Dagblaðið - 18.02.1981, Qupperneq 22
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ ER SMAAUGLYSINGABLAÐIÐ
SÍMI 27022
ÞVERHOLT111
g)
I
Til sölu
i
Til sölu Scania Vabis
140 hestöfl. Uppl. í sima 92-7558.
Stór rúmdýna til sölu.
Uppl. i síma 44602 og 43428.
Til sölu Singer 631,
saumavél. Uppl. i sima 36022 eftir kl. 7.
Til sölu I0 gira
Roys Union reiðhjól. einnig Canon AT
l Ijósmyndavél ásamt Speedligln 155
flassi. Á santa stað til sölu Revox
hátalarar. Uppl. í sínta 32434 eftir kl. 18.
Svefnsófasett,
vandað og vel með farið. til sölu, ásanu
sófaborði og fataskáp. Verð kr. 2000.
Uppl. ísíma 34183.
Bilasala.
Til sölu er góð bilasala i fullum rekstri.
Góð velta. mikil laun. Mjög gott læki
færi fyrir duglegan ntann. Tveir menn
gætu aukið fjölbreytni og umsvif. Þeii
sem áhuga hafa sendi tilboð til augld
DB nterkt „Bílasala" fyrir 22. febrúar.
Athyglisvert.
Framlciðum og skerunt eflir máli I.
flokks svefndýnur i öllurn stærðunt og
gerðum. meðan beðið er, m.a. hjóna .
sjúkra-. barna- og gestadýnur. Sjáunt um
sauntaskap ef óskað er. Áklæði á
staðnum. Erunt i alfaraleið. i Skeifunm
8. Páll Jóhann Þorleifsson. Pöntunar.
sinii 25418.
interRent
car re.ital
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S . 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubilum erlendis
rfisi
FILMUR OG VELAR S.F.
SKÓLAVÖROUSTÍG 41 - SÍMI2023S.
skrautvörum
fyrir ferminguna
Hringiö í dag og við
póstsendum strax
Sálmabók m/nafnuylliiiKU.....70,30 kr.
Vasaklútar f sálmabók..frá 10,00 kr.
Hvítar slcdur................29,00 kr.
Hvftir crepehanskar........33,00 kr.
50 stk. servlettur með nafni og ferm-
inftardeRÍ áprentað........81,00 kr.
Stórt ferminftarkerti m/mynd.26,00 kr.
Kertastjaki f. f. kerti..frá 17,00 kr.
Kertahrinftur úr blómum......40,00 kr.
Kökustyttur............frá 16,25 kr.
Blómahárkambar.........frá 14,10 kr.
Fermingarkort......frá 2,45 til 11,60 kr.
Biblia,skinnband, I8xl3cm. 185,25kr.
KIRKJUFELL
Klapparstíg 27
sími 91 21090
Ódýrar vandaóar eldhúsinnrétlingar
og klæðaskápar i úrvali til sölu. Innbu
hf„ Tangarhöfða 2. simi 86590.
Tjaldvagn til sölu.
Nýlegur, litið notaður Combi C’antp til
sölu. Uppl. i síma 52877 eftir kl. 17.
Herra tervlenebuxur
á 150.00 kr. dömubuxur úr flanneli og
terylene frá I40 kr. Saumastofan
Barntahlið 34. sími 14616.
1
Óskast keypt
i
Vantar isskáp
minni en 55 cm breiðan. Möguleiki á að
skipta á Kelvinator ísskáp. 100x57 cnt.
Uppl. ísíma 73105eftirkl. 17.
Grímubúningar
Gríntubúningar
til leigu á börn og fullorðna. Grintu
búningaleigan Valnaseli I. Brciðholli
sími 73732.
Rýmingarsala.
Massíf borðstofuhúsgögn, svefnher
bergissett, klæðaskápar og skrifborð
bókaskápar. lampar, málverk, speglar
stakir stólar og borð, gjafavörur
Kaupum og tökum i umboðssölu. Antik
munir, Laufásvegi 6. sími 20290.
I
Verzlun
8
Ódýr feróaútvörp,
bilaútvörp og segulbönd. bílahátalarar
og loftnetsstengur, stereohcyrnartól og
hey.'naihiifai. ódýrar kassettutöskur og
hylki, hreinsikassettur fyrir kassettutæki
TDK. Maxell og Ampex kassettur.
hljómplötur. músíkkasset'tur og 8,rása
spólur, islenzkar og erlendar. Mikið á
gömlu verði. Póstsendum. F. Björnsson.
radíóverzlun. Bergþórugötu 2. simi
23889.
Stjörnu-málning, Stjörnu-hraun.
Úrvalsmálning, inni og úti. í öllum
tizkulitum. á verksmiðjuverði fyrir alla.
Einnig acrylbundin útiniálning með frá-
bært- veðrunarþol. Ókeypis ráðgjöf og
litarkort, einnig sérlagaðir litir. án auka-
kostnaðar. Góð þjónusta. Opið alla
virka daga, einnig laugardaga. Næg bíla-
stæði. Sendum i póstkröfu út á land.
Reynið viðskiptin. Verzlið þar sem
varan er góð og veðrið hagstætt.
Stjörnu-litir sf„ Höfðatúni 4, sími
23480. Reykiavík.
Til sölu nýlegt
nvtízkusófasett með sex stólum. Uppl.
sima 85315 eftir kl. 18.
4ra sæta svefnsófi
og tveir stólar til sölu. Verðtilboð. Uppl.
ísíma 37276.
Húsgagnaverzlun
Þorstcins Sigurðssonar,
Grettisgötu 13, sími 14099.
Ódýr sófasett, stakir stólar. 2ja manna
svefnsófar, svefnstólar, stækkanlegir
Ibekkir og svefnbekkir með
útdregnum skúffum og púðum, komm-
óður, margar stærðir, skrifborð, sófa-
borð og bókahiliur, stereoskápar og
veggsett, rennibrautir og vandaðir
hvildarstólar með leðri. Forstofuskápur
með spegli, veggsamstæður og margt
fleira. Klæðum húsgögn og gerum við.
Hagstæðir greiðsluskilmálar. Sendum í
póstkröfu um land allt. Opið til hádegis á
laugardögum.
I
Fyrir ungbörn
Óska eftir
vel með förnu burðarrúmi. Uppl. i sima
73271.
Ttlkynningar
Nýtt skip í íslenzka flotann,
m/v Borre fœr nafnið m/s
Skaftá
Föstudaginn 13. febrúar sl. bættist nýtt skip i islenzka
verzlunarskipaflotann en þá var fjölhæfniskipinu m/v
Borre gefiö nafnið m/s Skaftá og islenzki fáninn
dreginn aö hún á skipinu.
Er þetta seinna af þeim tveimur fjölhæfniskipuni
sem Hafskip hf. hefur nú fest kaup á frá Fred Olsen.
línunni í Noregi cn fyrra skipiö. m/s Selá (áöur
Bommal. var formlega yfirtekiö í ágúst sl. Kaupverð
skipanna var samtals 4.700.000 Bandaríkjadalir.
Skipin. sem eru 2828 tonn (dauövikt). eru búin opn
anlegum skut, tveimur stórum vörulúgum á hlið og
færanlegum millidekkjum. Möguleikar á hleöslunýt
ingu eru þvl mjög góðir og afgreiðsluhraöi vegna lest
unar og losunar mun meiri en á hinum eldri. hefð-
bundnuskipum.
M/s Skaftá er annaö skip félagsins sem ber það nafn
en m/s Skaftá fyrri var seld griskum kaupendum ný
verið og afhent í Hamborg um miðjan janúar. Var
söluverð þess skips 3.8 milljónir danskra króna.
Skipstjóri hinnar nýju Skaftár er Sveinn Valdimars
son og tók hann formjega móti skipinu auk fulltrúa út-
gerðarinnar, þeirra Alberts Guðmundssonar stjórnar-
formanns og þeirra Björgólfs Guðmundssonar og
Ragnars Kjartanssonar framkvæmdastjóra félagsins.
50% hœkkun á fjárhags-
áætiun í Njarðvík
Bæjystjórn Njarðvlkur afgreiddi á fundi slnum
þriðjudaginn 10. febrúar fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir árið 1981.
Áætlunin var lögð fram til fyrri umræðu 22. des. sl.
og almennur borgarafundur um áætlunina var hald
inn laugardaginn 7. febrúar.
Niðurstöðutölur áætlunarinnar eru kr. 12.607.000
og er hækkunin frá fyrra ári tæp 50%.
Á siðasta ári var lagt slitlag á 1165 metra af götum
og hefur þá verið lagt slitlag á 68,8% gatnakerfisins. Á
siðasta ári voru í byggingu 94 ibúðir, 67 bílgeymslur
og 12 byggingar ti! iðnaðar og fyrir opinbera aðila.
Meðalstærð fullgerðra ibúða á árinu var 106 m!. Ibúar
i Njarðvík um slðustu áramót voru tæplega 2000 og
hafði fjölgað um 90 manns, eða 4,67% frá fyrra ári.
„Lífgunardagur" JC
21,marz1981
Vegna tíöra slysa og dauðsfalla af völdum hjarta-
stopps beitir JC-hreyfingin sér fyrir kennslu I hjarta
hnoði um þessar mundirmeðal félagsmanna sinna.
Útbúnar hafa veriö verkefnabækur sem innihalda
leiðbeiningar um hvernig standa bcri að undirbúningi
slíks námskeiðs og hefur þeim verið dreift til ailra 32
aðildarfélaganna en verkefnið er stutt af Liftrygginga-
félaginu Andvöku. Vonandi verður þetla kvcikjan aö
almennari áhuga um þetta mál.
Verkefni þetta hefur hlotið jákvæöar undirtektir
frammámanna I Rauöa krossi Islands. Slysavarna-
félagi lslands og Landssambandi Hjálparsveita skáta
auk lækna. JC hefur farið þess á leit við þessa aðila að
þeir riti um þetta efni I blöð og tímarit seinni hluta
marzmánaðar.
Landssamtökin
Þroskahjálp
Drcgið hefur verið i almanakvhappdræiti Þroska-
hjálpar fyrir fcbrúar og upp kom númcrið 28410.
Vinningur i janúar. scm kom á númer I2I68. er
ósóitur. einnig vinningar frá árinu 1980. aprll 5667.
júli 8514 og október 7775.
Frá MÍR-salnum
Skrifstofa og bókasafn MlR. Mcnningartcngsla
íslands og Ráðstjórnarrikjanna. aó Lindargötu 48. 2.
hæö. eru opin á mánudögum og mfðvikudögum kl.
17— 18.30. Kvikmyndasýningar eru i MÍR salnum
flesta laugardaga kl. 15. Aðgangur öllurn heimill.
Færeyska, norska og sænska
á sömu snældu
Á vegum málaársnefndar Norræna félagsinscr komin
út snælda með færeysku. norsku og sænsku tali.
Henni fylgir kver með þeim textum i lali og tónum
semásnældunnieru.
Hörður Bergmann námsstjóri haför umsjón með
gerð snældunnar. Efnið völdu og fluttu að hluta Ingi-
björg Johannessen. færeyska efnið. Björg Julin það
norska og Sigrún Hallbeck sænska efniö.
Bréf hafa verið rituð öllum skólum landsins og þeim
boðin snældan og kverið fyrir 50 kr. Afgreiðsla er á
skrifstofu Norræna félagsins. Er öllum að sjálfsögðu
falt þetta efni fyrir ofangreint verð.
Þá hefur menntamálaráðuneytið meö bréfi vakið
athygli á þvl að í boði er að halda fyrirlestra í fram-
haldsskólum landsins um óskyldar tungur á Norður-
löndum, um finnsku (Rosmari Rosenberg lektor), um
samamál og þjóðhætti sama (Haraldur Ólafsson dós-
ent), um grænlenzku og þjóðhætti og menningu
Grænlendinga (Einar Bragi skáld).
Skrifstofa Norræna félagsins i Norræna húsinu
annast alla fyrirgreiðslu.
Jakob Gislason heiðursfélagi
Stjórnunarfélags íslands
Aðalfundur Stjórnunarfélags Islands var haldinn að
Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 22. janúar og lauk
félagið þá tuttugasta starfsári sinu. Fundinn sóttu uni
60 félagar og var fundarstjóri Jón H. Bergs-forstjóri.
I skýrslu Harðar Sigurgestssonar formanns félags-
ins kom fram að starfsemi þess hefur verið mjög um
fangsmikil á liðnu ári. Meðal vcrkefna má nefna að
efnt var til ráðstefnu um efnið lsland árið 2000 og
námstefna um rekstur veitingahúsa. sölu á erlendum
mörkuðum og hagræðingu í heilbrigðisstofnunum og
spástefnu þar scm spáð var fyrir um þróun efnahags
mála árið 1981.
Haldin voru 35 stjórnunarnámskeið með innlcnd
um leiðbeinendum og var þar m.a. fjallað um fjölmörg
efni sem ckki hafa verið tekin fyrir á námskeiðum
áður.
Fjölmörg önnur starfsemi fer fram á vegum félags-
ins en áöurnefnt ráðstefnu- og námskeiðahald.
Á aðalfundinum var stjórn félagsins endurkosin.
Formaður félagsins er Hörður Sigurgestsson en aðrir i
stjórn Ásmundur Stefánsson, Björn Friðfinnsson.
Davið Gunnarsson. Jakob Gislason, ólafur B. Ólafs-
son. Óskar H. Gunnarsson, Steinar Bcrg Björnsson og
Tryggvi Pálsson. I framkvæmdaráð félagsins voru
kjörnir: Erlendur Einarsson, Eyjólfur Isfeld Eyjólfs-
son, Guömundur Einarsson. Jón Sigurðsson, Jón H.
Bergs, Kristin Tryggvadóttir, Kristján Sigurgestsson.
Otto A. Michelsen. Ragnar S. Halldórsson. Snorri
Jónsson, Sveinn Björnsson og Valur Valsson.
Á aðalfundinum var Jakob Gislason fv. formaöur
Stjórnunarfélagsins gerður aö heiðursfélaga Stjórn-
unarfélags Islands. Jakob Glslason var aðalhvata-
maður að stofnun Stjórnunarfélags lslands er félagið
var stofnað, 24. janúar 1961. Fyrir stofnfundinn hafði
Jakob um nokkurt skeið kannað undirtektir manna
fyrir stofnun félagsins. Sá grundvöllur sem þá var
lagður er enn sá stofn sem félagið stendur á.
Jakob Gíslason var fyrsti formaður félagsins og
gegndi formannsstarfi til.ársins 1973. eða í alls 12 ár.
og á hann enn sæti í stjórn íélagsins.