Dagblaðið - 09.03.1981, Qupperneq 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. MARZ 1981.
Að loknu ávarpi boruarsljðrans í Rcykjavik lciddu f>öngumcnn úr Skiðafélagi Reykja- aðstoðar. Hér ganga þcir fremstir Haraldur Pálsson og Einar Ólafsson, en þeir ásamt
víkur gönguna og voru áhugasömum þátttakcndum i skiðadegi fjölskyldunnar til nokkrum félögum úr Skiðafélagi Reykjavíkur lögðu brautirnar um Miklatúnið.
SS=- Skíðaganga á greinilega
^ vaxandi fylgi að fagna
— ungir jafnt sem
aldnir mættu til
leiksá Miklatúni
ognutu útivistar
ígóðviðrinu
Borgarstjórinn í Reykjavik, Egill Skúli Ingibergsson, setti Skiðadag fjölskyldunnar. I
ávarpi sinu benti hann á það að fólk ælti að gefa sér tíma til að lcika sér og nota úti
vistarsvæði borgarinnar. 1
,,Hingað ætla ég sko aftur á
morgun,” sagði einn ungur
göngumaður á Miklatúni á laugar-
daginn. Það var engu líkara en veður-
guðirnir hefðu snúizt á sveif með
skíðafólki á Skiðadegi fjölskyldunnar á
laugardaginn. í stað hvassviðrisins
undanfarna daga var aðeins hægur
vindur og sólin skein í heiði.
Allt fram á síðustu stundu var ekki
ljóst hvort yfirleitt yrði hægt að halda
skíðadaginn, svo mjög hafði Kári
hreinsað allan snjó á brott hér innan
borgarinnar.
Þeir Haraldur Pálsson og Einar
Ólafsson úr Skíðafélagi Reykjavikur
sem um áratuga skeið hafa barizt fyrir
því að fá fólk til að ganga á skíðum
voru komnir með okkur niður á Mikla-
tún snemma á laugardagsmorgun, og
þeir kváðu upp úr með það að það yrði
hægt að halda þar skíðadag. Þeir félag-
ar ásamt nokkrum öðrum félögum úr
Skíðafélaginu hófust síðan handa við
að. merkja göngubrautir og lagfæra
svo allir gætu fengið göngubraut við
sitt hæfi.
Við upphaf skíðadagsins lék Lúðra-
sveit Reykjavíkur nokkur lög undir
stjórn Björns R. Einarssonar á meðan
fólk dreif að, bæði með skíði og eins
kom fólk bara til að njóta góðviðrisins.
Að loknum leik lúðrasveitarinnar
flutti borgarstjórinn í Reykjavík, Egill
Það var mikil þröng í kringum pylsuvagninn við Kjarvalsstaði. Í staðinn fyrir pylsur var það sjóðheitt Carnalion kakó og
Frónkex sem gcstir og gangandi nutu í veðurblíðunni á laugardaginn.
ÍlSP ■ ■
. ■ t ...
WSMsWmA
■
■
.
Um allt Miklatún voru ungir jafnt sem aldnir á ferð. Skeifan austan Kjarvalsstaða var
vinsæl hjá yngri kynslóðinni og mátti sjá þar alls konar sleða, skfði og snjóþotur á
fullri ferð.
I góðviðringu á laugardaginn stöldruðu margir við og fengu sér heitt kakó og kex, eða bara nutu góða veðursins I skjólinu við
Kjarvalsstaði.
\:
, . *■ fv / 1 L BP SKMw
■M&SIMÆ-MrwMM '■'%!!%% ':t*,&■■■ :#mé* ' Jk. |4Á£j| ” í- Wb:^JT:Sb.1Í 1» w&fii ] r ■ 'áýM'