeins 20 sek. voru eftir af leiktímanum
missti Stjarnan knöttinn og á lokasek-
úndunum jafnaði Andrés Bridde metin við
geysilegan fögnuð heimamanna. Andrés
var markahæstur hjá Þór með 5 mörk, en
Eyjólfur prestssonur Bragason var hæstur
Stjörnumanna með 7 mörk.
Reynismenn eru allir að koma til eins og
við sögðum frá í síðustu viku. Þeir náðu að
standa í Keflvíkingum allan fyrri hálfleik-
inn og í hálfleik munaði aðeins einu marki,
7—6 fyrir Keflavík. í seinni hálfleiknum
brustu hins vegar öll bönd og Keflavík
vann stórsigur.
Staðan i deildinni er nú þessi:
Þór, Vm. 11 8 1 2 257—203 17
Stjarnan 8 7 1 0 213—159 15
Grótta 9 7 1 1 223—191 15
Akranes 10 5 1 4 197—179 11
Keflavik 8 3 0 5 162—154 6
Óðinn 10 1 0 9 177—187 2
Reynir 10 0 0 10 160—316 0
- SSv.
Njarövík
Valur
ÍR
KR
ÍS
Ármann