Dagblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
15
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Línurnarteknar að
skýrast í Frakklandi
Eftir leikina i gærkvöld hafa línurnar skýrzt all
verulega i riðlunum.
A-RIÐILL
Svíþjóð — ísland
Pólland — Austurriki
Frakkland — Holland
16— 15
25— 9
17— 16
Pólland
Svíþjóð
ísland
Frakkland
Holland
Austurríki
3 3 0 0 81—52 6
3 3 0 0 59—50 6
3 2 0 1 65—46 4
3 1 0 2 58—65. 2
3 0 0 3 53—69 0
3 0 0 3 39—73 0
B-RIÐILL
Tékkóslóvakia — Danmörk
Sviss — ísrael
Búlgaría — Noregur
17—15
21—19
15—14
Tékkóslóvakía
Sviss
Búlgaria
Danmörk
Noregur
ísrael
3 3 0 0 66—43 6
3 3 0 0 57—53 6
3 2 0 1 53—52 4
3 1 0 2 57—53 2
3 0 0 3 44—54 0
3 0 0 3 49—71 0
í kvöld verða þrír leikir í báðum riðlunum. I A-riðl-
inum mætast Holland og Austurríki, island og
Frakkland i Besancon og svo Svíar og Pólverjar í
Chalon. í B-riðlinum leika Búlgarir og ísraelar og
Tékkar og Svisslendingar i Nantes og svo Danir og
Norðmenn i Niort.
Fari svo í kvöld að Pólverjar vinni Svía og íslend-
ingar Frakka getur islenzka liðið enn krækt sér í 2.
sætið með sigri yfir Pólverjum í lokaleiknum á
föstudagskvöld. Danir eru komnir í klípu i B-riðlin-
um eftir tapið fyrir Tékkum. Þeir verða að vinna
bæði Norðmenn og Svisslendinga til að eiga mögu-
leika á að komast áfram.
Fjör í f élagaskipt-
unum hjá KSI
Valsmenn hafa nú fengið enn einn leikmanninn til
liðs við sig fyrir komandi keppnistímabil. Er það
tengiliðurinn Njáll Eiðsson, sem í fyrra lék með
Þrótti á Neskaupstað og þar áður með KA. Njáll er
mjög sterkur tengiliður og ælti að geta orðið Vals-
mönnum góður liðsauki. Þá hefur Andrés Kristjáns-
son gengið aftur yfir til FH, en hann var með marka-
hæstu mönnum 2. deildarinnar í fyrra. Daníel
Gunnarsson, sem skipti úr Haukum yfir i Þrótt fyrr í
vetur, hefur beðið um félagaskipti en i hvaða félag
hann gengur er ekki Ijóst.
Mikill fjöldi leikmanna hefur skipt um félag að
undanförnu og hefur sjaldan eða aldrei verið eins
mikið um skipti. Einir átta leikmenn hyggjast leika
knattspyrnu í Noregi eða Svíþjóð svo ekkert lát
virðist vera á því fári hérlendis.
-SSv.
íþróttir
Southampton
tapaði óvænt
Sigurganga Southampton í ensku 1. deildinni fékk
snöggan endi í gærkvöld er Brighton sigraði Dýrling-
ana 2—0 á Goldstone Ground I Hove. Það voru þeir
Gary Williams (vítaspyrna) og Giles sem tryggðu
Brighton sigurinn, sem kemur liðinu ákaflega vel í
hinni hörðu fallbaráttu 1. deildar. Þá sigraði Arsen-
al Manchester City 2—0 á llighbury. Mörk Arsenal
skoruðu þeir Brian Talbot og Alan Sunderland. Þá
sigraði Bolton Oldham 2—0 í 2. deildinni.
1860 Miinchen
aðfaraáhausinn!
ÓILkt hafast þau að, Miinchenarliðin tvö stóru,
Bayern og 1860. Á meðan Bayern baðar sig í frægð-
arijómanum berst 1860 Miinchen í bökkum, jafnt í
hinni hörðu keppni Bundesligunnar sem fjárhags-
lega.
Félagið tilkynnti leikmönnum sínum í gær að það
gæti ekki greitt þeim kaupið sitt fyrir þennan mánuð
vegna skulda, sem það þarf að standa skil á. Félagið
skuldar nú sem nemur 4,4 milljónum þýzkra marka
og i spjalli við fréttamenn í gær sagði fyrirliði liðs-
ins, Horst Wohiers: Leikmenn verða allir sem einn
að leggjast á eitt um að bjarga félaginu frá falli og
reyna að skilja stöðuna.
Sigurður
Sverrisson
Með 42—36 sigri sinum yfir IR á sunnudagskvöldið tryggðu KR-dömurnar hér að ofan sér sigurinn i I. deild kvenna i
körfuknattleik í ár. Svo hörð var baráttan að ef ÍR hefði unnið þennan leik hefðu liðin þrjú, KR, ÍR og ÍS, öll orðið jöfn
aðstigum. DB-myndS.
Þessir þrír strákar hér að ofan, Sævar Leifsson, Guðlaugur Einarssonog Helgi Þorbjörnsson, allir i 2. flokki KR, munu
innan skamms halda til Liverpool þar sem þeir munu fá að æfa hjá ensku meisturunum um tíma. Er ekki að efa að dvölin
þar mun verða þeim félögum fróðleg. Myndin var tekin af þeim á æfingu í gærkvöld. DB-mynd S.
Afar vel heppnuð
minniboltakeppni
Dagana 14. og 15. febrúar sl. fór
fram í Borgarnesi svokallað febrúar-
mót í minnibolta. Þetta er f annað sinn
sem mótið er haldið og er áhugi fyrir að
hafa það sem árvissan atburð. Til
mótsins býður Ungmennafélagið
Skallagrimur i samstarfi við Körfu-
knattleikssamband íslands. Eins og
fyrr var mikil þátttaka i mótinu og
sendu sex félög ellefu lið til keppni.
Þátttakendur voru því i allt eitthvað á
annað hundrað. Þátttakendurnir
skemmtu sér vel og tóku hlutverk sitt
sem upprennandi keppnisfólk í körfu-
knattleik mjög hátiðlega en eins og
kunnugt er er minniboltinn leikinn efiir
sérstökum leikreglum og er þar í fyrir-
rúmi að allir séu með i leiknum. Leikið
er í tveimur flokkum.
í eldri flokki (10 og 11 ára) sigraði A
lið KR, A. lið ÍR varð i öðru sæti og
Valur í þriðja. Önnur lið i eldra flokki
voru auk heimamanna B og C lið KR,
B lið ÍR, UBK og Haukar. í yngri
flokki (9 ára og yngri) sigruðu ÍR ingar
og UMFS í öðru sæti.
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttaritara
DB í Grenoble:
Aukakast Sigurðar Sveinssonar af
vallarmiðju eftir að leiktíma var lokið
gat ekki fært okkur jafntefli i leiknum
gegn Svíum. Til þess var færið of langt
svo tsland mátti sætta sig við einn
ósigur enn gegn Svíum, 15—16, þótt
mjótt hafi verið á mununum. En þrátt
fyrir tapið sýndi það sig að við höfum á
að skipa einu af sterkari landsliðunum i
þessari keppni. Svíum, sem taldir eru
mjög góðir, var veitt hörð mótspyrna,
en þvi miður ekki alveg nægilega
grimm til að knýja fram vinninginn,
sem gat eftir gangi leiksins fallið á
hvorn veginn sem var. Það er samdóma
álit flestra að knáleg markvarzla Claes
Hellgren hafi ráðið úrslitum. Vel er
hægt að taka undir það, en hinu er ekki
að leyna, að stundum fékk hann sin
óskaskot á markið — háskotin — i stað
þess að skjóta niðri eins og sagt er á
handknattleiksmáli. Íslenzka liðið er
þar með fallið úr fyrsta sætinu i sínum
riðli niður i það þriðja, en úrslitin geta
ráðizt i leiknum við Frakka, hvort liðið
á sér nokkra von i flmm efstu sætin.
Frakkar hafa fullan hug á að krækja
sér i annan sigur, en þeir unnu Hol-
lendinga i gær með 17—16. Islenzka
liðið á hins vegar langa ferð fyrir
höndum í leikinn við Frakkana, sem
leikinn verður í Besancon. Fremur
óheppileg áætlun fyrir okkar menn
eftir erfiðan leik.
Svíarnir voru greinilega með hjartað
i buxunum og það voru ekki norræn
vinahót sem þeir sýndu, en okkar menn
hefðu gjarnan mátt svara í sömu mynt
og gefa þeim ekkert eftir í vamar-
leiknum. Gífurleg spennaþrúgaði bæði
liðin svo að fyrstu sóknirnar mis-
heppnuðust, en svo braut Basti
Rasmussen ísinn og skoraði, 1—0, með
smuguskoti fram hjá Einari Þorvarðar-
syni, sem Hilmar Björnsson setti í
markið Svíunum á óvart. Okkur
íslendingum til mikillar hrellingar
fylgdu tvö mörk Svía eftir, sem Sten
Sjögren og Göran Bengtsson skoruðu.
Fyrsta mark íslands kom úr vítakasti
eftir að brotið hafði verið á Stefáni
Halldórssyni á línunni. Skömmu síðar
læddi Páll Björgvinsson knettinum á
milli sænsku risanna svo að staðan var
allt í einu orðin 2—3. Eftir þetta fór
heldur að færast líf í tuskurnar. Einar
varði vítakast frá Ribendahl sem lítið
kvað að í leiknum. Páli var vísað af
leikvelli í 2 mínútur og aftur skömmu
síðar. En Þorbergur, Guðmundur
Guðmundsson og Axel jöfnuðu, 5—5,
með mjög fallegum mörkum. Síðan
náði ísland forystu með þrumuskoti
Bjarna undir þverslá og marki Axels,
sem kunni á Hellgren, og skaut í gólfið.
Eins og oft vill við brenna hjá
íslenzka landsliðinu setur forysta þess
gegn sterkum liðum það oft úr
jafnvægi. Eitthvert úrræðaleysi kemur
í sóknarleikinn og það er eins og enginn
þori að taka neina áhættu og skjóta svo
að oft jaðrar við að dæmd sé töf á
liðið.
Svíar jöfnuðu fljótlega, og höfðu
eitt mark yfir í hálfleik, en Axel
jafnaði strax i upphafi síðari hálfleiks,
9—9, en hann var mjög virkur í
leiknum. Síðan var aftur jafnt, 10—10,
og þá kom sá kafli leiksins, sem úr-
slitum réði. Svíar skoruðu þrjú mörk í
röð, en landanum mistókst allt. Ótíma-
bær lin skot, sem Hellgren varði, mis-
Hvað sögðu menn eftir tapið í gærkvöldi?
Heimsmet
Eitthvað virðist framkvæmdin hjá
Frökkum á Evrópumeistaramótinu i
frjálsum íþróttum um helgina i Gren-
oble hafa farið úr skorðum. Hlaupar-
arnir i 3000 m hlaupinu hlupu hring of
lítið vegna þess, að eitthvað fór úr-
skeiðis í tölvubúnaði. Klukkan hringdi
hring of fljótt og hlaupararnir tóku á
sprett. Engir tímar voru gefnir upp eftir
hlaupið.
Þá kom í Ijós löngu eftir að mótinu
lauk, að Frakkinn Thierry Vigneron
hafði sett nýtt heimsmet innanhúss.
Tilkynnt hafði verið að hann hefði
stokkið 5:70 m — jafnað heimsmet sitt
— en svo kom i Ijós, að hæðin sem
hann hafði stokkið var 5.71 m. Heims-
met. Frönsku áhorfendurnir urðu því
af þeirri ánægju að getað fagnað nýju
heimsmeti.
heppnað markskot af línu — meira að
segja dæmd töf á Svía, sem voru einum
færri, en allt kom fyrir ekki. Tíminn til
leiksloka fór því í að reyna að brúa
bilið. Það tókst um sinn, 14—14, en
lánið lék enn við Svía. Peter Olofsson
og Basti Rassmussen skoruðu tvö mörk
og innsigluðu sigurínn. Smugumark
Axels dugði ekki til að krækja í jafn-
tefli — þar þurfti tvö mörk.
Beztan leik í gær áttu þeir Páll, Þor-
bergur, Axel og Stefán Halldórsson.
Guðmundur var einnig góður. Bjarni
náði sér ekki á strik og Siggi Sveins alls
ekki. Mörkin. ísl.: Axel Axelss. 4, Þor
bergur Aðalsteinsson 4/1, Guðmundur
Guðmundsson 2, Páll Björgvinsson 2,
Ólafur H. Jónsson, Bjarni Guðmunds-
son og Sigurður Sveinsson eitt hver.
Svíþjóð: Skögren 5, Rasmussen 5,
Olofsson 3, Abramsson, Bengtsson og
Nordgren eitt hver. Ribendahl skoraði
ekki mark.
„ÞETTA VAR LINKIND?
einn með 12
Dönsku landsliösmcnnirnir Steen Tilgren, Jens Erik Roepstroff og Erik Rasmussen við komuna til Frakklands. Tilgrcn
skoraði þrjú mörk gegn ísrael, Jens Erik eitt, en Erik Rasmussen þrjú.
Michael Berg — hetja Dana
f rá B-keppninni 1978
— Féll frá ákvörðun sinni að leika ekki framar með danska
landsliðinu þegar Morten Stig Christensen f ingurbrotnaði.
Berg hef ur oft reynzt íslendingum erf iður
„Þetta gekk ekki — fingurinn fór
ekki bara úr liðnum. Hann er brot-
inn,” sagði danski landsliðsmaðurinn
kunni Morten Stig Christensen, þegar
hann hringdi í danska landsliðsþjálfar-
ann, Leif Mikkelsen, nokkrum klukku-
stundum áður en danska landsliðið
hélt til Frakklands i B-keppnina i hand-
knattleik. Morten Stig hafði brotið
fingur í leik SAGA og Holte sl.
fimmtudag.
Leif Mikkelsen var í nokkrum vanda
staddur vegna þessa atviks. Hann tal-
aði fyrst við Thomas Pazyj, Skovbakk-
en. Bauð honum stöðu í liðinu en fékk
þvert nei. Þá bað Mikkelsen Michael
Andersen, Rödovre, að setja sig i við-
bragðsstöðu meðan hann reyndi að fá
Michael Berg, Holte, í Frakklands-
förina.
Michael Berg var hetja danska liðsins
á HM 1978 i Danmörku, þegar Danir
hlutu verðlaunasæti, en eftir ólympíu-
leikana í Moskvu sl. sumar tilkynnti
Berg að hann væri hættur að leika með
danska landsliðinu. Hefur hins vegar
staðið sig vel með Holte i vetur.
Landsliðsþjálfarinn leitaði að Berg
alla aðfaranótt föstudagsins 20. febrú-
ar. Flugvélin til Frakklands átti að fara
kl. 12 þann dag frá Kastrup. Mikkelsen
ók bíl sínum um Sjáland en ekki fann
hann Berg. Bað síðan framkvæmda-
stjórann á vinnustað Berg um skilaboð
til hans. Hélt síðan heim og út á flug-
völl. Hann var búinn að vera þar í eina
mínútu, þegar skilaboð komu frá kapp-
anum, að hann væri til í slaginn í
Frakklandi. Michael Berg náði þó ekki
sömu flugvél og félagar hans í danska
landsliðinu. Hélt hins vegar til Frakk-
lands með næstu fiugvél, kl. 15.00 til
Toulouse.
Þessi mikli markaskorari lék svo með
danska liðinu gegn ísrael á laugardag
en átti heldur slakan leik. Danir unnu
auðveldan sigur án þess að ná góðum
leik. 22—15 að viðstöddum 400 áhorf-
endum í litlu borginni Albi í Suður-
Frakklandi. Berg skoraði tvö mörk í
leiknum en markahæstir í danska lið-
inu voru þeir Carsten Haurum og Poul
Kjær Poulsen með fjögur mörk hvor.
hsím.
Gunnar Hákonarson, þrítugur
starfsmaður hjá Þórði Óskarssyni hf. á
Akranesi, var sá eini er hafði 12 rétta í
síðustu leikviku Getrauna. Fyrir get-
spekina er Gunnar rúmlega 80.000 ný-
krónum ríkari. Þetta er næsthæsti
vinningur sem upp hefur komið í Get-
raununum en skömmu fyrir jól fékk
ungur Reykvíkingur sem svarar 88.000
nýkrónum fyrir 12 rétta.
Að þessu sinni voru 31 með 11 rétta
og fær hver þeirra í sinn hlut krónur
1.112. Væntanlega hefur það veriö
leikur Tottenham og Leicester, sem
slegið hefur menn út af laginu en
greinilega ekki Gunnar því hann var
sem fyrr sagði sá eini sem hafði alla
leikina rétta.
-SSv.
Þeir hvfldu
Þeir leikmanna íslenzka liðsins sem
ekki léku með i gærkvöld voru þeir Páll
Ólafsson, Jens Einarsson, Atli Hilm-
arsson, sem ekki hefur enn leikið með i
keppninni, og Steinar Birgisson.
Páll fer í
„dóptest”
Pólverjar ekki
sannfærandi
Það vakti athygli mína hér í Gren-
oble í gærkvöldi er Pólverjar og
Austurrikismenn léku, að þeir hafa alls
ekki neitt verulega sterku liði á að skipa
þrátt fyrir öruggan sigur, 25—9. Það
tók þá 6 mínútur að finna leiðina í
austurriska markið og mörg marka
þeirra voru með miklum heppnis-
stimpli. Um leið og Klempel og Kal-
uzinski fóru út af hrökk leikur liðsins f
baklás. Hins vegar varði markvörður
liðsins eins og berserkur. -emm.
Frá Magnúsi Gfslasyni,
fróttamanni DBf Grenoble:
Júlfus Hafstein, formaður HSÍ,
sagði að íslenzka liðið hefði ekki náð
að sýna hvað i þvi býr og vafalaust
hefði góð markvarzla Hellgren ráðið
úrslitum. „Eftir þetta tap gegn Svíun-
um er það bara númer eitt, tvö og þrjú
að sigra Frakkana í kvöld og næsta
verkefnið er svo að leika við Pólverj-
ana. Það er ekki útilokað að sigra þá.
Axel Axelsson var heldur óhýr yfir
úrslitunum. „Það var linkind að vinna
ekki þennan leik. Við gelum með meiri
baráttuvilja unnið Svíana en ekki með
minnimáttarkennd, eins og mér fannst
vera i liðinu. Liðið lék heldur ekki nógu
yfirvegað þegar mest á reyndi og því
fór, sem fór.”
Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari
sagði að leikurinn hefði verið jafn og
sigurinn getað lent hvorum megin sem
var. „Það tókst ekki að ná fram þeim
styrkleika, sem í liöinu býr því einstaka
ieikmenn náðu sér einfaldlega aldrei á
strik í leiknum. Þess vegna verða ein-
hverjar breytingar á hópnum fyrír
næsta leik en það verður nú engin byit-
ing, með þeim sem héma eru."
Stsinar Birgisson, einn þeirra er
hvíldi i þessum leik, taldi að miklu
Setti heimsmet
ístangarstökki
Francie Larrieu, bandaríska hlaupa-
konan kunna, setti nýtt heimsmet i
2000 metra hlaupi innanhúss á móti í
Edmonton í Kanada á laugardag.
Hljóð á 5:55.2 mín. Eldra metið átti
Debbie Pearson, USA, og það var
6:04.8 mín.
Wilson Waigwa, Kenýa, sigraði í
míluhlaupi á mótinu. Hljóp á 3:58.2
min. Johnny Walker, Nýja-Sjálandi,
varð annar á 3:58.6 mín. Ray Flynn, ír-
landi, þriðji á 3:59.9 mín. en írinn
Eamon Coghlan, sem setti nýtt heims-
met á vegalengdinni i Kaliforníu á
föstudag, varð fjórði og siðastur á
4:18.5 min. Peter Lemashon, Kenýa,
sigraði hinn fræga landa sinn, Mike
Boit, á endasprettinum í 800 m hlaupi.
Hljóp á 1:48.5 mín. en Boit á 1:49.2
mín.
Skagamaður
meiri ákveðni og festu þyrfti í liðið og
það hefði sýnt sig að menn hefðu ekki
farið eftir fyrirmæium. „Þess vegna
komu upp þessir ráðleysiskaflar þegar
enginn vildi taka áhættuna.”
Kurt Lennart, landsliösþjálfari Svía,
var að vonum kátur og hress yfir úrslit-
unum. „Það er gott að vera búinn með
leikinn við íslendinga. Þetta var jafn og
spennandi leikur þar sem sigurinn gat
alveg eins lent íslands megin. Hellgren
vann leikinn fyrir okkur. Eg held að við
ættum alveg að geta unnið Pólverj-
ana,” og í sama streng tók þjálfari
LUGI, Bertil Andersen, sem er aðstoð-
armaður landsliðsþjálfarans i Frakk-
landi.
Claes Hellgren var alveg himinlif-
andi yfir sigrinum en hefði þurft að
beita sér að fullu til að verja mörg skot
íslendinganna en önnur hafi líka veríð
á bezta stað og séu ágæt upphitun
Varðandi sigur í riðlinum taldi hann
Svíana eiga góða möguleika og geta
lagt Pólverjana að velli.
Cibona
úrleikígær
Cibona, Zagreb, sem voru mótherjar
Valsmanna í Evrópukeppni meistara-
liða hér fyrr í haust sigruðu í gær
Barcelona frá Spáni 79—75 í undanúr-
slitum keppninnar. Sigurinn dugði þó
Cibona ekki til að komast i úrslitin því
Barcelona vann fyrri leik liðanna með
82 stigum gegn 75. í gær leiddi Cibona
44—38 i hálfleik en Spánverjunum
tókst að laga stöðuna í s.h. nóg til að
komast í úrslitin.
Eins og venja er til á stór-
mótum eru nokkrir einstakling-
ar teknir i svonefnt „dóptest”.
Verða þeir þá að afhenda þvag-
prufu, sem síöan er rannsökuð
með öllum kúnstarínnar regl-
um. Það kemur i hlut Páls
Björgvinssonar í dag að pissa í
glasið, en ekki ætti að þurfa gð
óttast neitt. Ákaflega sjaldan
hafa komið upp tilfelli hjá
handknattleiksmönnum þar
sem þeir hafa verið sekir
fundnir um neyzlu bannefna.
Cruyff fær 5000 pund
á leik hjá Leicester
—samkomulag tókst og leikur Cruyff með liðinu á laugardag
ÖHum á óvart tókust samningar á
milli Johan Cruvff og Leicester í gær-
dag um að knattspymusnillingurinn
Johann Cruyff mun ylja áhorfendum á Filbert Street á laugardag með leikni sinni.
myndi leika með Leicester og þiggja að
launum 5000 sterlingspund fyrir hvera
leik. Samningurinn er ekki bundinn til
ákveðins tima og geta báðir aðilar rift
honum með litlum fyrirvara.
Leicester stendur nú í ströngu í fall-
b.iráttunniíensku 1. deildinni og fyrir
mánuði virtist liðið dæmt til að falla
niður. Þrir sigrar í sl. fjórum leikjum,
gegn Liverpool og Tottenham á útivöll-
um og Manchester United á heimavelli
hafa hins vegar lagað stöðuna verulega
þótt liöið sé enn í bullandi falihættu.
Um sl. helgi kjálkabrotnaði aðal-
markaskorari liðsins, Jim Melrose, og
það hefur e.t.v. þrýst á forráðamenn
félagsins að gera eitthvað róttækt.
Arsenal, Brighton og Chelsea höfðu
öll reynt ákaft að fá Cruyff til liðs við
sig en án árangurs. Það kom þvi geysi-
lega á óvart í gær er tilkynnt var að
samningar hefðu tekizt. Cruyff mun
leika með Leicester gegn Nottingham
Forest á laugardag og er ekki að efa að
mikill fjöldi áhorfenda mun leggja leið
sína á völlinn til að berja kappann
augum. Leicester þarf að meðaltali um
3.500 fleiri áhorfendur á hvern leik til
að borga kostnaðinn við Cruyff og for-
ráðamenn félagsins gera sér góðár
vonir um að svo takist.
írar lágu á
heimavelli
Wales vann írland 3—1 í vináttu-
landsleik i knattspyrnu í Dyflini í gær-
kvöld. írland náðí for.vstu með marki
Tony Grealish, en þeir Paul Price, sem
lék sinn fyrsta leik með velska liðinu,
Terry Yorath og Walsh svöruðu fyrir
Wales. Áhorfendur voru 15.000.
Cruyff lék lengst af með Ajax frá
Amersterdam, en gekk síðan til liðs við
spænska stórliðið Barecelona. Þaðan lá
leiðin til Bandaríkjanna þar sem hann
lék með Los Angeles Aztecs og síðan
Washington Diplomats. í haust sneri
hann aftur til Hollands, og þá til Ajax,
en lék ekki með liðinu. Hann var í silf-
urliði Hollendinga á HM 1974 og aftur
1978, en hefur ekki leikið í landsliði
Hollands síðan þá.
-SSv.
Melboume
hættirvið
Melbourne í Ástralíu dró sig í gær til
baka í kapphlaupinu um ólympíuleik-
ana 1988. Þá eru aðeins Seoul og
Aþena eftir off sú hugmynd að halda
leikana alltaf í Aþenu hefur á undan-
förnum vikum fengið aukinn meðbyr.
Sumarleikarnir 1984 verða haldnir í
Los Angeles.
Francis á ný
Queen’s Park Rangers ætlar sér
greinilega aftur í 1. deildina og til að
styrkja lið sitt enn frekar keypti QPR
fyrrum leikmann sinn, Gerry Francis,
frá Crystal Palace fyrir 150.000 sterl-
ingspund. Palace keypti Francis fyrir
450.000 pund fyrir tveimur árum
tæpum og hann lék 59 leiki með liðinu
en náði sér aldrei almennílega á strik.
Francis hefur leikið 12 landsleiki fyrir
Englands hönd — þann siðasta 1977.
CLAES HELLGREN VAR HINDRUNIN