Dagblaðið - 25.02.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR 1981.
17
ELIN
ALBERTSDÓTTIR
—eru með 330 ref i nú og eiga von á 1800-2000 hvolpum í maí
„Ég sótti fyrst um að fá lóð í
Hafnarfjarðarhrauni undir starfsem-
ina, þar sem nú er minkabú, en fékk
neitun. Síðan var okkur bent á
þennan stað. Við sóttum um og
fengum,” sagði Tómas Stefánsson
refabússtjóri á bænum Krísuvík í
samtali viðDB.
Tómas keypti ásamt fjórum öðrum
gömul en stór gróðurhús sem standa
við bæinn Krísuvík. Þar hafa þeir nú
komið 330 refum sem allir eru inn-
fluttir frá Skotlandi. Af þeim 330
refum eru 80 karldýr.
„Við eigum von á fyrstu hvolpun-
um í maí,” sagði Tómas ennfremur.
,,Ég á von á því að það verði á bilinu
1800—2000 hvolpar sem við fáum.”
Tómas og félagar hans þurftu lítið
sem ekkert að gera við gróðurhúsin í
upphafi annað en að klæða grindurn-
ar svo stofnkostnaður þeirra við búið
var ekki svo ýkja mikill.
Áður en Tómas setti á §tofn refa-
búið í Krísuvík nú i desember var
hann með tilraunabú í Grenivik. „Ég
hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir
refum. í fyrstu hafði ég hugsað mér
minkarækt en hætti síðan við það.
Ég fór til Skotlands í fyrsta skipti
fyrir þremur árum til að kynna mér
refina, en allir refirnir eru þaðan.
Þeir eru flestir silfurrefir en nokkrir
Shadow.”
Er við DB-menn gengum um og
skoðuðum refina kom það okkur á
óvart hvað sumir voru forvitnir, aðrir
hræddir og þriðji hópurinn gjörsam-
lega áhugalaus fyrir umhverfinu. En
„sætir” voru þeir refírnir, það
verðurekki afjteim skafið, enda feld-
irþeirraafar vinsælir.
mjög dýr, komin hingað til lands'
kostar stykkið hvorki meira né minna
en 1300 nýkrónur.
Tómas Stefánsson er lærður
smiður og það kemur honum vissu-
lega vel við uppbyggingu búsins. „Ég
hafði ekki nógu mikinn áhuga fyrir
smiðsstarfinu,” segir hann. Tómas
hefur hjá sér einn vinnumann, Jón
Valgeir Kristinsen, og starfa þeir við
búið alla virka daga vikunnar. „Við
Séð inn ganginn i einu „gróðurhúsinu" þar sem nú eru mörg hundruð refir
samankomnir. Búrin hafa eigendurnir sjálfir gert eins og flest það sem þurfl
hefur að gera.
sveltum dýrin á sunnudögum vegna
þess að komið hefur í ljós að ef dýrin
eru horuð á fengitímanum gjóta þau
mun fleiri hvolpum,” sagði Tómas.
Búr dýranna hafa þeir eigendurnir
sjálfir gert og flest það sem þurft
hefur að gera. En ennþá er refabúið í
uppbyggingu og á eflaust eftir að
verða mun stærra er frá líður. Krísu-
vík er líka ákjósanlegur staður fyrir
slíka rækt. Einmitt á sama bæ er
mikið svínabú sem verið hefur í frétt-
um upp á siðkastið, en eigendur eru
aðrir.
Því leynir sér ekki að Krísuvík er
góður staður til hvers konar ræktun-
ar. Upphaflega keypti Hafnarfjarð-
arbær jörðina og hugðist setja þar á
stofn mikið kúabú, en úr þvi varð
aldrei. Hins vegar voru þarna mikil
gróðurhús á sínum tíma þar sem
ræktað var alls kyns grænmeti, enda
hiti þarna mikili í jörðu. í gamla daga
var líka á bænum sumarheimili fyrir
börn og skátar hafa löngum lagt leið
sína þangað.
-F.LA.
Var einhver að tala um að refir væru
Ijótir? Neí, það getur ekki verið því
þeir eru með fallegri dýrum eins og
sjá má á þessari fegurðardís.
DB-myndir: Einar Olason.
Fegurðardisin i hópnum er hér i höndum eiganda sins, Tómasar Stefánssonar.
Allir refirnir eru frá Skotlandi og eru silfurrefir og Shadow.
f
Aðeins einn ref hafa þeir misst á refa-
búinu en hann drapst úr krampa. Að
sögn Tómasar er ekki óalgengt að
refir fái krampa en oftast lifa þeir
það af.
Ný mulningsvél sem þeir félagar hafa keypt. Hún grófsaxar matinn en síðan er
hann settur i sérstakan blandara. Á myndinni með Tómasi (til hægri) er vinnu-
maður hans, Jón Valgeir Kristinsen.
Til að taka refina er sett þar til gerð
töng um hálsinn á þeim og síðan
haldið um skottið. Með því móti er
refurinn hjálparlaus gagnvart mann-
inum.
Refabú eru ekki ýkja mörg á land-
inu en áhugi fyrir þessari rækt fer
stöðugt vaxandi. í Eyjafirðinum
einum eru nú starfrækt fjögur refa-
bú. En hvað éta refir? Jú, þeir borða
allan innmat, t.d. slátur og lifur, og
fisk.
Núna éta þeir 100 kíló á dag,
en eftir got i maí verður það eitt og
hálft tonn á dag. Hver tæfa gýtur að
jafnaði fjórum sinnum. Dýrin eru
ÍKrisuvíkeruekkiaðeinssvín:
KEYPTU G0MUL GROÐURHUS
0G RÆKTA NÚ SK0ZKA REF1