Dagblaðið - 09.03.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR9. MARZ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
Snowdon lávarður — hinn konunglegi
hirðljósmyndari. Til hliðar sjáum við svo
árangurinn.
Diarn fyrirsœta
Snowdons lávaröar
Hér sjáum við hinar opinberu
andlitsmyndir af líklega mest mynduðu
konu á Vesturlöndum um þessar
mundir, hinni 19 ára gömlu Diönu
Spencer sem á dögunum trúlofaðist
Karli Bretaprinsi og verður því næsta
drottning Bretlands.
Sá sem tók þessar myndir er enginn
annar en Snowdon lávarður, fyrrum
eiginmaður Margrétar prinsessu. Þrátt
fyrir skilnaðinn heldur Snowdon enn
góðu sambandi við hirðina og mætti
jafnvel kallast hirðljósmyndari.
Brúðkaup Karls og Díönu verður
líklega í lok júli en Lady Di, eins og
brezkir fjölmiðlar kalla hana, hefur
þegar hafið nýtt líf semeinn afmeðlim-
um konungsfjölskyldunnar. Fram að
brúðkaupinu mun hún stunda nám í
drottningarfræðum, þ.e.a.s. henni
verður kennt að vera drottning og
stjórnar Elísabet, væntanleg tengda-
mamma Diönu, kennslunni.
ÓDÝR MUNAÐUR
Helgrar-oe sástiferóir
noróur á Akureyri
FLUGFAR, GISTING OG BÍLALEIGUBÍLL
í EINUM PAKKA A TILBOÐSVERÐI
Helgarpakkinn
/ helgarpakkanum felst flugfar
og gisting í 2—3 nætur auk
bílaleigubíls fyrir þá sem þess
óska.
Helgarpakkinn er ódýr munaður
fyrir þá sem vilja slappa af frá
grámyglu hversdagsleikans eða
lyfta sér upp og njóta lífsins í
nýju umhverfi.
Helgarferð norður á Akureyri er
tilvalið tækifæri til að veita þér
og elskunni þinni notalega til-
breytingu eftir amstur og erfiði
vikunnar.
Þú festir öryggisbeltin og ert
kominn norður eftir 45 mínútur.
Hótel - Gisting
Við bjóðum upp á fjögur hótel,
þar af eitt í Hlfðarfjalli með
glæsilegri skíðaaðstöðu, skíða-
leigu, lyftum og brekkum við
allra hæfi. Tíðar áætlunarferðir
eru í Hlíðarfjall úr miðbæ Akur-
eyrarsem taka aðeins um 15
mfnútur.
Veitinga-og
skemmtistaðir
Þú ættir að geta raðað íþig
bæði mat og drykk fyrir norðan
og valið úr 8 veitingastöðum,
sem veita þér lipra og góða
þjónustu. Hægt er að finna
skemmti- og dansstaði við allra
hæfi, frá diskói til gömlu dans-
anna.
Ýmiss þjónusta
Bílaleiga Akureyrar sendir þér
bíl á völlinn um leið og þú lendir
á Akureyri. Sérstök vildarkjör
með helgarpakka.
Sundlaug Akureyrar með heit-
um pottum og sauna er alltaf
jafn vinsæl. Gufu- og nuddstof-
an í Sunnuhlíð stjanar við þá
sem fá strengi eftir skíði eða
dansleikinn.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar sýnir um
þessar mundir leikritið Skáld
Rósa.
Lukkuferð
Um leið og þú verður þér úti um
kynningarbækling um gistiferð
til Akureyrar ertu orðinn þátt-
takandi íhappdrætti um Lukku-
ferð norður.
Hafðu samband við söluskrif-
stofur okkar og tryggðu þér eintak.
Söluskrifstofur Flugleiöa h.f.
Feröaskhfstofan Úrval v/Austurvöll.